Dagur - 21.02.2001, Blaðsíða 1
Spáir endalokum
Alþýöus amb ands
Ilaröar ásakanir RSÍ á
hendur TR og VR. Eng-
in framtíðarsýn sögð í
Ara innan ASÍ. Hættir
og fer til AQvaka.
Óvíst um eftirmaim
Guðmundur Gunnarsson for-
maður Rafiðnaðarsamband Is-
lands sakar forystumenn Verslun-
armannafélags Reykjavíkur og
Trésmiðafélags Reykjavíkur um
að hafa nánast hrakið Ara Skúla-
son fráfarandi framkvæmdastjóra
ASÍ úr starfi. Hann segir að ef
fram fer sem horfir í yfirgangi VR
ogTR innan sambandsins sé ljóst
að endalok-ASÍ séu framundan.
Finnbjörn A. Hermannsson for-
maður TR og Pétur Maack vara-
formaður VR vísa þessum fullyrð-
ingum formanns RSÍ á bug.
Til Aílvaka
Ari Skúlason fráfarandi fram-
kvæmdastjóri ASÍ vildi ekki tjá sig
um starfslok sín hjá ASf í gær að
öðru leyti en því að þau væru af-
leiðing af niðurstöðu ASÍ-þings
sl. haust. Þar tapaði hann fyrir
Grétari Þorsteinssyni
forseta ASI í forseta-
kjöri. Ari tekur í næsta
mánuði við starfi sem
framkvæmdastjóri at-
vinnu- og þróunarsviðs
hjá Aflavaka hjá borg-
inni en hann sótti um
starfið sem auglýst var
í sl. mánuði. Ari segir
að á þessum tímamót-
um séu tilfinningar
sínar blendar eftir að
hafa starfað hjá ASÍ í
13 ár.
Áhyggjur af stöðunni
Ein af ástæðunum fyrir harka-
legri gagnrýni formanns RSÍ á
hendur VR og TR má rekja til
miðstjórnarfundar ASÍ fyrir hálf-
um mánuði. Þess utan hafa þess-
ar fylkingar eldað grátt silfur sín í
milli innan ASÍ og er skemmst að
minnast ásakana á báða bóga um
óheiðarleg vinnuhrögð og
flokkspólitískan leðjuslag frá síð-
asta ASI - þingi. Það leiddi m.a.
til þess að RSÍ bauð ekki fram
fulltrúa í miðstjórn
ASÍ.
Pétur Maack vara-
formaður VR segir að
á þessum miðstjórnar-
fundi hefði Halldór
Björnsson starfandi
forseti ASÍ óskað eftir
umræðum utan dag-
skrár um stöðuna inn-
an ASÍ. Þar hefði
starfandi forseti lýst
yfir áhyggjum sínum
vegna fjarveru forset-
ans á sama tíma og
mótframbjóðandi hans í forseta-
kjörinu væri starfsmaður með
stjórnunarstöðu. Hann hefði hins
vegar lagt fyrir tillögu þess efnis
að staðan yrði óbreytt þangað til
Grétar kæmi á ný til starfa og á
það hefðu menn fallist.
Ekki framtíð í Ara
Varaformaður VR segir að á þess-
um fundi hefðu hann og Finn-
björn A. Hermannsson lýst yfir
þeirri skoðun að það væri ekki
framtíðarsýn að Ari yrði áfram
starfsmaður ASÍ. I því sambandi
bentu þeir á að það væri skyn-
samlegt að ræða við Ara um
starfslokasamning, enda hefði
hann lýst því yfir sl. haust að
hann mundi hætta ef hann næði
ekki kjöri til forseta. Hann segir
að aðrir miðstjórnarmenn hefðu
lýst yfir svipaðri skoðun.
Óvist um eftirmann
Halldór Björnsson starfandi for-
seti ASÍ segir að engin ákvörðun
hafi verið tekin um eftirmann í
stól framkvæmdastjóra ASÍ né
hvernig að því verður staðið,
enda sé verið að skoða innri
starfsemi ASÍ. Hann segir að það
verði hins vegar eftirsjá að Ara.
