Dagur - Tíminn Akureyri - 18.03.1997, Qupperneq 16
Dctgur-gimmm Borgamcs
Þriðjudagur 18. mars 1997
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík 14.-17. mars
Af umferðarmálum ber
mest á þeim 27 öku-
mönnum, sem kærðir
voru fyrir of hraðan akstur, auk
þess sem 12 ökumenn, sem
stöðvaðir voru, eru grunaðir
um ölvunarakstur. Tuttugu og
einn var sektaður fyrir stöðu-
brot, aðallega að degi til í mið-
borginni, og tilkynnt var um 40
umferðaróhöpp. í þeim
skemmdust u.þ.b. 80 ökutæki
og það þrátt fyrir gott veður og
ágæta færð á vegum og götum.
Á föstudag meiddist maður
eftir árekstur tveggja bifreiða á
gatnamótum Háaleitisbrautar
og Safamýri. Eftir óhappið fóru
ökumenn út til að huga að
skemmdum, en þá var þriðju
bifreiðinni ekið aftan á aðra þá
sem fyrir var. Við það varð ann-
ar ökumannanna á milli og
varð að flytja hann á slysadeild
með sjúkrabifreið.
Forstjórinn keypti þýfi
Á laugardagsmorgun stöðvuðu
lögreglumenn ökumann og
reyndist sá vera ökuréttinda-
laus. Tveir aðrir, sem voru í bif-
reiðinni með honum, voru
handteknir og færðir á lög-
reglustöð. í framhaldi af
handtökunni var farið í hús-
leit við Bergstaðastræti. Par var
hald lagt á fleiri hluti og ætluð
fíkniefni. Síðdegis hand-
tóku lögreglumenn
mann með fíkniefni; 5 g
af hassi og 2 g af amfet-
M
amíni, á Frakkastíg við Hverfis-
götu. Hann var fluttur á lög-
reglustöð. Um kvöldið fannst
smávægilegt af fíkniefnum á
tveimur mönnum, sem stöðvað-
ir voru á göngu í Tryggvagötu.
Við húsleit í Gullengi og á
Hverfisgötu var lagt hald á 2
slög amfetamíns og 3 mola af
hassi, auk lítilsháttar blandaðs
efnis. Húsleit var gerð við Hafn-
arstræti. Þar var lagt hald á
stera, bola og lyf. Þá var lagt
hald á stera, kylfur, kasthnífa,
loftbyssu og hasspípur við hús-
leit við Laugaveg.
Um helgina bönkuðu lög-
reglumenn upp á hjá forstjóra
fyrirtækis í borginni og spurð-
ust fyrir um tölvu, sem hann
hafði nýlega keypt. Um þýfi
reyndist vera að ræða og varð
forstjórinn að skila tölvunni.
Á 224 km hraða og al-
varlegt hælsæri
Á föstudagskvöld var ökumaður
kærður og sviptur ökuréttind-
um til bráðabirgða eftir að lög-
reglumenn
o
...vertu
viðbúinn
21. mars
höfðu
mælt hann á
224 km hraða á vestur-
landsvegi í Ártúnsbrekku. Kona
var flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið eftir að hafa feng-
ið háan hæl annarrar konu í
gegnum vinstri fótinn á einum
veitingastaðanna. Stúlku var
ekið á slysadeild eftir að veist
var að henni á veitingahúsi við
Fischersund.
Aðfaranótt sunnudags var
tilkynnt um hugsanlega nauðg-
un á veitingastað við Lækjar-
götu. Dyravörður hafði komið
að pari í samförum og virtist
stúlkan meðvitundarlaus. Við
nánari athugun virtist ekki hafa
verið um nauðgun að ræða.
Allir á „réttum“ aldri
Aukið eftirlit var með áfengis-
veitingastöðum um helgina.
