Dagur - 21.02.2001, Blaðsíða 17
MIDVIKUDAGUR 21. FF.BRÚAR 2001 - 17
Ð^ur
MML
(ANPiWM
Gunnar
Eyjólfsson.
MENNINGAR
LÍFID
Tilbrigdi vid önd
Útvarpsleikritin á
Rás 1 eru einn af
íostum punktum til-
verunnar í okkar
samfélagi. Næstkomandi laug-
ardag, 24. febrúar, kl. 14:30
verður á dagskránni leikritið
Tilbrigði við önd eftir David
Mamet. Það lýsir samræðum
tvegga eldri manna sem sitja á
bekk í skemmtigarði þótt augu
þeirra beinist fyrst
og fremst að öndun-
um sem synda og
vappa mn. „Allt í
kring er menningin í
upplausn," segir
höfundur um verk-
ið, „og þá sitja þess-
ir menn á bekk og
horfa á endur.“
Leikendur eru
Baldvin Halldórsson og Gunnar
Eyjólfsson.
Sjúkdómavamir
og iiianneldismal
Bókin Faraldsfræði og heilsu-
vernd er komin út hjá Háskóla-
útgáfunni. Um er að ræða end-
urútgáfu á bókinni en hún kom
fyrst út árið 1989. Tilgangurinn
með bókinni er tvíþættur, eins
og segir í formála hennar. Hann
er að koma á prent á íslensku
umíjöllun um faraldsfræði og
að safna saman á einn stað efni
sem gæti gagnast þeim sem
kenna faraldsfræði og aðrar
greinar sem snerta heilsu-
vernd. Fyrstu kaflar bókarinnar
ijalla um faraldsfræði og heilsu-
vernd, svo er íjallað um smit-
sjúkdómavarnir, manneldismál
og loks um orsakir krabba-
meina.
Háaloft að hætta
Nú eru að verða
síðustu forvöð að
sjá hinn geðveika
svarta gamanleik
Háaloft sem hefur
verið á fjölum
kafflleikhússins frá
því í byrjun októ-
ber því sýningum
fer ört fækkandi. Vala Þórsdótt-
ir er höfundur og fer með eina
hlutverkið í sýningunni og hef-
ur hún fengið afar lofsamlega
dóma fyrir frammistöðu sína.
Vala
Þórsdóttir.
Stelpa, gella, mamma,
forstj óri, amma...
„Alls staðar skjóta konur upp kollinum, og starfssviðin eru fjölmörg, eins og
fallegasta kona á íslandi hefur sýnt og sannað, frú Vigdís Finnbogadóttir sem
var ein á forsetavakt svo árum skipti," segir greinarhöfundur.
Svona í tilefni
BREF UR konudagsins og
BLÖNDUDAL Sóunnar finnst
mér tilvalið að
minnast aðeins
á okkur kon-
urnar og fjölda-
mörg starfssvið
og tilverusvið
okkar.
Við erum í
raun og sann-
leika frábærar!
Ekki nóg með
það að við komumst í gegnum
unglingsárin og uppúr menntó,
heldur förum við áfram í há-
skóla og gegnum hinum og
þessum virðingarstöðum í þjóð-
félaginu, svona á meðan við
erum að eiga börnin og eltast
við alla hugsanlega tísku-
strauma nútímaþjóðfélagsins.
Tilverusvið okkar eru þau að
við erum kraftmiklar, flottar,
skvísulegar, móðurlegar, ábyrg-
ar, rosalega kynþokkafullar,
geislandi kærleiksríkar, vel til
hafðar og alveg svakalega fal-
legar og íslenskar dísir upp til
hópa. Við þurfum ekki annað
en horfa á fréttir til þess að
sannfærast um þetta, þar eru
þær Elín Ilirst og Jóhanna Vig-
dís geislandi glaðar á skjánum
og í alvöru, ekkert smá flottar.
