Dagur - Tíminn Akureyri - 22.01.1997, Qupperneq 3
|DagurJ3ftttmm
Miðvikudagur 22. janúar 1997 - III
Akureyri
Þjónusta Össurs/Hjálpartækjabankans norður
Aukin og bætt þjónusta í
stoð- og hjálpartækja-
málum býðst nú Norð-
lendingum. Sjúkraþjálfunin Efl-
ing og Læknaverið, sem staðsett
er í Krónunni við göngugötuna
á Akureyri, hefur í samvinnu
við Össur/Hjálpartækjabank-
ann, sem er alhliða stoðtækja-
og hjálptækjafyrirtæki, veitt
Norðlendingum sem og öðrum
nýja og bætta þjónustu á þessu
sviði og er þar fagmennska
höfð í fyrirrúmi.
Tilgangur samstarfsins er
fyrst og fremst sá að gera þjón-
ustuna markvissa og sem besta
og þannig að ekki þurfl að leita
á marga staði heldur sé hægt
að nálgast þjónustuna á sem
auðveldastan og þægilegastan
máta. Þannig er einnig hægt að
spara fjölda manns að leita eftir
úrlausn sinna mála fyrir sunn-
Fyrirtækið hefur fest
kaup á einu fulkomn-
asta göngugreining-
artæki sem vöi er á.
Hægt er að fara með
tækið milli staða en
það veldur byltingu í
greiningu göngu-
vandamála.
an, sem í flestum tilfellum spar-
ar umtalsverða fjármuni.
Stoðtækjafræðingar frá Öss-
uri koma einu sinni í viku og
aðstoða vegna gervilima,
innleggja, spelkna, sjúkraþjálf-
ari frá Hjálpartækjabankanum
kemur einu sinni í mánuði og
ortopediskur skósmiður kemur
Slökkvilið Akureyrar
Birgir Finnsson t.v. á brunaæfingu með Tómasi Búa Böðvarssyni slökkvi-
liðsstjóra sl. sumar.
Birgir aðstoðar-
slökkviliðsstj óri
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt að ráða Birgi
Finnsson aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra á Akureyri. Breyting
verður á starfinu, m.a. mim að-
stoðarslökkviliðsstjórinn ekki
ganga vaktir en mun fá ýmis
verkefni, sem ekki hafa tilheyrt
embættinu til þessa, m.a. hluti
af endurskipulagningu slökkvi-
liðsins.
Birgir Finnsson er fæddur
1967, sonur Finns Birgissonar
og Sigurbjargar Pálsdóttur á
Akureyri. Hann útskrifaðist á
sl. ári sem brunatæknifræðing-
ur frá Tekniska högskolan í
Lundi í Svíþjóð, og stundaði síð-
an eins árs framhaldsnám við
Ráddningsskolan í Revinge,
sem gefur réttindi sem yfirmað-
ur í slökkviliði. Hann hefur
starfað við Slökkviliðið á ísa-
firði og í sumarstarfi við
Slökkviliðið á Akureyri við eld-
varnaeftirlit, þjálfun og fræðslu.
GG
INNANHÚSKNATTSPYRNA
Leiftur og Þór I1. deild
Leiftur frá Ólafsfirði komst í
1. deild íslandsmótsins í
innanhúsknattspyrnu á
nýafstaðinni keppni í 2. deild
sem fram fór í íþróttahúsinu við
Austurberg í Breiðholtinu.
Leiftur vann sigur á Borg-
nesingum 4:3 og tryggði sér sig-
ur í A-riðli og Þórsarar unnu
sigur á ÍR-ingum 4:2 og komust
einnig áfram. Kristinn hefur því
væntanlega verið íbygginn í lok
mótsins, hkt og á meðfylgjandi
mynd. GG
Gunnar Valdimarsson, stoðtækjasmiður, aðstoðar Pál Halldórsson, sem missti fót
rétt um hné. Mynd: JHF
einu sinni til tvisvar í mánuði.
Fyrirhugað er að iðjuþjálfar frá
Hjálpartækjabankanum bætist í
hópinn. Fyrirtækið hefur fest
kaup á einu fullkomnasta
göngugreiningartæki sem völ er
á. Þetta tæki er hægt að fara
með á milli staða og mun verða
algjör bylting í greiningu
gönguvandamála og smíði og
vali innleggja og spelkna, t.d.
fyrir íþróttafólk.
Verið er að leita eftir sam-
vinnu við Gigtarfélag íslands
um að iðjuþjálfi frá þeim komi
norður einu sinni í mánuði og
hafin er ráðgjöf við stofnanir og
einstaklinga á Akureyri á veg-
um Össurs/Hjálpartækjabank-
ans. Fyrir dyrum stendur að
vera með fræðslu fyrir fagfólk
um ýmislegt sem tengist vali á
hjálpartækjum og möguleikum í
þeim efnum og m.a. stendur tfl
að vera með svokallaða sessu-
daga þar sem setvandamál
verða tekin fyrir.
