Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Blaðsíða 5
|Dtagur-'2Rirann
M E N N I N G
O G
LISTIR
Freyja Rögnvaldsdóttir (t.v.), Guðrún Guðmundsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir.
Hveijir eru
Sam-Fmnurarar?
Yfir fáum félagasamtökum
hvílir jafnmikil leynd og
Frímúrarareglunni. Kjól-
fataklæddir karlmenn eru það
sem fyrst kemur upp í huga
þeirra sem ekki þekkja til en
færri vita að einnig er til önnur
regla, Sam-Frímúrarareglan,
sem er bæði opin körlum og
konum. Þeir sem forvitnir eru
um síðarnefndu regluna geta
svalað forvitni sinni að
einhverju leyti um helgina á
opnum kynningarfundi á Akur-
eyri sem er sá fyrsti sinnar teg-
undar hérlendis.
Tilefni fundarins er að Akur-
eyrardeild Sam-Frímúrara er
sjötug um þessar mundir og
finnst félagsmönnum kominn
tími til að kynna regluna. „Við
höfum orðið varar við misskiln-
ing hjá fólki. Bæði að það held-
ur að við séum konur frímúrara
og einnig að reglan sé eingöngu
fyrir konur," segir Margrét
Guðmundsdóttir um ástæðu
þess að ákveðið var að efna til
kynningarfundar. Margrét hef-
ur starfað með samtökunum í
18 ár en stöllur hennar sem
einnig ræddu við blaðið, þær
Freyja Rögnvaldsdóttir og Guð-
rún Guðmundsdóttir, í 12 og 13
ár.
Tilgangur starfsins
Tilgangur Sam-Frímúrararegl-
unnar er að leita sannleikans,
skilja raunveruleikann, út-
breiða hugsjón bræðraþels og
þjóna mannkyninu. Til að tak-
ast á við þessi stóru verkefm
lætur reglan í té sérstaka að-
ferð sem meðlimir hennar geta
tileinkað sér með því að kynna
sér táknfræði frímúrara og
helgisiði.
Innan reglunnar starfa sam-
an konur og karlar á jafnréttis-
grundvelli og eru engar skorður
settar vegna trúar, kynþáttar
eða litarháttar.
Alls tilheyra 340 manns
Sam-Frímúrarareglunni á ís-
landi og þar af eru 43 á Akur-
eyri. En hvernig skyldi inntaka
nýrra félaga fara fram?
„Engum er boðið að fyrra
bragði heldur leitar einstakling-
urinn til okkar. Síðan er skipuð
viðtalsnefnd og í framhaldi er
tekin ákvörðun um hvort við-
komandi fái inngöngu," segir
Guðrún.
Leitin að innra
manninum
Forvitni er hluti af mannlegu
eðli og því vaknar sú spurning
hvort algengt sé
að fólk leiti eftir
inngöngu til að
komast að
leyndarmálun-
um og hætti síð-
an eftir það.
Þær Margrét,
Guðrún og
Freyja eru sam-
mála um að
fæstir sýni
áhuga vegna
þess. „Við finn-
um um leið
hvort um raunverulegan áhuga
sé að ræða eða ekki,“ segir
Margrét.
En hvers vegna skyldi ein-
hvern langa að vera frímúrari?
Hvað er það í starfinu sem
heillar? Það er Margrét sem
verður fyrst fyrir svörum:
„Reglan agar okkur, kennir
okkur reglufestu og stundvísi.
Hún hefur kennt mér að meta
eðliskosti svo sem góðvild, vin-
áttu, hógværð, umburðarlyndi
og trú. Þarna fæ ég tækifæri til
að þekkja minni innri vilja,
hinn kyrra og hljóða mátt sem
býr í hverjum manni."
Og Guðrún heldur áfram:
„Hún gefur okkar tækifæri.
Þetta er leið til að þroska sjálfa
sig og fara inn á við. Mér finnst
við koma sterkari út í lífið,“
segir hún. „Þetta er mannbæt-
andi félagsskapur,“ bætir
Freyja við.
- En hvað með samstöðuna?
„Hópurinn er mjög samstæð-
ur,“ segir Margrét. „Vegna þess
að við förum svo mikið inn á við
þá vinnum við í mjög mikilli
einlægni. Því myndast ákveðin
tengsl milli okkar og við treyst-
um hvert öðru.“
Allar leggja þær áherslu á að
sú vinna sem unnin er innan
reglunnar skili sér í daglegu lífi.
Fyrst þurfi að fara inn á við og
taka sjálfan sig í gegn en síðan
skili sú leit von-
andi únhverju
út á við í sam-
skiptum við
annað fólk.
Meira fáum
við ekki gefið
upp um innra
starfið að sinni.
„Mæta bara á
fundinn, þar er
hægt að
spyrja,“ segja
þær leyndar-
dómsfullar.
