Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Qupperneq 8
8 - Laugardagur 28. júní 1997
Jlagur-®tirrtmt
ÞJÓÐMÁL
|Dagur-®ímtmt
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Flafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson
Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík
Símar: 460 6100 og 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Grænt númer: 800 70 80
Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171
Stríð í loftinu
í fyrsta lagi
Þótt yfirlýsingar séu varfærnislegar eru boðuð far-
gjöld íslandsflugs á innanlandsmarkaði ekkert
annað en stríðsyflrlýsing. Neytendur ættu að gefa
því tækifæri til að sanna sig. Flugleiðir sögðust
ekki geta flogið innanlands nema með háum far-
gjöldum og tapi, og það í ríkisvernduðu umhverfi.
Islandsflug þarf mikil viðskipti til að geta staðið við
loforð um lágt verð að sögn Ómars Benediktssonar
framkvæmdastjóra. Hann telur ástæðu til að ætla
að Flugfélag íslands, alias Flugleiðir, reyni að kaf-
færa keppinautinn. Faö er neytenda að velja og
hafna - hafa þeir einhverju að tapa?
FÍB undir forystu Árna Sigfússonar bauð neytend-
um upp á sams konar viðskipti á tryggingamark-
aði. Mun færri þekktust það boð en vænta hefði
mátt vegna þess að gömlu fáokunarfyrirtækin sáu
allt í einu leið til að lækka sig í verði. Hótun þeirra
liggur bóki'ajrð fyrir: að sú verðlækkun sé aðeins
„tímabundin“ til að drepa af sér samkeppni. Við
þurfum á því að halda að samgöngu- og fiutninga-
samsteypan fái annað og meira en tímabundna
samkeppni. Utanlandsferðir hafa verið að laikka í
verði vegna þess að neytendur hafa knúið bjóð-
endur til að koma með tilboð. Innanlandsmarkað-
urinn þarf sams konar hvata.
í þriðja lagi
i Viðvarandi verðlækkun í loftinu getur haft víðtæk-
ar og góðar aíleiðingar fyrir lérðamarkaðinn inn-
anlands og laðað að fleiri erlenda ferðamenn. ís-
land hefur einfaldlega verið of dýrt. ferðamanna-
land. I.eiði samkeppnin af sér meiri ferðalög inn-
anlands og utan mun enginn græða meira á því en
Flugleiðir. Fyrirtækið gerir margt vel og hefur já-
kvæða ímynd meðal landsmanna þegar á heildina
er litið. Risinn gæti því meitt sjálfan sig mest með
því að traðka grimmilega á litla Íslandsílugi. Fyrir
utan að verða sjálfum sér til minnkunar.
Stefán Jón Hafstein.
V__________________________________________________J
Ætlar þú að taka tilboði íslandsflugs
í innanlandsflugi?
Kristján
Aðalsteinsson
framkvœmdastjóri
Sœplasts hf.
á Dalvík
Væntanlega mun ég
gera það ef og þeg-
ar tímasetningar
henta mér. Verðið er allt í
lagi.
Eiríkur Finnur
Greipsson
sparisjóðsstjóri
á Flateyri
Eg hef flogið með ís-
landsflugi þegar ég
hef þuri't og þeir
hafa þjónað okkur Öniirð-
ingum mjög vel, rétt eins
Flugleiðir hafa gert með
sínu ísafjarðartlugi. Bæði
þessi flugfélög hafa verið í
mikilli samkeppni og það
ásamt öðru leiðir til þess
mikla verðstríðs sem nú
er að hefjast.
♦
♦
Arnbjörg
Sveinsdóttir
á Seyðisfirði.
þingmaður
Austlendinya
S
Eg reikna með að
nota þjónustu ís-
landsflugs og Flug-
félags íslands jöfnum
höndum, þá aðallega eftir
þeim timasetningum sem
henta mér í hvert skipti.
Hins vegar mun ég skoða
tilboðin frekar - eftir því
sem hægt er - enda mikil
verðlækkun boðuð. Fess-
ari samkeppni er ég
lilynnt enda er hún til
mikilla bóta fyrir lands-
byggðarfólk - og aðra sem
nota þurfa ílugið.
Aðalsteinn Á.
Baldursson
formaður Verkalýðs-
félags Húsavíkur
A‘-
ð sjálfsögðu - og óg
fagna þessari
:jarabót. Fyrir
nokkrum árum þá vorum
við nokkrir sem börðust
fyrir því að fá samkeppni
á flugleiðinni Reykjavík-
Húsavík, en hvorki bæjar-
stjórn né öðrum bar gæfa
til að styðja okkur. Nú er
það að koma í ljós að
þetta hefði sparað Húsvík-
ingum stórar fjárhæðir,
sbr. að íslandsflug býður
nú 6.900 kr. á sama tíma
og fullt fargjald Flugfélags
íslands er 16.900 kr.
in.1.. 'F' V Vr.
Með hjartað í buxunum?
„F.g fékk hægðarlyf í stað
hjartalyíja."
- Sigrún Marinósdóttir í viðtali við Al-
þýðublaðið i' ga;r. Hún er heldur óánægð
með samskipti sfn við lækna eins og
fyrrnefnd orð bera með sér.
Mogginn klikkar ekki!
„Ljóst er að hvorgur aðilinn vill
verðstríð þar sem rekstur áætl-
unarílugs hérlendis stendur í
járnum."
- Niöurstaða opnugreinar í Morgun-
blaðinu um samkepiini í innanlánds-
llugi. Birtist í fyrradag. AðaHrétt gær-
dagsins. var hins vegar að hafið væri
fargjaldastríð f innanlandsfiugi.
