Dagur - Tíminn Akureyri - 06.03.1997, Side 3
Jla9ur-®ímmn
Fimmtudagur 6. mars 1997 - 3
Kvótabrask
Kvótabraskið fær á sig
brot l'yrir Félagsdómi
Forustumenn sjómanna voru ánægðir með niðurstöðuna eftir uppkvaðningu dómsins í gær. Mynd: Hilmar Þór
Óheimilt að draga frá
verðmæti kvóta áður
en kemur til skipta.
Niðurstaða dómsins er í
samræmi við það sem við
höfum alltaf sagt. Pað er
óheimilt að draga verðmæti
veiðiheimilda frá áður en kem-
ur til skipta," segir Sævar
Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands.
Forustumenn sjómanna
brostu breitt í gær eftir að Fé-
lagsdómur hafði úrskurðað að
þátttaka sjómanna í kvótakaup-
um útgerða væri ólögleg. Jónas
Haraldsson, lögfræðingur LÍÚ,
vildi hinsvegar ekki tjá sig um
niðurstöðu dómsins.
I þessu tilfelli var dæmt í
máli sem Farmanna- og fiski-
mannasambandið höfðaði gegn
útgerð Sæbergs frá Ólafsfirði í
svokölluðum tonn á móti tonni
viðskiptum. Um níu mánuðir
eru liðnir síðan þetta mál kom
upp.
„Ef þetta hefði farið á hinn
veginn, þá var kjarasamningur
sjómanna ónýtur," segir Guðjón
A. Kristjánsson, formaður FFSÍ.
Hann segist vonast að dómur-
inn grafi undan kvótabraskinu
og þessum frjálsu leiguviðskipt-
um með kvóta, eða tonn á móti
tonni. Hann er jafnframt á því
að niðurstaða dómsins muni
efla sjómenn til dáða í barátt-
unni gegn braskinu, enda hafi
réttarstaða þeirra batnað til
muna.
Formaður FFSÍ segir að það
sé auðvitað umhugsunarefni
fyrir sjómenn og aðra þegar
þeir þurfa að fara með ákvæði
kjarasamninga fyrir dómstóla.
Hinsvegar hafa málefni kvótans
þróast á þann veg að útgerðir
hafa dregið verðmæti fiskveiði-
kvótans frá heildaraflaverð-
mæti. Það hafa menn ekki að-
eins gert í viðskiptum sem
kennd hafa verið við tonn á
móti tonni heldur og einnig í
gegnum lágt fiskverð. -grh
Ríkisbankarnir
Grænt ljós
hjá Guðna
Einkaaðilar geta eignast allt
að 35 prósent í ríkisbönkun-
um, en ekki 49%, eftir breyting-
ar sem gerðar hafa verið á
frumvörpum um að breyta rík-
isbönkunum tveimur í hlutafé-
lög. Þingflokkar Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks hafa báðir
samþykkt að frumvörpin verði
lögð fram sem stjórnarfrum-
vörp og koma þau væntanlega
til fyrstu umræðu á Alþingi eftir
helgi.
„Bankarnir fá að starfa
áfram og verða áfram í eigu
ríkisins og almennings, þannig
að málið er orðið ásættanlegt,"
segir Guðni Ágústsson, þing-
maður Framsóknarflokksins,
sem var mjög ósáttur við fyrir-
hugaðar breytingar á bönkun-
un.
Ekki verður hægt að selja
hlut ríkisins í bönkunum fyrr en
eftir 4 ár og verður það þá
ákvörðun Alþingis hvort og með
hvaða hætti það verður gert.
Hins vegar verður heimilt að
auka hlutafé og selja þann hlut,
en þó ekki meira en sem svarar
35% af heildarhlutafé. Þá hefur
verið felld út heimild til ráð-
herra til að taka annan bank-
ann og sameina hann öðrum
fjármálastofnunum, eins og
gert var ráð fyrir í eldri drög-
um. Guðni segir að einnig hafi
verið gefin fyrirheit um að
starfsfólk muni á einhvern hátt
njóta forgangs að kaupum á
hlutabréfum og hann treysti því
að við það verði staðið. -vj
Reykjavík
Borgarstjóri
blæs í lúðra
Kosningabaráttan er
hafín í Reykjavík.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri seg-
ir að greinilega sé ijör að
færast í borgarpólitíkina,
sjálfstæðismenn séu að fær-
ast í aukana og fundir í
borgarstjórn séu farnir að
dragast á langinn vegna
pólitískrar umræðu. í lok
opins fundar hjá Regnbog-
anum í fyrrakvöld blés
borgarstjóri í herlúðra og
hvatti liðsmenn til dáða í
borgarstjórnarkosningunum
vorið 1998.
„Nú er að færast aukið
ijör í leikinn. Sjálfstæðis-
menn eru farnir að safna
saman sínum vopnum og
ætla að vinna á okkur. Þeir
reyna líka að sá sundur-
lyndisfræjum. En þetta er
samstilltur hópur sem er
ákveðinn í að vinna kosn-
ingarnar og vera annað
kjörtímabil við völd. Það er
fyrst þá sem breytingar fara
að sjást í borginni,“ sagði
borgarstjóri meðal annars.
