Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Side 10

Dagur - Tíminn Akureyri - 18.07.1997, Side 10
10 - Föstudagur 18. júlí 1997 ^Dagur-CEímirat i KNATTSPYRNA Þeir bestu til isiands Úrslitakeppni í Evrópu- keppni landsiiða, U-18, hefst hér á landi í næstu viku. Þá munu allir efnilegustu knatt- spyrnumenn álfunnar sýna listir sínar auk þess sem margir for- ystumenn Knattspyrnu- sambands Evrópu, UEFA, munu heiðra landið með nærveru sinni. Gestir frá 27 þjóðlöndum Knattspyrnuveislan stendur frá 24.-31. júlí og er einn hápunkt- ur 50 ára afmælisveislu KSÍ. Leiknir verða 14 landsleikir á tímabilinu á 6 völlum í 4 sveit- arfélögum, Reykjavík, Ilafnar- firði, Kópavogi og Akranesi. Liðin sem hingað koma eru frá Spáni, Portúgal, Ungverjalandi, ísrael, Sviss, Frakklandi og ír- landi. Um eitthundrað og tuttugu leikmenn taka þátt í mótinu auk ijölda aðstoðar- manna og fararstjóra sem fylgir hverju liði. Þegar allt er talið eru hinir erlendu gestir frá 27 þjóðlöndum. þá eru meðtaldir starfsmenn UEFA og fjölmiðla- menn. Opnunarleikur mótsins ís- land-Spánn fer fram á Laugar- dalsvellinum 24. júlí kl. 20:00. Mótinu lýkur svo með úrslita- leiknum sem fram fer á sama stað, 31. júlí kl. 18:00. Stærsta verkefni KSÍ Evrópumótið er eitt stærsta verkefni sem KSÍ hefur ráðist í á 50 ára sögu sinni. Það liggur í augum uppi að náttúrulegar aðstæður hér eru ekki jafn hag- stæðar og hjá þeim stórþjóðum sem hér keppa. Þá er fólksíjöldanum ekki til að dreifa hér á landi eins og hjá milljóna- þjóðum Evrópu og því færri hausar hér sem standa að baki keppninni. Það sem íslendingar hafa aftur á móti, fram yfir flestar þjóðir, er samtaka ára- lag þegar í stórt er ráðaist. KSÍ sýnir enga minnimáttarkennd þegar sambandið ræðst í að hýsa keppni sem þessa. Um- gjörðin er eins og hún best get- ur orðið hérlendis. Allir geta verið stoltir af aðstöðunni sem risin er í Laugardalnum. Völl- urinn og skrifstofuaðstaða Knattspyrnusambandsins er til fyrirmyndar og full boðleg hverjum sem er. Þá er skipu- lagning móts sem þessa ekki eitthvað sem menn hrista fram úr erminni í nokkrum kafftím- um. Það þarf að skipuleggja gistingar, akstur, að og frá leik- stöðum, og aðstöðu fyrir fjöl- miðlafólk sem verður all margt hér meðan á mótinu stendur, o.m.fl. Mikil vinna liggur því að baki því sem gert hefur verið og margir sjálfboðaliðar hafa lagt hönd á plóginn. Á blaðamanna- fundi í vikunni sagði formaður KSÍ, Eggert Magnússon, þeir væru tilbúnir í slaginn. Knattspyrnuháskóli Það verða ekki eingöngu al- mennir áhugamenn og áhorf- endur sem njóta þessarar keppni hér. Keppnin er eins og háskóli fyrir íslenska þjálfara og knattspyrnumenn sem margt geta lært af því sem boð- Bjarni Guðjónsson. ið verður upp á. Þjálfarar þeirra liða sem sækja okkur heim kunna eitt og annað fyrir sér í þjálfun sem okkar menn geta lært mikið af. þá verður efnt til námskeiðs, fyrir þjálfara í tengslum við mótið þar sem Andy Roxburgh, fyrrum Iands- liðsþjálfari Skota, mun halda fyrirlestra, bæði um unglinga- þjálfun og meistaraflokksþjálf- un. Fyrirlestrar Skotans verða í Háskólabíói og námskeiðsgjald- KNATTSPYRNA Grindavík á uppleið Frammistaða Grind- víkinga í síðustu leikj- um sínum hefur vakið verðskuldaða athygli. Undir stjórn Guð- mundar Torfasonar, hefur liðið verið að leika mjög góða knattspyrnu og bar- átta og sigurvilji er í fyrirrúmi hjá Grinda- víkurstrákunum. 