Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Blaðsíða 4
4 - Föstudagur 3. janúar 1997
Jbtgur-'ðHmttm
1 Menntamálaráðuneytið Skagafjöróur
Laust embætti
Embætti forstöðumanns Listasafns íslands er
laust til umsóknar.
Samkvæmt 4. gr. laga nr. 58/1988, um Listasafn ís-
lands, eru gerðar þær hæfniskröfur tii forstöðumanns
að hann hafi sérfræðilega menntun og staðgóða þekk-
ingu á myndlist og rekstri listasafna.
Skipað verður í embættið til fimm ára frá 1. mars 1997
að telja. Um laun og starfskjör fer eftir ákvörðun kjara-
nefndar, sbr. lög 120/1992, um Kjaradóm og kjara-
nefnd, með síðari breytingum.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun og
störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1997.
Menntamálaráðuneytið, 30. desember 1996.
NATTURUVERNDARRAÐ
Viðauki I
Hagsmunaaöilar, félagasamtök og stofnanir
með sæti á Náttúruverndarþingi 1997
Alþýðusamband l’slands • Arkitektafélag fslands • Bandalag íslenskra farfugla • Bandalag ís-
lenskra skáta • Bændasamtök fslands • CAFF skrifstofan á fslandi • Ferðafélag íslands
Ferðafélagið Útivist • Ferðaklúbburinn 4x4 • Ferðamálaráð • Ferðaþjónusta bænda • Félag
áhugafólks um hálendi Austurlands • Félag eigenda sumardvalarsvæða • Félag íslenskra
landslagsarkitekta • Félag íslenskra náttúrufræðinga • Félag landfræðinga • Félag leiðsögu-
manna • Fjallið (Hagsmunafélag jarð- og landfræðinema) • Framtíðarstofnun • Flugmálastjórn
Fuglaverndarfélag íslands • Geislavarnir ríkisins • Hellarannsóknarfélag íslands • Hafrannsókn-
arstofnunin • Haxi (hagsmunafélag líffræðinema) • Háskóli fslands • Hið íslenska náttúrufræði-
félag • Hollustuvernd ríkisins • Jarðfræðafélag íslands • Jöklarannsóknafélag íslands
Kennarasamband Islands • Kvenfélagasamband Islands • Landgræösla ríkisins • Landlæknis-
embættið • Landmælingar íslands • Landssamband hestamannafélaga • Landssamband ís-
lenskra vélsleðamanna • Landssamband stangveiðifélaga • Landssamband veiðifélaga
Landssamtökin Líf og land • Landsvirkjun • Landvarðafélag íslands • LandverndLíffræðifélag
íslands • Líffræðistofnun Háskólans • Náttúruvernd ríkisins • Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands • Náttúruverndarsamtök Austurlands • Náttúruverndarsamtök Suðurlands • Náttúruvernd-
arsamtök Vesturlands • Orkustofnun • Náttúrufræðistofa Kópavogs • Náttúrurannsóknarstöðin
við Mývatn • Rafmagnsveitur ríkisins • Rannsóknaráð fslands • Rannsóknastofnun landbúnað-
arins • Raunvfsindastofnun Háskólans • Samband dýraverndarfélaga íslands • Samband ís-
lenskra sveitarfélaga • Samlíf (Samtök líffræðikennara) • Samtök um náttúruvernd á Norður-
landi • Samtök um umhverfismál og náttúruvernd • Siðfræðistofnun Háskólans • Siglingastofn-
un (slands • Sjálfboðalíðasamtök um náttúruvernd • Skipulag ríkisins • Skotveiðífélag Islands
Skógrækt ríkisins • Skógræktarfélag íslands • Surtseyjadélagið • Ungmennafélag Islands
Vegagerðin • Veiðimálastofnun • Veiðistjóraembættið • Veðurstofan • Verkfræðingafélag ís-
lands • Verkfræðistofnun Háskólans • Vestfirsk náttúruverndarsamtök • Vinnueftirlit ríkisins
Vinnuveitendasamband íslands • Vísindafélag fslendinga • Yfirdýralæknisembættið • Þjóð-
minjasafn • Æðarræktarfélag íslands • Æskulýðssamband (slands
Náttúruverndarráð bendir þeim sem telja sig eiga seturétt á Náttúruvernd-
arþingi en er ekki getið í ofangreindum reglum að hafa samband við skrif-
stofu Náttúruverndar ríkisins, Hlemmi 3, pósthólf 5324, 125 Reykjavík, fyr-
ir upphaf Náttúruverndarþings.
Náttúruverndarráð.
