Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Blaðsíða 6
18 - Laugardagur 14. júní 1997
Jlagur-®TOtmn:
LIFIÐ I LANDINU
og íriðsælt land, en...
Þann 10. mars síðastliðinn
var liðið eitt ár síðan ólæt-
in brutust út milli klík-
anna. Illindin upphófust með
skotárás Vítisenglanna á Band-
itos klíkuna við Kastrup flug-
stöðina í Kaupmannahöfn og
kostaði sú árás einn Banditos
meðlim lífið.
Á þessu eina ári hafa klík-
urnar skipst á að gera alvarleg-
ar árásir hvor á aðra og alvar-
legust er árás sem gerð var á
klúbbhús Vítisengla í Kaup-
mannahöfn þar sem klúbbmeð-
limir héldu árlega víkinga-
veislu. Árásin var gerð af þaki
annars iðnaðarhúsnæðis
skammt frá og var eldflaug
skotið að byggingunni. Hún
þaut inn í húsið og sprakk með
þeim afleiðingum að tvennt lét
lífið og 17 særðust. Eftir árás-
ina voru sett lög í Danmörku
sem banna starfsemi mótor-
hjólaklúbba og „rokkarar",
meðlimir mótorhjólasamtak-
anna ganga undir því nafni,
mega hvorki safnast saman né
bera merki félaga sinna.
Börn með byssur?
Fyrirmyndin að mótorhjóla-
klúbbunum er komin frá Vítis-
englum, Hells Angels, í Banda-
ríkjunum. Munurinn er hins
vegar sá að í Bandaríkjunum
samanstanda þessi mótorhjóla-
samtök m.a. af fyrrverandi her-
mönnum sem börðust í Víet-
nam, þ.e. mönnum sem eru
sérfræðingar í meðferð vopna
en á Norðurlöndunum eru það
mikið til smáglæpamenn sem
sækja í glæpaklíkur þessara
tveggja samtaka og kunnátta
þeirra í meðferð vopná er aðal-
lega sótt í kvikmyndir. Margar
af árásunum
sem gerðar
hafa verið hafa
því átt að vinna
meiri spellvirki
en ekki gert
það sökum
kunnáttuleysis
þeirra sem
skipuleggja
þær.
Plast-
sprengja sem
t.d. var komið
fyrir á bíl eins
Taliðer að70%
hœttulegra „rokk-
ara“ sitji í fangelsi
í dag og þar sem
stór hluti reyndari
„glœparokkara“
situr inni hafa
ivrir a mi ems 1 • 1 1 • ,
Banditos „rokk- þeir algeHega misst
stjórn á glœpaklík-
af
ara“ datt
honum og
sprakk ekki
fyrr en bflnum
hafði verið ekið
rúmlega 50 metra í burtu með
þeim afleiðingum að fjöldi bfla
eyðilagðist og rúður sprungu í
gluggum í næsta nágrenni. Bif-
reiðin hafði staðið á bflastæði í
fjölmennu Qölbýlishúsahverfi og
því mesta mildi að ekki urðu
stórslys á fólki.
Einu sinni var...
Upphafið að glæpaklíkunum má
rekja til áranna á milli 1960 og
1970 þegar ákveðnar hverfa-
klíkur fóru að myndast í Kaup-
mannahöfn. Klíkunum var
komið á af unglingum sem slóg-
ust án nokkurra sýnilegra
ástæðna. Með hippakynslóðinni
eignuðust þessar klíkur sameig-
inlegar óvin. Hina friðelskandi
og síðhærðu hippa sem urðu
óþolandi í augum bursta-
klipptra slagsmálahundanna.
Hipparnir komu sér upp kaffi-
stofum þar sem þeir komu sam-
an og ræddu friðinn. Slags-
málahundarnir óku hins vegar
um á reiðhjólum og skellinöðr-
um og réðust á þessi hippa-
hreiður, brutu og brömluðu án
þess að fá svörun frá hippun-
um. Brátt tóku þeir að ræna
hassi frá þeim, fóru að finna
peningalykt af því og
skipuleggja smyglferðir og þar
sem eftirlit lögreglunnar var lít-
ið á þessum árum komust klík-
urnar upp með þetta.
Glæpaklíkunum gekk þó ekki
vel að selja efnið og þeir voru
fljótir að sjá það út að hipparn-
ir voru bestu sölumennirnir.
Peir tóku því að vingast við
hippana og peningarnir tóku að
Daglegt brauð. Lögreglan tekur
enga áhættu í samskiptum sínum
við „rokkarana"
um sinum.
streyma inn. Klíkurnar tóku sér
bólfestu í Kristjánshöfn og frí-
ríkið Kristjanía varð til.
Mætti andskotinn
ömmu sinni?
Ákveðnar klíkur gátu þó ekki
verið án illinda og slagsmála en
þær urðu að halda ímynd sinni
út á við og sóttu því í samtök
Vítisengla. Þeir fundu sér fljótt
óvinahóp en
það voru ættar-
klíkur innflytj-
enda frá Pak-
istan og Tyrk-
landi. Með inn-
flytjendunum
streymdi nefni-
lega hass inn í
landið, n.k. far-
areyrir í þeirra
augum, og þeg-
ar ættarklík-
urnar tóku að
selja það litu
„rokkararnir" á
það sem sam-
keppni við sig
og tóku að
lúskra á inn-
flytjendunum.
Ættarklíkurnar tóku þá til
sinna ráða. Fóru saman í hóp-
um, eltu „rokkarana" uppi,
börðu þá og smánuðu. Uppgjör-
inu lauk með því að óskráð
samkomulag var gert milli mót-
orhjóla- og ættarklíka um sölu
á eiturlyfjum. Erlendu mafíurn-
ar héldu markaðnum fyrir
hörðu efnin en þær innlendu
héldu hasssölunni. Hörðu efnin
eru nefnilega bönnuð í Kristj-
aníu og er talsvert eftirlit meðal
íbúa þar að fylgja því eftir.
Eftir þetta fór lítið fyrir
glæpaklíkum rokkaranna,
a.m.k. í bili. Viðráðanlegir óvin-
ir voru vandfundnir en án ill-
inda gátu þessar klíkur ekki
verið. Þegar mótorhjólasamtök
„rokkaranna" klofnuðu tóku
hins vegar ákveðnar línur að
skerpast.
Bullshit klíkan myndaðist og
illindi og deilur stigmögnuðust.
Það braust út n.k. stríð milli
Vítisengla og Bullshit sem lauk
með því að 23 einstaklingar
höfðu látið lífið og Bullshit klík-
an var nánast þurrkuð út.
Eftir þetta var ekki seinna
vænna fyrir samtök Vítisengl-
ana að bæta ímynd sína.
Ilreinsað var til í hópnum, inn-
tökuskilyrði voru hert og minna
fór fyrir þeim. Þeir báru sig
friðsamlega og með tímanum
tókst þeim að fá Qárframlög frá
hinu opinbera til félagsstarf-
semi sinnar. Þegar Banditos
klíkan var stofnuð, m.a. af
nokkrum félögum úr Bullshit
klikunni, brottrækum Vítisengla
meðlimum og óþolinmóðum
smákrimmum, litu glæpaklíkur
Vítisenglanna á þá sem n.k.
kjúklingaklúbb og þeir voru
ekki virtir viðlits.
er lítið
Undirheimar Kaup-
mannahafnar og
reyndar Skandin-
avíu allrar loga í
illdeilum og blóð-
ugu uppgjöri þar
sem glœpagengi
tveggja mótorhjóla-
klíka berjast, Vítis-
engla og Banditos.