Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Síða 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Síða 8
jDtigur-CTtmhm 8 - Laugardagur 19. júlí 1997 PJÓÐMÁL jDagur- Útgáfufélag: Dagsprent hf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson' Framkvæmdastjóri: Marteinn Jónasson Skrifstofur: Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík Símar: 460 6100 og 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað Prentun: Dagsprent hf./lsafoldarprentsmiðja Grænt númer: 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Æfing í lýðræði? Ekki bara í fyrsta lagi Sauðárkrókur fagnar afmæli með glæsibrag í dag en Dagur-Tíminn vill sérstaklega óska bænum til hamingju með merka æíingu í virku lýðræði. í til- efni afmælisins var skipuð „framtíðarnefnd" bæj- arbúa. Það jákvæða og merkilega við þessa nefnd er að hún var EKKI skipuð leikföngum leiðans: póbtískum gæludýrum. Bæjarfulltrúar fengu EKKI að sjá framtíðarskýrsluna á undan öðrum borgur- um! Og hver er framtíðarsýn óbreyttra borgara? Fjölskylduvæn byggð með áherslu á þekkingu, há- tækni og umhverfið. Hér með er vakin athygli á fréttaskýringu um málið á síðu 6 í blaðinu í dag. Ekki bara draumar um betra líf. „Endur- skipuleggja þarf allt stjórnkerfi Sauðárkróksbæjar til einföldunar og sparnaðar“ segir í skýrslu fram- tíðarnefndarinnar. Athyghsvert að nefndin leggur til að kjörnir fulltrúar verði „atvinnupólitíkusar". Efstu menn lista verði tilbúnir að helga sig því starfi að vinna í almannaþágu sem launaðir sveit- arstjórnarmenn. Marga mun reka í rogastans, en fulltrúarnir í nefndinni vUja koma í veg fyrir hags- munaárekstra með þessum hætti. Ekki verður bet- ur séð en fólkiö vilji sjálfstæðari fulltrúa sem starfi með faglegri hætti en vani er. Hér er áhugavert innlegg í umræðu um stjórn sveitarfélaga. í þriðja lagi Þessi æfing í lýðræði fékk strax eldskírn þegar bæjarstórn ákvað að ganga gegn tillögu minni- hluta sem var samhljóma uppástungu nefndarinn- ar um sameiningu skólanna í bænum. í bæjar- stjórn sitja báðir skólastjórarnir sem eiga hlut að máli. Á borgarafundi um skýrsluna var allt með kyrrum kjörum þar til bæjarfulltrúar viku af fundi. Þá blossuðu upp umræður. Þar kom í ljós að fólkið hafði ekki hugsað sér að líta á framtíðarnefndina einungis sem æfingu í lýðræði. Heldur fyrsta skref til aukins lýðræðis. Til hamingju með það, og allt annað, Sauðárkrókur. Stefán Jón Hafstein. Skilur þú hafnfirsk stjórnmál? Davíð Þór Jónsson ritstjóri Já, vandamálið er að fólk með 19. aldar hugsunar- hátt og 21. aldar hugsunarhátt eru að reyna að koma sér saman. Það hlýtur að enda með ósköpum. Heimir Már Pétursson framkvœmdastjóri Alþýðubandalags Stjórnmál Krata í Hafnarfirði minna á fárán- leikaleikrit eftir Daríó Fó. Maður veit aldrei hvað gerist næst og þeir vita það sjálfsagt ekki sjálfir en það er ekki góð pólitík. ♦ ♦- Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi * Eg held að það sé bara fyrir inn- fædda að skilja hafnfirsk stjórnmál. SagtiMUi^ Vantar hugsjónamenn „Það vantar menn á Alþingi sem hafa góðar og göfugar hug- sjónir, sem stjórnast af heil- steyptu hjartalagi, en slíkir menn eiga ekki upp á pallborð- ið hjá þjóðinni. Þeir, sem masa mest, eru ávallt kosnir í æðstu stöður þótt mælgi þeirra segi ekkert jákvætt, en bulla bara innantóm slagorð." - Lesendabréf í Morgunblaöinu. Tími til kominn „Það er mál til komið að Alþýðu- flokkurinn svari því hvaða bæj- arfulltrúar eru talsmenn hans.