Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.04.1997, Page 7
|Oagur-tEtrrrám Laugardagur 19. apríl 1997 -19 LIFIÐ I LANDINU Birgir Rafn Frið- riksson 23ja ára Akureyringur var einn þeirra sem ný- lega tók þátt í módel- og hœfi- leikakeppni sem haldin var í Neiv York. Mynd: GS þar sem við komum naktir fram eða nánast og dans- og söngva- keppni, en við gátum tekið þátt í því sem við vildum." Hvernig viss- irðu um keppn- ina? „Systir mín hafði farið í þessa keppni og hún sagði Kol- brúnu Aðal- steinsdóttur frá mór en Kolla er tengiliður ís- lensku kepp- endanna. Hún hringdi svo í mig og spurði hvort ég væri til í að koma og ég sló til. - En þetta hefur aldrei verið neitt markmið þannig. Ég kom frá Frakklandi 1995 og upp frá því hef ég verið að taka þátt í ýmsu eins og leik- sýningum og módelstörfum." Hvernig viltu að framhaldið verði? „Á keppnina mætti fólk frá umboðsskrifstofum og einn dagurinn fór í að sýna sig fyrir þeim. Síðan fengu menn svo- kölluð „call backs“ ef áhugi var fyrir hendi. Ég fékk þrjár svona áhugayíirlýsingar og fór þá og sýndi möppuna mína og ræddi aðeins við liðið en síðan veit maður ekkert hvað kemur út úr því. Pessi heimur er svo kaldur. Mótið er í rauninni haldið fyrir umboðsskrifstofurnar en þær mæta bara þennan eina dag og spá ekkert í hvernig fólk hefur staðið sig á öllu mótinu. Mín skoðun er sú að mótið gangi bara út á þetta og í sjálfu sér er mótið sjálft að öðru leyti ósköp ómerkilegt. - En maður veit aldrei hverju módelskrifstof- urnar eru að svipast eftir.“ Birgir segist hafa fengið heilmikið út úr því að upplifa þennan heim í New York og sér ekki eftir tímanum sem fór í undirbún- inginn. „Alla ævi þarf maður að koma fram og tjá sig og því var þetta ágæt æflng en þetta var ansi dýrt bæði tíma- lega og peningalega séð. Niðurstaðan er sú að þetta er erfitt en gaman. Góður þokki Birgir hefur áhuga á ljósmyndun og flestri listsköpun og stundar nú nám við Myndlista- skólann á Akureyri. „Mig langaði að sjá hvað það væri sem fengi fólk til að tikka. Þarna var allra venjulegasta fólk sem kom svo kannski stórkost- lega út á mynd o.s.frv. - Og þótt markaðurinn gangi allur út á að selja kyn- þokka þá tel ég að það hafi verið frábært tækifæri fyrir tnig að taka þátt í þessu vegna þess sem ég ætla mér að gera síðar meir, en ég stefni núna á málaradeildina.“ Eru það peningarnir í fyrir- sœtustarfinu sem heilla? „Það eru þokkalegir pening- ar í þessu en þetta er bara allt svo dýrt að margir koma bara út á sléttu, uppihald og gisting er rándýrt sums staðar í heim- inum. - En reynslan er engu að síður mikil og fólk fær að sjá heiminn og þess vegna er þetta eftirsótt." Finnst þér spennandi að ger- ast fyrirsœta eða leikari hérna heima? „Já, ég tók t.d. þátt í leiksýn- ingunni Undir berum himni og það var virkilega gaman en ég held að myndlistin muni ætíð vera mitt líf.“ -mar „ Og þótt markað- urinn gangi allur út á að selja kyn- þokka þá tel ég að það hafi verið frá- hœrt tœkifœri fyrir mig að taka þátt í þessu vegna þess sem ég œtla mér að gera síðar meir. “ Myndin á spjaldinu þar sem hæð, þyngd, augnlitur o.s.frv. kom fram. Birg ir Rafn er með liti í framan til að skapa ákveðna stemmningu og til að vekja athygli. Benedikt Sigurgeirsson tók myndina. height 6'3‘l> • bust 41" • waist 34“ • hips 42"» shoes 11 • eyes blue • hair blond Það eru hinar ýmsu um- boðsskrifstofur í Banda- ríkjunum sem hafa hag að slikri keppni eða móti eins og Birgir vill frekar kalla það. í ís- lenska hópnum voru um tutt- ugu en strákarnir voru þrír. „Þarna voru um fjórtán hundruð manns að „keppa" í hinum ýmsu greinum, sjón- varpsauglýsingum, göngu, sápu ofl. Síðan var „body keppnin" BIRGIR RAFIU Hvað lætur það tikka:

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.