Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 10
10 - Föstudagur 3. janúar 1997 JLagur-Œmrhtn ENSKA KNATTSPYRNAN Úrvalsdeild Úrslit Arsenal-Middlesbrough 2:0 (Bergkamp 15, Wright 44) Chelsea-Liverpool 1:0 (Di Matteo 43) Coventry-Sunderland 2:2 (Dublin 10, Daish 28) (Bridges 6, Agnew víti 18) Everton-Biackburn 0:2 (Sherwood 18, Sutton 32) Man. Utd.-Aston Vilia 0:0 Newcastie-Leeds 3:0 (Shearer 4, 77, Ferdinand 87) West Ham-N. Forest 0:1 (Campbell 38) Derby-Sheff. Wed. frestað Leicester-Tottenham frestað Southampton-Wimbledon frestað Staðan Liverpool 22 12 6 4 38:20 42 Arsenal 21 11 7 3 39:20 40 Man. Utd. 21 10 8 3 42:25 38 Newcastle 21 11 4 6 38:22 37 Wimbledon 19 11 4 4 33:23 37 Aston Villa 21 10 5 6 29:19 35 Chelsea 21 9 8 4 33:29 35 Everton 21 7 7 7 29:29 28 Sheff. Wed. 20 6 10 4 21:22 28 Tottenham 20 8 4 8 22:26 28 Sunderland 21 6 6 9 21:30 24 Coventry 21 5 8 8 22:27 23 Derby 20 5 8 7 20:25 23 Leicester 20 6 5 9 20:27 23 Leeds 21 6 4 11 16:27 22 West Ham 20 5 6 9 18:26 21 Blackburn 20 4 8 8 19:22 20 Middlesbrough 21 4 6 11 25:40 18 N. Forest 21 3 8 10 19:36 17 Southampton 21 4 4 12 28:37 17 l.deild Urslit Bolton-Bradl'ord 2:1 Charlton-Ipswich 1:1 Huddersfleld-Stoke 2:1 Norwich-Portsmouth 1:0 West Brom-Tranmere 1:2 Barnsley-Oldham frestað Birmingham-Man. City frcstað C. Palace-Reading frestað Oxford-Grimsby frestað Port Vale-Southend frestað Sheff. Utd.-Wolves frestað Swindon-QPR frestað Staðan Bolton 27 14 10 3 55:37 52 Barnsley 25 13 8 4 44:27 47 Sheff. Utd. 26 13 7 6 44:28 46 Wolves 25 11 7 7 34:23 40 C. Palace 25 10 9 6 49:27 39 Norwich 26 11 6 9 35:36 39 Oxford 26 10 7 9 37:29 37 QPR 26 10 7 9 35:35 37 Stoke 24 10 7 7 32:33 37 Port Vale 26 9 10 7 29:26 37 Tranmere 26 10 6 10 34:33 36 Huddersfield 27 9 8 10 32:35 35 Ipswich 27 8 10 9 34:38 34 Charllon 26 10 4 12 27:34 34 West Brom 26 7 12 7 43:42 33 Swindon 25 10 3 12 35:32 33 Portsmouth 27 9 6 12 30:32 33 Birmingham 23 8 9 6 24:22 33 Reading 26 7 8 11 28:37 29 Oldham 25 6 9 10 28:31 27 Man. City 25 8 2 15 27:40 26 Southend 26 5 10 11 25:46 25 Bradford 27 5 8 14 24:44 23 Grimsby 24 5 7 12 26:44 22 Þrettánda- gleði Þórs verður mánudaginn 6. janúar kL 20.00 I KARFA • Úrvalsdeild Nýr leikmaður og þjálfari hjá KR KR-ingar hafa ráðið Hrannar Hólm, fyrrver- andi þjálfara Njarðvík- inga, til að taka við af Benedikt Guðmundssyni sem þjálfari úr- valsdeildarliðs félagsins. Þá hefur félagið einnig fengið til sín nýjan erlendan leikmann í stað David Edwards og ætla þeir að tefla honum fram gegn Grindvíkingum á sunnudaginn í undanúrslitaleik bikarkeppn- innar. Dagur-Tíminn hafði sam- band við Hrannar sem sagðist ánægður með að vera kominn til KR. „Þetta er gott lið og margir möguleikar í stöðunni. Þetta er spennandi verkefni, við byrjum á stórleik nú á sunnu- daginn og upp á rekstur deild- Hrannar Hólm tekur við þjálfun KR-inga. arinnar að gera er erfitt að finna mikilvægari leik en und- anúrslit í bikarnum. Fjárhags- lega er þetta sennilega mikil- vægasti leikur vetrarins." Hrannar sagði einnig að nú þyrfti hann að byrja á því að kynnast leikmönnum liðsins. „Þeir eru vanir breytingum, hafa áður skipt um þjálfara á miðju keppnistímabili en ég hef aldrei byrjað með lið á miðju tímabilinu. Ég mun byrja hægt og rólega og ef gera þarf ein- hverjar breytingar kemur það í ljós síðar.