Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Síða 5
fkgur-mtmímt
Föstudagur 18. júlí 1997 - 5
Stutt & laggott
Sveiflur á gengi
Opinna kerfa hf.
Talsverð viðskipti urðu með
bréf Opinna kerfa hf. á
Verðbréfaþingi íslands í gær,
en þá voru bréf í fyrirtækinu
skráð í fyrsta sinn á þinginu.
Bréf fyrir um það bil 30
milljónir skiptu um eigendur
og var upphafsgengi bréf-
anna á markaði 30, en
hækkaði í 42 fljótlega eða
um rúm 28%. Bréf til for-
kaupsrétthafa voru seld á
genginu 15 svo þeir sem
keyptu á því verði hafa get-
að ríflega tvöfaldað eign
sína. Gengi bréfanna tók svo
að lækka og fór niður í 33
undir lok dags.
Að öðru leyti hefur verið
rólegt yfir hlutabréfamark-
aðnum. Gengi bréfa íslands-
banka og Eimskipafélagsins
hefur verið að hækka síð-
ustu daga og hefur hækkun-
in í íslandsbanka numið
10% síðustu daga. Sérfræð-
ingar á Verðbréfamarkaði
búast við rólegum viðskipt-
um á næstunni og að verð
hlutabréfa þokist hægt
uppávið. HH
Framtíðarnefnd
kynnir tillögur á
borgarafundi
á Sauðárkróki
„Þekking" verður lykilatriði í
framtíðinni að mati sér-
stakrar framtíðarnefndar
sem starfað hefur á Sauðár-
króki undanfarna mánuði.
Nefndin kynnti tillögur sínar
um framtíðaráherslu og
stefnumörkun Sauðárkróks-
bæjar á opnum borgara-
fundi í gær. Annað sem
nefndin lagði áherslu á var
m.a. að skapa íjölskyldu-
vænan bæ og umhverfismál-
in voru einnig á dagskrá.
Helsta áhyggjuefnið telur
framtíðarnefndin vera stöðu
fiskvinnslunnar. Ef ekkert sé
að gert sé ólíklegt að bæjar-
félagið vaxi með sama hraða
og undanfarinn áratug held-
ur megi fremur búast við
stöðnum og afturför. „Getur
framsækin og skipulögð
áætlunargerð haft áhrif hér
á?“ spyrja skýrsluhöfundar.
Og niðurstaðan er að rétt sé
að reyna.
Það var bæjarstjórn Sauð-
árkróksbæjar sem skipaði
nefndina að tillögu afmælis-
nefndar. Starf nefndarinnar
er sérstakt að því leyti að í
henni sitja ekki pólitískir
fulltrúar heldur almennir
borgarar og einnig er sú leið
að kynna tillögurnar á borg-
arafundi óvenjuleg. En
hvers vegna var sú leið valin
fremur en að leggja skýrsl-
una fyrir bæjarstjórn? María
Björk Ingvadóttir svarar því:
„Við erum að undirstrika að
svona á lýðræðið að vinna. í
rauninni er þetta óbein
gagnrýni á hvernig nefndir á
vegum bæjarins hafa unnið
með, eða réttara sagt ekki
unnið með, bæjarbúum. Við
vitum ekki hvað er að gerast
í nefndum því upplýsingar
frá þeim eru litlar. Með
þessu viljum við sýna að
framtíðin er fyrir alla og er
opin öllum. Við skilum því
tillögunum til bæjarbúa en
ekki bara bæjarstjórnar." AI
Fullir vasar fjár á kajanum.
Milljón í laun á tveimur vikiim
Hásetahlutur um 160 þúsund krónur á viku.
Skipstjóri með þrefaldan hásetahlut. Einhliða
verðlagning. Spáð iélegum aflabrögðum eftir
miðjan næsta mánuð.
Vikulaun háseta á loðnu-
skipi sem ber um 900
tonn geta numið allt að
160 þúsund krónum. Þá er mið-
að við að skipið nái að landa
fullfermi tvisvar í viku og verk-
smiðjurnar greiði útgerðinni 6
þúsund krónur fyrir tonnið upp
úr sjó. Hlutur skipstjóra á sama
skipi er þrefalt meiri en háset-
ans, eða rétt um 500 þúsund
krónur fyrir vikuna og tæp
milljón fyrir hálfan mánuð.
Þetta dæmi gefur vísbend-
ingu um þau uppgrip sem sjó-
menn loðnuskipa hafa um þess-
ar mundir á meðan veiðin er
jafnmikil og verið hefur. Vegna
löndunarbiðar vegna takmark-
aðrar afkastagetu verksmiðja
eru dæmi um að loðnuskip hafi
þin-ft að bíða allt að einn og
hálfan sólarhring í höfn eftir
löndun. Ef ekkert er að hafa
nemur tekjutrygging háseta á
loðnuskipi um 110 þúsund
krónum á mánuði. Um 14
manns eru að jafnaði í áhöfn
loðnuskipa en 15 manns á þeim
allra stærstu.
Þótt einhverjum kunni að
þykja þetta há laun eru fulltrú-
ar sjómanna ekkert of hressir
með þá verðlagningu sem er á
loðnu uppúr sjó. Sævar Gunn-
arsson formaður Sjómanna-
sambands íslands telur að það
verð sem verksmiðjurnar
greiða fyrir loðnutonnið sé allt-
of lágt. Hann gagnrýnir SR-mjöl
fyrir einhliða verðlagningu á
loðnu til sjómanna á sama tíma
og verðið sé frjálst á pappírun-
um.
