Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Qupperneq 13

Dagur - Tíminn Akureyri - 20.06.1997, Qupperneq 13
jDagur-®ínrám Föstudagur 20. júní 1997 - 25 LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR Marín Hrafnsdóttir UMSJON Nýtt leikhús - miðnætursýnmgar Hluti af hópnum sem áhugaleikur á Renniverkstæðinu í kvöld, morgun og sunnudag. Mynd:jHF Sumarleikhúsið á Akureyri, sem er nýtt og óráðið fyrir- brigði, frumsýnir í kvöld tvo einþáttunga, „Sumarið sem aldrei kom“ eftir Valgarð Stef- ánsson og „Sumarferð með Sól- on“ eftir Örn Inga. Það eru áhugaleikarar víða af landinu sem flytja þessi verk og auðvitað rjóminn; bestu áhugaleikararnir sem Örn Ingi hefur unnið með. „Sumarið sem aldrei kom“ eru myndir úr lífs- hlaupi Skúla Skúlasonar sem var fyrsti íslendingurinn til að fá styrk til náms til þess að nema myndlist í Kaupmanna- höfn. Hann náði hins vegar ekki, frekar en margir, tökum á tilverunni og kom heim og dó helsjúkur. Snerist ekki í kringum rollur Hitt leikritið, „Sumarferð með Sólon" er um Sölva Helgason. Það er Þórður Júlíusson frá Norðfirði sem hann leikur: „Sól- on hefur verið nefndur lands- hornaflakkari, listamaður og stórsnillingur, auðvitað misskil- inn enda í umhverfi vinnusemi og þar sem allir snerust í kring- um rollur. í þessu verki er sleg- ist í för með Sóloni." „Já, ég reyni að ímynda mér hvernig hann gat flakkað í 60 ár og allt- af komist inn í hús,“ segir höf- undurinn Örn Ingi. „Hann var laminn á Akureyri fyrir akkúrat 140 árum en hann gafst aldrei upp og var orðinn 75 ára þegar hann dó. Hann var fjöllistamað- ur og las t.a.m. húslestra af- burðar vel. Þjóðin veit lítið ann- að en að Sölvi hafi verið flakk- ari og listamaður en eftir hann liggur t.d. handrit á Landsbóka- safninu um Frakklandssögu, frá upphafi Frakklands að Napóle- oni. Ég spái því að þetta verði gefið út, það er sagt að hann hafi þýtt þetta að stórum hluta úr þýsku en ekkert er vitað til þess að hann hafi kunnað þýsku.“ Það er Arnar Jónsson (ekki sá sem við öll þekkjum) sem leikur Skúla Skúlason en í því leikverki hefur Valgarður Stef- ánsson samið sig í gegnum sagnfræðina, notar meira segja texta beint upp úr Alþingistíð- indum. Þá er aðalleikarinn auð- vitað búinn að fara í sérstakan könnunarleiðangur þar sem hann grét beisklega yfir gröf Skúla á Munkaþverá. Næstum atvinnumenn Það eru 15 manns sem leika og sama fólk í báðum Ieikþáttum. „Menn bregða sér í allra kvik- inda líki en eru þó bara í einu hlutverki í einu, menn passa sig á því.“ Og Örn Ingi segir að menn séu á aldrinum 12-70 ára. Við verðum með fimm sýn- ingar nema ef menn taka virki- lega vel við sér þá ijölgum við þeim. Við höfum þetta þannig að leikararnir fá innkomuna í sinn hlut, þ.e. þegar búið er að borga fyrir húsnæðið. Þannig nálgast menn það að vera at- vinnumenn. Sýnt er á Renniverkstæðinu í kvöld klukkan 20.30 og klukkan 23.30, á laugardagskvöld klukkan 20.30 og 23.30 og á sunnudag klukkan 17.00. Ertu silungsmaður? Ef þú ert silungsmaður eða öðruvísi heltekinn veiðimaður er gott að vita að Einar Long selur veiðileyfi í Eyjafjarðará, Hörgá, Húseyjarkvísl í Skagafirði og Ölvesvatn á Skaga, Þetta eru dagsleyfi og verðið er misjafnt en að hans mati á allra færi. „Þetta eru allt sil- ungssvæði nema í Húseyjarkvísl og í fyrra veiddust 20-30 laxar í Eyjafjarðará." Veiðin var þolanleg í fyrra, yfir 2400 úr Eyjafjarðará og 1200 úr Hörgá. „Miðað við það sem sást á Pollinum í vor lítur þetta mjög vel út í ár, það var mikið af silungi í sjónum þegar þleikjan gekk niður úr ánni til að fita sig." Einar segir að vatnasvæðið á Skaga sé tilvalið fyrir fólk sem er á hringveginum. „Það eru alltof fáir sem leggja (að skella sér krók fyrir Skaga en núna er orðið vel fólksbílafært upp eftir og þetta eru ekki nema 40- 50 kílómetrar frá Sauðárkróki." Fyrir heltekna er vert að benda á fleiri möguleika. Hægt er að veiða í Leirutjörn við Vaðlareit og í Fisktjörn úti við Ystu-Vík, norðan við Svalbarðseyri og þar þarf enginn að verða súr yfir sínu því borgað er fyrir það sem veitt er. Veiðileyfin eru seld í Byggingarvörudeild KEA Lónsbakka. Hríseyj arlist Sýning Ólafs Sveins- sonar myndlistarmanns stendur yfir í Hrísey. Hríseyingar hyggjast í sumar rífa upp menn- ingarlifið en að sögn sveitarstjórans Gunn- ars Jónssonar hefur farið heldur lítið fyrir því í eynni. „Vlð ætlum að vera með sýningaröð hérna í sumar í fyrsta skipti. Næst á eftir Ólafi verður Gunnar Kr. Jón- asson með sýningu og síðan verður ýmislegt annað á boðstólum bæði fyrir eyjabúa og ferðamenn en við erum ekki alveg búin að negla þetta niður." Ólafur Sveinsson sýnir aðallega pastelmyndir ( Hrfsey og er myndefnið að mestu eyjan en Ól- afur bjó í Hrísey í tæp fjögur ár og er nýlega fluttur þaðan. „Eyjaskeggjar áttu þetta inni hjá mér, eyjan hefur verið vanrækt hvað varðar sýningarhald og menningu." Sýnt er í félagsheimilinu Sæborg og stendur sýning Ólafs til 22. júní, hún er opin alla daga frá 14:00-18:00.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.