Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Síða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Síða 2
14 - Miðvikudagur 2. apríl 1997 Jlagur-®mrötn LIFIÐ I LANDINU STEFÁN JÓN HAFSTEIN SKRIFAR Það er auðvitað sérstök stemmning að vakna snemma á morgni föstu- dagsins langa og spóla mynd- bandinu tilbaka meðan kaffi- kannan suðar; neitaði mér um að hlusta á Rás 2 í beinni á skírdagskvöld til að horfa á sjónvarpið síðar: KA-Hauka. Hélt að helvítis textavarpið væri að ljúga: íþróttaauki klukkan 01.50! Má ég minna á að sjálf lýðveldishátíðin varð að hörfa í sjónvarpinu fyrir opnunarleik heimsmeistaramótsins í fótbolta - var engan veginn hægt að skjóta inn 15 mínútna úrslita- handbolta fyrr í dagskrá skír- dags? Fyrirgefið, aðfaranótt föstudagsins langa! Sem sagt - þarna var maður að skríða smám saman upp úr flensu, kvefpest, hita og bein- verkjum þegar morgunkornið var komið út á diskinn, köttur- inn undrandi á þessu sjón- varpsstússi í býtið á frídegi og kafíið rjúkandi þegar ég sé að númer 17 í gulu peysunni er kominn í hraðaupphlaup! Gamlir tímar, glory days! Al- freð negldi í slána og nú hafði maður á tilfinningunni að páskahelgin yrði nokkuð góð boltahelgi. Við vorum að skralla saman, ég og séra Pálmi á miðviku- dagskvöld (meira skrall á mér en honum) og leist hæfilega á handboltablikuna. Minnugur þess velti maður fyrir sér hvort páskahátíðin yrði upprisuhátíð þeirra gulu eða... útförin aug- lýst þá og þegar. Arnar Björns- son fór að tala um að hann hefði ekki séð Guðmund Arnar verja betur í allan vetur en í þessum leik, takk Arnar, bara 15 spennandi mínútur eftir og þú búinn að kjafta frá úrslitun- um! Allir vita að markmenn vinna (og tapa) leikjum nú til dags. Akureyringarnir sýndu fi'na takta, fljótari og graðari en oft- ast áður, nema Dúranóna eins og hann væri með snjóþyngsla- vetur á sínum breiðu herðum eða væri að klofa skafla á sín- um skóm númer 57; ekki páskaungalegur á vappi. Ilauk- arnir eru náttúrulega með hel- víti gott lið, því neitar enginn nema þessir 1700 sem voru í KA-heimilinu; Gústaf Bjarna hreinasti fítonlínumaður, Bjarni Frosta stabíll og Daninn líka. Samt var eins og Akureyring- arnir í Haukum væru bestir - Róbert til dæmis. Skrítinn þessi hálfatvinnubolti nú til dags: KA kaupir Kúbumann og Rússa en 3-4 Þórsarar fara í Hafnar- fjarðarstrætó til að spila bolta. Úr því að Guðmundur var að verja gat þetta ekki klikkað, ekki með bolvindur Ziza á rétt- um stöðum og númer 17 muldi grjót með jöxlunum út í gegn- um framlenginguna og allt fram í fingurgóma Dúranóna; hvers vegna eða hverrtig hann hrökk í gang veit ég ekki, ein- hver verður að finna patentið. Meira síðar um dag- inn... Nú viðurkenni ég að hafa ekki lyft augnloki í allan vetur til að spá í Framliðið, svo föstudagur- inn langi var ágætis upplifun. Guðmundur Guðmundsson er greinilega að gera fína hluti með þessa stráka, og þeir áttu skilið að fara jafn langt og þeir fóru... en ekki lengra. Einar Þorvarðar er með betra lið (Aftureldingu, þið sem ekki vitið það) og eins marks sigur eftir framlengingu var nauðsynlegur í nafni réttlætisins. Báðir þjálf- ararir eru greinilega fagmenn: Guðmundur og Einar samtals með eitthvað nærri þúsund landsleiki og mátti vel sjá að þeir voru að kreista það besta út úr sínum mönnum. Sérstak- lega Guðmundur. Hver einasti handboltaunnandi hlýtur að taka ofan fyrir Framstrákun- um. Ilefðu þeir unnið ef Daði hefði ekki rekið hausinn í framhandlegg einhvers þarna í varnarmúrnum? Virkilega spennandi strákur. Reynir í markinu er ekki orðinn góður markmaður þótt hann geti mögulega orðið það og þarf að fá krefjandi séræfingar til að verða verðugur arftaki Guð- mundar og Bergsveins á al- þjóðamótum. Mosfellingar... Ég