Dagur - Tíminn Akureyri - 14.06.1997, Síða 11
^Dítgur-'SImnmt
Laugardagur 14. júní 1997 - 23
d cmwam' máfd
■■ -'■<?;
sj ■
« Æ
r.;1
____________________________
Það er hœgt að
nota ber og aðra
sumarávexti á ýms-
an hátt. Breytum út
af vananum og
prófum að borða
girnileg ber með
nýju brauði og góð-
um rjómaosti.
Á íslandi er hægt að fá fersk
ber meirihluta ársins og er það
ánægjulegt. Berin er nefnilega
hægt að nota á ýmsan máta og
um að gera að prófa sig áfram
með eitthvað nýtt og sniðugt.
Núna þegar sumarið er komið
og fólk vill borða léttari mat þá
er tilefni til að kaupa sér uppá-
halds berin sín, gott brauð og
ost og gera einhverja sniðuga
samsuðu úr þessu og koma
fram með nýjungar x tilefni
sumarsins.
Hvernig væri til dæmis að fá
sér fersk ber með góðu jógúrti.
Þetta er sniðug hugmynd og um
margar góðar tegundir að velja
þar. Þetta er líka upplögð hug-
mynd að ábætisrétti og gott til
að fá sér í hádeginu um helgar.
Þarna þarf aðeins að flnna sér
uppáhaldsjógúrtið og það er
mjög gott að nota þykka jógúrt,
þessa grísku. Síðan eru það
bara berin sem eru sett út í. Ef
liggur vel á manni er líka gam-
an að gera eitthvað meira úr
þessum rétti og setja jógúrtina í
fallegar skálar, helst glærar,
ekki setja alla heldur aðeins
helminginn til að byrja með,
síðan eitt lag af berjum og þá
afganginn af jógúrtinu og berin
ofan á. Þetta verður sumarlegt
og fallegt á borði og um að gera
að létta tilveruna og leggja líka
fallega á borð. Þá er þetta mik-
ið fyrir augað.
Það hefur sennilega fáum
dottið í hug að kaupa sér ljúf-
fengt brauð, best er að nota
hvítt brauð með harðri skorpu
(franska bagettu), skera það í
vænar sneiðar, taka sér síðan
góðan rjómaost og smyrja ofan
á. Þarna er best að nota ítalsk-
an masqarpone rjómaost og til
að kóróna brauðið þá nær mað-
ur sér í uppáhaldsberin sín,
gott að nota jarðarber og blá-
ber, skera þau í sneiðar og setja
ofan á smurt brauðið. Alveg
sérlega listugt og ferskt. Til að
gera ennþá meira úr þessum
rétti þá er hægt að kreista smá
safa úr ferskri sítrónu út í
rjómaostinn, jafnvel rífa örlít-
inn börk og setja með. Til að
hressa upp á útlitið á brauð-
sneiðinni þá er hægt að strá
möndluflögum yfir berin. Það
er líka hægt að hræra góðri
sultu sarnan við ostinn eða
smyrja henni ofan á hann.
Ef berin eru orðin svolítið
slöpp og ekki nógu spennandi
til að bera fram ein og sér þá er
um að gera að reyna að auka
bragð þeirra og bæta útlitið.
Það er hægt að gera með því að
setja berin í skál, taka fersk
mintulauf og strá yfir. Einnig er
hægt að kreista safa úr ferskri
appelsínu yfir þau, gott er að
setja smá hunang yfir berin og
nota þau þannig með jógúrti
eða jafnvel setja þau saman við
múslí og einnig er hægt að ná
sér gott balsam edik en það
nær á ótrúlegan hátt að auka
bragð berjanna.
niO
#1 Lei
eimilis-
hamið
í barnaafmœlið,
súkkulaðiskúffukaka
200 g smjör
3 dlsykur
4 egg
korn úr 1 vanillustöng eða 2
tsk. vanillusykur
3’á dl hveiti
3 msk. kakó
2 tsk. lyftiduft
1 dl vatn
1 dl mjólk
YJir kökuna:
200 g flórsykur
'/2 dl kakó
1-2 msk. sjóðandi vatn
skrautsykur
Hræiáð smjör og sykur létt og
ljóst. Bætið eggjunum við, einu í
senn, ásamt vanillunni. Sigtið
hveiti, kakó og lyftiduft sarnan
og.hrœrið.því út-i'. Bætið vatni
og mjólk síðast saman við deig-
ið og látið það í vel smurt
skúffuform, ca. 20x30 sm. Bak-
ið við 180°C í 45-60 mín. Kakan
látin kólna áður en hún er
smurð með glassúrnum og
skrautsykri stráð yfir.