Auk vínhúsaeftirlitsmanna fóru
lögreglumenn úr forvarnadeild
og útlendingaeftirliti á nokkra
staði, sem ástæða þótti til að
skoða sérstaklega, en auk
þeirra fóru lögreglumenn úr al-
mennu deild ásamt starfsfólki
útideildar félagsmálastofnunar
og ÍTR á nokkra staði þar sem
spurnir höfðu verið af að ung-
lingar og ungmenni ættu innan-
gengt. Engir undir leyfilegum
aldursmörkum
fundust við leit
á stöðunum.
Þá þurftu
lögreglu-
menn
engin af-
skipti að
hafa af unglingum utan leyfi-
legs útivistartíma um helgina.
Óeinkennisklæddir
Á undanförnum árum hafa lög-
reglumenn á vöktum almennr-
ar deildar starfað tímabundið í
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Sú reynsla hefur
nýst þeim vel þegar þeir hafa
farið á ný yfir á vaktir, auk þess
sem lögreglumenn í fíkniefna-
deild hafa miðlað skipulega
upplýsingum til annarra lög-
reglumanna um fíkniefni og
fíkniefnafólk. í byrjun árs 1996
urðu hins vegar þáttaskil í
þessum málum, en þá var byrj-
að að hafa óeinkennisklædda
lögreglumenn á vakt er höfðu
þann meginstarfa að safna
skipulega upplýsingum um
þessi mál, miðla þeim til ann-
arra og unnu sjálfír úti á vett-
vangi með sambærilegum hætti
og starfsmenn fíkniefnadeildar
hafa gert gagnvart fíkniefna-
neytendum og sölumönnum
fíkniefna.
Samhliða þessu sérstaka eft-
irliti hefur lögreglan haldið úti
einkenndu eftirliti með tiltekn-
um stöðum, þar sem grunur er
um að fíkniefnasala eða neysla
fari fram. Með því hefur verið
hægt að gera fíkniefnasölum
erfiðara fyrir en áður og fælt
fólk frá því að leita á þá staði.
Þetta eftirlit hefur gefið fleiri
lögreglumönnum tækifæri til að
þekkja betur hagi þess fólks,
sem annað hvort tengist þess-
um málum með einum eða öðr-
um hætti eða hefur áhuga á að
nálgast efnin. Eftir afskipti lög-
reglumanna hefur verið lagt
hald á nokkurt magn af fíkni-
efnum, auk þess sem upplýst
hefur verið um íjölda innbrota
og þjófnaða.
Umsvif lögreglu í
fíkniefnamálum
Á síðasta ári höfðu lögreglu-
menn í eftirliti með fíkniefna-
fólki í 529 tilvikum afskipti af
871 einstakling, þ.a. 87 konum.
Af þessum hópi þótti ástæða til
að handtaka 193. Leitir voru
gerðar á 784 aðilum eftir að
stöðvuð höfðu verið 210 öku-
tæki, farið inn í 96 hús eða leit-
að á gangandi vegfarendum.
Þjófagóss fannst á 34 stöðum,
áhöld til fíkniefnaneyslu á 42
stöðum og nálar eða sprautur á
39 stöðum. Lagt var
hald á amfet-
amín í 114 til-
vikum, 93 sinn-
um fannst
hass og
13 sinnum marijúana. í einu til-
viki fundu lögreglumenn
skammt af LSD, en þeir lögðu
nýlega hald á 50 slíka skammta
við húsleit. Tólf sinnum var lagt
hald á kókafn, 7 sinnum E-töfl-
ur og í 12 tilvikum var um
sveppi að ræða. Auk þess var í
22 tilvikum lagt hald á önnur
ætluð fíkniefni. Hlutfallslega
flestir, sem afskipti voru höfð af
voru á aldrinum 16-24 ára.
Lögreglan mun halda þessu
eftirliti áfram og jafnframt
reyna að efla það og þróa eftir
því sem aðstæður og möguleik-
ar gefa tilefni til.
Öryggisbelti enn ekki
sjálfsögð!
í skyndikönnun lögreglunnar
fyrir helgina kom í ljós að 31%
ökumanna, sem könnunin náði
yfir, notaði ekki bílbelti. Um
helmingur farþega í framsætum
notaði þau ekki heldur. Þetta er
svipuð útkoma og í öðrum ný-
legum könnunum á höfðuborg-
arsvæðinu.