Undir það tekur Sævar Gunnars-
son formaður Sjómannasam-
bandsins sem segir að Ari hafi
verið einn dyggasti stuðnings-
maður sjómanna innan ASÍ.
- GRH
Guömundur
Gunnarsson.
Aftur uiii
hverflsmat?
Allar líkur
benda til að enn
og aftur verði að
meta umhverf-
isáhrif vegna
Kísiliðjunnar,
segir umhverfis-
ráðherra. Breyt-
ingarnar á rek-
stri fyrirtækis-
ins þýða að að-
eins er þörf á
Mývatni næstu
Siv Friðleifs-
dóttir.
námagreftri úr
tvö til fjögur
árin, en að óbreyttu er ekki nægt
efni á núverandi vinnslusvæði í
Ytritlóa til að uppfylla þörfina.
„Ef hægt er að tryggja störfin í
heimabyggð til framtíðar án
þess að fara í Syðriflóa, held ég
að flestir yrðu sáttir við þá nið-
urstöðu. Hvort hún er raunhæf
er hins vegar ekki ljóst á þessu
stigi,“ segir Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra í samtali við
Dag. Sjá bls. 19
Leiðindaveður var á Norðurlandi allan daginn í gær og gekk á með hryðjum. Ekkert var flogið norður vegna þessa
og sömuleiðis var flughált á götum og menn urðu að sýna fyllstu aðgát við aksturinn. Sumum tókst að komast í
heila höfn, en þó ekkl öllum - svo sem ökumönnum þessara bíla sem nudduðu saman trýnunum l Gilinu á
Akureyri síðdegis í gær. mynd: -brink
Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
Deiltum
lagaráð
Til snarpra orðaskipta kom á AI-
þingi í gær, þegar frumvarp þrig-
gja þingmanna Samfylkingarinn-
ar um lagaráð kom til umræðu,
og bar umræðan með sér að enn
er mikil kergja ríkjandi vegna
viðbragða ríkisstjórnarinnar við
öryrkjadómnum svokallaða í
Hæstarétti 19. desember síðast-
liðinn. Þingmenn veittust í um-
ræðunni mjög að Halldóri Blön-
dal forseta Alþingis og Davíð
Oddssyni forsætisráðherra, sem
svöruðu fullum hálsi.
Frumvarp Bryndísar Hlöðvers-
dóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur
og Lúðvfks Bergvinssonar gerir
ráð fýrir því að á vegum Alþingis
starfi lagaráð, sem hafi það hlut-
verk að setja samræmdar reglur
um samningu lagafrumvarpa og
annan undirbúning löggjafar-
mála. Lagaráð verði Alþingi og
stjórnarráðinu til ráðgjafar um
undirbúning löggjafar, um það
hvort frumvörp standast stjórn-
arskrá eða alþjóðasamninga sem
íslenska ríkið er bundið af eða
hvort á frumvörpum séu laga-
tæknilegir ágallar.
Hættu þessu gjanuni
Halldór og Davíð komu hvað eft-
ir annað í pontu til að rnunn-
höggvast við stjórnarandstæð-
inga. Halldór sagði meðal ann-
ars að frumvarpið væri óljóst og
að það fæli í sér kostnað. Hann
sagði og að lagaráð væri ónauð-
synlegt og ótímabært, heldur
væri nauðsynlegt að treysta „lög-
fræðisvið nefndarsviðsins".
Davfð hlífði sér ekki í orða-
skakinu og kallaðist á við þing-
menn út í sal. Eitt sinn kallaði
hann til Ogmundar Jónassonar
að vera „ekki að þessu gjammi".
Rannveig Guðmundsdóttir
kvartaði yfir því við forseta að
forsætisráðherra væri að hreyta
út úr sér fúkyrðum, það væri
ósæmilegt „virtasta manni lands-
ins“, sagði hún og gaf þessum
lýsingarorðum gæsalappir með
greinilegu táknmáli. - FÞG