Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Blaðsíða 3
33itgnr-®tmmrt
Föstudagur 20. júní 1997 - 15
LIFIÐ I LANDINU
Hvað viltu sýsla
þegar sólin skín?
Lífið í landinu fór á röltið og stöðvaði fólk til að
leggjafyrir það andstyggilegar spurningar (í Ijósi
undangengins kuldakasts): Hvað viltu gera þegar
sólin hellist yfir okkur? Hver er þín uppáhalds-úti-
vistariðja?
Sól og sund
Flýgur í miðnætursólinni
„Ég hef rosalega gaman af því að spila körfubolta úti á sumrin," sagði
Örn Smárason, tók ofan húfuna og afhjúpaði skínandi krúnurakaðan
skallann a la þeldökka atvinnumenn í faginu. „Svo er ég mikið að
fljúga," sagði hann og í Ijós kom að kappinn er búinn að læra á litlar
einshreyfilsvélar og gerir mikið af því að fljúga að sumarlagi. Ekki spill-
ir þegar næturnar eru orðnar bjartar og hann segir rosalega gaman
að fljúga í miðnætursólinni.
Ódugleg viö aö grilla
„Mér finnst gaman að fara í sund og ég hef verið dugleg við
að fara í sund og syndi yfirleitt svona 4-500 metra," segir
Svala Steinþórsdóttir. Svala segist aðallega fara í sund á
sumrin og vorin en fór líka yfir vetrartímann hér áður fyrr. „Ég
er með gígt og þá er maður aumari af sér þegar kalt er.“ Pví
skal engan undra að harðindalegar svefnnætur í útilegum
heilla hana ekki. Svala tilheyrir heldur ekki þeim fjölmenna
hópi íslendinga sem stundar sumarsportið: að grilla úti. „Ég
er frekar ódugleg við að grilla."
Telmu Kristjánsdóttur þykir mest gaman að fara í sund þegar sólin vermir (hvernig var
það nú aftur?) landið og hlý golan (??!?) leikur við rjóðar kinnar. Þegar hann viðrar
þokkalega reynir hún að grilla og þá helst eitthvert gott kjöt. Svo finnst henni einfald-
lega gott að vera úti þegar gott er veður og sumarfrí. úyndin jhf
Hamborgara á grilliö mitt
„Ég vil fara í sund og grilla. Það er toppurinn," segir Samúel
Björnsson, „og helst vera í útilegu líka, það er ennþá betra." Það
er sko ekki lambakjötið sem þessi herramaður vill helst af öllu
setja á grillið heldur hamborgara! „Þú færð ekkert betra en ham-
borgara á grillið, ja eða læri, lambalæri ókei.“ Þegar gengið var á
Samúel samþykkti hann þó að lambalærið væri ágætt. Svo fremi
að með því séu bakaðar kartöflur, smér og rjómalöguð pipargráð-
ostasósa (og værð færðist yfir andlitið meðan hann þuldi upp
krásirnar). „Svo er voðalega gott að hafa rauðvín með...“ Sumar-
máltíðin fullkomnuð!
Afstöppun með fjölskyldunni
Svavar Þór Guðjónsson er ekki svona maður sem æðir upp á fjöll
eða klífur kletta um leið og hann rífur sig upp með smá
glennu.“Ef góða veðrið hittist á helgi vil ég náttúrulega helst fara í
útilegu með fjölskylduna og vera úti í náttúrunni með krökkun-
um.“ Svavar nýtir góð veður fremur til afslöppunar en rífandi aktí-
fitet þó að fyrir komi að hann renni fyrir silung. „Svo er gott að
liggja í sundi og slaka á einhvern hluta af deginum. Og það er líka
gaman að fara út að hlaupa í góðu veðri - maður hefur nú ekki
gert mikið af því núna í kuldanum."
Liggja eins og skata
Kolbrún Þorsteinsdóttir var að stafla tómum pappakössum í
sendiferðabíl þegar hún var gripin um kvöldmatarleytið í vik-
unni. Og það vafðist sko ekki fyrir henni hvað hún vildi helst
gera kæmi 27gráðu-dagur-númer-2. Hún myndi hiklaust
fleygja sér í sólbað og liggja þar „eins og skata" líkt og okkur
innisetufólkinu af fiskveiðiþjóðinni er tamt að segja þegar tal-
ið berst að sólböðum. „Svo vil ég borða ís og hafa það næs.
Það er auðvitað voða gott að hreyfa sig líka en helst vill mað-
ur nú bara liggja og verða brúnn."
Nennir ekki að æfa
Arnar Freyr Sigþórsson er átta ára gamall gutti og áhugamaður
um fótbolta en stundar engar íþróttir sjálfur. „Mér finnst gaman í
fótbolta, ég bara nenni ekki að æfa." Hins vegar nennir hann vel
að fara í útilegur og finnst það eitt hið skemmtilegasta við sum-
artímann. Fótboltinn fær þá að fljóta með í bílnum og Arnar og
bróðir hans sparka tuðrunni í útilegunni. Getur þá verið að Rón-
aldo (uppáhaldsfótboltagarpurinn) standi Arnari fyrir hugskots-
sjónum, eða bara besta liðið Manchester United eins og það
leggur sig.