Akureyri
Úr dagbók lögreglunnar á Akureyri
9.-16. mars
Um s.l. viku má segja að
hún hafi verið að mestu
laus við alvarleg mál og
helgin frekar róleg, enda kalt
þótt veður væri að öðru leyti
ákjósanlegt til útiveru.
201 mál var fært til bókar
hjá lögreglunni þessa viku og
ber þar hæst að vanda ýmis
umferðarmál og það verður
því miður að segja að ekki er
merkjanleg stór framför hjá
stjórnendum ökutækja þrátt
fyrir að mikið hafi verið unnið
í þeim málaflokki undanfarið
og margir kærðir fyrir brot á
umferðarlagabrotum.
í vikunni voru 14 kærðir
fyrir að aka of hratt, 16 sinn-
um var lögregla kölluð til
vegna umferðaóhappa, 2 voru
kærðir fyrir að aka gegn ein-
stefnu, 4 fyrir ólöglegar lagn-
ir bifreiða sinna, 4 fyrir að
mæta ekki í lögbundna
skoðun, 8 fyrir að nota ekki
öryggisbelti og 1 fyrir brot á
gerð- og búnaði ökutækis.
Sumir vilja alltaf
sofa á nóttunni
Sem fyrr segir var helgin ró-
leg og menn virtust flestir
kunna sér hóf í drykkju- og
gleðilátum því einungis tveir .
menn þurftu að gista n»
fanga-
hús
vegna
ölvun-
ar en
all-
mörg-
um var
hinsvegar ekið í
heim til sín. Þá var að vanda
nokkuð um að lögregla væri
kölluð í hús þar sem fólk vildi
halda uppi gleðskap og há-
reysti að nóttu til án þess að
taka tillit til annara íbúa sem
vildu hafa svefnfrið. Yfirleitt
er tilmælum lögreglu um að
stöðva hávaðann vel tekið en
þó eru að sjálfsögðu undan-
tekningar á því sem öðru. Á
föstudagskvöldið voru höfð
afskipti af 17 ungmennum
sem voru á ferli í miðbænum
eftir að útivistartíma þeirra
lauk. Ungviði þessi voru færð
á lögreglustöðina þar sem
tekin voru niður nöfn þeirra
en síðan voru foreldrarnir
látnir sækja þau eða lögreglan
flutti þau heim.
Vonskuveður í síð-
ustu viku
Svo vikið sé að einstökum
málum þá gerði vonskuveður
á Öxnadalsheiðinni á mánu-
dagskvöldið og lentu vegfar-
endur þar í vandræðum og
þurftu sumir að ganga af bif-
reiðum sínum sem festust í
snjó eða hættu að ganga
vegna veðurs. Ekki er þó
annað vitað en að allir hafi
komist með stærri og betur
búnum bifreiðum til byggða.
Rétt er að benda ferðamönn-
um á að afla sér upplýsinga
um færð og veður áður en
haldið er af stað en hjá Vega-
gerð ríkisinns og í textavarpi
sjónvarpsins er að finna nýj-
ustu upplýsingar þar um.
Landsbankinn
brann ekki
Á þriðjudag varð vinnuslys á
Óseyri er bifreið féll niður á
mann sem var að vinna
við hana. Kvartaði maður-
[A-j inn um eymsli í herðum og
hálsi og var fluttur með
Mj sjúkrabifreið á slysadeild.
iVf: A föstudag varð það
óhapp að snjófylla féll af
þaki húss og lenti á konu sem
var að ganga út úr húsinu.
Konan var flutt á slysadeild
en ekki eru upplýsingar um
hvort hún hlaut skaða af.
Á föstudags- og laugar-
dagsnótt var slökkviliðið kvatt
að Landsbanka íslands í
Strandgötu en viðvörunarkerfi
sýndi boð um eld. Sem betur
fer var ekki um slíkt að ræða
heldur bilun í búnaði. IS