Þorir líka aö vera fyndin
Svo sjáum við hana Steinunni
Ólínu í „Milli himins og jarðar",
þvílíkt glæsikvendi og hún þorir
líka að vera fyndin! ísland er
fullt af fegurðardísum, alveg
sama hvert litið er, og „fram-
mákonum" hvers konar. Við
kynsystur þeirra Ingibjargar,
Valgerðar og Sivjar framsókn-
ar-kvenna erum nú ekki lítið
montnar af þeim, sama má
segja um Sólveigu ráðherra
sjálfstæðisins, Ingibjörgu Sól-
rúnu borgarstjóra og allar hin-
ar gyðjurnar í borgarstjórn
Reykjavíkur. Bekkur rithöf-
unda er einnig þétt skipaður
skvísum - eins og Guðrúnu
Helgadóttur (sem ég held að
hafi öll framantöld tilverusvið
sér til ágætis), Guðrúnu Evu
Mínervudóttur, Steinunni Jó-
hannesdóttur, Vigdísi Gríms-
dóttur, Fríðu A. Sigurðar.,
Stellu Blómkvist og svo mætti
endalaust telja. Alls staðar
skjóta konur upp kollinum, og
starfssviðin eru fjölmörg, eins
og fallegasta kona á Islandi
hefur sýnt og sannað, frú Vig-
dís Finnbogadóttir sem var ein
á forsetavakt svo árum skipti.
Við konur höfum svo mikla
hæfileika og getum sameinað
svo mörg starfssvið að ólíkind-
um sætir. Við viljum kannski
vera forstjórar, bankastjórar,
prestar, fornleifafræðingar,
bændur, söngstjörnur, leikhús-
stjórar, bæjarstjórar eða vera í
einhverju nefndastússi.
Elskumst viHt og galið
Ókei, við gerum það sem við
viljum, og svo þegar við erum
búnar í vinnunni, förum við
heim til eitthvað á bilinu 1-7
barna okkar og elskandi eigin-
manns, kærleiksríkar, stoltar
mæður sem við getum svo
sannarlega verið. Tökum til,
gefum liðinu að borða og hjálp-
um til við heimanámið, skiptum
um bleiur og svoleiðis, setjum í
nokkrar þvottavélar, komum
börnunum í rúmið, förum í
sturtu og nuddum manninn
okkar með unaðsolíu frá Purity
Herbs, elskumst svo villt og ga-
lið og förum ánægðar en
þreyttar að sofa sjálfar.
Konur eru alls staðar! Konur
eru eiginlega farnar að eiga ís-
land! Ef þær hafa þá ekki alltaf
átt það. Mér finnst svo gott hvað
karlmenn eru duglegir og
ákveðnir í að hafa okkur sér við
hlið og helst feti framar. Við get-
um nefnilega allt, sérstaklega
þegar við fáum eindreginn
stuðning frá þessmn elskum og
finnum að þeir meta okkur að
verðleikum. Enda er svo ferlega
asnalegt að kynin séu alltaf í
einhverri baráttu, þegar það er
langeinfaldast að vinna saman.
Þrennt sem við
stöndumst ekki
En strákar, það er þrennt sem
við konur bara stöndumst alls
ekki!
í fyrsta lagi er það dálítið út-
skeifur huggulegur karlmaður í
gallabuxum, með aðra hendina
í vasanum og hina fulla af
rauðum rósum handa okkur,
sérstaklega þegar ekkert er til-
efnið, brosandi út í annað og:
„Mig langaði bara svo að gefa
þér blóm ástin mín!“
í öðru lagi eru það ráða-
menn sem banna „súlustaði“
og aðrir menn sem fara EKKI á
þessa staði vegna þess að þeir
hafa ekki áhuga á því og meta
konur meira en svo!
í þriðja lagi eru það hugsun-
arsömu karlmennirnir sem
nudda OKKUR með unaðsolí-
unni í'rá Purity Herbs!
