Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Blaðsíða 4
4 - Laugardagur 28. júní 1997
JUtgur-‘2Smimr
Sigurður Þórðarson við Freyslíkneski. uyn&.jAK
Aðhefst ekki
í ásatrúarmáli
Ríkissaksóknari telur
ekki ástæðu til að
rannsaka eða ákæra
vegna kæru ásatrúar-
mannsins Siðurðar
Þórðarsonar um guð-
last í Morgunblaðinu.
Sigurður Þórðarson fékk í
gær svar ríkissaksóknara
þar sem kærunni er vísað
frá og ekki talið tilefni til að að-
hafast í málinu. Kæran gekk út
á klausu í Morgunblaðinu s.k.
„Orð dagsins" en þar er vitnað
til biblíunnar á stað sem er
mjög meiðandi fyrir ásatrúar-
menn og á niðrandi hátt fjallað
um guði þeirra. í klausinni sem
Sigurður kærir segir m.a. „Þeir
sem búa til goðalíkneski, eru
hver með öðrum hégóminn ein-
ber, og dýrindissmíðar þeirra
eru að engu liði. Vottar slíkra
guða sjá eigi og vita eigi, til þess
að þeir verði sér til skammar.“
í bréfi sínu til ríkissaksókn-
ara sagði Sigurður að þessi orð
í Morgunblaðinu hafi komið
honum úr jafnvægi og sært
djúpt trúartilfínningu hans,
„enda hef ég verið meðlimur
Ásatrúarfélagsins frá upphafi
og á íjölmörg goðalíkneski á
heimili mínu mér og heimils-
fólki mínu til sáluhjálpar".
Sigðurður er ósáttur við nið-
urstöðu ríkissaksóknara og tel-
ur einsýnt að embættið sé að
mismuna mönnum eftir trúar-
brögðum, sem sé óheimilt sam-
kvæmt stjórnsýslulögum. Sig-
urður segir marga lögfræðinga
hafa bent sér á að ekki dugi að
vísa til þess að þessi orð standi
skrifuð x Biblíunni, því með því
að vitna í þau eins og gert var
hafi Morgunblaðið gert þau að
sínum og þar með veist með
meiðandi hætti að ásatrúar-
mönnum og lastað guði þeirra.
Fordæmi séu fyrir því í Hæsta-
rétti að menn séu dæmdir fyrir
að vitna í bækur og gera það
sem þar stendur að sínum orð-
um.
Mál Sigurðar kom upp í kjöl-
far Spaugstofumálsins svokall-
aða, en í kærubréfi sínu til sak-
sóknara fagnar Sigurður ein-
mitt frumkvæði saksóknarans í
baráttunni gegn guðlasti. Segist
Sigurður hafa talið auknar líkur
á að hann fengi jákvæðar und-
irtektir hjá embættinu, en von-
brigðin sé því meiri. Embættið
taki upp mál að engin frum-
kvæði að því er virðist vegna
þess að boðorðin tíu hafi verið
brotin, en síðan vísi hann frá
lagalega undirbyggðri formlegri
kæru. „Mín niðurstaða um
embætti ríkissaksóknara er því
að það það sé hégóminn einber,
og dýrindissmíðar þess að engu
liði,“ sagði Sigurður í gær.
Allar helstu bflasðlur
á Akureyri
verða lokaðar á laugardögum
frá og með 5. júlí til og með 16. ágúst.
Höldur ehf. bílasala
Bílasalan Ós
Bílasalan Stórholt
Bílasala Akureyrar hf.
Bílasalan Bílaval
Einsýnt að málinu
verði vikið frá
Flutningur móður
í forræðismáli og
tveggja dætra hennar
kann að draga dilk
á eftir sér.
viðdómsúrskurður í
Bandankjunum leggur til
við alríkis-
dómara í Flórída
að Flugleiðir
verði látnar
borga 350 millj-
óna króna bætur
vegna meints
ólögmæts flutn-
ings félagsins á
ungri konu sem
var á leið frá
Bandankjunum
til íslands ásamt
tveim ungum
dætrum sfnum, á
skilríkjum, sem
kviðdómurinn
telur vafasöm í
meira lagi.