“ - Magnús Jón Árnason í Degi Tímanum í gær um Uafnarijarðarkrata. Tilneyddir „Það er kannski ekki að ósekju að verkföll eru jafn tíð á íslandi og raun er á. Launþcgar virðast, í mörgum tilfellum, neyddir til að beita verkföllum. Það er ekki viðunandi að sitja á spjallfund- um vikum og mánuðum saman eftir að samningar eru lausir, þar sem umræðuefnið er allt annað en það sem máli skiptir." - Leiðari Alþýðublaðsins Spánskt fyrir sjónir „í Ijósi þessa kemur það býsna spánskt fyrir bæði eyru og augu hins venjulega manns þegar skipstjórar fiskiskipa, sem eru að veiðum innan íslensku lög- sögunnar, neita að láta af hendi hliðstæðar upplýsingar og veiði- mönnum áa og vatna er gert að skrá í þágu almennings og í samræmi við nútíma upplýs- ingavætt samfélag." - Helgi Laxdal í DV í gær. Sakbitnir dómarar Fjórir saklausir íslendingar sátu í hundrað daga gæsluvarðhaldi vegna hvarfs Geir- finns Einarssonar á sínum tíma. Skömmu eftir að mennirnir voru látnir lausir heyrði pist- ilhöfundur nokkra menn ræða saman á kaffi- húsi og voru skaðabætur tii hinna saklausu manna á dagskrá. 1 hópnum var kunnur mála- færslumaður á þeim tíma og hafði sá tekið að sér lögmannsstörf i'yrir ríkið. Sér til undrunar heyrði pistilhöfundur þetta opinbera möppudýr segja að saklausum mönnunum bæru engar bætur úr ríkissjóði heidur ættu þeir að borga ríkinu fyrir bæði mat og húsnæði á meðan á gæsluvarðhaldinu stóð. Ekki hafði pistilhöfundur fyrr sleppt orðinu í síðasta pistli um dómara nokkurn í hæstarélti fslands en allur rétturinn birtist í sviðsljósinu. Erindið var að hafna beiðni Sævárs Marinós Ciecielski um endurupptöku á þessu sóðalegasta dómsmáli íslandssögunnar. Óhætt er að segja að hæstiréttur hafi ekki brugðist vonum pistilhöf- undar af því hann batt engar vonir við niður- stöður réttarins að gefnu tilefni. Þetta er jú sami dómstóli og staðfesti tvisvar sinnum gæsluvarð- haldið yfir saklausum fjórmenningum á sínum tíma eins og vélræna afgreiðslu á færibandi. Möppudýrið á kaffihúsinu hefur eignast öfiuga bandamenn fyrir hönd ríkissjóðs. En af hverju er hæstiréttur íslands svona hallur undir kerfið og hunsar fólkið? Svarið er ekki einfalt svar og á sér rætur í gerjun íslenska þjóðfélagsins. Fólk sem á þess kost að fylgjast moð þróun nýfrjálsu ríkjanna í Austur-Evrópu skynjar fljótt að ísland er ekki hluti af Vostur- löndum nema að nafninu til. Einkum og sérílagi er stjórnsýslan öll miðsvæðis á milli Vesturlanda og Austurálfunnar. Dómstólar mannréttinda og fulltrúar Efnahagssvæðis Evrópu í Brussel hafa vísað bæði dómum fs- lenskra dómstóla og at- höfnum íslenskra stjórn- valda heim til föðurhús- anna. Skemmst er að minnast þegar hjólreiða- maður á Akureyri hafði endaskipti á