Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Síða 2
14 - Þriðjudagur 18. mars 1997
ICRAFTALÍFIÐ í LANDINU
Parf hugrekki til
Hún dró sekki, 2ja tonna jeppa,
lyfti bíl og drumbi og hélt fyrir vikið
titlinum Sterkasta kona íslands;
Bryndís Ólafsdóttir.
Bryndís tók þátt í keppn-
inni um titilinn Sterkasta
kona íslands í 3. skipti nú
um helgina og sigraði annað
skiptið í röð. Keppendur þóttu
nokkuð jafnir og var því hörku-
keppni á milli þeirra. „Pær voru
öflugar,“ segir Bryndís um hina
keppendurna.
„Mér leið miklu betur núna
en fyrir ári síðan. Ég er greini-
lega miklu sterkari og þetta er
allt miklu léttara fyrir mig. Ef
þyngdirnar verða ekki mikið
meiri þá get ég alveg haldið
áfram í einhver ár.“
Keppni sem þessi útheimtir
samt gífurleg átök þótt líkam-
inn sé vel þjálfaður. „í jeppa-
átökunum t.d., þar sem maður
er að vinna í 40-50 sekúndur,
þá er maður bara gjörsamlega
búinn á eftir. Skjögrar bara á
brauðfótum og leggst niður.
Maður þarf að hafa smá hug-
rekki. Allar þessar stelpur í
keppninni eru hugrakkar."
Æfir 7,5 klst. á viku
Bryndís byrjaði að þjálfa fyrir
þessa keppni í september sl.
Æfingaprógrammið saman-
stendur af lyftingum og hlaupi.
Bryndís hleypur í 30 mín.
þrisvar í viku og lyftir í 2 klst.
þrisvar í viku. En er þetta nóg
til að verða sterkasta kona fs-
lands? „Já. Þetta eru náttúrlega
ofsalega erfiðar æfingar. Það er
tekið vel á í lyftingunum. Ég er
ekkert að teygja á og hvfla mig
á milli.“
íslenskur fiskur
Það er víst tilgangslítið að
pumpa vel og lengi ef hvað sem
er fær að fljóta umhugsunar-
laust ofan í maga. Þegar Bryn-
dís er að þjálfa sig sérstalega
fyrir keppni borðar hún mikið
af grænmeti og ávöxtum og tek-
ur fæðubótaefni í hófi.
Á morgnana drekkur hún
prótein- og kolvetnidrykk og
blandar kjarngóðum en orku-
rikum höfrum saman við. Á
kvöldin borðar hún gjarnan ís-
lenskan fisk (sem hún tekur
með sér að heiman), hrísgrjón
eða pasta og reynir að borða
lítið af kjöti. „Ég borða lítið af
sælgæti og sleppi gosdrykkjum
alveg. Þeir eru algjört eitur. Ég
drekk heldur ekkert kaffi en
mikið vatn,“ segir Bryndís en
viðurkennir að hún fái yfirleitt
kökur á sunnudögum.
Toppefni
í vaxtarræktarkonu
Eftir svona mataræði í um hálft
ár er Bryndís orðin 78 kíló
(176,5 cm). í haust var hún ca.
Linda Jónsdóttir tók nú þátt í annað sinn og tók allverulega á eins og sjá
má á svipnum. Dagsdaglega rekur Linda Ifkamsræktarstöð í Hveragerði.
5 kflóum léttari
en þegar hún
hætti í sundinu
fyrir nokkrum
árum var hún
um 67 kfló. „Ég
þyngdist strax
um 5 kfló þeg-
ar ég byrjaði í
kraftlyftingum
og aftur um 5
þegar ég fór að
pumpa meira.
Vöðvarnir á
mér eru mjög
hæfileikaríkir.