hélt að Bjarki væri eini mað- urinn í Aftureldingu, svona við hliðina á Einari Gunnari og með Bergsvein í markinu, en Páll Þórólfsson getur verið ánægður - fínn skemmtikraftur. Annars veit maður ekki hvað er að verða um íslenskan bolta, það er rétt hjá Alfreð (í Dags- Tímaviðtali) að þetta eru hálf- gerðir kókópöffsstrákar í vext- inum. Fljótir og leiknir, en Guð forði þeim frá að spila við lýsi og mjöl í heimshornabolta. Er- um við kannski að færa okkur yfir í danskan bolta? Lille og söd, men hurtig? Við eigum enga unga risa sem skjóta út gafla í íþróttahúsum þegar þeir brenna af. Laugardagur... Einar Kára var þegjandi hás eftir að hafa öskrað áfram Fram daginn áður - ánægður með sitt lið - ég ennþá með flensuna og hás útaf henni og mitt lið „á brattann að sækja“ - kettinum leist ekki á blikuna þegar öskrin byrjuðu inni í stofu annan daginn í röð... en það fór vel af stað. Ó, Jón Freyr! Hvað dreymdi þig að- faranótt páskadags? Hauka- hornamaðurinn sem greip ekki þegar íjórar sekúndur voru til loka - en er vorkunn. Boltinn sem kom ekki góður og Dúra- nóna á fleygiferð í átt til hans sem reyndi að krafla sig í loka- færi til að jafna. KA-menn áttu skilið að vinna en hefðu vel get- að tapað. „Vendipunktarnir" voru svo margir að ekki er hægt að tala um neinn slíkan, og þó. Ég held að þegar Jó- hann Gunnar náði að krafla sig í gegnum leikmann Hauka sem VAR MEÐ BOLTANN og komst samt í hraðaupphlaup þegar 3 mörk voru í mínus, hljóp og Iét hrekjast í senn inn í teig undan ofurþrýstingi og náði samt að snúa tuðrunni framhjá Bjarna Frosta og inn, hafi verið VENDIPUNTKURINN. KA komst aftur inn í leikinn - sálrænt - eftir að hafa verið með gjör- unnið taugastríð í 45 mínútur, og tapað þar á eftir. Kaílinn á undan þessu kraftaverki Jó- hanns var 9-2 Haukum í vil og „heilladísirnar" búnar að skarta sínu rauðasta nógu lengi til að breyta íjögurra marka forskoti norðanmanna í tap - næstum tap. Auðvitað voru fleiri punktar þessar mínútur: Gústaf má naga sig upp í kviku fyrir að hafa látið Guðmund verja hjá sér - einn frír fyrir opnu marki. Og Guðmundur... sá átti skilið að fá páskaegg frá Alfreð eins og Siggi Sveins sagði. 100% sirkus Leikirnir voru allir hvílíkt dúnd- ur að ekki er hægt að biðja um meira, en liðin geta öll haft smá bakþanka. Nema kannski Fram, sem gerði meira og bet- ur en nokkur trúði. Afturelding einhvern veginn ekki meistara- efni ef menn kunna ekki að jarða andstæðinginn við svona kringumstæður, keyra þétt út í gegn á fullum styrk. Haukarnir hefðu vel getað sigrað á mót- inu með þetta lið - áttu að klára KA eftir allt bramboltið. Það er eins og þessi lið hafi ekki fúnkerandi heila þegar sig- urinn er í höfn og bara af- greiðsla eftir. Þjálfararnir, Siggi Gunn. og Einar Þ. eiga auðvitað að kunna svona úrvinnslu, en þegar verkinu er ekki skilað inni á velli er þeim vorkunn. Alfreð var í þeirri stöðu að vera inná og geta miðlað 179 landsleikja reynslu beint út í spilið; krítísku lokaátökin í svona leikjum vinnast á hugs- un - ekki hasar. Útfærslan á vörn KA, 4 gegn 6, síðustu 30 sekúndurnar, var nákvæmlega eins og á að gera og enginn kjúklingur getur fundið hjá sjálfum sér. Þegar allt annað er jafnt sigrar sá sem hugsar. Og jafnvel þó á halli. Staðreyndin er sú að öll þessi lið eru búin að sýna að þau eru ekki nógu góð. Það sem okkur finnst skemmtilegt og spennandi - sveiflurnar og tækifærin á báða bóga - er ein- faldlega veikleikamerki á lið- unum. Klúður á klúður ofan með gjörunna stöðu er nokkuð sem góð - GÓÐ - lið láta ekki gerast. Lærisveinar Bogdans Þjálfarar liðanna fjögurra sem skemmtu um páskahelgina eru allir lærisveinar Bogdans: Al- freð, Guðmundur, Einar og

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.