Hver segir að þeir séu ekki
sammála?
„Samþykkt var að hvetja presta
til að vanda málfar sitt og fram-
burð í predikunarstóli..."
- Frétt í Morgunblaðinu í gær um
Prestastefnuna. Ekki gafst tími til að
ræða málefni samkynhneigðra enda
mörg mikilva*g málefni á dagskrá eins
og sjá má á tilvitnúniiim.
Aumingja Bibi!
„Allir sem lialda framhjá eru
skíthælar.“
- Sara Netanyahu, forsætisráðherrafrú,
í reiðikasti í sjónvarpsviðtali þegar
spurt var út í framhjáhald sem eigin-
maður hennar hefur viðurkennt. Morg-
unblaðið í gær.
Areitni og ástleitni
Bandaríkjamenn hafa sérstakt lag
á að útrýma forsetum landsins.
Fjórir voru skotnir niður eins og
hundar og aðrir sluppu með skrekk-
inn. Nokkrir voru flæmdir úr embætti
og Richard M. Nixon mátti axla skinn-
in fyrir litlar sakir eða engar og fór
þar einn hæfasti forseti Vesturlanda
fyrir lítið. Nú síðast hefur hæstiréttur
Bandaríkjanna svo galopnað Hvíta
húsið fyrir hálf vitlausu fólki með því
að skikka forsetann til að verja einkalíf
sitt í embætti.
Bilaðir vegfarendur eiga nú greiða
leið að forsetanum með önnur vopn en
skotvopn og forsetar verða skotnir nið-
ur með kærumálum í framtíðinni. Pól-
itískir andstæðingar geta dundað heilu
kjörtímabilin við að dubba viljugt fólk
upp með vitnisburði á hendur forset-
anum fyrir hitt og þetta. Kæra mann-
inn fyrir að líka ekki framkoma hans í
fyrra starfi eða í skóla og jafnvel í
móðurkviði.
Clinton forseti á nú undir högg að
sækja hjá frú einni frá Arkansas með
tíu ára gamalt klögumál um dónaskap.
Málið fellur undir lög um kynferðislega
areitni og fyrir bragðið fær forseti
Bandaríkjanna ekki vinnufrið á daginn
og svefnfrið á nóttunni. í dag varðar
nefnilega við lög að fara á íjörurnar
við kvenfólk heima hjá þeim hugrökku
í landi hinna frjálsu. Forsetinn mun
aldrei geta á heilum sér tekið við að
stjórna landinu með svona málflutning
á bakinu og í ijöl-
miðlum. Hvorki and-
lega né íjárhagslcga.
Bandarískt réttar-
kerfi er í molum eftir
að O.J. Simpson
slapp fyrir horn með
tvö mannsmorð.
Dómar og kviðdómar
standa lémagna
frammi fyrir herská-
um minnihluta og óttast um líf sitt og
limi. Ógnun þessi hefur eitrað frá sér á
fleiri sviðum en í dómskerfinu og emb-
ætti forseta er í hers höndum eftir úr-
skurð hæstaréttar.
Löggjafinn á að taka af skarið og
verja embætti forseta fyrir meira og
minna biluðu fólki en ekki opna því
leið að forsetanum. Hvort sem fólkið
ræðst á manninn með vopnum eða
kjafti og klóm í skjóli dómstóla. Jafnvel
þó kærendur séu í sæmilegu jafnvægi
og hafi nokkuð til síns máls þrátt fyrir
allt. Frúin frá Arkansas kærir ekki
embætti forseta fyrir áreitni heldur
manninn sem gegnir því í dag. Allt
þetta umstang má því vel bíða betri
tíma og þegar kæru-
efnin eru áratuga
gömul sér ekki á
svörtu þó málflutn-
ingur dragist fram
yfir hádegi.
Forseti Bandaríkj-
anna er oddamaður
í heimspólitík og tek-
ur einn af skarið
þegar í harðbakkann
slær. Forsetinn verður að vera fær í
flestan sjó allan sólarlrringinn, annars
er voðinn vís fyrir heimsbyggðina.
Klöguskjóður alls konar hafa rúman
tíma til að lögsækja forseta sinn eftir
að maðurinn í embættinu lætur af
störfum og snýr aftur til borgaralegs
lífs. Geta þá lagt minningu hans í rúst
og rúið fjölskylduna inn að skinni eftir
geðþótta sínum og hjartalagi. Hitt er
svo annað mál:
Sú var tíðin að íslenskt kvenfólk
hafði lakari stöðu en karlmenn og var
sá munur ekki til eftirbreytni. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar og
bilin verið jöfnuð hægt og bítandi. Of
hægt sums staðar en annars staðar er
fullur jöfnuður fyrir hendi. Hinu má
ekki gleyma að konur hafa víða rétt-
indi fram yfir karlmenn og þau bil þarf
líka að brúa, eða hvað?
Islendingar búa því miður við jafn
gallaða löggjöf um kynferðislega
áreitni og Bandaríkjamenn. En jafn-
réttið verður að koma frá hjartanu og
lög af þessum toga rétta ekki hlut
kvenna. Kvenfólk verður líka að þola
að stigið sé í vænginn við það og jafn-
vel falast eftir atlotum annað veifið án
þess að rjúka með málið í dómstóla.
Móðir náttúra gerir ráð fyrir því í sam-
drætti kynjanna til að halda við stofn-
inum og lögin ganga því í berhögg við
sjálft sköpunarverkið.
íslenskt kvenfólk á ekki skilið að
löggjafinn blandi lengur saman áreitni
og ástleitni.
(IðíjCVt
3íanaeó