Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Page 9
ÍOagur-^mtirat
LIFIÐ I LANDINU
Laugardagur 14. júní 1997 - 21
AKUREYRARBÆR
Grunnskólar Akureyrar
Sameinaður skóli á Suður-Brekkunni
Eftirtaldar kennarastöður eru lausar til um-
sóknar:
Almenn kennsla í 4., 5., 6. og 7. bekk.
Sérkennsla.
Smíðakennsla.
Upplýsingar veita starfandi skólastjórar í síma
462 4241 og 462 4449, skólafulltrúi í síma 460
1461 og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma
462 1000.
Glerárskóli
Eftirtalin kennarastaða er laus til umsóknar:
Almenn kennsla í 1. bekk.
Auk þess vantar deildarþroskaþjálfa til að annast
unglingavistun fyrir fatlaða nemendur og þroska-
þjálfa/leikskólakennara í almenna skólavistun.
Upplýsingar veita skólastjóri og forstöðumaður
vistunar í síma 461 2666, skólafulltrúi í síma 460
1461 og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma
462 1000.
Mannvænleg kynslóð
að vaxa úr grasi
„Við hittumstfyrst í
Sjallanum 1969 en
það var aðalstaður-
inn og algengt að
fólk hitti tilvonandi
maka sinn þar, “
segir Helga Jóns-
dóttir þegar hún er
spurð um það hvar
hún hitti eiginmann
sinn Kolbein Sigur-
björnsson.
Kolbeinn er frá Reykjavík
en Helga frá Akureyri og
þau höfðu aldrei hitt
hvort annað fyrr en þarna.
„Kolli var á leið í brúðkaup
bróður síns og var bara þetta
eina kvöld á Akureyri en við
ákváðum að hittast aftur og
höfum verið saman síðan.“
Sambönd
opinberari f dag
Urðu þau vör við aukið frjáls-
yndi á þessum árum í gegnum
hippamenninguna?
„Það hefur svo mikið verið
talað um þetta en einhvern veg-
inn þá fór þetta mikið til fram
hjá manni. Auðvitað voru hipp-
ar sem bjuggu í kommúnum en
þeir voru svo fáir og þessi
menning náði lítið til okkar
kynslóðar," segir Kolbeinn.
„Þetta var tíminn þó hann hafi
kannski ekki náð allaleið hing-
að. Að vísu var þetta allt annað
en hjá foreldrum okkar að því
leyti að frelsið og umburðar-
lyndið var meira og krakkar
voru yngri þegar þeir fóru að
slá sér upp,“ bætir Helga við.
Halda krakkar í dag í frjáls-
lyndi ykkar kynslóðar?
„Sambönd hjá yngri krökk-
um eru opinberari í dag gagn-
vart foreldrunum en var hjá
okkur. Krakkar eru líka mun
sjálfstæðari," segir Helga og
Kolbeinn bætir við að með
þeirra kynslóð hafi krakkar
verið farnir að eignast sitt eigið
herbergi, húsakynni hafl öll
orðið miklu rýmri, „og þess
vegna var miklu minna mál að
koma heim með kærastann eða
kærustuna."
Ungt fólk skynsamara
Hvað finnst þeim frábrugðið í
dag miðað við þau ár þegar
þau voru að byrja saman?
„Aðallega samband foreldra
og barna. Það er miklu opnara
og sjálfsagðara að ræða saman
og vera saman. Líka það að aiit
gekk svo hratt fyrir sig. Maður
fór að vera í föstu sambandi og
strax var farið að plana að
eignast húsnæði og allt inn í
það. Fólk fór ailtof fljótt í það
að verða ráðsett. Forgangsröð-
in var önnur og sjálfstraustið
sem þurfti til að ganga á móti
straumnum kannski frekar til
staðar í dag en var þá“ segir
Helga.
Kolbeinn segir miklu minni
kröfur gerðar. „Krakkar í dag
eru miklu skynsamlegri en við
vorum. Þeir fara í Ikea, geta
eignast það sem þau þurfa á
ódýran hátt. Þeir njóta lífsins,
ferðast og eru ekkert að hugsa
um það að eignast húsnæði og
bíl. Þarna kemur að vísu inn í
að í dag er miklu auðveldara
fyrir ungt fólk að fara erlendis í
nám og ungt fólk er hvatt til
þess. Það er líka allt annar
hugsanagangur og áhersla á
aðra hluti,“ og hann bætir við,
„ég er sannfærður um það að
íslendingar hafa aldrei átt
mannvænlegri kynslóð og jafn
vel úr garði gerða en þá sem er
að vaxa úr grasi núna.“ hbg
Jass á Aksjón Café 16. jiíní
Mánudagskvöldið 16. júní
verður jasskvöld á Ak-
sjón Café. Af því tilefni
hefur verið settur saman kvart-
ett valinkunnra jasstónlistar-
manna víðsvegar að, en kvart-
ettinn skipa þeir Ómar Einars-
son á gítar, Jóel Pálsson á ten-
órsaxafón, Birgir Bragason á
bassa og Karl Petersen á
trommur.
Ómar Einarsson spilaði gít-
ardúett með Hilmari Jenssyni á
Aksjón Café fyrir skömmu við
góðar undirtektir, en Ómar hef-
ur komið víða við og var m.a.
nemandi hins fræga John Ab-
ercrombie. Jóel Pálsson er einn
af efnilegustu jassleikurum af
yngri kynslóðinni. Þeir Jóel og
Karl Petersen hafa báðir stund-
að nám við Berkley-tónlistarhá-
skólann en Karl kennir við Tón-
listarskólann á Akureyri og hef-
ur verið mikilvirkur í tónlistar-
lífinu í bænum. Birgir Bragason
hefur leikið víða og er jafnvígur
á jass og dægurtónlist. Þeir Jóel
og Birgir leika með hljómsveit-
inni Milljónamæringunum.
Umsóknarfrestur er til 27. júní nk.
Umsóknum skal skilað til starfsmannadeildar í
Geislagötu 9 og þar fást einnig umsóknareyðublöð.
Starfsmannastjóri.
Leikskólar Seltjarnarness
Lausar stöður við leik-
skólann Mánabrekku
v/Suðurströnd
Leikskótakennarar eða starfsmenn með sambæri-
lega menntun óskast til starfa við leikskólann Mána-
brekku frá 1. ágúst nk.
Uppeldisstefna leikskólans er umhverfis- og náttúru-
vernd.
Hafið samband og kynnið ykkur starfsemina.
Upplýsingar gefur Dagrún Ársælsdóttir, leikskólastjóri í
síma 561 1375.
Einnig veitir leikskólafulltrúi upplýsingar um störfin í
síma 561 2100.
Leikskólar Seltjarnarness eru reyklausir vinnustaðir.
Leikskólafulltrúi.
1 * 11 Frá grunnskólunum
2222 í Ólafsfirði
Kennarar - Kennarar
Staða mynd- og handmenntakennara er laus
til umsóknar. Einnig vantar kennara til stærð-
fræðikennslu í 8.-10. bekk og kennslu yngri
barna.
Umsóknarfrestur er til 25. júní nk. Nánari upplýsingar
gefa Soffía Eggertsdóttir í Barnaskóla Ólafsfjarðar;
skólasími 466 2245; heimasími 466 2357, og Óskar
Þór Sigurbjörnsson skólastjóri Gagnfræðaskólans í Ól-
afsfirði; skólasími 466 2134; heimasími 466 2357.
Ólafsfjarðarbær - Skólanefnd.