23 af 21 leikmanni heimamaður Margir spáðu Grindvíkingum erfiðleikum á yfirstandandi tímabili. Annað hefur þó komið á daginn. Þegar mótið er ríflega hálfnað er liðið um miðja deild og hefur náð í 15 stig. Frá 6. umferð íslandsmótsins hefur liðið verið á góðri siglingu og unnið 4 leiki af 6, þar á meðal tvö af toppliðum deildarinnar, Fram og KR. Góður árangur Grindavíkur liðsins er ekki síst merkilegur í ljósi þess að, aðeins einn að- keyptur leikmaður er í liðinu, Kekic Sinisa. Menn eins og Mil- an Stefaán Jankovic og Zoran Lubicic teljast orðið til heima- manna enda hafa þeir búið í Grindavík og leikið með liðinu í mörg ár. Það er því ekki per- sónulegð frægð eða frami sem strákarinir sækjast eftir, þeir berjast fyrir UMFG. Þess vegna vekur það furðu margra, hve hinn almenni Grindvikingur er latur að mæta á völlinn og styðja strákanna. Kjarninn, sem stendur að baki liðinu, er á bil- inu 50 - 100 manns, ef frá eru taldir þeir sem sinna stjórnar- störfum fyrir félagið. Það er allt of lítið í bæ á stærð við Grinda- vík. Reyndar til skammar fyrir bæjarbúa sem sýna frábæru starfi stjórnarinnar, þjálfara og leikmanna lítilsvirðingu með sinnuleysi sínu. Guðmundur Torfason á réttri leið Gæfa Grindavíkurliðsins er, að hafa ekki fallið í þá freistni að hafa rekið þjálfarann þegar illa hefur gengið. Guðmundur Torfason er greinilega að vinna feikna gott starf í Grindavík. Liðið er farið að leika árangurs- ríka og skemmtilega knatt- spyrnu, nokkuð sem öllum tekst ekki að sameina. Hverju þakkar hann velgengnina? „í Grindavík er mjög góð að- staða fyrir liðið, til fyrirmyndar. Það er gríðar- legt starf sem unnið er á bak við þetta. Stjórnarmenn- irnir vinna mjög vel og .halda utan um allt eins og best verður á kosið. Leikmennirnir mæta eins og þeir séu að mæta í vinnu. Þeir fá líka allt til alls. Það er reynt að gera þetta eins og hjá alvöru liði. Það hefur breytt miklu í hugarfari hjá leikmönnum. Þeir fara að hugsa stærra og eru svo líka til- búnir að leggja sig fram“. Guðmundur Torfason, þjálfari Grindavíkur. Nú er UMFG liðið að mestu leyti skipað ungum leikmönn- um sem ekki hafa mikla reynslu af því að leika í efstu deild. Samt eru þeir farnir að spila eins og þrautreyndir knatt- spyrnumenn. „Það er mjög gott að vinna með ungu strákunum í Grindavík. Þeir eru alltaf til- búnir að hlusta og læra og það skilar árangri. Svo erum við með góða menn með mikla reynslu, eins og Jankovic, Guðlaug Jónnsson, Ólaf Ingólfsson og Zoran Lubicic og nú er Hjálmar Hallgrímsson aftur að koma inn í liðið. Þannig er blandan í lið- inu góð og stígandinn hefur verið góður allt frá því í fyrra. Strákarnir gera sér vel grein fyrir því hvað þeir geta og eru tilbúnir að fara eftir því sem ég segi þeim. Einstaklingarnir eru orðnir sterkari og þá verður liðsheildin það líka.