Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Side 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 02.04.1997, Side 6
18 - Miðvikudagur 2. apríl 1997 íkgur-ÍEímmtt MENNING OG LISTIR Alaugardaginn var voru 50 ár liðin frá upphafí síðasta stóra Heklugoss- ins sem stóð í rúmt ár. Af því tilefni og því að 70 ár eru liðin frá því að þéttbýli tók að mynd- ast á Ifellu á Rangárvöllum var blaðamönnum boðið í leiðangur á Heklutind. Hekia, drottning eldijall- anna, hefur verið sveipuð dulúð í gegnum aldirnar og menn fyrr á öldum voru þess fullvissir að þar væri að finna innganginn, að helvíti. Erlendir ferðasögu- ritarar gumuðu ósjaldan af því að hafa gengið á Heklu og séð þar kynjaverur og illa anda á sveimi og þessum ósköpum öll- um fyigdu vægast sagt dularfuil hljóð. Á galdraöld fengu þessar sögur byr undir báða vængi þar sem menn sáu djöfla og púka á uðu síðan ítarlega um þessa ferð sína í ferðabók sinni. Á leið blaðamanna urðu þó engar slíkar verur, raunar voru blaða- menn, hreppsnefnd Rangár- vallahrepps og afmælisnefndin, auk félaga Flugbjörgunarsvcit- arinnar á Hellu þeir einu sem röskuðu ró drottningarinnar þennan dag. Til fararinnar voru notuð nýtísku farartæki í eigu Flugbjörgunarsveitarinnar og sáu meðlimir hennar um að koma leiðangursmönnum á toppinn með hjálp snjóbfls og ljögurra vélsleða. Heklutindur er talinn vera í um 1490 metra hæð yfir sjávarmáli og í góðu skyggni er víðsýnt til allra átta. Ferðalangar sl. sunnudag voru svo heppnir að ekki var mistur yfir toppnum eins og oft er þannig að aðstæður voru hinar bestu. Tvennt vekur furðu þeirra sem á tindinn koma. Nánast auð jörð er efst á toppn- um og hiti er mikill í gjóskunni. Útsjónarsamir leiðangursstjór- ar grófu samlokur í jörðina og viti menn eftir skamma stund voru samlokurnar heitar eins og úr besta örbylgjuofni. Eldgosið 1947 hófst 29. mars kl. 6.40 með miklu gosi og síð- an rifnaði jörðin í tvennt í mikl- um jarðskjálfta. Þá myndaðist 4 kflómetra löng sprunga eftir fjallshryggnum endilöngum. Gjóska úr gosinu barst alla leið til Finnlands og drunur í Ijall- inu heyrðust vestur í Bolungar- vík og norður í Grímsey. Gríðar- legt gjóskumagn fylgdi gosinu. Það tók enda 13 mánuðum síð- ar eða í aprfl 1948. Dagskrá afmælisárs Hellu var kynnt á Heklutindi. llún hófst laugardaginn 29. mars með leiksýningu og tónleikum og verða ýmsar menningar- uppákomur á dagskrá fram á sumar og vegleg þjóðhátíðar- dagská 17. júní. í sumar verður sýnd kvikmynd frá gosinu 1947 og einnig verður útilistarsýning sett upp við Heklurætur. í sum- ar er einnig ætlunin að setja upp sýningu á framleiðslu fyrir- tækja á Hellu og ýmsum verk- um eftir heimamenn. Unnið er að gerð afmælisrits sem rekur sögu þéttbýlisins og sögu skól- anna í sveitarfélaginu. Hólrnfríður Pórisdóttir, Selfossi. ÞJÓDLEIKHÚSID Stóra sviðið kl. 20.00 VILLIONDIN eftir Henrik Ibsen Laugard. 5. apríl. Örfá sæti laus. Laugard. 12. apríl. KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 5. sýn. föstud. 4. apríl. Uppselt. 6. sýn. sunnud. 6. apríl Uppselt. 7. sýn. fimmtud. 10. apríl Uppselt. 8. sýn. sunnud. 13. apríl Uppselt. 9. sýn. miðvikud. 16. apríl ÞREK OG TAR eftir Ólaf Hauk Símonarson Aukasýning á morgun, fimmtud. 3. apríl. LITLI KLAUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Sunnud. 6. apríl kl. 14.00. Sunnud. 13. apríl kl. 14.00 Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Laugard. 5. apríl kl. 15.00 Laugard. 12. apríl kl. 20.30 Sunnud. 20. apríl kl. 20.30 föstud. 25. apríl kl. 20.30 Athygli er vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftlr að sýning hefst. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýn- ingar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga. hverju strái og kynjamyndir í hrauninu hafa sjálfsagt ýtt und- ir ímyndunaraílið. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson þóttu hafa unnið mikið afrek er þeir gengu fyrstir manna á ijallið 1750 en mann þann er var þeim til fylgdar, sem var liklega heimamaður, skorti kjark að fara á toppinn og bar við höfuðverk. Þeir skrif- Freyvangs- leikhúsið Sýnum firna fyndinn gamanleik: „Meb vífib í lúkunum" eftir Ray Cooney Leikstjóri: Hákon Waage 17. sýning fimmtud. 3. apríl kl. 20.30 18. sýning föstud. 4. apríl kl. 20.30 19. sýning laugard. 5. apríl kl. 20.30 Nœstsíðasta sýningarhelgi. Mibapantanir í síma 463 1195 milli kl. 18og20. Á öðrum tímum er hægt at) panta í gegnum símsvara.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.