Með huggulegri góukveðju
úr Blöndudalnum
Öðruvísi á íslensku
Svo sem venja er til sat þjóðin
sem límd fyrir framan sjónvarpið
sl. laugardagskvöld og fylgdist af
miklum áhuga með Eurovision.
AUir höfðu áhuga á keppninni og
skoðun á því hvert laganna átta
sem valin voru til úrslita gæti
fleytt íslendingum lengst þegar
kæm í aðalkeppnina sjálfa. „Það
er mikilvægt fyrir okkur íslend-
inga að taka þátt í svona keppni á
sviði dægurmenningar, hlutirnir
eru gerðir af metnaði - og þótt
margir agnúist út í keppnina hafa
flestir í raun og á laun gaman af henni,“
sagði þingmaðurinn og söngvarinn Árni
Johnsen hér í Degi sl. laugardag að-
spurður um keppnina - og líkast til er
þessi kenning Eyjamannsins fræga alveg
laukrétt.
Ef ttingunni skal þyrma...
Hluti af umræðum um keppnina síðustu
daga hefur verið gagnrýni á þá ákvörðun
útvarpsráðs að gera þeim kepp-
anda sem fer fyrir íslands hönd til
Köben í vor að syngja á íslensku.
Höft á frelsi listamanns um að
mega ekki ráða á hvaða tungu-
máli hann syngur er sjónarmiðið
sem helst hefur heyrst. Aldrei
hefur þótt góð lenska að múl-
binda listamenn af ákvörðunum
stjórnvalda eða annarra. Það
verður hins vegar létt á metum
málverndar að gera flytjendum
íslenska lagsins að syngja á ást-
kæra ylhýra málinu, ef tungunni
skal þyrma. Til slíks verður að nota önn-
ur ráð.
Sjónarmið um að góður árangur ís-
lendmga í keppninni verði best tryggður
með söng á ensku er líka út í bláinnn,
enda þótt lögin sem Selma og Telma
sungu í fyrra og hitteðfyrra hafi flogið
hátt. Þau lög voru einfaldlega grípandi
og hittu í mark strax við fyrstu hlustun,
burtséð frá textanum. Þannig þurfa lög
Þvi mætti vel segja mér að tækifæri Is-
lendinga íkeppninni að þessu sinni felist
ekki hvað síst í því aö syngja hinn dúnd-
urgóða smell, Birtu, á sérstæðu tungu-
máli, segirm.a. hér í greininni.
einmitt að vera eigi þau að ná hlustum
þjóðar - og einmitt vegna þess greip lagið
Birta eftir hinn íðilskapra Selfyssing Ein-
ar Bárðarson íslendinga um leið og það
heyrðist fyrst.
Aö marka sér sérstööu
Sú hefur verið raunin í Eurovision-
keppninni á undanfórnum árum (og
raunar í listum almennt) að hvað bestum
árangri og jafvel sigri hafa náð þeir
keppendur og fulltrúar þjóða sem hafa
skorið sig nokkuð úr - og markað sér
sérstöðu. Þen sem þora að vera öðruvísi
og þora að vera þeir sjálfir. - Því mætti
vel segja mér að tækifæri íslendinga í
keppninni að þessu sinni felis.t ekki hvað
síst í því að vera öðruvfsi en allir hinir;
syngja smellinn, Birtu, á sérstæðu tungu-
máli sem ekki nema tæplega 300 þúsund
manns kunna og skilja. Hitt er svo aftur
annað mál að vegna keppni næsta árs er
sjálfsagt að útvarpsráð endurskoði máhð
og gefi mönnum frjálsar hendur um á
hvaða máli þeir syngja, því aldrei er af
lúnu góða að hefta frelsi listamanna -
sem kunna og geta nært hjartað og glatt
sálina. sigurdur@dagur.is
MEIMNINGAR
VAKTIN
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar