Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.07.1997, Blaðsíða 9
.Bagur-'SImróm RITSTJÓRNARSPJALL Laugardagur 19. júlí 1997 - 9 Ekkert persónulegt Stefán Jón Hafstein skrifar bræðralag. Bæjarfélög sem reka útgerð, fiskvinnslu, skóla, heilsugæslu og róluvöll „springa" reglulega - allt út af heimiliserjum „bæjarfulltrúa"; þær bera frekar keim af landa- fylleríi og framhjáhaldi en stjórnmálum. Við virðumst dæmd til eilífrar dvalar í barna- herbergi persónustjórnmála. miðlar hafa skýrt frá því að rík- issaksóknari eigi í og hafi lengi átt í ijárhagskröggum. Um það sagði í leiðara í þessu blaði: Sjálfstæði Ríkissaksóknara er rammgirt í lögum til að vernda embættið fyrir þrýstingi. Hvergi má falla skuggi á, hvorki pólit- ískur, ijárhagslegur né siðferð- islegur...Persónan sem gegnir Ráðherra Lög segja til um það að hæsta- réttardómarar og saksóknari eigi að vera „fjár síns ráðandi“ eins og frasinn mun vera. Ekki gjaldþrota. Gjaldþrota er sak- sóknari ekki. í það vitnar dóms- málaráðherra, og það er rétt. Ekki tæknilega. Ekki lagalega. En er það nóg? Nei, segir Fyrir rúmu ári sóttist Ólaf- ur Ragnar Grímsson eftir embætti forseta íslands. Að honum var sótt úr ýmsum áttum. Hörðustu árásirnar voru persónulegar. Þessi frægi blóð- víkingur stjórnmálanna sem aldrei hafði sett sig úr færi að strá salti í hvers manns sár. Og snúa hnífum! Punkturinn var þessi: Hr. ÓRG var sem PER- SÓNA ófær um að gegna svo háu embætti. Embættið og per- sónan væru í raun eitt. Það fór sem fór. „Nothing personaT Um meint pólitískt harðræði hafði Hr. ÓRG svarið: „nothing personal“. Ólafur Ragnar komst til manns við útlendar mennta- stofnanir og kynntist pólitik í breska þinginu. í akademíunni og pólitíkinni takast menn á, fara mikinn og láta reyna á öll rök og falsrök sem hugsást geta. Fara svo saman í hádegis- verð. Hlæja: „þú varst nú bara nokkuð góður!“ Deilan var „nothing person- al“. En fari menn raunverulega hallloka og brjóti reglur gilda engin vinatengsl. Þá gildir reglufestan. „Ekkert persónu- legt“ virkar í málefnalegum deilum, og þá til að slá ekki skugga á mannleg samskipti. En í opinberu lífi gildir reglan líka - menn bjarga sér ekki með því persónulega. Þetta þurfti frambjóðandinn að út- skýra fyrir þjóð sinni í hundrað- asta skipti. Sem von er. Hún tekur allt persónulega. Sr. Flóki Fyrirgefið mér fyrir að rifja upp Langholts- kirkjudeiluna. Tveir menn að rífast um eigin- konu annars, söng hennar, orgel, kór og sérviskur. Það þurfti fjóra ráðherra, þar af tvo formenn stjórnarflokka til að leysa mál- ið: 5 milljónir úr ríkiskassa og nýtt embætti prests á Veslur- löndum. Persónuerjur urðu rík- isvandamál. Nú skilst manni að til standi að setja lög á Alþingi um lífeyri ríkissaksóknara. En fyrst þetta: Litla Ítalía Hafnarfjörður er bæjarfélag sem virðist það eina í landinu sem tekur brandarana um sig alvarlega. Þar er í gangi einhver „pólitík“ í formi sálarháska sem ekki er fyrir nokkurn mann að skilja nema örfáa innvígða. Hveragerði? „Stóra húsvarðar- málið" klýfur heilan stjórnmála- flokk, stefnuskrá bæjarins er leyndarplagg - persónulegt fóst- Fyrtrgefið, aftur Og svo æðstu embættismenn. Biskup: „Sr. Þórir hitti ríkis- saksóknara í sundi“. Ríkis- saksóknari er ennþá að velta því fyrir sér hvort trúðar hafi framið guðspjöll. Einn af örfáum prinsippföstu mönnum landsins, Jón Steinar Gunn- laugsson, benti hæversklega á að saksóknari væri sjálfstæður og þyrfti ekki afrit af bréfum manna til að sækja menn til saka. Né viðtöl í heita pottinum. Efnislega meinti lögmaðurinn að vinir hans og vinir vina hans kæmu málinu ekki við. Nú fá þessi orð allt í einu miklu meiri þyngd. Vinir hans og vinir vina hans? Hvaða mál? Aðkomumönnum úr geimnum og hugsanlegum lesendum Morgunblaðsins til upplýsingar skal minnt á hér að ýmsir Qöl- embættinu er búin að vera í fjárhagskröggum. Missa ofan af sér þakið og leita náðar banka. Ef til vill fleiri? Eðli embættisins er slíkt að ekki er hægt að láta sem persónuleg mál þess sem gegnir því séu óviðkomandi... Minnsti