Þeir taka mjög
vel á móti lyft-
ingum. Mass-
inn hefur alltaf
rokið upp um
leið og ég byrja
að lyfta. Vöðv-
arnir stækka
strax. Það eru
sumir sem lyfta
og lyfta en eiga
ofsalega erfitt
með að þyngj-
ast. Ég á mjög
auðvelt með
það. Þess
vegna er ég í
raun toppefni í
vaxtarræktar-
konu. Ég get
stækkað og
minnkað eins
og ég vil.“
Það þýðir
líka að Bryndís
á mjög auðvelt
með að fitna.
En er þetta
ekki hálfgerður
vítahringur,
þarftu þá ekki
að æfa fram í rauðan dauðann?
„Það er náttúrulega spurning
hvernig maður æfir. Ég myndi
þá fara frekar út í að æfa þol-
fimi, hlaupa og hjóla.“
Býr á bóndabæ
Bryndís býr með sterkasta
manni Þýskalands, Heinz
Ollesch, á bóndabæ í Bæheimi,
nálægt Múnchen. Þau stunda
reyndar ekki sjálf búskap heldur
er bærinn tvíbýli og það er móð-
urbróðir Heinz sem rekur þar
nautgriparækt.
Bryndís flutti út til þýska
kraftakarlsins í júní á síðasta ári
og fóru fyrstu mánuðirnir í að
læra tungumálið og komast inn í
þýskt samfélag. „Það gengur
ágætlega að tala þýsku. En ég er
bara ekki á stað þar sem menn
tala háþýsku. Þarna er töluð bæ-
verska sem þýskt fólk skilur ekki
einu sinni. Ég þarf að læra
þarna eitt og hálft mál.“
Þjóðverjar hafa ekki sýnt
kraftadellunni jafn mikinn
áhuga og íslendingar og etja
þeir sínu kraftafólki ekki saman
í keppni. Bryndís og IJeinz eru
að gera sitt til að slík keppni
verði sett á laggirnar. Ekki er
hægt að stunda atvinnumennsku
í þessari grein og því vinnur
sterkasta kona íslands á fatalag-
er stórrar verslunar á milli þess
sem hún veitir fólki heilun og
nudd en hún hefur lært sogæða-
nudd og ilmolíumeðferð. Hún
notar nuddið og olíurnar líka á
sjálfa sig til að halda líkamanum
hraustum og örva líkamsstarf-
semina.
Ein keppnisgreinin fólst í því að hlaupa með jeppadekk, tunnur, hveitisekk og 80 kg. karl-
mann. „Við settum þetta allt ofan í fiskikar,“ sagði Bryndís, „nema karlmanninn." Þú hefur
varla hlaupið með þinn karl? „Nei, jesús. Hann er áreiðaniega 150 kíló.“
Bryndís hefur mest
lyft 120 kg í einni
lyftu. „Það er nú ekki
meira. “ En hún hefur
þyngst dregið 3ja
tonna bíl og vœri ekki
amalegt að eiga hana
fyrir nágranna í
slœmskuveðrum þegar
bílinn hefur fennt í kaf
og marga meðaljóna
þarftil að bifa honum
úr stœðinu.
Sterkasta kona heims
Titillinn er fenginn og Bryndís
er á leiðinni út til Þýskalands
aftur. En það er ekkert hæg-
indalíf og sælgætisát sem bíður
hennar því framundan er fyrsta
keppnin um titilinn Sterkasta
kona heims. Sem verður að öll-
um líkindum haldin í lok júlí.
Hvar? Nú, á íslandi. En ekki
hvað? lóa
Freyvangs-
leikhúsiö
Sýnum firna
fyndinn gamanleik:
„Meb vífib
í lúkunum"
eftir Ray Cooney
Leikstjóri: Hákon Waage
11. sýning laugard.
22. mars kl. 20.30
12. sýning laugard.
22. mars kl. 23.30
Miðnaetursýning
13. sýning miðvikud.
26. mars kl. 20.30
14. sýning fimmtud.
27. mars kl. 20.30
15. sýning laugard.
29. mars kl. 20.30
16. sýning mánud.
31. mars kl. 20.30
Miðapantanir í síma
463 1195 milli kl. 18 og 20.
A ö&rum tímum er hægt að
panta í gegnum símsvari.