Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Qupperneq 2
2 - Laugardagur 28. júní 1997 jOagnr-CEíntirax
Sparisjóðir renna saman
Hér verður hinn nýi Sparisjóður Norðlendinga til húsa. Áætlað er að starf-
semi í Skipagötu 9 hefjist í nóvember. Mynd GS
Eftir prestastefnu á Akur-
eyri hafa málefni kirkjunn-
ar verið talsvert til umræðu í
heita pottinum. Það vakti að
sjálfsögðu óskipta athygli hve
hommar og lesbíur standa í
guðsmönnunum en þó vakti
ekki síður athygli að prestarn-
ir ákváðu að skipta sér af
hvalamálinu og mæla með
hvalveiðum. Þessi hvalaálykt-
un prestanna varð tilefni til
mikilla guðfræðilegra um-
ræðna sem að lokum voru til
lykta leiddar af hjálpræðis-
hersmanninum sem söng
gamlan Hersálm hátt og
snallt og af hjartans lyst: „Þar
kom hvalur með gapandi gin
/ og gleypti Jónas vorn spá-
mann og vin.“
Málið var leyst herrar mínir og
frúr, prestarnir voru auðvitað
að hefna fyrir Jónas.....
Til þess var tekið í pottin-
um að á Norræna vina-
bæjamótinu á Akureyri voru
ræðumenn í íþróttahöllinni sí-
fellt að vitna til Smugudeil-
unnar. Þrátt fyrir þessar miklu
Smuguumræður virtist það
ekki spilla vinarhugi manna
enda voru menn almennt
sammála um að deilurnar
milli þjóðanna væru fyrst og
fremst kerfiskalladeilur.
w
Igær var fullyrt í heita pott-
inum að Guðjón Þórðarson
væri þegar búinn að gjalda
jáyrði sitt við því að taka við
landsliðinu, en aðeins væri
eftir að ræða um útfærslur á
samningi. Þjálfarahringekjan
heldur þó áfram og nú velta
menn fyrir sér hjá hvaða liði
Logi muni nú lenda en mörg
lið munu líta til hans hýru
auga. I pottinum töluðu menn
um lið eins og Leiftur og Fylki
sem líklega vonbiðla.....
Sparisjóður Akur-
eyrar og Arnarnes-
hrepps og Spsj.
Glæsibæjarhrepps
sameinast.
Nýr sparisjóður hefur ver-
ið stofnaður á Akureyri
undir nafninu Sparisjóð-
ur Norðlendinga. Hann verður
til við samruna Sparisjóðs
Glæsibæjarhrepps og Sparisjóðs
Akureyrar og Arnarneshrepps,
sem hafa starfað á Akureyri í
Brekkugötu 9 og Brekkugötu 1.
Jón Kr. Sólnes var kosinn
formaður stjórnar sparisjóðsins
og var samruninn samþykktur
samhljóða á fundi í fyrradag.
Fundinn sátu meðal annarra
hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps
og stofnfjáreigendur. Nýr spari-
sjóðsstjóri hefur enn ekki verið
ráðinn en fyrir liggur hins veg-
ar að framtíðarhúsnæði hins
nýja sparisjóðs verður að
Skipagötu 9 þegar framkvæmd-
um við nýbyggingu þar lýkur.
Jón segir verklok áætluð í nóv-
ember og muni öll aðstaða þar
verða eins og best gerist í pen-
ingastofnunum hérlendis.
Stofnfé hins nýja sparisjóðs
nemur tveimur milljónum
króna og skiptist jafnt milli eig-
enda Sparisjóðs Akureyrar og
Spsj. Glæsibæjarhrepps. Sam-
runinn öðlast formlegt gildi á
mánudaginn og verða sjóðirnir
sameinaðir við stöðu þeirra
þann dag. Sparisjóður Norð-
lendinga tekur þá við öllum
réttindum, skyldum og starf-
semi sjóðanna tveggja en gagn-
vart viðskiptavinum verður öll
starfsemi óbreytt og afgreiðsl-
urnar í Brekkugötu opnar
áfram þangað til flutt verður í
Skipagötuna.
