Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Qupperneq 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 01.03.1997, Qupperneq 1
iDagxir-ðltnrattt Laugardagur 1. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 42. tölublað ámXKMMMXM tfixrrtctrtttiP aanwieBMiM sMKmsaneJðc. jsit ÞESSU TÖLUBLAÐI lýkur i greinaflokki séra Ágústs I ■ Sigurðsonar um beinamál- I ið, sem vakti mikla furðu ^ fyrir hálfri öld. Málið snérist V—S um tilflutninga á líkamsleif- um Jónasar Hallgrímssonar. Beinamál- inu bregður víða fyrir, m.a. í Atómstöðinni eftir Halldór Laxness og er gert nokkur skil í samnefndri kvikmynd. Séra Ágúst hefur rannsakað beinamál- ið ítarlegar en áður hefur komið fram. Niðurstaðan er sú að hrakfallasaga beina- málsins hafi hafist í Kaupmannahöfn þeg- ar grafið var eftir leifum þjóðskáldsins í kirkjugarðinum þar sem hann var jarð- settur. En tilgangurinn með flutningnum var að grafa leifarnar í nýstofnuðum þjóð- argrafreit á Þingvöllum. Rök eru færð fyrir því að aðeins beina- leifar af neðri hluta líkama skáldsins hafi lent í kistunni sem flutt var til íslands. Höfuð- og herðabein grotna enn í Assistancekirkjugarði. Eftir að beinin komu til íslands töldu Norðlendingar eðlilegt að skáldið yrði grafið þar en ekki í Árnesþingi. Hurfu beinin úr vörslu útfararstjóra í Reykjavík og spurðist til þeirra norður í Öxnadal. Voru þau sótt þangað samkvæmt ráð- herraskipun. Alla þessa sögu rekur séra Ágúst af nákvæmni og í síðustu greininni sem nú birtist kemst hann að þeirri niðurstöðu að líklegast séu líkamsleifar Jónasar Hall- grímssonar á þrem stöðum. í Kauþ- mannahöfn, í Öxnadal og á Þingvöllum. í þjóðargrafreitnum mun þó tæpast vera annað en brotinn lærleggur, ef á annað borð er nokkurt tangur eða tetur af lík- amsleifum Jónasar Hallgrímssonar þar. Telja má nær öruggt að beinin hafi ver- ið tekin úr kistunni fyrir norðan og hafi lögreglan flutt hana tóma suður og biskup messað yfir henni í Reykjavíkurdómkirkju og ráðherrar ekki borið annað til grafar á Þingvöllum en brotinn lærlegg, sem þó er álitamál. Eru bein Jonasar í brem kirkjugörðum?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.