Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Side 3
jDagur-íEtmTmx
Föstudagur 3. janúar 1997 - 3
F R E T T I R
Menntamálaráðherra
Ýmsar hugmyndir um RÚV
Eg slæ ekki neinu föstu
um breytingar á starf-
semi Ríkisútvarpsins.
Það hafa ýmsar hugmyndir
verið á lofti en það verður
ekkert róttækt gert án laga-
breytingar."
Þetta segir Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, aðspurð-
ur hvort vænta megi breytinga
á háttum Ríkisútvarpsins í ár.
Óvanalegt ástand ríkir í
stjórnsýslu RÚV þar sem nýr
útvarps-
stjóri hef-
ur ekki
verið
skipaður
eftir að
Heimir
Steinsson
hætti,
heldur er
Pétur
Guðfinns-
son, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri RÚV,
nú settur til eins árs. Aðspurð-
ur hvort nú sé því öðru fremur
lag til breytinga segir ráðherra:
„Ég vil ekki fullyrða um það.
Menn verða bara hver um sig
að draga sínar ályktanir af því.“
Menntamálaráðherra hefur
lýst þeirri skoðun sinni að
nauðsynlegt sé fyrir stofnunina
að endurskoða starfsemi henn-
ar. „Ég tel að það gildi sérstak-
lega um þessa ríkisstofnun sem
starfar á fjölmiðla- og fjar-
skiptavettvangi að rekstrarum-
hverfi hennar sé sífellt athugað
og skoðað hvort stofnunin hefur
lagað sig að nýjum tímum með
réttum huga. Starfshópur á
mínum vegum skiiaði skýrslu
síðastliðið vor og það hefur ver-
ið ákveðið
af hálfu
ríkis-
stjórnar-
innar að
formaður
og vara-
formaður
útvarps-
ráðs skili
hug-
myndum
um fram-
tíð RÚV og skýri frá ágreiningi
ef hann er.“
-Mun ráðherra beita sér fyrir
lagabreytingum um Ríkisút-
varpið á þessu ári?
„Það er ekki tímabært að
spyrja þess. Ég mun ekki gera
það fyrr en ég er næsta öruggur
um að það haf! hljómgrunn
meðal stjórnarflokkanna. Það
er til lítils fyrir mig að lýsa því
yfir að ég muni beita mér fyrir
fagasetningu eða lagabreyting-
um ef ég hef ekki stuðning við
sfíkt. En þetta er ekki mái sem
fylgir flokksh'num heldur er það
þverpólitískt." BÞ
Nýársbarnið
Erla Geirsdóttir og Gunnar Gunnarsson, stoltir foreldrar nýársbarnsins, 12 marka stúlku, sem fæddist
skömmu eftir miðnætti á gamlársdag í Reykjavík. Mynd: jak
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
„Ég mun ekki beita
mér fyrir lagabreyt-
ingum fyrr en ég er
nœsta öruggur um
aö þœr hafi hljóm-
grunn meðal stjórn-
arflokkanna. “
Nýársnótt
Neyðarástand í
miðbæ Akureyrar
Þessi maður sem klifr-
aði upp í jólatréð
skapaði neyðarástand
um tíma. Við þurftum að
kalla til allt tiltækt lögregiu-
lið á vettvang til að rýma
svæðið og ýta mannfjöldan-
um frá. Það gekk brösug-
lega og þurfti að handtaka
suma sem ekki hiýddu fyrir-
mælum,“ segir Magnús
Axelsson aðstoðarvarðstjóri
á Akureyri.
„Æstur lýðurinn
öskraði og sumir
hvöttu hann til að
stökkva niður.“
Aðfaranótt nýársdags
klifruðu tveir menn upp í
jólatréð á Ráðhústorgi,
nokkurra mannhæða hátt.
Annar kom fljótlega niður
en hinn, maður um tvítugt,
fór nánast upp í topp og var
mjög ölvaður og æstur að_
sögn lögreglu. „Hann var
búinn að hrasa í trénu og
svo var spurning hvort tréð
þyldi þungann. Hann virðist
hafa verið manaður upp í
tréð og æstur lýðurinn öskr-
aði á hann og sumir hvöttu
hann til að stökkva niður,"
segir Magnús.