“ Góð samvinna Þeir feðgar, Bjarni Andrésson, formaður knattspyrnudeildar UMFG, og Ólafur Örn Bjarna- son, einn af efnilegustu knatt- spyrnumönnum landsins, voru að vonum ánægðir eftir sigur liðsins á KR á dögunum. Ólafur sagði gaman að vera Grindvík- ingur nú. Hann var ánægður með hvað hann hefur fengið að spila mikið og hvað yngri strák- arnir eru alltaf að fá meira og meira hlutverk í liðinu. „Það var fyrst og fremst samstaðan sem tryggði okkur sigurinn á KR. Við erum allir heimamenn og þekkjumst orðið svo vel. Það hjálpar okkur“, sagði Ólafur Örn. Bjarni tók undir það og sagði að einstaklega gott væri að vinna með þjálfaranum. „Þótt ýmsar efasemdir komi upp þeg- ar illa gengur stendur þessi hópur alltaf saman. Á því græð- um við nú“. sagði formaðurinn. Hefur unnið öll Reykjavíkurfélögin Að lokum má geta þess að á yfirstandandi keppnistímabili hafa Grindvíkingar náð að vinna öll Reykjavíkurfélögin í Sjóvár-Almennradeildinni. Liðið gerði jafntefli við KR í Grinda- vík en vann svo á KR vellinum, 1- 0. Liðið gerði jafntefli við Val, í sínum fyrsta leik, á Hlíðar- enda en vann í Grindavík 3-1. Þá lagði Grindavík Fram, 2- 1, á heimavelli sínum. Mikill uppgangur í fótboltanum í Grinda- vík. Frábær stjórn og aðstaða leggja grunn- inn að velgengninni. ið er kr.2000. Þá er það ómet- anlegt fyrir íslensku strákana að kynnast jafnöldrum sínum frá bestu knattspyrnuþjóðum Evrópu á móti sem þessu. Allt önnur tengsl myndast á milli manna á slíku móti en í venju- legum landsleikjaferðum. Bestu íslensku strákarnir opna örugg- lega austurgluggann og hver veit nema tilboð um atvinnu- mennsku sé handan við hornið. Miði er möguleiki standi menn sig. íslenska liðið er öflugt Guðni Kjartansson, þjálfari ís- lenska landsliðsins, er með öfl- ugan hóp í höndunum. Margir strákanna eru að leika í Sjóvár- Almennrardeildinni og einn, Bjarni Guðjónsson, er kominn í atvinnumennsku til Newcastle. Liðið hefur búið sig skipulega undir átökin í allan vetur og tók þátt í sterku æfingamóti á Italíu í apríl síðast liðnum. Það er því mikill hugur í okkar strákum og þeir gera sér vel grein fyrir því að þeir ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Strák- arnir sem skipa íslenska liðið eru þessir: Markverðir Guðjón Skúli Jónsson ÍA Stefán L. Magnússon Fram Varnarmenn Björn Jakobsson ÍBV Egill Skúli Þórólfsson KR Freyr Karlsson Fram Kristján H. Jóhannsson Reynir Reynir Leósson ÍA Miðjumenn Arnar Jón Sigurgeirsson KR Árni Ingi Pétursson Fram Edilon Hreinsson KR Gylfi Einarsson Fylkir Stefán Gíslason KVA Sóknarmenn Arnar Hrafn Jóhannsson Valur Bjarni Guðjónsson Newcastle Guðmundur Steinarsson Kellavík Haukur Ingi Guðnason Keflavík Það er engin ástæða að ætla annað en þessir drengir beri merki íslands hátt.Til þess hafa þeir fulla burði njóti þeir stuðn- ings almennings á vellinum. Það ætti engum að vera vork- unn að koma á völlinn og hvetja strákana. KSÍ býður öllum þeim sem vilja koma. Aðgangur er ókeypis! gþö KARFA Lokað vegna sumarleyfa Er blaðamaður Dags-Tímans ætlaði að afla sér upplýs- inga hjá skrifstofu Körl'uknatt- leikssambands íslands greip hann heldur betur í tómt! „Skrifstofa Körfuknattleiks- sambands íslands er lokuð vegna sumarleyfa frá 14. júlí. Opnum aftur 28. júlí.“ Það liggur mikið við þegar starfsmenn næst stærsta sér- sambandsins þurfa allir að sóla sig á sama tíma. Þá er sjopp- unni einfaldlega lokað.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.