Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Page 5
ÍDiigur-®mmm
Laugardagur 19. apríl 1997 -17
MENNING OG LISTIR
Verk eftir frönsku tónskáldin Poulenc og Fauré eru á dagskrá á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar og Kórs Akureyrarkirkju á
morgun.
Stórtónleikar
í Akureyrarkirkju
Litlar líkur eru á
öðru en að jjöl-
menni verði í Akur-
eyrarkirkju á morg-
un þegar Kór Akur-
eyrarkirkju og Sin-
fóníuhljómsveit ís-
lands halda saman
tónleika, þar sem
flytjendur komast
nálœgt því aðfylla
hundraðið og þá
eru ótaldir vœntan-
legir áhorfendur.
Flutt verða verk eft-
ir Francis Poulenc
og Gahriel Fauré.
etta er í þriðja skipti sem
Sinfóníuhljómsveitin tekur
þátt í Kirkjulistaviku á
Akureyri en í fyrsta sinn sem
kórinn syngur með. „Við höfum
sungið með Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands en aldrei áður
með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands,“ segir kórstjórinn og org-
anistinn, Björn Steinar Sól-
bergsson.
Akveðið var að hafa franska
tónlist á dagskrá á tónleikunum
og segir Björn Steinar tónlistina
eftir Poulenc og Fauré hafa
orðið fyrir valinu „aðallega
vegna þess að þetta er svo stór-
kostleg tónlist."
Alvaran og grínið
Fyrsta verkið sem ílutt verður
er konsert fyrir orgel og hljóm-
sveit í g-moll eftir Poulenc og
mun Björn Steinar spila einleik
á orgel. Sjálfur taldi tónskáldið
þennan orgelkonsert vera eitt
af hans veigameiri verkum og á
eitt sinn að hafa sagt: „Vilji ein-
hver gera sór fulla grein fyirr
alvöruþunga í verkum mínum
er hans hér að leita og þá
einnig í trúartónlistinni."
Alvöruþunginn er þó ekki
allsráðandi í öllum verkum
Poulenc því Björn Steinar segir
að það sem einkennt hafi tón-
skáldið öðru fremur hafi verið
mikill húmor og grín. „Þetta
skilar sér að einhverju leyti í
verk hans. Alltaf annað slagið
kemur eitthvað fyndið,“ segir
Björn.
Eftir hlé mun kór og hljóm-
sveit flytja stutt verk eftir Fauré
og síðan tekur Gloria við, sem
er annað verk eftir Poulenc.
Textinn er dýrðarsöngur mess-
unnar og er stundum sagt að
höfundur hafi haft Gloriu eftir
Vivaldi sem fyrirmynd. „Kór-
kaflarnir eru mjög bjartir og
fagnaðarríkir en einsöngskafl-
arnir eru aðeins rólegri," segir
Björn Steinar, en það er sópr-
ansöngkonan góðkunna, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sem syngur ein-
söng í þessu verki.
Hver fermetri nýttur
Stjórnandi á tónleikunum verð-
ur Petri Sakari, aðalhljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, og bíður hans það hlut-
verk að stilla saman 51 manns
hljómsveit og kór þar sem 45
munu syngja. En hvernig kemst
allt þetta fólk fyrir ásamt hljóð-
færum?
„Það hefur verið smíðaður
sérstakur pallur sem kemur
sem framlenging af tröppunum
og nær alveg fram að fremsta
bekknum," segir Björn Steinar
og bætir við að kórinn muni
standa alveg aftast og hefur
verið fengið sérstakt leyfi hjá
prestunum að hleypa nokkrum
kórfélögum inn fyrir gráturnar.
„Þannig að hver fermetri verð-
ur nýttur.“
Auk plássleysis skapar stað-
setning orgelsins, sem er uppi á
kirkjulofti, ákveðið vandamál
sem einnig hefur verið leyst
með hugviti góðra manna. Upp-
tökuvél verður beint að Petri
Sakari og mun Björn Steinar
hafa sjónvarp á loftinu þar sem
hann getur fylgst með bending-
um frá stjórnandanum. „Síðan
verð ég með heyrnartæki á
höfðinu og hljóðið sent þannig,"
segir Björn. „Við höfum gert
þetta svona áður og það kemur
mjög vel út.“ AI
Kórfélagar æfa stíft.
Mynd. GS.
Vefarinn mikli
frá Kasmír
Frrimsýuinir 11, upríl
11 Ikl ia \(, AklliHVIlAR
Leikfélag Akureyrar
Vefarinn mikli
frá Kasmir
Leikverk byggt á skáldsögu
Halldórs Laxness
Hátíðarsýning í tilefni
af 80 ára afmæli
Leikfélags Akureyrar.
Laugardaginn 19. apríl kl. 20.30
- UPPSELT
4. sýning mi&vikudaginn
23. april kl. 20.30.
5. sýning föstudaginn
25. apríl kl. 20.30.