Um 15 lögreglumenn
komu að þessu máli og auk
þess var kölluð til sjúkrabif-
reið og körfubíll frá slökkvi-
liðinu. Viðeigandi ráðstafan-
ir voru gerðar með dýnur ef
maðurinn hefði hrasað eða
Jólatréð á Ráðhústorginu á
Akureyri. Myndin var tekin í
gær eftir að búið var að
lagfæra skemmdir. Mynd:jHF
stokkið en málalyktir urðu
að einn lögreglumaður sem
staddur var í körfunni fór í
tréð og hrakti manninn nið-
ur. Hann gisti í steininum.
Fangageymslur Lögregl-
unnar á Akureyri voru full-
ar þessa nótt og var tölu-
verð ölvun og óspektir. Heilt
yfir er lögreglan þó þokka-
lega ánægð með áramótin,
þau voru slysalaus, engir
eldsvoðar og aðeins einn er
grunaður um ölvunarakstur.
BÞ
Áramót
Fátækt í ávörpum
fbrystumaima
Forseti íslands og
forsætisráðherra
gerðu meðal anrtars
fátækt að umtaisefni
í áramótaávörpum
sínum.
Fyrir hátíðarnar skýrðu
prestar og talsmenn hjálp-
ar- og líknarsamtaka frá
því að meira hefði verið beðið
um aðstoð fyrir þessi jól en
nokkru sinni fyrr. Úm þetta efni
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
forseti:
„Þegar fátæktin verður í vax-
andi mæli smánarblettur á ís-
lensku samfélagi eigum við í
krafti hinna góðu gilda að gefa
hverjum og einum kost á að
verða sinnar gæfu smiður...
Siðaboðskapur kristninnar og
íslensk þjóðmenning fela í sér
þá kröfu að hver og einn geti
framfleytt sér og sínum á sóma-
samlegan hátt, látið börnum í
té vandað uppeldi og treyst því
að sjúkir og aldraðir fái þá um-
önnun sem hæfir sóma okkar
og heiðri. Sú framför sem ein-
ungis birtist í hagtölum, en fær-
ir ekki líf fólksins í betra horf,
er harla lítils virði. Velferð sér-
hvers einstaklings er í raun
markmiðið með viðleitni samfé-
lagsins við að bæta lífskjörin í
landinu."
Davíð segir umræðu
koma á óvart
í áramótaávarpi sínu sagði
Davíð Oddsson: „Það kom á
óvart að nokkru fyrir jól lögðu
tveir fjiilmiðlar ofurkapp á að
koma því inn hjá þjóðinni, að
fátækt og eymd færi vaxandi í
landinu. Engar haldbærar tölur
staðfesta slikt. Þvert á móti hef-
ur vaxandi kaupmáttur lægstu
tekna og minnkandi atvinnu-
leysi nokkuð bætt hag þeirra
sem erfiðast hafa átt. Það þýðir
þó ekki að allir erfiðleikar séu
úr sögunni og enginn búi leng-
ur við kröpp kjör. Margir
standa í ströngu á hverjum
degi, við að fá endana til að ná
saman. En hagur manna fer
hægt batnandi og mun batna
enn, ef vel og gætilega verður á
haldið.“
Raufarhöfn
Fólskuleg líkamsárás
Nærri lá að mjög illa færi
þegar 15 ára drengur
varð fyrir mjög alvarlegri
hnífsárás fyrir utan félagsheim-
ilið á Raufarhöfn að Ioknum ný-
ársdansleik. 20 ára gamall
maður lagði 6 sinnum til hans
með vasahníf og hlaut fórnar-
lambið m.a. stungur í herða-
blað, bak og brjósthol auk 15
cm langs skurðs á hálsi. Ger-
andinn var handtekinn fljótlega
eftir atvikið en vitni munu hafa
verið að árásinni. Árásaraðilinn
var mjög ölvaður þegar atvikið
varð og var í gær dæmdur í
gæsluvarðhald fram á sunnu-
dag í Héraðsdómi Norðurlands.
Ekki liggur fyrir hvert tilefni
árásarinnar var en mennirnir
tveir þekktust ekki. Lögreglan á
Húsavík fer með rannsókn
málsins en að sögn heima-
manna voru áramótin róleg á
Húsavík sem og víðast annars
staðar í Suður-Þingeyjarsýslu.
BÞ