Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Page 6
18 - Föstudagur 20. júní 1997
ÍDagur-(Etmtrat
MENNING OG LISTIR
Dagur í
sumarbúðum
3. flokkur 1997 í Vatnaskógi, ásamt starfsfólki í eldhúsi og foringjum.
S
Ahverju sumri eru um
1000 drengir í Vatnskógi.
í hvejum flokki eru að
jafnaði um 95-98 manns og er
dvalartíminn um 7-9 dagar.
Forstöðumaður nú er Hreiðar
Örn Stefánsson, en margir
skipta því starfi á milli sín og
eru þeir frá einni viku í senn.
Annað starfsfólk eru foringjar,
7 talsins og starfsfólk í eldhúsi
og við ýmis önnur störf. Dagur-
inn hefst kl. 7.30 hjá foringjum,
með fundi, þar sem viðburðir
dagsins eru skipulagðir. Dreng-
irnir eru vaktir kl. 8.30 og
morgunverður er kl. 9. Eftir
morgunverð eru ýmsir leikir og
ýmist er keppni á milli borða
eða skipt í lið. Kl. 12 er svo há-
Myndir: Kristján Einar Einarsson
degismatur, allir kallaðir inn
með lúðrablæstri. Drengirnir
setjast við borðin og er einn
foringi með hvert borð. Þegar
allir eru sestir kallar forst.
maður hátt og snjallt: „Hendur
niður með síðum, beinir í baki
gjörið svo vel.“ Og allir hlýða.
Svo er sunginn borðsálmur. Eft-
ir mat er aftur farið í skipu-
lagða leiki og keppnir, út á bát
eða inniaðstaðan í íþróttahús-
inu nýtt. Kaffí er kl. 3 og kvöld-
matur kl. 6 og svo kvöldkaffi. Á
hverju kvöldi er kvöldvaka þar
sem foringjar sjá að mestu leyti
um skemmtiatriðin, en dreng-
irnir taka samt nokkurn þátt.
Óspart er gert grín að fólki og
dregin fram skondin atriði sem
gerst hafa, Vatnaskógarútgáfa
af Spaugstofunni.
Aftur næsta sumar!
- Hvernig líkar ykkur hér í
Vatnaskógi?
„Rosalega vel, mjög
skemmtilegt, frábært," sögðu
þeir. „Og svo höfum við besta
foringjann,“ bætti einn við.
- Finnst ykkur reglurnar
Borðtennis er vinsæl íþrótt í Skóginum og á efri hæð íþróttahússins er
gott að vera við innisýsl eins og lestur og skák.
Meistarinn er hér og vill finna þig.
Kassabílarallið er æsispennandi og samkeppnin mikil, þetta er liðakeppni
og liðin heita ýmsum frumlegum nöfnum.
ekki stífar í samanburði við
reglurnar heima hjá ykkur?
„Nei, þetta er fínt, allt í lagi
með reglurnar, gott að hafa
ákveðnar reglur."
- Hvað með skort á sjón-
varpi, saknið þið þess ekkert?
„Nei, alls ekki,“ var svarað,
nánast í kór. „Maður gleymir
alveg sjónvarpinu hér, það er
svo mikið að gera.“
- En hvað með það að þurfa
að fara snemma í rúmið? Er
það ekki leiðinlegt?
„Ha, snemma í rúmið? Við
eigum að vera komir inn kl. 11,
það er ekki svo snemmt! Og er-
um sofnaðir kl. 11.10,“ bætir
foringinn við og glottir í kamp-
inn.
Allir strákarnir á 7. borði
hafa verið í KFUM og merkilegt
nokk, þeir eru allir vesturbæ-
ingar og í KR nema 1 sem er í
Gróttu. Þeir segjast standa sig
vel, og reikna með að vinna til
flestra viðurkenninga og
íþróttaverðlauna í flokknum.
Frábær kvöldvaka
Kvöldvakan var með hefð-
bundnum hætti. Fyrst sungu
drengirnir nokkur lög eins og
t.d. Ljómandi Lindarrjóður, sem
margir þekkja vel. Sönggleðin
var svo mikil að húsið titraði og
þakið lyftist við hávaðann.
Stemmningin var alveg frábær
og ekki laust við að blm. fyndi
ljúfsára saknaðartilfinningu við
að heyra sum lögin. Því næst
var skemmtiatriði og svo kynnti
einn foringinn nýtt lag sem
hann hafði samið fyrr um dag-
inn, „Meistarinn er hér og vill
finna þig“. Lagið var svo sungið
með innlifun með samblandi af
reggie og poppi, með suðrænni
sveiflu.
Vatnaskógur, sumar-
búðir í 74 ár
Árið 1923 voru fyrstu drengirn-
ir í Vatnskógi. Síðan hefur sí-
fellt verið unnið að uppbygg-
ingu í Skóginum og nú eru hér
7 hús, Gamli skáli, Laufskáli,
Lerkiskáli, Matskáli, bátaskýli
og kapella. Verið er að smíða
400 fm. skála sem vonandi
verður tekinn í notkun í haust.
Smíði lians er öll unnin í sjálf-
boðavinnu af gömlum Skógar-
mönnum, sem mæta um hverja
helgi til að vinna.
Um 40% fermingarbarna
landsins komu í Vatnaskóg síð-
astliðið haust og dvöldu í ferm-
ingarbúðum í 2-3 daga og að
auki eru haldin ýmis mót og
fundir yfir veturinn. Nýja húsið
mun gjörbreyta allri aðstöðu til
vetrardvalar. vs
Keppnin er hörð, í fótboltanum er keppni milli borða og tilkynnt við kvöld-
mat hvernig stigin hafa farið.
Strákarnir á 7. borði. Þeir eru allir vesturbæingar og í KR nema einn.