Dagur - 28.02.2001, Blaðsíða 19
Páll Rósinkranz.
200
maims
í messu
Kirkjusókn er víða nokkuð
dræm sem kunnugt er en sl.
sunnudag komu um 200 manns
í messu á Húsavíkeða öllu fleira
en venja er til í hefðbundnum
guðsþjónustum. Þarna var um
að ræða svokallaða gospelmessu
með söng og hljóðfaeraslætti. Og
söngvarinn ekki að verri endan-
um, hinn vinsæli og ágæti Páll
Rósinkranz sem væntanlega hef-
ur dregið ýmsa í kirkju sem ekki
eru þar fastagestir. Ásamt og
með Páli var hljómsveit þannig
að ekkert var til sparað.
Gestapredikari í gospelmess-
unni var hinn kraftmikli leiðtogi
Krossins, Gunnar Þorsteinsson
og gat þess þarna að hann teldi
Húsvíkinga kjarkaða að bjóða
sér að koma og messa yfir lýðn-
um, því hann væri nokkuð um-
deildur eins og flestir vissu. JS
Akureynir
flug í Áðal-
dalinn?
Margir eru búnir að fá yfir sig
nóg af umræðum urn Reykjavík-
urflugvöll og hugsanlega stað-
setningu hans í framtíðinni.
Einn kostur er sá sem kunnugt
er, að flytja völlinn til Keflavík-
ur. Og sú hugmynd hefur reynd-
ar kveikt aðra hugmynd norðan
heiða, í tengslum við enn aðra
hugmynd í samgöngumálum,
sem sé að gera jarðgöng undir
Vaðlaheiðii
Björn Sigurðsson, sérleyfis-
hafi á Húsavík hefur bent á að
ef að menn sætta sig við að aka
frá Reykjavík til Keflavíkur til að
kornast í flug, þá sé ekkert því til
fyrírstöðu að aka svipaða vega-
léngd á milli Aktir'éyrar og Húsa-
víkur, eftir aö göng yrðu komin
undir Vaðlaheiði. Og þar sem
flestir sérfræðingar séu sam-
mála um að Aðaldalur sé miklu
heppik'gri staður fyrir flugvöll
en Eyjafjörður, þá liggi heint við
að leggja niður Akureyrarflug-
völl og byggja ujrp stóran flug-
völl fyrir innanlandsflug og
millilandaflug í Aðaldal.
Þessari ágætu hugmynd er hér
með komið á framfæri og menn
hvattir til þess að hefja mikla
þrætubók um staðsetningu aðal-
flugvallar á Norðurlandi. — js
Beinasafnariim?
Kvikmyndin „The Bone Collector" fjallaði um mann sem safnaði annars konar beinum en þeim sem Ásbjörn Björgvinsson er med á þessari mynd, sem
eru úr búrhvalnum fræga „Kjálkarýrum". Meira um Ásbjörn og hvalina á öðrum stað íblaðinu.
(O)vdkoniiii
í eigin landi?
Atvinnuþróimarfélag
Þmgeyinga stendur fyr-
ir ráðstefiiu um Þjóð-
garða og friðlýst
svæði/busetu og at-
viunumál, undir yiir
skriftiuni: (Ó)velkom
iu í eigin landi? Fjall-
að verður iim málefni
sem brenna á mönnum
víða um land og sem
valdið hafa deilum og
ágreiningi.
Að sögn Tr\'ggva Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra Atvinnuþróunarfé-
lags Þingeyinga, er aðalefni ráð-
stefnunnar ekki síst sambúð
byggðar við þjóðgarða og friðlýst
svæði, tækifæri og ógnanir í Ijósi
reynslu Þingeyinga í 25 ár. 1 Þing-
eyjarsýslum eru tvö verndarsvæði,
Mývatn og Laxársvæðið, en um
það gilda lög frá 1974; og Þjóð-
garðurinn í Jökulsárgljúfrum, en
hann var stofnaður árið 1973.
Að sögn Tryggva telja þeir hjá
Atvinnuþróunarfélaginu að eftir
þessa löngu sambúð sé ástæða til
að staldra nú við og fjalla um hver-
ju þessar ráðstafanir hafa skilað og
hvort menn hafa nýtt sér tækifær-
in eða hvort þessi skipan mála hafi
verið mönnum
fjötur um fót á
einhvern hátt. Á
ráðstefnunni
verður leitast
við að horfa á
málið út frá
sjónarhorni
svæðisins, en
fram til- þessa
hefur mest verið
horft til friðlýs-
ingar svæða af
sjónarhorni suð-
vesturhorns
landsins.
Ráðstefnan
verður haldin á
Húsavík laugar-
daginn 23.
mars. Forsætisráðherra Davíð
Oddsson mun setja ráðstefnuna
og einnig mun iðnaðarráðherra
Valgerður Sverrisdóttir flytja
ávaqr. Á ráðstefnunni verður og
kynnt tillaga úr hugmyndasmiðju
Landverndar um Vatnajökulsþjóð-
garð, en samkvæmt þeim hug-
myndum verður verulegt lands-
svæði norðan jökulsins friðlýst
Tryggvi Finnsson.
með ýmsum hætti og sett undir
stjórn Náttúruverndar ríkisins.
Áherslumunur
„Það er töluverður áherslumunur
milli manna um
þessi friðunar-
mál. Hver er til-
gangurinn og
hvernig á að
standa að
þessu? Hver á
að hafa forræði
yfir svæðum og
ráðstafa nýtingu
þeirra? Mý-
vatnssvæðið er
auðvitað sér á
parti því það er
það eina af þes-
um friðuðu
svæðum sem
veruleg búseta
er á. Og menn
eru stöðugt að
velta því fyrir sér hvað má gera og
með hvaða hætti í þjóðgörðunum
og heimamenn vilja í mörgum til-
fellum hafa þar hönd í bagga með
stefnumörkun", segir Trvggvi
Finnsson.
Hann kveðst hafa verið á fund-
inum þar sem hugmjTid Land-
verndar um Vatnajökulsþjóðgarð
var kynnt og þar hefði framsetning
málsins v'erið ákaflega einhliða og
raunar aðeins svart í skákinni en
hvítur ekki með. „Við ætlum að
reyna að leyfa sem flestum sjónar-
miðum að njóta sín á okkar ráð-
stefnu og ræða málin á breiðum
grundvelli", segir Trv'ggvi.
Sérfræðingax
Auk ráðherranna munu ýmsir sér-
fræðingar og leikmenn viðra skoð-
anir sínar. M.a. Peter Prokosch frá
Articprogram W'W'f í Noregi;
Roger Crofts frá stofnun Skoska
náttúruarfsins; lnga Rósa Þórðar-
dóttir, framkvæmdastjóri FÍ;
Gunnar Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar; Þor-
leifur Þór Jónsson, hagfræðingur
SAF; Gunnlaugur Júlíusson, hag-
fræðingur Sambands íslenskra
sveitarfélaga; Gunnlaugur Sig-
mundsson, framkvæmdastjóri
Kögunar; Einar Sveinbjörnsson,
aðstoðarmaður umhverfisráð-
herra; Stefán Thors, forstjóri
Skipulagsstofnunar; Arni Braga-
son, forstjóri Náttúrverndar ríkis-
ins; Ari Trausti Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur; Sigbjörn
Gunnarsson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps og Sigurjón Bene-
diktsson, tannlæknir og bæjarfull-
trúi á Húsavík. — JS