Dagur - Tíminn Akureyri - 22.01.1997, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 22. janúar 1997 -15
.i'5'v...........ir
ÍDíigur-®mmm
ICV ÖLDMATARLÍFIÐ
Á HÚSAVÍK
Galtómt bitabox
Abensínstöð Esso var Por-
grímur Sigmundsson, tví-
tugur bensíntittur, alveg
glorhungraður. „Ég er ekki bú-
inn að borða neinn kvöldmat.
Hins vegar lýk ég vaktinni
klukkan tíu og fer þá heim og
fæ mér eitthvað gott að borða.
Mitt mataræði er alveg andstætt
öllum hollustuvenjum. Ég borða
stærstu máltíð dagsins á kvöld-
in, áður en ég fer að sofa,“ seg-
ir hann. Bitaboxið hans Þor-
gríms hafði gleymst á borðinu
og hann sýndi okkur ofan í það.
Galtómt. Hin barmmikla Pa-
mela Anderson kinkaði góðlát-
lega kolli og viðurkenndi fús-
lega að hið versta mál væri að
bensínafgreiðslumaður út við
ysta haf fengi ekki eitthvað í
gogginn á þessum napra vetr-
arkvöldi. „Það er ágætt að
vinna á bensínstöðinni, en
launaseðilinn frá rækjuvinnsl-
unni, þar sem ég starfaði til
skamms tíma, var betri,“ segir
Þorgrímur.
Galtómt er það, Þorgrímur með nestisboxið sitt.
Stappaðar kirniar
Guðrún Björg Sigtryggs-
dóttir og Tryggvi Berg
Friðriksson, sonur henn-
ar, sem búa á efstu hæð fjölbýl-
ishússins að Grundargarði 15
voru rétt að ljúka við kvöldmat-
inn þegar rannsóknarmenn
Dags-Tímans buðu gott kvöld.
Ungi maðurinn var rétt að ljúka
við það sem eftir var á diskin-
um; kinnar, kartöflur og
hamsatólg stappaðar í mauk.
„Þetta er svona dæmigerður
mánudagsmatur," segir Guðrún
Björg. Sá allra besti matur sem
Tryggvi Berg fær er mjólkur-
grautur. Á laugardögum er
hann alltaf í mat hjá örnmu
sinni og þá fær hann heldur
betur tækifæri til að spæna í sig
grautnum svo hann stendur
nánast á blxstri. Hinn ungi mat-
maður er vígalega klæddur í
úníformi enska knattspyrnu-
liðsins Man. Utd. Eftirlætisleik-
maður Tryggva Berg er Ryan
Giggs, sem skoraði mai'k um
síðustu helgi. Geri aði'ir betur.
Lærið gleymdist
Fiskbúðingur á sunnudegi, lærið gleymdist.
Myndir GS.
Við erum bara búin að
borða, en þið megið al-
veg koma inn,“ sagði
Gunnhildur Gxmnsteinsdóttir,
sem býr á þriðju hæð í Grund-
argarði 15. Sumxudagsmatur-
inn, steikt læri, hafði verið á
borðum á mánudagskvöldi. Á
hinum helga degi hafði hins
vegar verið fiskibúðingur í mat-
inn. Það hafði hreinlega
gleymst að vera með dæmigerð-
an sunnudagsmat. „Lambakjöt
stendur alltaf fyrir sínu, ég er
með það í matinn svona einu
sinni í viku. Annars reyni ég að
blanda þessu sem mest saman
og hef enga fasta reglu á því
hvaða mat ég hef á hvaða
degi,“ segir Gunnhildur. Hún
segist aðspurð vera ágætur
kokkur. „Mamma mín er fínn
kokkui', þó hún vinni ekki á
hóteli eða svoleiðis," segir dótt-
irin Freyja, sex ára gömul. Son-
urinn Hjörtur, 10 mánaða, er
efalítið á sarna máli, þar sem
hann á öruggt skjól við móður-
barm. -sbs.