Fundur á morgun
Á kynningarfundinum mun yfir-
maður Sam-Frímúrarareglimn-
ar á íslandi, Njörður P. Njarð-
vík, halda framsögu og síðan
gefst fundargestum tækifæri á
að bera fram spurningar. Fund-
urinn verður haldinn á morgun,
sunnudag, klukkan 14 í hús-
næði Sam-Frímúrara á Akur-
eyri, Glerárgötu 32, 3. hæð.
Vilji einhver fá nánari upp-
lýsingar er einnig hægt að hafa
samband við Guðrúnu, núver-
andi formann Akureyrardeild-
arinnar, í síma 462 1985. AI
„...hefur kennt mér að
meta eðliskosti svo sem
góðvild, vináttu, hógvœrð,
umburðarlyndi og trú.
Þarna fœ ég tœkifœri til
að þekkja minni innri
vilja, hinn kyrra og hljóða
mátt sem býr í hverjum
manni “
Laugardagur 22. febrúar 1997 -17
LEIKFELAGIÐ
BÚKOLLA
SÝNIR i UÓSVETNINGABÚÐ
GAMANLEIKINN ^ ^ g>
© ©
© g)
V
eftir Rick Abbot í þýðingu Guðjóns Ólafssonar
Leikstjóri: SKULI CAUTASON
FRUMSYIUIIUG:
LAU. 22. FEB. KL. 20:30
2. SYN. MANUD. 24. FEB. KL. 20:30
3. SÝN. FIMMTUD. 27. FEB. KL. 20:30
©
©
g) ©
MIÐAPANTANIR f SÍMA 464 3550
f UÓSVETNINGAB. FYRIR SÝN. S: 464 3617
Freyvangs-
leikhúsið
I rumsýnum firna
fyndinn gamanleik:
„Meb vífib
í lúkimum"
eftir Ray Cooney
Leikstjóri: Hákon Waage
2. sýning sunnud.
23. febrúar. kl. 20.30
3. sýning þriðjud.
25. febrúar. kl. 20.30
4. sýning föstud.
28. febrúar. kl. 20.30
5. sýning laugard.
1. mars. kl. 20.30
6. sýning sunnud.
2. mars. kl. 20.30
Miöasala og pantanir í sím-
um 463 1196 og 463 1193.
Kór Leikfélags Akureyrar
Kossar
og kúlissur
Laugard. 22. febr. kl. 20.00.
Föstud. 28. febr. kl. 20.00.
Atbugið breyttan sýningartíma.
Afmælistilboð
Miðaverö 1500 krónur.
Börn yngri en 14 ára 750 krónur.
Undir
berum himni
eftir Steve Tesich
Sýningar
á „Renniverkstæðinu"
(Strandgötu 49)
Aukasýning
Laugard. 1. mars kl. 20.30.
Þetta er allra síóasta sýning
Látíð hana ekki fram hjá ykkur fara
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hæat að hleypa gestum inn
í salinn ertir að sýning er hafin.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Sími í miðasölu: 462 1400.
jRtgur-mtnmm
- besti tími dagsins!
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
I kvöld, laugard. 22. febr. Uppselt.
Laugard. 1. mars Nokkur sæti laus.
Laugard. 8. mars - Föstud. 14. mars
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Á morgun, sunnud. 23. febr. Nokkur sæti laus.
Sunnud. 2. mars - Föstud. 7. mars
Fimmtud. 13. mars
Ath. Fáar sýningar eftir.
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fimmtud. 27. febr. - Fóstud. 28. febr.
Sunnud. 9. mars - Laugard. 15. mars
LITLI KLÁUS OG
STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Á morgun, sunnud. 23. febr. kl. 14.00.
Nokkur sæti laus.
Sunnud. 2. mars kl. 14.00. Laugard. 8. mars kl. 14.00
Sunnud. 9. mars kl. 14.00. Sunnud. 16. mars kl. 14.00
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
í kvöld, laugard. 22. feb. Uppselt.
Fimmtud. 27. feb. Nokkur sæti laus.
Laugard. tmars. Uppselt.
Laugard. 8. mars - Sunnud. 9. mars
Athygli skal vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTU MYRKRI
eftir Karl Ágúst Úlfsson
Sunnud. 23. feb. Nokkur sæti laus.
Næst siðasta sinn.
Sunnud. 2. mars - Síðasta sinn
Aukasýning - Sunnud. 2. mars
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst.
Gjafakort í leikhús - sfgild
og skemmtileg gjöf
Miðasalan er opin mánudaga og þriöjudaga kl. 13-18,
frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30
þegar sýningar eru á þeim líma. Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSKJALLARANS
Mánud. 24. febrúar. kl. 21.00
FLÓTTAFÓLK
Dagskrá til ágóða fyrir Amnesty Intemational.
Meðal lislamanna Arnar Jónsson, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Sigurður A.
Magnússon, Sif Ragnhildardóttir, Þóra Friða
Sæmundsdóttir, Eyrún Ólafsdóttir, Jóhann
Kristjánsson og Þórunn Guðmundsdóttir söngkona.
Aðgangseyrir er kr. 600 en kr. 400 fyrir meðlimi
Listaklúbbsins.
Dagskréin hefst kl. 21 en húsið opnar kl. 20.30.