“ Leikmaðurinn sem þeir KR- ingar hafa fengið til sín heitir Geoff Herman. Hann er nýkom- inn til landsins og mætti á sína fyrstu æfingu hjá KR í gær. Þetta er þriðji erlendi leikmað- urinn sem KR skartar á þessu keppnistímabili en eins og menn muna var Champ Wrenc- her rekinn frá félaginu eftir skamma viðdvöl í haust. Ekki tókst blaðinu að afla annarra upplýsinga um leikmannin en að hann lék á Nýja-Sjálandi á síðasta ári og þar áður með há- skóla í Tennessee. Kvennalið KR hefur einnig fengið nýjan þjálfara og er það Svali Björgvinsson, fyrrum þjálfari Valsmanna, meðan þeir léku í úrvalsdeildinni. Svali tek- ur við blómlegu búi þar sem KR virðist vera eina liðið sem getur veitt Keflvíkingum þá sam- keppni sem þeim er samboðin. Það eru því spennandi tímar framundan hjá körfuknattleiks- deild KR. gþö ENSKA KNATTSPYRNAN Allt / hnút á toppnum Alan Shearer er kominn í gamla formið og Newcastle gengur allt í haginn á ný. Liverpool tapaði en Arsenal er komið á sigurbraut Fyrir ári síðan var New- castle með örugga forustu á toppi ensku úrvalsdeild- arinnar og Manchester United eina liðið sem gat ógnað forustu liðsins. Nú er útlitið annað og í ársbyrjun 1997 eru sjö lið enn með í baráttunni um titilinn. Liverpool heldur toppsætinu þrátt fyrir tap gegn Chelsea en liðið hefur leikið fleiri leiki en næstu lið. Arsenal fann aftur réttu Ieiðina til sigurs og New- castle vinnur hvern stórsigurinn af öðrum en Aston Villa náði að stöðva sigurgöngu Man. Utd. Fína spilið brást Roberto Di Matteo skaut Liv- erpool í kaf í þrautfúlum leik á nýársdag og opnaði toppbarátt- una upp á gátt. Leikmenn Liv- erpool spiluðu nett saman aft- arlega á vellinum og létu leik- menn Chelsea eltast við sig en það var einmitt þetta stutta spil sem varð þeim að falli. Di Matteo nýtti sér kæruleysislega sendingu frá Michael Thomas, hirti boltann á miðsvæðinu og æddi í átt að marki. Skot hans fann leið framhjá David James og Chelsea var komið yfir. Roy Evans, stjóri Liverpool, sagðist ekki ætla að breyta um leikstíl og vill ekki fórna „dúkkuspil- inu“ þrátt fyrir tapið. „Við miss- um ekki trú á leikkerfi okkar þó svo það bregðist okkur einstaka sinnum," sagði Evans eftir leik- inn. Ruud Gullit, stjóri Chelsea, var ánægður með sigurinn. „Mér fannst sigurinn sann- gjarn. Við erum eins og óslípað- ur demantur sem þarf að pússa á hverjum degi en nú loksins er hann byrjaður að skína skært,“ sagði Gullit. Wright kvaddi með marki Arsenal hefur ekki leikið vel að undanförnu en liðið náði sér á strik á ný gegn Middlesbrough. Ian Wright skoraði sitt 