9. Náttúruverndarþing verður haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997
að Hótel Loftleiðum. Hlutverk þingsins er að fjalla um náttúruvernd og
kjósa fulltrúa í Náttúruverndarráð.
Samkvæmt ákvæðum laga nr. 93/1996 um náttúruvernd hefur Náttúru-
verndarráð samið eftirfarandi reglur um Náttúruverndarþing.
1 ■ gr.
I samræmi við ákvæði laga nr. 93/1996 um náttúruvernd verður Náttúru-
verndarþing haldið dagana 31. janúar og 1. febrúar 1997 að Hótel Loft-
leiðum, Reykjavík. Hlutverk þess er að fjalla um náttúruvernd og kjósa full-
trúa í Náttúruverndarráð.
2. gr.
A Náttúruverndarþingi eiga sæti:
A. Með fullum réttindum:
1. Náttúruverndarráð.
2. Fulltrúi frá hverju setri Náttúrufræðistofnunar l'slands.
3. Fulltrúi frá hverri náttúrustofu.
4. Fulltrúi kjörinn af hverri náttúruverndarnefnd.
5. Einn fulltrúi fyrir hvern eftirfarandi hagsmunaaðila, félagasamtaka og stofn-
ana: (sjá viðauka 1).
B. Með málfrelsi og tillögurétt.
1. Einn fulltrúi fyrir hvert ráðuneyti.
2. Einn fulltrúi fyrir hvern þingflokk á Alþingi.
3. Forstjóri Náttúruverndar rfkisins, forstjóri Náttúrufræðistofnunar íslands, þjóð-
garðsverðir.
3. gr.
Náttúruverndarráð undirbýr Náttúruverndarþing og leggur fyrir það skýrslu
um störf sín. Formaður ráðsins setur þingið og stýrir þvl uns það hefur
kosið sér forseta. Þingið setur sér þingsköp.
Seta á náttúruverndarþingi er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar greiða
kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af þinghaldinu greiðist úr
ríkissjóði samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra.
4. gr.
Náttúruverndarráð er skipað níu mönnum. Umhverfisráðherra skipar sex
þeirra í upphafi náttúruverndarþings, fimm að fengnum tillögum Náttúru-
fræðistofnunar íslands, Háskóla íslands, Bændasamtaka íslands, Ferða-
málaráðs og skipulagsstjóra ríkisins og einn án tilnefningar og skal hann
vera formaður ráðsins. Þrjá þeirra kýs Náttúruverndarþing. Varamenn eru
skipaðir og kosnir með sama hætti.
5. gr.
Reglur þessar eru settar með vísan til laga nr. 93/1996 um náttúruvernd
og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 30. desember 1996,
Náttúruverndarráð,
Arnþór Garðarsson - Kristján Geirsson.
F R E T T I R
Heimalöndin kort-
lögð á 147 jörðum
Þróun, fræðsla og leið-
beiningar um vörslu,
meðferð, ræktun og
landnotkun í víðasta
skilningi ásamt aukinni
þekkingu á sögulegum,
menningarlegum og
nátturulegum landgæð-
um er markmið nýs
samstarfssamnings.
Um áramót hófst samn-
ingsbundið samstarf
Hólaskóla, Landgræðslu
ríkisins, Skógræktar ríkisins og
Búnaðarsambands Skagflrðinga
um þróun, fræðslu og leiðbein-
ingar til bænda, vísindamanna
og annarra hagsmunaaðila og
áhugafólks á sviði landgræðslu,
skógræktar og fjölþættrar land-
notkunar. Vegna þessa verður
ráðinn sérstakur starfsmaður
með aðsetur í Hólaskóla sem
leggur honum til starfsaðstöðu
ásamt hálfum launum á móti
25% frá Landgræðslunni, en
Skógræktin og Búnaðarsam-
bandið skipta með sér þeim
25% sem þá vantar.
Hluti samstarfsverkefnisins
er kortlagning heimalanda 147
jarða í Skagafirði. Sú vinna er
raunar þegar hafin og áætlað
að henni ljúki 1998. Þróun í
gerð landnýtingarkorta er með-
Hólar í Hjaltadal. Þar verður miðstöð hinnar nýju fræðslu- og
leiðbeiningarþjónustu.
al helstu verkefna sem tengjast
almennri landnotkun, ásamt
gerð nýtingarkorta fyrir ár og
vötn og staðbundinna örnefna-
korta. Sömuleiðis ráðgjöf til
bænda og annarra hagsmuna-
aðila um mat iandgæða og nýt-
ingu þeirra og eftirlits með
beitarálagi og ástandi haga,
einkum á Norðurlandi vestra.