íslensku rétt- arkerfi fyrir mannrétt- indadómstóli Evrópu. ís- lenska lýðveldið er eftir- bátur í lýðræðisþróun Vesturlanda og sýpur úr hófspori nágranna sinna. Lýðveldið er 53 ára gamalt og á þeim tíma hefur íslendingum ekki tekist að greina í sundur þrjá þætti vaidsins: Löggjafarvald, fram- kvæmdavald og dómsvald: Alþingi hcfur afsalað sér löggjafarvaldinu til ráðherra framkvæmda- valdsins og lög eru ekki lengur samin á þingi heldur í ráðuneytum. Síðan eru lagafrumvörp send þingmönnum til að samþykkja eins og strengjabrúður. Þingmenn sækja í störf hjá framkvæmdavaldinu á borð við ráðherradóm, bankastjórnir og fleira í stað þess að einbeita sér að því að setja lög. Ráðherrar sækjast svo eftir að sitja á þingi á meðan þeir stjórna fram- kvæmdavaldinu í ráðuneytum. Dómsvaldið ber kápuna á báðum öxlum og er ýmist dómsvald eða stjórnvald eftir atvikum. Síðustu sljórn- valdsathafnir hæstaréttar í Geirfinnsmáli stað- festa liins vegar að skó- smiðum er hollast að halda sér við leistann. Vitaskuld er það fyrir neðan allar hellur að dómstólar fái sjálfir að velja og hafna hvaða mál eru lögð fyrir dóminn. Hæstiréttur hefur itrekað úrskurðað saklaust fólk í gæsluvarðhald í þessu sama máli og vafi leikur því um aðra dóma rétt- arins í Geirfinns- og Guðmundarmálum. Um réttmæti þeirra dóma fæst ekki úr skorið meðan hæstiréttur sjálfur getur lagst á ntálið og svæft það. Dómarar hæstaréttar eru hérna að dæma í eigin sök og þannig dómar þykja ekki góð latína í vesturhluta Evrópu. Skera verður á nafia- streng dómstóla og framkvæmdavalds án tafar og áður en strengurinn veldur meiri skaða. Mál fást aldrei tekin upp aftur fyrir íslenskum dóm- stóli á meðan sakbitnir dómarar ráða fcrðinni í dómskerfinu. En hvað þýðir niðurstaða dómara hæstarétt- ar fyrir réttvísina í landinu? Jú, niðurstaðan er skelfileg: Rétturinn horfir framhjá ofbeldi í fangelsum, fölsunum á dagbók og valdníðslu gegn fangapresti svo eilthvað sé nefnt. Böðlar Síðumúlafangelsis eru því ineð úrskurð haista- réttar upp á vasann um að mega halda áfram að berja innilokað fólk. Böðlar Síðumúlans eru líka með úrskurð hæstaréttar um að geta óhindrað falsað áfram dagbækur. Og böðlum Síðumúlans er óhætt að vísa fangapresti þjóð- kirkjunnar bæði norður og niður þegar hann kveður dyra. íslenskur útgerðarmaður lenti í þeim raun- um að vera haldið í gislingu um borð í leiguskipi frá Litháen fyrir nokkrum árum og síðan siglt með hann nauðugan til hafnar í borginni Klaip- eda við Eystrasalt. Þegar íslendingurinn leitaði réttar sfns fyrir dómstólum í Litháen vegna mannránsins komst rétturinn að svofelldri nið- urstöðu: Skipstjóri leiguskipsins er ekki ábyrgur af því hann fékk fyrirmæli frá bankastjóra Bún- aðarbankans sem átti skipið. Bankastjórinn var ekki ábyrgur af því hann fékk fyrirmæli frá stjórnarmönnum bankans. Og stjórn bankans er ekki ábyrg af því hún er ekki einstaklingur. Ein- björn, Tvíbjörn og Þríbjörn. Hæstiréttur íslands þarf ekki að leita langt yfir skammt að verðugum kollega í Evrópu. (Xðgevt Mannes

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.