Flugleiðamenn kveðast ekki
hafa áhyggjur af úrskurði kvið-
dómsins. Að mati hæfustu sér-
fræðinga þeirra hefur aldrei
verið talin ástæða til að gera
ráð fyrir því að til greiðslu á
bótum kæmi.
Bæturnar, ef til kæmi, yrðu
að einhverjum hluta frá trygg-
ingafélagi Flugleiða, - en íiluti
þeirra gæti fallið á Flugleiðir,
og það gæti orðið dávæn
summa.
„Lögfræðilegir og trygginga-
fræðilegir ráðunautar okkar í
Bandaríkjunum telja einsýnt að
dómarinn víki þessu til hliðar,
muni ekki láta þennan úrskurð
taka gildi. Kviðdómur í þessum
málum hefur ekki úrskurðar-
vald,“ sagði Einar Sigurðsson.
Hann sagðist ekki vita nákvæm-
lega á hverju kviðdómurinn
byggði niðurstöðu sína.
„Málið er á sama stað og það
var. Það sem hefur gerst nýtt er
að á seinni stigum fengum við
upplýsingar um að sá hluti sem
kallast refsihluti í dómnum er á
okkar ábyrgð, ef til þess kemur.
Það er ekki hægt að tryggja sig
gegn slíku í New
York. Lögfræði-
firma vestra, sér-
hæft í málum
flugfélaga, telur
hins vegar að
ekki sé við því að
búast að þessar
refsikröfur verði
staðfestar", sagði
Einar Sigurðsson,
fulltrúi forstjóra
Flugleiða, í gær-
kvöld.
Málsatvik eru
þau að ung kona
komst úr landi
frá Flórída með
Flugleiðavél fyrir
4 árum. Hún háði forræðisdeilu
við bandaríska feður barnanna.
Dómstóll í Flórída hafði áður
komist að þeirri niðurstöðu að
Ernu Eyjólfsdóttur, móðuriimi,
væri óheimilt að fara úr landi
með dæturnar.
Flugleiðir hafa alltaf haldið
því fram að það hafi ekki vitað
um dómsniðurstöðu varðandi
ferðafrelsi Ernu. Ekkert óvenju-
legt hafi gerst í sambandi við
innritun farþeganna. Einar Sig-
urðsson sagði að sú aðgerð sem
þarna væri vísað til, væri í
sjálfu sér ekkert óhefðbundin í
flugafgreiðslu.
-JBP
Einar Sigurðsson.
Sinfóníuhljómsveitin
Tónlistarhús
á þessari öld
Við leggjum áherslu á að
lokaákvörðun hvað varð-
ar staðarval verði tekin
svo fljótt sem auðið er, til að
hægt verði að hefjast handa við
bygginguna sem fyrst og ljúka
henni árið 2000, sem er 50. af-
mælisár Sinfóníuhljómsveitar
íslands," segir í ályktun aðal-
fundar Starfsmannafélags Sin-
fóníuhljómsveitar íslands.
Félagið fagnar niðurstöðu
nefndar um tónlistarhús, sem
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, skipaði á síðasta ári.
Niðurstaða hennar er á þá lund
að reisa skuli tónlistarhús sem
verði aðsetur Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Nefndin er
þeirrar skoðunar að ríki og
Reykjavíkurborg eigi að kanna
hagkvæmni þriggja kosta um
staðsetningu og gerð tónlistar-
húss. -JBP
Landmælingar
Tvö ný kort
Aðalkort af Mið-Austurlandi
og veiðikort af Stóru Laxá,
eru komin út hjá Landmæling-
um íslands. Kortið af Austfjörð-
um er í mælikvarða 1:250 000,
áttunda kortið í nýrri útgáfu
aðalkorta af landinu. Síðasta
kortið í þeirri syrpu er af Suð-
Austurlandi og kemur út í
næsta mánuði. Fín ferðakort,
nákvæm og með öllum örnefn-
um. Kortið yfir Stóru Laxá á
Suðurlandi er fimmta veiðikort-
ið og upplagt fyrir veiðiklær
landsins.