Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Page 1
Ijrlr Id. |Dcigur-®tmtmt LIFIÐ I LANDINU FÖStudagur 20. júní 1997 - 80. og 81. árgangur - 113. tölublað Sigurdór Sigurdórsson segir silungin í Elliðavatni betri en silung annarra vatna. Mynd: JAK EUiðavatn enffn líkt Veiðimennska í ám og vötnum hefur notið vaxandi vin- sœlda á síðari ár- um. Nokkuð eru skiptar skoðanir á því hvort betra eða skemmtilegra sé að veiða lax eða silung og vilja margir meina að silungs- veiði og þá einkum bleikjuveiði í vötn- um sé erfið, vegna þess að bleikjan láti ekki freistast af hverju sem er. Sigurdór Sigurdórsson hef- ur stundað silungsveiði í Elliðavatni í 11 ár. Segir vatnið engu líkt, það sé hrein náttúruperla og þar að auki sé silungurinn í því betri en annar silungur. Það sé að þakka sérstök- um kuðungi, sem hann nær- ist á, sem or- sakar að sil- ungurinn er feitur og patt- aralegur og afskaplega bragð- góður. Sigurdór hnýtir allar sín- ar flugur sjálfur og hefur m.a. búið til eina sem hann segir fiskna. Hann gaf blaðamanni uppskriftina og er hún hér að ofan ásamt mynd af flugunni. Sigurdór sagðist hafa veitt víða áður en hann kynntist Elliða- vatni, en Stefán Jónsson, fv. fréttamaður og alþingismaður og var kunnur fluguveiðimaður, sagði honum af dásemdum Peter Ross flug- an þverbrýtur allar reglur en veiðir samt. vatnsins og að það væri eins konar háskóli fluguveiðimanna. Sá sem gæti veitt í Effiðavatni, væri sannur meistari, því sil- ungurinn þar væri var um sig. Vatnið er að hluta tilbú- ið, en er í raun 2 vötn, Ilelluvatn og Elliða- vatn, tengd saman. í gegn- um Elliðavatn er læna, EU- iðaá, en að öðru leyti er vatnið mjög grunnt og hægt að vaða það mest allt, viti menn hvar á að ganga. Umsjónarmaður vatnsins, Vignir, heldur öllu umhverfi hreinu og fallegu og þarna sést aldrei rusl. Nú er búið að koma upp aðstöðu til að grilla og leggja göngustíga. Þetta er orðið topp útvistar- svæði, segir Sigurdór. Nokkuð margir fastagestir eru við vatnið, en það þolir mun meiri veiði, fiski hefur fjölgað mjög í vatninu og bara gott að grisja aðeins. Litfagrar flugur Fyrir óvana er allt þetta flugutal dálítið ruglandi svo Sigurdór er beðinn um að útskýra hugtök- in nánar. - í stórum dráttum er um að ræða annað hvort þurrflug- ur eða blaut- flugur. Munur- inn er sá, að þegar verið er að fiska með blautflugu, þá er henni kastað út og hún látin Bleikjan er fljót að hrœkja út úr sér ónglinum ef hún finnur að þetta er plat. sökkva. Svo er kippt laust í og svo er flugan dregin hægt að landi. Oft tekur fiskurinn flug- una þegar verið er að kippa í, vegna þess að hreyfingin líkist því að lirfan sé að fljóta upp frá botninum. En að vinna með þurrflugu er meiri vandi. Ilún er minni og er vatnsvarin til að hún sitji ofan á vatninu. Fiskurinn heldur að þetta sé lirfa sem er að losna úr púpunni sem tekur aðeins nokkrar sekúndur. Því er nauðsynlegt að bregðast hratt og vel við þeg- ar flugan hreyfist og fisk- urinn hefur tekið hana. Þá getur sekúndu- brot skipt máli, því fískurinn er afskaplega fljótur að hrækja henni ef hann finnur að út úr sér þetta er plat. Framhald ábls 14

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.