200. deildarmark og tryggði Arsenal 2:0 sigur eftir að Dennis Berg- kamp hafði hitað áhorfendum með fallegu marki. Wright fer nú í þriggja leikja bann en maðurinn sem á að leysa hann af, John Hartson, fékk rauða spjaldið á síðustu mínútu þessa leiks og hans bíður einnig þriggja leikja bann. Þetta er fjórða rauða spjaldið sem leik- menn Arsenal hafa nælt í í síð- ustu átta leikjum og má segja að þeir séu sjálfum sér verstir í baráttunni á toppnum. Þetta var fyrsti sigur Arsenal í síðustu fimm leikjum og sigur- inn hefði getað verið mun stærri. Merson og Bergkamp brenndu af gullnum færum en hinum megin var það Fabrizio Ravanelli sem fékk besta færið. Ilann skaut í þverslá úr víta- spyrnu. Bryan Robson, stjóri Middlesbrough, lék sjálfur sem aftasti varnarmaður og var traustasti leikmaður liðsins. Þetta var fyrsti leikur hans í meira en ár en Robson verður fertugur 11. janúar. Boro hefur aðeins náð einum sigri í 15 leikjum og það segir sína sögu um ástand liðsins að besti mað- ur liðsins er að komast á fimm- tugsaldurinn. Newcastle í ham Newcastle fylgdi á eftir 7:1 sigr- inum á Tottenham með 3:0 sigri á Leeds. Alan Shearer var enn á skotskónum og hafði komið sín- um mönnum yfir eftir aðeins Qórar mínútur. Hann skoraði aftur skömmu fyrir leikslok og Les Ferdinand nuddaði salti í sár Leeds-ara með marki í lokin. Blackburn vann fyrsta útisig- urinn á tímabilinu þegar liðið heimsótti Everton á nýársdag og liðið er ekki lengur meðal þriggja neðstu liða. Tim Sher- wood og Chris Sutton skoruðu mörkin sem sökktu heima- mönnum í fyrri hálíleik en þetta var annað heimatap Everton á stuttum tíma. Manchester United átti ánægjuleg jól og liðið nálgast nú kunnuglegar slóðir á toppi deildarinnar en Aston Villa stöðvaði sigurgöngu liðsins á nýársdag. Leikurinn lofaði góðu í byrjun en leikmönnum var fyrirmunað að skora og þegar leið á leikinn voru flestir orðnir hundleiðir á að horfa á ósköpin. Leikmenn United sóttu án þess að brjóta vörn Villa á bak aftur og markalaust jafntefli varð staðreynd. Minnstu munaði að upp úr syði á vellinum í fyrri hálfleik þegar Savo Milosevic, framherji Villa, hrækti á David Beckham til að hefna sín vegna brots en dómarinn sá ekki at- vikið og gaf báðum leikmönn- um gult spjald fyrir rifrildið sem fylgdi í kjölfarið. KARFA Nýr kani Cfl UMFG Nýr bandarískur leikmað- ur er kominn í herbúðir Grindavíkur og heitir hann Derwin Collins og er 27 ára og 195 sentimetrar á hæð. Collins mætti á fyrstu æiingu sína hjá Grindavíkurliðinu í gærkvöldi. Herman Myers hefur leikið með Grindvíkingum að undan- förnu. Hann mætti hins vegar ekki til leiks eftir jólafrí og þá fóru stjórnarmenn deildarinnar á stúfana. Myers sem átti að koma til Grindavíkur þann 27. desember, mun hins vegar væntanlegur til landsins í dag og þegar þessar línur eru skrif- aðar liggur það ekki ljóst fyrir hvor þeirra leikur með liðinu í vetur.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.