grunur um að persónan sem gegnir embættinu standi höllum fæti í samskiptum við valdamikla aðila eða lánar- drottna grefur undan trausti. Fjárhagskröggur saksóknara hafa staðið nógu lengi til að fullreynt sé að honum sjálf- um finnst ekk- ert að. Er dómsmálaráð- herra sama sinnis? Aðhaf- ist hann ekkert í málinu verður hann að út- skýra fyrir okkur hinum hvers vegna. Þetta er hábölvað mál. Það er létt að skammast yfir embættisfærslu. Vandræðalegt að fjalla um einkahagi. En nú verður að gera fleira en gott þykir. Jafnvel fyrir okkur, íbúa í siðferðislegum glerhúsum: ljöl- miðlamenn og pólitíkusa. dómsmálaráðherra, hálf hik- andi og bítur sig í tunguna um leið. Missir út úr sér að hann ætli að láta sérlegan sendimann sinn - ráðuneytisstjóra - ræða við saksóknara. En um hvað? Persónulegt spjall „Um umfjöllunina" sagði dóms- málaráðherra þegar Dagur- Tíminn spurði ráðherra um er- indi ráðuneytisstjóra við sak- sóknara. Umljöllunina? Það er rökrétt að álykta að ráðu- neytisstjórinn hafi ekkert skilgreint er- indi á fund sak- sóknara. Nið- urstaða fund- arins verður engin, og ef hún verður einhver úr þessu tveggja manna spjalli þá verður hún leyndarmál. í útvarpi var ráðherra spurður um meint vanhæfi saksóknara vegna slæmrar fjárhagsstöðu hans í mörg ár. Dómsmálaráðherra sagði - efnislega - að enginn hefði kvartað. Nú? Hvernig á maður að vita hvort maður hafi ástæðu til að kvarta? Efast um Meint vanhæfismál eins valdamesta embættismanns þjóðarinnar er í raun persónulegt elli- lífeyrismál. Tveir menn að rífast um eiginkonu annars, söng hennar, orgel, kór og sérviskur. hæfi? Skamma hríð hólt maður að það væri einmitt erindi ráðu- neytisstjórans við saksóknara. Að kanna hvort hann væri eða hefði verið vanhæfur í embætti. Að þessi heimsókn hefði þýð- ingu. En nú er þetta samtal orðið að kaffiboði. Persónulegu spjalli. „Um umfjöllunina". Baksvið Þetta er Hafnarljarðar- og Hveragerðispólitík í æðra veldi. Og hvernig verður málið leyst? Með frumvarpi til laga, sem verður lagt fyrir Alþingi um að saksóknari fái fullan hfeyri strax þótt gildandi lög segi ann- að - að mati ríkislögmanns. Um það munu samræður ráðuneyt- isstjórans og saksóknarans snú- ast. Meint vanhæfismál eins valdamesta embættismanns þjóðarinnar er í raun persónu- legt ellilífeyrismál. Málið á sér baksvið. Kröggur saksóknara hafa verið kunnar og valdið illa duldum óróa í lög- mannastétt í mörg ár. Þrátt fyr- ir blaðagreinar á liðnu misser- um og þráláta umræðu um málið í lögmannastétt segist dómsmálaráðherra ekkert þekkja til bágrar fjárhagsstöðu saksóknara. Samt lét dóms- málaráðherra kanna fyrir nokkrum misserum hvort sak- sóknari ætti rétt á snemmtekn- um ellilífeyri eins og hæstarétt- ardómarar. Ríkislögmaður komst að því að svo væri ekki. Og þá verður Alþingi bara að taka Sr. Flókameðferðina til umfjöllunar. Kröggur saksóknarra hafa verið kunnar og valdið illa duldum óróa í lögmannastétt í mörg ár. Ekkert persónulegt? í mörgum tilvikum er opinber umræða á íslandi fáránleg, ómálefnaleg og fyrst og fremst persónuleg. Hafnarfjarðar- og Hveragerðisleg. Þetta er eitt stærsta bölið á þjóðarheimilinu, sem leiðir alla umræðu um grundvallarmál beint inn í barnaherbergi. Á hitt ber að líta að til eru þau embætti, og mál þeim tengd, sem eru órjúf- anlega tengd persónulegri stöðu þess sem gegnir. Siðferð- isstyrk. Póhtísku óhæði. Fjár- hagslegu sjálfstæði. Þetta á við um forseta íslands. Um hæsta- réttardómara. Um ríkissak- sóknara. Nú hefur það gerst að hófsöm og tiltölulega upplýst umræða hefur farið fram um persónulega hagi háembættis- manns, á þeim forsendum að þeir kunni að rýra traust á embættinu og hæfi mannsins til að gegna því. Áleitinna og mál- efnalegra spurninga hefur verið spurt. Þær grafa undan trausti á embættinu. Það traust hefur ekki verið endurvakið. Þetta er ekkert persónulegt. Og hvað gerist? Dómsmálaráðherra sendir ráðuneytisstjóra sinn og ríkissaksóknara inn í barnaher- bergi. Hvað næst? Sérverkefni?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.