Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Qupperneq 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 22.02.1997, Qupperneq 12
24 - Laugardagur 22. febrúar 1997 Wiatarkrókur Uppskriftir dagsins koma frá Helgu Finnbogadóttur á Árskógsströnd. Helga er upphaflega frá Stykkishólmi en flutti á Árskógsströnd fyrir 22 árum. Þar vinnur hún á leik- skólanum Leikbæ. Fyrri upp- skriftirnar tvær segist hún nota oft þegar gestir koma í mat eða kaffi. Ávaxtakökuna smakkaði hún hins vegar fyrst í sauma- klúbbi nýlega og fannst hún svo meiriháttar góð að hún ákvað að fá uppskriftina og deilir henni nú með lesendum. Helga skorar á mágkonu sína í Mývatnssveit, Sigurlínu Ragúels, í næsta Matarkrók. Pottréttur 500 g kjöt (t.d. folaldagúllas) hveiti smjörlíki 1 tsk. karrg 1 púrra Vz dós sveppir + soð ^Da^r-Stmtrat 2 hvítlauksgeirar 3 gulrœtur 2 laukar 1 grœn paprika 2 dl tómatsósa 1 msk. kínasoja 1 tsk. engifer Veltið kjöti upp úr hveiti og steikið upp úr smjörlíki sem karrýi hefur verið blandað sam- an við. Bætið öðrum efnum saman við og látið malla í 1 klukkustund. Berið fram með hrísgrjónum, gulum baunum og snittubrauði. KASSAGERÐ REYKJAVIKUR HF hefur opnað á AKUREYRI Verið velkomin í afgreiðslu okkar við Hvannavelli ogfáið faglega ráðgjöfhjá sölumönnum. WftPið eigum fyrirliggjandi á lager: Kassa til flutninga í ýmsum stærðum og gerðum. Bylgjupappa þrjár gerðir og sníðaefni, ýmsar gerðir. Umbúðapappír, brúnan og hvítan. Kassa og öskjur fyrir matvælaframleiðslu. Kassa og öskjur fyrir fiskiðnað og útgerð. Öskjur undir gjafavöru, skartgripi o.fl. Pizzakassa. Fataöskjur, sælgætisöskjur og brauðöskjur. Möppur fyrir skjalavörslu, videóhulstur, blaðastanda o.fl. Skúffur á varahlutalagerinn og í hillumar. Bréf- og pappírspoka í ýmsum stærðum. Sérframleiðum kassa og öskjur eftir þinum óskum. v/Hvannavelli • Sími: 461 3580 • Fax: 461 3581 Jkgur-'Simmn Rabarbarakaka úr pönnukökudeigi Pönnukökudeig: 100 g hveiti 1 egg 3 dl mjólk 15 g bráðið smjörlíki salt Rabbabarafylling: 50 g smjör 500 g rabarbari 100 g sykur 1 tsk. engifer Hveitið sigtað í skál ásamt salti. Egg, bráðið smjörlíki og helmingurinn af mjólkinni sett- ur útí. Afgangnum af mjólkinni hrært saman við. Deigið er nú tilbúið. Skerið rabarbarann í 5 sm. bita. Smjörið er sett í eldfast mót og brætt. Niðurskorinn rabarbarinn er settur yfir smjörið í mótinu. Sykri og engi- feri er stráð yfir rabarbarann. Síðan er pönnukökudeiginu hellt yfir rabarbarann. Bakað við 220° C í 30 mínútur. Hitinn er lækkaður niður í 200° C og kakan bökuð áfram í 15 mínút- ur. Berið fram volgt með ís eða þeyttum rjóma. Toblerone ávaxtakaka Púðursykurmarengs: 2 eggjahvítur 2 dl púðursykur (má nota 25-30 makkarónukökur í staðinn) Bakað við 150° C í 45 mínút- ur. Rjómakrem: 2'/ dl rjómi 2 eggjarauður 3 msk. flórsykur 100 g toblerone (brytjað) Eggjarauður og sykur þeytt saman. Rjóminn þeyttur og öllu blandað saman. Ferskir ávextir: 25 jarðaber 20 vínber 2 kiwi '/ hunangsmelóna '/-/ askja bláber Ávextirnir eru skornir niður (nema bláberin). Varist að skera of smátt. Súkkulaðisósa: 100 g toblerone 1 msk. rjómi Hitið í potti þar til súkkulað- ið er bráðið. Marengsinn er brytjaður frekar smátt. Meirihlutanum er dreift í botn á fati eða diski með háum börmum. Rjómakremið sett yfir. Afgangur af marengs og brytjaðir ávextir settir yfir. Skreytt með súkkulaðisósunrú. Helga Finnbogadóttir. á síðustu ARCTIC CAT vélsleðunum Eigum einnig nokkra notaða sleða. SUÐURLANDSBRAUT 14, SIMI: 568 1200

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.