Súkkulaði formkaka
200 g smjör
200g sykur
2 tsk. vanillusykur
3 egg
250 g hveiti
2'/ msk. kakó
2 tsk. lyftiduft
1 dl kaffirjómi
raspað hýði af 1 appelsínu
Hrærið mjúkt smjör með sykri,
létt og ljóst, bætið vanillusykri
saman við hræruna ásamt eggj-
unum einu í senn og hrærið vel
á milli. Blandið saman hveiti,
kakói, lyftidufti og röspuðu
appelsínuhýðinu. Hrærið því
sanxan við hræruna með rjóm-
anum. Deigið sett í vel smurt og
raspi stráð hringform og bakist
við 175°C í ca. 1 klst. Fallegt og
gott er að smyrja kökuna með
bræddu súkkulaði, rétt áður en
hún er borin fram. Skreytt með
hnetum. —.....................
Hvað er betra en
nýbakaður gerhringur
með kaffinu?
250 g hveiti
100 g smjör
50gsykur
25 g ger
1 dl kaffirjómi
1 egg
Fylling:
75 g muldir hnetukjarnar
75 g smjör
100 gsykur
1 msk. kanill
1 msk. hveiti
'á hrœrt egg til að pennsla yfir
Hveiti og sykur blandað saman.
Smjörið mulið saman við. Gerið
leyst upp í ylvolgum rjómanum,
eggið hrært saman við og því
bætt útí og linoðið vel saman.
Bætið hveiti útí ef þörf þykir.
Látið deigið hefast með stykki
yfir í ca. 45 mín. Hnoðið deigið
aftur og það er svo flatt út í af-
langa lengju, ca. 30-40 sm.
Muldum hnetukjörnum, smjör-
inu, sykrinum og kanel hrært
saman, því svo smurt yfir.
Lengjan rúlluð saman á lengd-
ina, myndaður hringur sem
settur er á smurða plötu með
samskeitin niður. Klipptar rauf-
ir í hringinn hér og þar, penslað
með hrærðu eggi. Bakað við
. 200°C-í ca. 25.mfn_
Waldorf salat
Sérlega gott með lambalœri
eða skinku og hamborgar-
hrygg
6 epli
5 sellerístilkar
4 ananashringir
50 g hnetur
2 dl majones
2’/ dl þeyttur rjómi
safi úr 2 sítrónum
4 msk. ananassafi
blá vínber
Eplin eru skorin í smá bita.
Sítrónusafi kreistur yfir, svo
þau haldi lit. Ananassneiðar
skornar í ltila bita, sett útí. Sell-
eríið skorið í þunnar sneiðar.
Rjóminn og majones blandað
saman og eplunum, selleríi,
muldum hnetunum og anan-
asnum blandað þar útx'. Vínber-
in klofin, kjarnar teknir úr og
notað sem skraut ofan á salatið
sem hefur verið sett í fallega
skál, sett í kæli þar til það er
borið fram.
Brennende
kjœrlighed!!
Brennandi ást!
Einfalt og gott
1 kg kartöflur
2'/2 dl mjólk
salt og pipar
2 laukar
800 g beikon
Skrælið kartöflurnar, skerið
þær í bitá og sjóðið þær vel í
ósöltuðu vatni. Síið valnið frá
kartöflunum, músið þær og lát-
ið smjörið og volga mjólkina
saman við, lítið í einu, svo mús-
in verði hæfilega þykk. Bragð-
bætið með salti og pipar. Beik-
onið skorið í smábita og þeir
steiktir á pönnu. Tekið af pönn-
unni með hluta af feitinni.
Laukurinn steiktur í þunnum
sneiðum í afganginum af feit-
inni. Kartöflumúsin sett á fat,
beikon og laukur settur ofan á.
Fínt er að strá steinselju yfir.
Rauðbeður bragðast mjög vel
með þessum rétti.
Gulrótarsúpa
5 gulrœtur
2 stórar kartöflur
1 laukur
1 kjötkrafteningur
3á dl vatn
1 msk. smjör
2/2 dl rjómi
salt, pipar
Gulræturnar hreinsaðar, kart-
öfluniar skrældar og skornar í
sneiðar, laukurinn skorinn í
sneiðar og minni stykki. Græn-
metið sett í pott, ásamt kjöt-
kraftsteningnum, lauknum og
vatni. Soðið í 30 mín. Sett í
matvinnsluvél og músað vel
saman. Sett aftur í pottinn og
smjörinu og rjómanum bætt út
í. Bragðað til með salti og pipar.
Látið sjóða saman smástund.
Heitar brauðbollur bornar með.