Að sögn Jóns Kr. Sólnes hef-
ur verið unnið að ferlinu í um
ár og verður ávinningurinn
ljárhagslega sterkari stofnun en
hinar tvær voru fyrir. Rekstur
sjóðanna hefur þó gengið vel að
undanförnu að sögn Jóns. BÞ
Óvissa með
Sigurð G.
Mér hefur verið sagt upp
störfum frá og með 1.
október og ekki enn verið boðið
annað starf. Það hefur reyndar
verið haft eftir útvarpsstjóra að
svo verði, en ég veit ekki meir.
Hvorki hvaða starf mór yrði
hugsanlega boðið né hvaða af-
stöðu ég myndi taka til þess. Ég
get ekkert sagt um hvort ég
verð áfram hjá RÚV á þessu
stigi máls, en mér skilst sem
sagt að vilji sé fyrir því í útvarp-
inu,“ sagði Sigurður G. Tómas-
son, dagskrárstjóri Rásar 2.
Aðspurður hvort hann teldi
eðlilegt að vikur liðu án þess að
málin væru gerð upp, neitaði
Sigurður því, en vildi að öðru
leyti ekki láta hafa neitt eftir
sér um það. Þess má geta að í
fyrra var Sigurður G. kosinn til
fjögurra ára sem dagskrár-
stjóri. „Það er ekki liðið ár síð-
an og nú er mér sagt upp. Það
hefur aldrei gengið betur á Rás
2 en einmitt núna og við erum
á fullu að undirbúa vetrardag-
skrá.“ BÞ
Borgarmál
D-listi nú
ofan á!
Ný skoðanakönnun sem unn-
in var fyrir Stöð 2 sýnir
meira fylgi við D-lista en meiri-
hluta Reykjavíkurlistans í höf-
uðborginni. Fylgi D-lista er um
53%, en Reykjavíkurlista um
47%; óákveðnir voru um 16%.
Úrtak var um 500 manns. I vik-
unni birti Dagur-Tíminn könnun
sem byggð var á heldur stærra
úrtaki, þar voru mun tleiri
(30%) óákveðnir og fylgistölur
þveröfugar: D-listi í minnihluta.
Kannanirnar voru unnar á svip-
uðum tíma. Talið er að þessar
ólíku niðurstöður sýni hve mjótt
er á munum milli listanna.
Mjög góö þátttaka hefur verið í umferðarskóla 5 og 6 ára barna. Yfir 75% barna í þeim aldurshópi hafa að undan-
förnu sótt námskeið hjá lögreglunni, en 30 ár eru liðin frá því að þessi starfsemi hófst. Laganna vörður upplýsir á
myndinni yngstu kynslóðina um hvað þurfi að varast. Mynrf:ÞOk I
VEÐUR O G FÆRÐ
Suðvestan gola
eða kaldi. Skúrir
vestanlands og hiti
8-14 stig, en
austan til verður
víða léttskýjað og
hiti 15-20 stig, þó
hætt við síðdegis-
skúrum á Norð-
austurlandi.
Línuritin sýna
ijögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað. Línan
sýnir hitastig,
súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir
og vindstig eru
tilgreind fyrir neðan.
Færð á landinu
Vegir eru víðast hvar greiðfærir. Sprengisandsleið er fær
Qallabílum í Bárðardal, ófærir hálendisvegir eru Fjallabaks-
leið syðri og nyrðri, einnig er ófært frá Eldgjá um Land-
mannalaugar og um línuveg milli Kaldadals og Kjalvegar. Víða er
unnið að langningu bundins slitlags á þjóðvegum. Vegagerðin biður
vegfarendur vinsamlegast að aka samkvæmt merkingum um há-
markshraða til að forðast skemmdir á bílum og vegum.