6. sýning laugardaginn
26. april kl. 20.30.
Það ætla allir að sjá
Vefarann!
Leikstjórn: Halldór E. Laxness
Sýningin er ekki við hæfi barna
Ekki er heegt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýningin hefst.
Sýnt er á Renniverkstæðinu,
Strandgötu 49.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Sími í miðasölu er 462 1400.
|Dagur-<3Itmtmt
- besti tími dagsins!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
FIÐLARINN Á ÞAKINU
FRUMSÝNING
2. sýn. í kvöld laugard. 19. apríl. Uppselt.
3. sýn. miðvikud. 23. apríl. Uppselt.
4. sýn. laugard. 26. apríl. Uppselt.
5. sýn. miðvikud. 30. apríl. Örfá sæti laus.
6. sýn. laugard. 3. maí. Uppselt.
7. sýn. sunnud. 4. maí. Uppselt.
8. sýn. fimmtud. 8. maí. Nokkur sæti laus.
9. sýn. laugard. 10. maí. Nokkur sæti laus.
10. sýn. föstud. 16. maí. Nokkur sæti laus.
KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI
eftir Tennessee Wiliams
10. sýn. fimmtud. 24. apríl. Uppselt.
11. sýn. sunnud. 27. apríl. Örfá sæti laus.
12. sýning föstud. 2. maí. Uppselt.
13. sýn. miðvikd. 7. maí. 14. sýn. sunnud. 11. maí.
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Sunnud. 20. apríl. Föstud. 25. apríl
Fimmtud. 1. maí - Föstud. 9. maí
Ath. Fáar sýningar eftir
LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Sunnud. 20. apríl kl. 14.00
Þriðjud. 22. april kl. 15.00. Uppselt
Sunnud. 27. apríl kl. 14.00. Sunnud. 4. maí kl. 14.00
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
'LEITT HÚN SKYLDIVERA SKÆKJA
eftir John Ford
Sunnud. 20. april kl. 20.30. Uppselt.
Föstud. 25. apríl kl. 20.30. Uppselt.
Aukas. Laugard. 19. aprll kl. 15.00. Uppselt.
Aukas. Fimmlud. 24. apríl kl, 15.00.
Sumardagurinn fyrsti. Örfá sæti laus.
Aukas. Laugard. 26. apríl kl. 15.00. og kl. 20.30.
Aukas. laugard. 3. mai kl. 20.30.
Síðustu sýningar
Athygli er vakin á að sýningin
er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn
í saiinn eftir aö sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30
LISTAVERKIÐ
Frumsýning:
Miðvikud. 23 apríl. Uppselt.
2. sýn. miðvikud. 30. apríl. Uppselt.
3. sýn. laugard. 3 mai. 4. sýn. sunnud. 4. mai.
5. sýn. löstud. 9 maí. 6. sýn. laugard. 10. mai.
Listaklúbbur Leikhússkjallarans
mánud. 21. apríl
„The Importance of being Oskar“
Irski leikarinn Martin Tlghe flytur verk
Micheál Mac Liammóir im Oskar Wilde.
Sýningin hefst kl. 21. Húsið verður opnað
kl. 20.30. Miðasala við innganginn.
Ath. Aukasýning veröur á
þriðjudagskvöidið á sama tíma.
Miðasalan eropin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18,
frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þeg-
ar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka daga.
m Framsóknarflokkurinn Velferð fjölskyldunnar
Ráðstefna Sambands ungra framsóknarmanna í Borgartúni 6 í Reykjavík laugardaginn 19. apríl 1997. Dagskrá:
09.30 - 09.45 Setning. Guðný Rún Sigurðardóttir, formaður FUF á Akranesi.
09.45 - 10.00 Avarp. Páll Pétursson. félagsmálaráðherra.
10.00 - 10:15 Opinber aðstoð við öflun húsnæðis á Norðurlöndum. Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
10.15 -10.30 Umræður og fyrirspurnir
10.30 - 10.45 bróun efnahags heimilanna. Már Guðmundsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka íslands.
10.45-11.00 Umræður og fyrirspurnir
11.00-11.15 KafTlhlé.
11.15-11.30 Skattlagning hjóna, sambýlisfólks og einstaklinga. Kristján G Valdemarsson, skrifstofustjóri hjá Skattstjóranum í Reykjavík.
11.30-11.45 Umræður og fyrirspurnir
11.45-12.00 Hvað er opinber fjölskyldustefna? Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
12.00 - 12.15 Umræður og fyrirspurnir
12.15-12.30 Hornarfjarðarleiðin í húsnæðismálum, lieilbrigðis- og félagsþjónustu. Hallur Magnússon framkvæmdastjóri heilbrigðis- og félagsmálasviðs Homafjarðar.
12.30-12.45 Umræður og fyrirspurnir
I>átttökugjald 500 krónur. Samband ungra framsóknarmanna