Dagur - Tíminn Akureyri - 03.04.1997, Side 4
|Ocrgur-®úrtmri
Fimmtudagur 3. apríl 1997
M
Óvenjulegur afli á land
Páskalömb heimt úr Naustavík
að var vægast sagt nokk-
uð óvenjulegur afli sem
hraðbáturinn Jón Sör
kom með að bryggju á Húsavík
um hádegisbil s.l. mánudag,
annan í páskum. Um borð voru
sem sé ein ær og þrjú sannköll-
uð páskalömb. Björgunarsveit-
armenn á Húsavík höfðu orðið
varir við féð vestur í Naustavík
handan Skjálfanda og látið
bændur í Kinn vita, en líklegast
þótti að þeir ættu féð. Og það
kom reyndar á daginn.
Hlöðver Pétur Hlöðversson
frá Björgum mætti til Húsavíkur
ásamt félögum sínum um morg-
uninnr og fengu bændur Þórð
Pétursson til að sigla yfir flóann
í Naustavík. Þar gekk greiðlega
að ná skepnunum með aðstoð
smaiahunds. Þetta var ær með
Óvæntur fengur í fiskikarinu um
borð.
tvö Iömb í eigu Þórólfs Jónas-
sonar á Syðri-Skál og ómarkað-
ur lambhrútur, sem Hlöðver
Pétur taldi einsýnt að dæmdist
eign hreppsins, þar sem erfltt
yrði að sanna eignarrétt á
hrútnum.
Féð var furðu vel á sig komið
en reyndar ekki í verulegum
holdum en virtist hafa komist
þokkafega af í vetur. js
Skipt um farartæki,
úr bátnum í bílinn.
Bridge-
fréttir
Lokastaðan í aðaltvímenn-
ingi Bridgefélags Húsa-
víkur var þessi:
1. Þórólfur - Einar 158 stig.
2. Magnús - Þóra 123 stig.
3. Gaukur - Friðgeir 111 stig.
4. Hermann - Gunnar 39 stig.
5. Gunnlaugur - Þórir 16 stig.
Næstu mánudagskvöld og
eitthvað fram í maí verða
spilaðir eins kvölds tvímenn-
ingar. BL
Mývatnssveit
Vinsa‘1
píslarganga
að var fjölmennt í Mývatns-
sveit um páskana, um 40
manns dvöldu þar í góðu yfir-
læti og stunduðu holla og fjöl-
breytta útiveru í ægifögru um-
hverfi. Að sögn Péturs Snæ-
björnssonar, hótelstjóra í Hótel
Reynihlíð, ríkti almenn ánægja
með dagskrá, veður og annað
gott sem upp á var boðið þar
efra. Og ijölmargir tóku þátt í
„píslargöngunni“ svokölluðu
umhverfis Mývatn á fóstudag-
inn langa og gengu um 36 kíló-
metra. js
Víkurblaðíð opið
fyrir umraeðu
Við viljum benda lesendum okkar og áskrifendum á að
Víkurblaðið býður enn upp á sömu þjónustu og áður.
Blaðið er áfram opið fyrir greinarskrifum og hugleiðing-
um um málefni Þingeyinga og hvers kyns innansveitar-
króníkum.
Við erum þakklátir fyrir myndir af atburðum í héraði og
ábendingar um fréttnæma atburði eru vel þegnar.
Garðarsbraut 7.
640 Húsavík
Sími - 464-1585
Fax - 464-2285
%
VIKUR
BIAÐIÐ
cM/ftf) oÆ mann/aptó
Gamlir sæhaukar fylgjast með aflabrögðum. Arngrímur Gíslason, Sig-
tryggur Kristjánsson og Birgir Lúðvíksson.
Húsavík
Framhalds-
skóliim 10 ára
Iapríl s.l. varð Framhalds-
skólinn á Húsavfk 10 ára,
en skólinn var stofnaður 1.
apríl 1987 við undirritun samn-
ings á milli Húsavíkurkaupstað-
ar og Menntamálaráðuneytis.
Að sögn Guðmundar Birkis Þor-
kelssonar, skólameistara, hefur
skólinn á þessum 10 árum átt
vísan stuðning bæjarbúa, fyrir-
tækja og félagasamtaka og fyrir
það væru aðstandendur skólans
og nemendur þakklátir. Og
einnig væru þeir fullvissir um
áframhaldandi velvild í garð
skólans f framtíðinni.
Formlega verður haldið upp
á 10 ára afmæli skólans með
hátíðarsamkomu í íþróttahöll-
inni laugardaginn 19. apríl n.k.
kl. 14. js
SNAKI
„Betri er
baldinn biskup...“
Biskups-kandídatar skjóta
nú upp kolhnum hver á fæt-
ur öðrum og verður auð-
veldara um að tala en í að
komast þegar margir eru
kallaðir en aðeins einn út-
valinn. Almenningur fylgist
grannt með, en áhuginn þó
minni en ætla mætti þar sem
óbreyttir safnaðarlimir fá
ekki að kjósa biskup heldur
aðeins vígðir þjónar kirkj-
unnar og örfáir aðrir. Bisk-
upskjör verður því aldrei
fjörugur allsherjarhasar
heldur í mesta lagi innbúð-
arupphlaup í kirkjunni
sjálfri og því stormur í kaffi-
krús.
Þeir kandídatar sem fram
eru komnir virðast í fljótu
bragði fyrirmyndarmenn og
konur og allir líklegir til að
valda vel verkefninu. En að
mörgu er að hyggja í þessu
sambandi og það þarf að
gaumgæfa feril viðkomandi
kandídata þannig að ekkert
óvænt spretti upp úr fortíð
viðkomandi þegar á bisk-
upsstól er sest.
Siðferðilega þarf biskup
auðvitað að vera yfir allan
vafa hafinn og eins gott að
ekki leynist maðkar í mór-
als-mysunni. Ganga þarf úr
skugga um flekkleysi fram-
bjóðenda til orðs og æðis
afturábak um alla fortíð.
Ekki getur talist heppilegt
að biskupsefnin séu veru-
lega fátæk af veraldlegum
auði, því slíkt býður heim
hættu á yfirvinnu-snöpum,
svo sem þátttöku í auglýs-
ingum og öðru veraldar-
vafstri óhelgu. Hinsvegar
mega biskupsefnin gjarnan
vera fátæk í anda, því slíkra
er guðs ríki sem kunnugt er.
„Enginn verður óbarinn
biskup,“ er ritað í yfirfærðri
merkingu. Óþarfi er því að
kanna hvort kandídatar
hafa einhvern tírnann verið
lamdir, t.d. í denntíð á dans-
leikjum í Hrunamanna-
hreppi eða Miðgarði. Hins-
vegar má skoða hvort þeir
hafa, í yfirfærði merkingu,
brugðist við höggum með
því að berja á móti, í stað
þess að rétta fram hina
kinnina í sannkristilegum
anda.
Mikilvægast af öllu, þegar
klerkar gera upp hug sinn í
komandi biskupskjöri, er þó
að hugleiða vel og vandlega
hið fornkveðna sem kom úr
páskaegginu á dögunum,
málsháttinn snjalla: „Betri
er baldinn biskup en barn
við aldur.“
Húsvíkingar og
nærsveitarmenn
Miðillinn Skúli Viðar
Lórenzson verður með
skyggnilýsingarfund í Húsi
verkalýðsfélaganna föstu-
daginn 4. apríl kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Miðaverð kr. 1000,-