Dagur - Tíminn Akureyri - 03.01.1997, Side 12
Jbtgur^Emram
Föstudagur 3. janúar 1997
Magnús
Jónsson
veðurfrœðingur
Reykjavík
°C
10
5-
0-
-5
Lau Sun Mán
-10
- 5
0
N2 S 3 S 4 S 4 55
SSA 3 S 4 SSA B SSA 6
Stykkishólmur
Bolungarvík
Sun Mán
mm
-10
- 5
SV3 SSV3 SSV3 SSV4 SSV4
SSV2 SSV3 S 3 S 3
Blönduós
Lau
Sun
SV2 SSV 3 SSV 3 SSV3 S4
SSV2 SSV3 S 3 S 3
Akureyri
5-
0-
Sun Mán
f3rj mm
Egilsstaðir
SV2 SV2 VSV2 SV2 SSV3
V 2 VSV2 VSV3 SSV4
Kirkjubæjarklaustur
5-
0-
Sun
-10
- 5
0
Stórhöfði
!? Lau Sun Mán Þri mm_
10-1-------- --------- --------- ---------1-15
S 6 S7
56 S8
Candy
uppþvottavél C4810
5 þvottakerfi • Sérstaklega
hljóölátar • SparnaSarrofi
Frábært verð kr. 54.590
KAUPLAND
0
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Hæg vestlæg átt eða breytileg átt.
Skýjað með lítilsháttar súld á
stöku stað vestanlands en þurrt
annars staðar og víðast bjart
veður um landið austanvert.
Sumsstaðar vægt frost í bjartviðri
inn til landsins en annars hiti á
bilinu 1 til 5 stig. Næstu vikuna
lítur út fyrir suðvestlægt blíðviðri
sem ekki er alveg í takt við
árstímann en kannski í takt
við dagtímann.
■■■■■
IÞROTTAMAÐUR ARSINS
Jón Amar kjörinn í annað sim
Jón Arnar Magnússon var í
gær útnefndur íþróttamað-
ur ársins í kjöri Samtaka
íþróttafréttamanna. Jón Arnar
tók við verðlaunum sínum á
Hótel Scandic Loftleiðum í gær-
kvöldi. Þetta er annað árið í röð
sem Jón Arnar hlýtur nafnbót-
ina íþróttamaður ársins.
Það sem hæst ber hjá Jóni
Arnari á árinu er eflaust
frammistaða hans á Ólympíu-
Geir Sveinsson leiddi íslenska
landsliðið í handknattleik í gegnum
riðlakeppni HM.
leikunum í Atlanta. Hann hafn-
aði í 12. sæti í tugþrautar-
keppninni á nýju fslandsmeti,
8274 stigum. Þá varð hann í
þriðja sæti á Evrópumeistara-
mótinu innanhúss í sjöþraut og
bætti eigið íslandsmet í grein-
inni.
Guðrún Arnardóttir, frjáls-
íþróttakona úr Ármanni,
hreppti annað sætið. Hún var
skammt frá því að komast í úr-
slit í 400 m grindahlaupi á
Ólympíuleikunum, þar sem hún
fékk tíunda besta tímann í
greininni. Hún bætti íslands-
metið í greininni tvívegis.
Geir Sveinsson hafnaði í
þriðja sætinu en hann hefur
verið styrkasta stoð íslenska
handknattleikslandsliðsins á ár-
inu.
Vala Flosadóttir, sem látið
hefur að sér kveða í stangar-
stökki, hafnaði í 4. sæti í kjör-
inu. Hún er Evrópumeistari í
stangarstökki og á heimsmet í
unglingaflokki, bæði utan- og
innanhúss.
Þessir fjórir íþróttamenn
voru í nokkrum sérflokki á ár-
inu, sé tekið mið af atkvæða-
dreiflngxmni í kjörinu sem fram
hefur farið árlega allar götur
frá 1956.
Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður úr UMSS, var kjörinn íþrótta-
maður ársins af íþróttafréttamönnum, annað árið í röð. Hér heldur hann á
Guðrúnu Arnardóttur sem náði mjög góðum árangri á árinu og hafnaði í
ÖðrU Sæti í kjörinu. Mynd: BGS
Þau fengu atkvæðií kjörinu
á Iþróttamanni ársins
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Alls fengu 32 íþróttamenn atkvæði í kjörinu á íþróttamanni
ársins sem kjörinn var af íþróttafréttamönnum og skiptust
atkvæðin þannig.
Þeir íþróttamenn sem höfnuðu í tíu efstu sætunum fengu að
launum veglega bókagjöf frá Máli & Menningu og þeir þrír efstu
fengu auk þess verðlaunagripi til eignar.
1. Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttamaður úr UMSS 335
2. Guðrún Arnardóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni 310
3. Geir Sveinsson, handknattleiksmaður með Montpellier 240
4. Vala Flosadóttir, frjálsíþróttakona úr MAI/ÍR 240
5. Birgir Leifur Hafþórsson, kylflngur úr Leyni 91
6. Birkir Kristinsson, knattspyrnumaður úr Brann 64
7. Teitur Örlygsson, körfuknattleiksmaður Njarðvík/Larissa 43
8. Kristinn Björnsson, skíðamaður úr Leiftri 34
9. Ólafur Þórðarson, knattspyrnumaður úr ÍA 33
10. Kristín Rós Hákonardóttir, sundkona úr ÍFR 32
11. Dagur Sigurðsson handknattleiksmaður úr Val/Wupperthal 28
12. Vernharð Þorleifsson, júdómaður úr KA 24
13. Rúnar Alexandersson, fimleikmaður úr Gerplu 17
14. Kristján Ilelgason, snókerspilari
15. -16. Bjarni Guðjónsson, knattspyrnumaður með ÍÁ
15.-16. Julian Róbert Duranona, handknattleiksmaður með KA
17.-18. Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnukona úr Breiðablik
17.-18. Eydís Konráðsdóttir, sundkona úr SFS
19. Nína Björg Magnúsdóttir, fimleikakona úr Björk
20. -21. Ólafur Eiríksson, sundmaður úr ÍFR
20.-21. Þórður Guðjónsson, knattspyrnumaður með Bochum
12
11
11
10
10
9
6
6
Aðrir sem fengu atkvæði í kjörinu:
22.-24. Gunnar Oddsson, knattspyrnumaður með Leiftri, Haraldur
Ingólfsson, knattspyrnumaður með ÍA/Aberdeen og Vanda Sigur-
geirsdóttir, knattspyrnukona með Breiðablik - öll með fimm at-
kvæði, 25.-28. Guðmundur Ilrafnkelsson, handknattleiksmaður
með Val, Guðni Bergsson, knattspyrnumaður með Bolton, Heimir
Guðjónsson, knattspyrnumaður úr KR og Karen Sævarsdóttir, kylf-
ingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, öll með fjögur atkvæði. 29. Martha
Ernstdóttir frjálsíþróttakona úr ÍR þrjú atkvæði, 30.31. Bjarki Sig-
urðsson, handknattleiksmaður úr Aftureldingu, og Guðmundur
Stephensen, borðtennismaður úr Víkingi, hlutu sitthvort atkvæðið í
kjörinu.