Á fundinum kom fram að
borgarfulltrúar Reykjavík-
urlistans eru þegar farnir
að huga að kosningum.
Stofnaðir hafa verið starfs-
hópar til að vinna með
borgarfulltrúunum, til dæm-
is að stefnumótun. Þá sagði
borgarstjóri að huga þyrfti
Borgarstjóri hvatti liðsmenn
Regnbogans til dáða á opnum
fundi í fyrrakvöld og sagði að
það markaði „skil í stjórn-
málasögunni" þegar Reykja-
víkurlistanum tækist að vinna
borgina í annað sinn.
að Qáröflun fyrir listann og
aðferðafræði við framboðið.
„Það þarf að fara að
huga að því hvernig við ætl-
um að bjóða fram og hvern-
ig á að raða á lista,“ sagði
borgarstjóri en hún hefur
þegar lýst yfir að hún sækist
aftur eftir áttunda sæti
Reykjavíkurlistans. „Það
markar skil í stjórnmála-
sögunni þegar okkur tekst
að vinna borgina í annað
sinn.“ -GIIS
Hæsliréttur
Fjalla um ásakanir um
vanhæfi starfsbróður
Forráðamenn Frægs
hf. ráða virta danska
lögmenn sem hugs-
anlega fara með mál
sitt til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu.
Hæstaréttardómarar hafa
undanfarna daga fundað
um álit ríkislögmanns
varðandi kröfu Hreins Loftsson-
ar, lögmanns Coca Cola á ís-
landi. Ilreinn krafðist endurupp-
töku skattamáls, sem fyrirtækið
tapaði fyrir Hæstarétti. Ilann
telur Pétur Kr. Hafsteins hafa
verið vanhæfan í dóminum.
Svars Hæstaréttar til Ilreins er
að vænta allra næstu daga að
sögn Haraldar Henrýssonar, for-
seta Hæstaréttar, í gær.
Mál af svipuðum toga þar
sem krafist er endurupptöku
dóma vegna meints vanhæfis
eins dómarans, Péturs Kr. Ilaf-
stein, forsetaframbjóðanda, eru
orðin Qögur talsins. Þrjú mál-
anna varða dóma yfir trillukörl-
um sem Jón Oddsson rekur.
Fjórða kærumálið, vegna
Frægs hf., mun bíða umsagnar
lögmanns, sem mun staddur er-
lendis og erindið ekki komið til
ríkislögmanns, Jóns G. Tómas-
sonar. Lögmaður Frægs, Jón
Oddsson, segir að umbjóðandi
sinn hafi falið „virtri danskri
málflutningsskrifstofu“ að reka
mál Frægs fyrir Mannréttinda-
nefnd Evrópu og áfram tU
Mannréttindadómstólsins ef
þörf krefur og að lokinni athug-
un á niðurstöðum Hæstaréttar
á endurupptökukröfunni.
Fyrrverandi stjórnarmenn
forsetaframboðs Péturs Kr. IJaf-
stein hafa sent frá sér yfirlýs-
ingu vegna vanhæfiskrafa lög-
manna. Þeir segja það rangt að
Pétur hafi óskað eftir við fjár-
málaráðuneytið að virðisauka-
skattur yrði endurgreiddur. Það
hafi verið forsvarsmenn fram-
boða Ólafs Ragnars, Péturs og
Guðrúnar Agnarsdóttur sem
héldu á fund með fjárlagnefnd
Alþingis skömmu fyrir áramót.
Erindi þeirra var hafnað.
Stuðningsmenn benda enn
og aftur á að Pétur hafi í upp-
hafi ákveðið með tilliti til dóm-
arastarfa sinna að fá ekki vitn-
eskju um einstök framlög eða
ljárhæðir þeirra. Þessu hafi í
hvívetna verið fylgt. -JBP
Bæjarstjórn Akureyrar
Áhugi fyrir þjónustumiðstöð
Tillaga Guðmundar Stef-
ánssonar bæjarfulltrúa
(B) á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar sl. þriðjudag um að
skipuleggja svæðið sunnan
Strandgötu og austan Glerár-
götu vakti töluverðar umræður.
Þar var hugsað til starfsemi s.s.
umferðarmiðstöðvar, fólksflutn-
ingabifreiða, leigubifreiða,
strætisvagna, upplýsingaþjón-
ustu fyrir ferðamenn, veitinga-
þjónustu o.fl. tengt ferðaþjón-
ustu. IJeimir Ingimarsson (G)
vildi þó að málið færi til skipu-
lagsnefndar en ekki til bæjar-
stjórnar, það væri eðlilegur far-
vegur fyrir málið. Gísli Bragi
Hjartarson (A) fiutti síðan til-
lögu sem samþykkt var með 7
atvæðum en 4 sátu hjá, þar sem
bæjarstjóra var falið að athuga
hjá hagsmunaaðilum hvort
áhugi væri fyrir byggingu sam-
eiginlegrar þjónustumiðstöðvar
fyrir ferðaþjónstuaðila og fyrir-
tæki í fólksflutningum. Bæjar-
stjóri á að skýra frá niðurstöð-
um eigi síðar en 1. apríl nk.
GG