Dagur - Tíminn Akureyri - 03.04.1997, Blaðsíða 1
|Bagur-®mtmt
íjfc
r\ ^
/ VÍKUR y BtAÐIÐ
Miðvikudagur 3. apríl 1997 - 19. árgangur -12. tölublað
Borgarhólsskóli
Sjúkrahús Þingeyonga
Óvenju margir
kennarar á förum
Borgarhólsskóli auglýsir
um þessar mundir lausar
óvenju margar kennara-
stöður við skólann. En hingað
til hefur skólanum yíirleitt
haldist mjög vel á starfsliði.
Tveir kennarar hætta alfarið
störfum við skólann í vor og
nokkir eru að fara í orlof og
ársleyfi, launuð eða ólaunuð.
Að sögn Halldórs Valdimars-
sonar skólastjóra, er hreyíing á
kennaraliði nú með mesta móti.
Hann taldi ástæðuna m.a. nei-
kvæða umræðu um störf kenn-
ara og kjörin hefðu eins og áð-
ur mikil áhrif, ekki síst þegar
þensla væri í atvinnulííi á land-
inu og kennarar hefðu því ijöl-
breyttari möguleika á að kom-
ast í betur launuð störf.
Þegar hafa kennarar haft
samband við skólann vegna
auglýsinga um lausar stöður, en
fyrsti umsóknarfrestur rennur
út 10. apríl n.k. js
Húsavík
Kardemoin m u -
bærinn frum-
sýndur á
laugardag
Kvenfélagskonurnar Jónasína, Jóhanna og Kristbjörg afhenda ráðherra undirskriftalistana fyrir framan Heilsu
gæslustöðina.
1200 Þingeyingar
mótmæla niðurskurði
Hið sívinsæla og, a.m.k.
á íslandi, klassíska
leikverk Torbjörns Egn-
ers, Kardimommubærinn,
verður frumsýnt í Samkomu-
húsinu á Húsavík n.k. laugar-
dag kl. 15.00. Sigurður
Hallmarsson leikstýrir verk-
inu sem er samstarfsverkefni
Leikfélags Húsavíkur og Pýra-
musar og Þispu, leiklúbbs
Fr amhaldsskólans.
Um 30 manns á öllum aldri
koma fram í leikritinu en alls
starfa um 50 manns við upp-
setninguna. f helstu hlutverk-
um eru: Anna Ragnarsdóttir
leikur Soffíu frænku, ræningj-
ana Kasper, Jesper og Jónat-
an leika þeir Kristján Hall-
dórsson, Valgeir Sigurðsson
og Hjálmar Bogi Hafliðason,
Bastían bæjarfógeta leikur
Svavar Jónsson og Þorkell
Björnsson fer með hlutverk
Tóbíasar í turninum.
Tónlistarstjóri er Aton Fo-
urnier og stjórnar hljómsveit
sem hefur stóru hlutverki að
gegna í sýningunni. js
S.l. laugardag voru Guð-
mundi Bjarnasyni ráð-
herra og 1. þingmanni
Norðurlandskjördæmis eystra,
afhentir undirskriftalistar með
nöfnum 1143 Þingeyinga þar
sem mótmælt var þeim áætlun-
um ríkisstjórnarinnar að rýra
ijárveitingar til Sjúkrahúss
Þingeyinga frekar en orðið er. í
haus undirskriftarlistans stóð
ennfremur:
„Ef heldur sem horfir, verður
óhjákvæmilegt að draga svo úr
„Ef heldur sem
horfir, verður óhjá-
kvæmilegt að draga
svo úr þjónustu á
Sjúkrahúsinu að til
vandræða horfir fyrir
sjúka, aldraða og
verðandi mæður.“
þjónustu á Sjúkrahúsinu að til
vandræða horfir fyrir sjúka,
aldraða og verðandi mæður. Má
þá segja að við séum ver sett
hér en fyrir 30-40 árum. Þess-
um niðurstöðum unum við ekki,
enda hætt við að þær stuðli að
fólksflótta frá Húsavík og úr ná-
grannabyggðum.“
Það voru konur í Kvenfélagi
Húsavíkur sem höfðu frum-
kvæði að þessari könnun á við-
horfum Þingeyinga til niður-
skurðar á Sjúkrahúsinu. Og
kvenfélagskonurnar Jónasína
Skarphéðinsdóttir, Kristbjörg
Jónasdóttir og Jóhanna Aðal-
steinsdóttir afhentu ráðherra
undirskriftarlistana. Guðmund-
ur Bjarnason tók við skjölunum
og lofaði að koma þeim í hend-
ur ríkisstjórnarinnar og þing-
manna kjördæmisins. Og lét
þess um leið getið að hann tæki
undir þau sjónarmið að ef
breytingar sem gerðar væru í
sparnaðarskyni hefðu í reynd
einungis í för með sér tilfærslu
á kostnaði eða jafnvel aukinn
kostnað, þá væri erfitt að rétt-
læta slíkt. js
Innbrot um páskana
Brúna máln-
ingin blekkti
Innbrot eru sem betur fer fá-
tíð á Húsavík en eitt slíkt var
þó framið í bænum um
páskana. Brotist var inn í Borg-
arhúsið, hleri fjarlægður úr
glugga og rúða brotin í þessu
framtíðar stjórnsýsluhúsi bæj-
arins. Kaupfélag Þingeyinga
geymdi þarna lager, m.a. úr KÞ
Miðbæ, en einnig málningu,
tölvur oíl.
Af ummerkjum að dæma
voru þarna aungvir stórglæpa-
menn á ferð því engar grip-
deildir voru framdar og ekkert
skemmt. Þó brá mönnum sem
komu á staðinn nokkuð í brún
er þeir komu á klósettið, en þar
var dálítið útbíjað í brúnum lit
og klósettpappír með ókræsi-
legum brúnum slettum um allt.
Virtist við fyrstu sýn að hús-
brotsmönnum hefði orðið hast-
arlega bumbult og hin brýna
þörf hreinlega knúið þá til inn-
brotsins til að komast á salerni.
En svo reyndist ekki vera held-
ur kom í ljós að þeir höfðu eitt-
hvað farið að sulla í brúnni
málningu á staðnum og síðan
reynt að þrífa sletturnar af sér
eftir bestu getu. js