Verkefni tengd landgræðslu fel-
ast í umsjón með landgræðslu-
framkvæmdum og ráðgjöf til
bænda og annars áhugafólks á
Nl. vestra, m.a. verkefninu
„Bændur græða landið". Einnig
aðstoð til bænda við gerð land-
græðsluáætlana fyrir einstakar
jarðir.
Skógræktarverkefnin felast í
kortagerð á skógræktarskilyrð-
um, ásamt áætlanagerð og eft-
irliti með nytjaskógrækt á bú-
jörðum, skráningu á skógi og
skógarminjum og almennri ráð-
gjöf um skógrækt og gifdi henn-
ar. Skipulagning, rannsóknir og
tiiraunir varðandi landgræðslu,
skógrækt og fjölþætta landnotk-
un á vegum Hólaskóla er meðal
verkefna sem tengjast fræðslu,
ásamt kennslu, endurmenntun
og námskeiðahaldi fyrir nem-
endur skólans, jafnt sem bænd-
ur og annað áhugafóik.
Framangreind verkefni
verða unnin í nánu samráði við
ráðuneyti, búnaðarsambönd,
sveitarfélög, stofnanir, félög,
bændur og aðra einstaklinga.
Hagstofan
Um helmingur nýjn
íbúanna í Kópavogí
Nær helmingur allr-
ar fólksfjölgunar í
landinu er í Kópa-
vogi, nær 900
manns, en fólks-
fækkun varð í öllum
landsbyggðarkjör-
dæmunum.
Ibúum höfuðborgarsvæðisins
fjölgaði um tæplega 2.700
milli ára en íbúum landsins
aðeins um rúmiega 1.900, sem
þýðir að fóiki búsettu utan höf-
uðborgarsvæðisins fækkaði alls
um nærri 800 manns. Fækkun
varð í öllum landshlutum nema
á Suðurnesjum, þar sem íbúa-
íjöldi stóð næstum í stað. Nærri
heimingur allrar fólksfjölgunar
í landinu milli 1995 og 1996
varð í Kópavogi, eða tæplega
900 manns. Reykvíkingum
fjölgaði um rúmlega 1.200 og
Ilafnfirðingum um 400 manns.
Hlutdeild landsbyggðarinnar af
öllum íbúum landsins hefur á
einum ártug lækkað úr 45%
niður í um 40%. Frá 1. desem-
ber í fyrra hefur fólki m.a.s.
fækkað í beinum tölum á flest-
um þéttbýlisstöðum á lands-
byggðinni. Akureyringum fjölg-
aði að vísu um nærri 90 manns
og lítils háttar fjölgun varð
einnig í Bolungarvík, Súðavík,
Dalvík, Húsavík, Egilsstöðum,
Eskifirði, Hvolsvelli, Hellu og
Selfossi. Hlutfallsleg fólksfækk-
un varð aftur á móti mjög mikil
í Hnífsdal (18%), Hofsósi (11%)
og Grímsey (13%), en mjög víða
á bilinu 3-7% milli ára. Hag-
stofan áætlar, í bráðabirgðatöl-
um, að um 4.300 börn fæðist á
landinu í ár, álíka mörg og árið
áður og um 2.400 fleiri heldur
en kvöddu þetta líf (1.900) á ár-
inu. Ef fæðingatíðni yrði hin
sama til frambúðar yrðu ófædd-
ar kynslóðir jafn ijölmennar og
kynslóð foreldranna.
Lfm 4.300 manns hafa flutt
frá landinu á umliðnu ári, álíka
margir og árið á undan. Til
landsins fluttu hins vegar um
3.800 manns, eða um 900 fleiri
en árið á undan og hafa raunar
aðeins tvisvar áður svo margir
flutt til landsins. Undanfarin ár
hafa fleiri erlendir ríkisborgar-
ar flutt til landsins en frá land-
inu.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞÓREY ÁSMUNDSDÓTTIR,
Háteigsvegi 9,
lést aðfararnótt 31. desember.
Sóiveig Steingrímsdóttir, Birgir Jensson.
Svava Ásdís Steingrímsdóttir, Ágúst Már Sigurðsson.
Guðrún Steingrímsdóttir, Sigurður Ásgeirsson.
Edda Hrönn Steingrímsdóttir, Ásgeir H. Ingvarsson.
Alda Steingrímsdóttir, Oddur Eiríksson.
Kolbrún Lind Steingrímsdóttir, Jóhannes Eiríksson.
Rósa Steingrímsdóttir. Guðmundur B. Jósepsson
og barnabörn.