Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Page 6
18 - Laugardagur 14. júní 1997 Jlagur-®TOtmn: LIFIÐ I LANDINU og íriðsælt land, en... Þann 10. mars síðastliðinn var liðið eitt ár síðan ólæt- in brutust út milli klík- anna. Illindin upphófust með skotárás Vítisenglanna á Band- itos klíkuna við Kastrup flug- stöðina í Kaupmannahöfn og kostaði sú árás einn Banditos meðlim lífið. Á þessu eina ári hafa klík- urnar skipst á að gera alvarleg- ar árásir hvor á aðra og alvar- legust er árás sem gerð var á klúbbhús Vítisengla í Kaup- mannahöfn þar sem klúbbmeð- limir héldu árlega víkinga- veislu. Árásin var gerð af þaki annars iðnaðarhúsnæðis skammt frá og var eldflaug skotið að byggingunni. Hún þaut inn í húsið og sprakk með þeim afleiðingum að tvennt lét lífið og 17 særðust. Eftir árás- ina voru sett lög í Danmörku sem banna starfsemi mótor- hjólaklúbba og „rokkarar", meðlimir mótorhjólasamtak- anna ganga undir því nafni, mega hvorki safnast saman né bera merki félaga sinna. Börn með byssur? Fyrirmyndin að mótorhjóla- klúbbunum er komin frá Vítis- englum, Hells Angels, í Banda- ríkjunum. Munurinn er hins vegar sá að í Bandaríkjunum samanstanda þessi mótorhjóla- samtök m.a. af fyrrverandi her- mönnum sem börðust í Víet- nam, þ.e. mönnum sem eru sérfræðingar í meðferð vopna en á Norðurlöndunum eru það mikið til smáglæpamenn sem sækja í glæpaklíkur þessara tveggja samtaka og kunnátta þeirra í meðferð vopná er aðal- lega sótt í kvikmyndir. Margar af árásunum sem gerðar hafa verið hafa því átt að vinna meiri spellvirki en ekki gert það sökum kunnáttuleysis þeirra sem skipuleggja þær. Plast- sprengja sem t.d. var komið fyrir á bíl eins Taliðer að70% hœttulegra „rokk- ara“ sitji í fangelsi í dag og þar sem stór hluti reyndari „glœparokkara“ situr inni hafa ivrir a mi ems 1 • 1 1 • , Banditos „rokk- þeir algeHega misst stjórn á glœpaklík- af ara“ datt honum og sprakk ekki fyrr en bflnum hafði verið ekið rúmlega 50 metra í burtu með þeim afleiðingum að fjöldi bfla eyðilagðist og rúður sprungu í gluggum í næsta nágrenni. Bif- reiðin hafði staðið á bflastæði í fjölmennu Qölbýlishúsahverfi og því mesta mildi að ekki urðu stórslys á fólki. Einu sinni var... Upphafið að glæpaklíkunum má rekja til áranna á milli 1960 og 1970 þegar ákveðnar hverfa- klíkur fóru að myndast í Kaup- mannahöfn. Klíkunum var komið á af unglingum sem slóg- ust án nokkurra sýnilegra ástæðna. Með hippakynslóðinni eignuðust þessar klíkur sameig- inlegar óvin. Hina friðelskandi og síðhærðu hippa sem urðu óþolandi í augum bursta- klipptra slagsmálahundanna. Hipparnir komu sér upp kaffi- stofum þar sem þeir komu sam- an og ræddu friðinn. Slags- málahundarnir óku hins vegar um á reiðhjólum og skellinöðr- um og réðust á þessi hippa- hreiður, brutu og brömluðu án þess að fá svörun frá hippun- um. Brátt tóku þeir að ræna hassi frá þeim, fóru að finna peningalykt af því og skipuleggja smyglferðir og þar sem eftirlit lögreglunnar var lít- ið á þessum árum komust klík- urnar upp með þetta. Glæpaklíkunum gekk þó ekki vel að selja efnið og þeir voru fljótir að sjá það út að hipparn- ir voru bestu sölumennirnir. Peir tóku því að vingast við hippana og peningarnir tóku að Daglegt brauð. Lögreglan tekur enga áhættu í samskiptum sínum við „rokkarana" um sinum. streyma inn. Klíkurnar tóku sér bólfestu í Kristjánshöfn og frí- ríkið Kristjanía varð til. Mætti andskotinn ömmu sinni? Ákveðnar klíkur gátu þó ekki verið án illinda og slagsmála en þær urðu að halda ímynd sinni út á við og sóttu því í samtök Vítisengla. Þeir fundu sér fljótt óvinahóp en það voru ættar- klíkur innflytj- enda frá Pak- istan og Tyrk- landi. Með inn- flytjendunum streymdi nefni- lega hass inn í landið, n.k. far- areyrir í þeirra augum, og þeg- ar ættarklík- urnar tóku að selja það litu „rokkararnir" á það sem sam- keppni við sig og tóku að lúskra á inn- flytjendunum. Ættarklíkurnar tóku þá til sinna ráða. Fóru saman í hóp- um, eltu „rokkarana" uppi, börðu þá og smánuðu. Uppgjör- inu lauk með því að óskráð samkomulag var gert milli mót- orhjóla- og ættarklíka um sölu á eiturlyfjum. Erlendu mafíurn- ar héldu markaðnum fyrir hörðu efnin en þær innlendu héldu hasssölunni. Hörðu efnin eru nefnilega bönnuð í Kristj- aníu og er talsvert eftirlit meðal íbúa þar að fylgja því eftir. Eftir þetta fór lítið fyrir glæpaklíkum rokkaranna, a.m.k. í bili. Viðráðanlegir óvin- ir voru vandfundnir en án ill- inda gátu þessar klíkur ekki verið. Þegar mótorhjólasamtök „rokkaranna" klofnuðu tóku hins vegar ákveðnar línur að skerpast. Bullshit klíkan myndaðist og illindi og deilur stigmögnuðust. Það braust út n.k. stríð milli Vítisengla og Bullshit sem lauk með því að 23 einstaklingar höfðu látið lífið og Bullshit klík- an var nánast þurrkuð út. Eftir þetta var ekki seinna vænna fyrir samtök Vítisengl- ana að bæta ímynd sína. Ilreinsað var til í hópnum, inn- tökuskilyrði voru hert og minna fór fyrir þeim. Þeir báru sig friðsamlega og með tímanum tókst þeim að fá Qárframlög frá hinu opinbera til félagsstarf- semi sinnar. Þegar Banditos klíkan var stofnuð, m.a. af nokkrum félögum úr Bullshit klikunni, brottrækum Vítisengla meðlimum og óþolinmóðum smákrimmum, litu glæpaklíkur Vítisenglanna á þá sem n.k. kjúklingaklúbb og þeir voru ekki virtir viðlits. er lítið Undirheimar Kaup- mannahafnar og reyndar Skandin- avíu allrar loga í illdeilum og blóð- ugu uppgjöri þar sem glœpagengi tveggja mótorhjóla- klíka berjast, Vítis- engla og Banditos.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.