„Þetta er ekkert verð því
bæði er loðnan mjög feit og svo
er afurðaverð miklu hærra en
verið hefur,“ segir formaður
SSÍ.
Sverrir Leósson útgerðar-
maður Súlunnar EA frá Akur-
eyri telur að þessi mikla veiði
muni ekki standa yfir í langan
tíma. Hann er á því að loðnu-
veiðin muni detta niður um
miðjan næsta mánuð. Síðan
verði lítið að hafa fyrr en með
haustinu og fram í vetrarbyrj-
un. Samkvæmt því sem hann
segir mun veiðin glæðast á ný
um mánaðamótin janúar-febrú-
ar á næsta ári og til vertíðar-
loka í vor. -grh
Fjölmiðlar
Bolungarvík
Helgarpóstiu’inn
ekkí á hausinn
Páll Vilhjálmsson,
ritstjóri Helgar-
póstsins, segir
blaðið ekki vera að
fara á hausinn. Þvert á
móti sé HP með já-
kvæða eiginfjárstöðu
og haldi áfram um
ókomna tíð en prent-
smiðjan Oddi neitaði
HP-mönnum um prent-
un á miðvikudagskvöld
vegna skulda, að sögn
Odda. Páll segir þá
hafa gert samning við
Odda þegar þeir keyptu
blaðið en Helgarpóst-
urinn var á þeim tíma
alfarið í eigu Odda.
„Inni í kaupsamningi
var prentsamningur
mn ákveðið verð sem
Oddi neitaði
Helgarpóst-
inum um
prentun
vegna
skulda en
ritstjóri HP
segir prent-
un hjá Odda
óeðlilega
dýra miðað
við það sem
hún kost-
aði þegar
Oddi átti
HP.
við gengum að. Við
fórum svo að athuga
með endurskoðun á
prentsamningnum
þegar við sáum að
þetta var óeðlilega há
upphæð sem þeir
kröfðust fyrir prentun-
ina en þetta var ekki
athugað nægilega þeg-
ar við keyptum blaðið.
Við fórum fram á við-
ræður um end-
urskoðun á verðskrá
og urðum enn stað-
ráðnari í því þegar við
komumst að því að
þann tíma sem þeir
áttu hlut í blaðinu létu
þeir það greiða miklu
lægri prentun." Páll
segir Oddamenn hafa
Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Helgar-
póstsins.
hummað af sér viðræður um
endurskoðun og að þeir hafi þá
ekki sett Odda í forgang þegar
kom að greiðslu reikninga.
Helgarpósturinn var prentaður
í ísafoldarprentsmiðju í gær.
rm
Eimskip
Goðafoss keyptur
Eimskip hefur gengið form-
lega frá kaupum á Goða-
fossi af þýskum eigendum
skipsins. Eimskip hefur haft
Goðafoss á svokallaðri þurr-
leigu frá 1994 og á þeim tíma
hefur hann verið í áætlunar-
siglingum milli íslands og Norð-
ur Ameríku. Goðafoss er 106
metrar á lengd og 19 metrar á
breidd og getur borið 413
gámaeiningar. Hann var smíð-
aður í Hamborg 1982 og er
systurskip Bakkafoss og Detti-
foss. Ellefu manna áhofn er á
Goðafossi. Skipstjóri er Jón Þór
Karlsson.
HP-eignarhluti
enn óseldur
Eignarhluti Alþýðubandalagsins
í HP er enn óseldur. Vitað er til
þess að fyrir liggi tilboð Helgar-
póstsmanna en Heimir Már Pét-
ursson segir að rætt hafi verið
við tvo aðra hugsanlega kaup-
-endur. „Við ætlum ekki að selja
okkar hlut í einhverjum tauga-
æsingi, auðvitað reynum við að
fá sem mest fyrir þetta eins og
aðrir,“ segh Heimir Már.
rm
Háifs metra
þorskar á
stöng
Púkar í mokveiði á hafn-
arbrjótnum. Mikil þorsk-
gengd I ísafjarðardjúpi.
„Krakkarnir eru að fá á
stöng um 50 sentimetra langa
þorska hérna á hafnarbrjótn-
um,“ segir Daði Guðmundsson
á hafnarvigtinni í Bolungarvík.
Hann segist aldrei hafa séð
annað eins þau 17 ár sem hann
hefur unnið á vigtinni.
Hann segir að mikið líf sé í
sjónum við utanvert ísafjaröar-
djúp og töluverð þorskgengd.
Þarna er um að ræða hvítan og
fallegan gönguþorsk sem tekur
allhressilega í veiðistöngina
þannig að hún svignar öll und-
an þunganum. Það er því ekki
að undra þótt kappsömustu
púkarnir, þ.e. krakkarnir séu
við veiðar á brjótnum fram yfir
miðnætti á kvöldin þegar sam-
an fer góð veiði og stillt og milt
veður. Þrátt fyrir að þessi veiði
sé fyrir utan kvóta er hún
meira gerð til gamans enda
hirða púkarnir alla jafna ekki
aflann heldur láta hann í sjó á
ný.
Þessarar fiskgengdar hefur
ekki aðeins orðið vart við hafn-
arbrjótinn í Víkinni heldur hafa
menn einnig verið að fá væna
þorska á stöng við innanverðan
Skutulsfjörð. -grh