Össur/Hjálpartækjabankinn
hefur til sölu endurhæfingar og
hjálpartæki. Þar má nefna ýmis
tæki og áhöld fyrir gigtar- og
bækltmarsjúklinga; hjálpartæki
á bað, s.s. sturtustóla, bað-
bretti, stoðir við handlaugar og
salerni. Einnig mætti nefna vör-
ur fyrir stomasjúklinga, vörur
fyrir einstaklinga fyrir þvag-
færavandamál og sérsmíðaðar
spelkur fyrir íþróttafólk, bækl-
unar og gigtsjúkhnga. Konur
sem misst hafa brjóst geta notið
aðstoðar fagfólks við val á ýms-
um vörum sem þær þurfa á að
halda. GG
HANDBOLTI • Bikarkeppni HSI
Kemst KA í úrslit
Tjórða árið I röð?
KA-menn mæta til leiks í
undanúrslitum Bikar-
keppninnar fimmta árið í
röð annað kvöld, þegar liðið
tekur á móti ÍR í KA-heimilinu
klukkan 20. Þetta er einn af
stórleikjum vetrarins í KA-
heimilinu og það þyrfti ekki að
koma neinum á óvart þó upp-
selt verði á leikinn.
KA-liðið hefur fengið á sig
nokkra gagnrýni að undanförnu
hjá stuðningsmönnum sínum,
sem borið hafa núverandi lið
saman við KA-liðið á síðasta
tímabili. Aðrir stuðningsmenn
liðsins eru hæstánægðir og
benda á að í fyrra hafi liðið ekki
leikið best þegar mest lá við.
Liðið tapaði ekki leik framan af
vetri, en gaf aðeins eftir þegar
fór að vora. En hvað finnst Er-
lingi Kristjánssyni, fyrirliða KA,
um leik liðsins í vetur?
„Það virkar kannski ekki
eins gaman og í fyrra, en engu
að síður erum við að ná næst
besta árangrinum í sögu deild-
arinnar. Það er vissulega ekki
hægt að tala um slakan árang-
ur, þó við vinnum ekki alla leik-
ina, en ég er að vona að með
hækkandi sól og fleiri úrslita-
leikjum eins og þessum leik við
ÍR, þá náist þessi stemmning
upp sem var svo oft í fyrra.“
Erlingur sagði að leikurinn
gegn ÍR legðist vel í sig. „Þetta
verður barátta upp á líf og
dauða eins og alltaf í bikarnum.
Við vorum næstum því búnir að
missa fyrri leikinn gegn þeim
hér heima niður í jafntefli og
við vorum heppnir að tapa ekki
gegn þeim fyrir sunnan. Engu
að síður er ég bjartsýnn og ef
stemmningin verður góð í KA-
heimilinu þá eigum við að fara
með sigur af hólmi. Ég á ekki
von á því að við förum að
bregðast stuðningsmönnum
okkar, með því að eiga slakan
leik,“ segir Erlingur.
Krónprinsinn!
KA og IR eiga það sameiginlegt
að félögin hafa lagt mikla rækt
við unglingastarfið á undan-
förnum árum og hægt er að sjá
þess merki á ÍR-Iiðinu, sem
skipað er mörgum stórefnileg-
um leikmönnum, í bland við
nokkra eldri máttarstólpa.
Matthías Matthíasson, sem
þjálfaði í Noregi í fyrra, hefur
verið að gera góða liluti með
liðið og það hefur vaxið með
hverjum leik. Einn af ungu pilt-
unum í liðinu er Ragnar Ósk-
arsson, átján ára piltur sem
stundum hefur verið nefndur
krónprinsinn í íslenskum hand-
knattleik. Ragnar hefur ótrú-
lega góða tækni og KA-menn
fengu reyndar að kenna á hon-
um í leiknum í Seljaskólanum
sl. sunnudagskvöld, þar sem
Ragnar skoraði fimm mörk í
síðari hálfleiknum. Annars felst
helsti styrkur liðsins í því hve
jafnt liðið er og baráttuþreki
leikmanna. Nærtækasta dæmið
um það er síðari hálfleikurinn í
leiknum gegn KA og stórsigur
liðsins gegn Fram í síðasta
mánuði.
Spennandi verkefni
Það rekur hver stórleikurinn
annan hjá KA-liðinu á næstu
vikum. Eftir leikinn gegn ÍR,
verður reyndar hálfs mánaðar
hlé gert á deildinni vegna
landsleikja, en næsta viðureign
KA-manna verður gegn Aftur-
eldingu og það er langt frá því
að KA-menn hafi sleppt takinu
af Deildarbikarnum þar sem
þremur stigum munar á KA og
efstu liðunum, Haukum og Aft-
ureldingu. Eftir leikinn gegn
Aftureldingu koma síðan Evr-
ópuleikir KA-manna gegn ung-
verska liðinu Fotex Vesprem.
Það ætti því að vera hægt að
lofa skemmtilegum kvöldstund-
um í KA-heimilinu á næstunni.