Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Page 3

Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Page 3
íDítgur-^immtt Miðvikudagur 1. október 1997 - 15 LIFIÐ I LANDINU Tóbakssala er siðlaus og óverjandi Nei, það eru ekki sígaretturnar sem menn vildu banna sökum krabba- meinshœttu, heldur rauða lakið. Dauðsföll af völdum reyk- inga eru a.m.k. tuttugu sinnum tíðari en af nokkru öðru sem koma má í veg fyrir, að áfengi einu undan- skyldu. „Það er siðlaust og óverjandi að flytja inn og selja tóbak, og enginn á að gera sig sekan um það, hvorki ríki né einstakling- ar. Raunar illskást að hafa þetta hjá ríkinu", sagði Þor- steinn Blöndal, lungnasérfræð- ingur og stjórnarmaður í ÁTVR. Eftir ítekað bann á sölu á MM-kúlum, pistasíuhnetum frá fran og sfðast en ekki síst inn- flutningsbann á rauðum IKEA- lökum, sökum krabbameins- valdandi efna, þótti blaðinu ástæða að leita álits Þorsteins á tóbakssölu, sem ekki hefur heyrst að neinn hafl lagt til að banna innflutning á. Gildi forvarna Þorsteinn segir Iöngu vitað um íjölmargar orsakir krabba- meina sem hægt væri að hindra með forvörnum. Reykingar or- saki 19-20% þessara dauðs- falla, alkóhólið sé í öðru sæti með 5-6%, en allt annað valdi hvert um sig minna en 1% svo- kallaðra hindranlegu dauðs- falla. Má því ljóst vera að reyk- ingar eru a.m.k. 20 sinnum hættulegri en rauð lök - auk þess sem lökin eru einungis hættuleg þeim sem þau nota, öfugt við tóbakið. Ríkið stærsti eiturlyfjasalinn Um 30% Islendinga á aldrinum átján ára til sjötugs reykja dag- lega ségir Þorsteinn. Meðan svo er treystu stjórnmálamenn sér tæpast til að leggja til innflutn- Þorsteinn Blöndal lungnasérfrœðing- ur: Ri'kið er stœrsti eiturlyfjasalinn af þeim öllum. ingsbann. Væri þetta hlutfall komið niður í 20% færi slíkt kannski að verða pólitískt fram- kvæmanlegt. Ríkið, sem Þorsteinn segir stærsta eiturlyijasalann af þeim öllum, mætti að hans mati sýna meiri lit í reykingavörnum. Það heyrist t.d. ekki múkk í einum né neinum vegna nýlegrar verðhækkana á sígarettum. Síð- an væri eftir að sjá, í sölutölum ÁTVR, hvort þetta muni hafa einhver áhrif til að draga úr reykingum, eins og meiningin var. Spjótin beinast að tóbaksinnflytjendum „Það sem er nýtt í umræðunni er, að það er í meira og meira mæli verið að kalla tóbaksfram- leiðslufyrirtækin og þá sem dreifa og selja tóbak til ábyrgð- ar, sem mér finnst ágætis þró- Mtn“, segir Þorsteinn. Hann seg- ist t.d. hafa orðið þess var, m.a. á nýlegri ráðstefnu í Peking, að menn beini spjótum sínum í vaxandi mæli gegn tóbaksinn- flytjendum og seljendum í stað þess að amast við reykinga- mönnunum, eins og tilhneiging hafl verið til, eins og vandinn væri þeim að kenna. - IIEI Lúsin í skólanum! Aðeins nokkrar vik- ur eru liðnarfrá því kennsla hófst í skól- um landsins og hef- ur lús þegar fundist í tveimur grunn- skólum á höfuð- borgarsvœðinu. Einnig hefur orðið vart við hana á Akureyri. Lúsin, lítið og vængjalaust gulgrátt kvikindi, er martröð ijölskyldunnar í dag svo furðulegt sem það kann að virðast. Lúsin eignast börn og buru Margir tengja lúsina við fátækt, óþrifnað og gamla tíma en það er mesti misskilningur. Lús- in unir sér vel í mannshári og lætur vatn og venjulega hár- sápu ekkert á sig fá. Lúsin er 2- 3 millimetrar að stærð, grípur í liárið og heldur sér fastri með klónum. Hún sýgur blóð úr hár- sverðinum, verpir eggjum og eignast börn og buru. Hún „smitast" hratt og labbar á milli, frá húfu til húfu í skólan- um. Ekkert tiltökumál Hárlús hefur komið upp í að minnsta kosti tveimur grunn- skólum á höfuðborgarsvæðinu nú þegar aðeins nokkrar vikur eru liðnar frá því skólinn hófst og einnig hefur orðið vart við hana á Akureyri. Þetta er þó engin sérstök tíðindi því að lús greinist venjulega í skólum á haustin. Strax fóru í gang að- gerðir í skólunum, börnin voru send heim með miða og upplýsingar um hvernig skyldi bregðast við og for- eldrar drógu fram lúsa- kamba til að kemba börn sín - allt er þetta gert til að koma í veg fyrir far- aldur. Lús á hverju hausti Kristjana Ólafsdóttir, hjúkrun- arfræðingur í Síðuskóla, segir að lús greinist á hverju hausti í grunnskólum og það þyki ekk- ert tiltök umál þó að vissulega verði stundum vart við gamla for- dóma. Foreldrum og börnum sé haldið vel upplýstum og gefnar séu út leiðbeiningar, til dæmis í fréttabréfum skólanna. Foreldr- ar séu hvattir til að vera á varð- bergi, skoða hár barna sinna ef þau kvarti undan kláða og láti skólann strax vita ef lús finnist til að hægt sé að grípa til viðeigandi ráðstafana. „Ef lús flnnst er ráðlagt að fara í lúsameðferð, þvo hár allra í fjölskyldunni með lúsasjampói og kemba hárið. Kamburinn er til að ná lúsinni en sjampóið drepur nit- ina ekki strax og því eru for- eldrar beðnir um að halda börnunum heima í sólarhring," segir hún. Hvað á að gera? Ef lús greinist í ijölskyldunni þarf að draga fram þvottaefni og þvo klæðnað, til dæmis húf- ur, trefla, peysur með háum kraga og rúmföt allra í Ijöl- skyldunni svo nokkuðs é nefnt. Einnig er gott að kemba dag- lega hárið, sem lúsin finnst í, og jafnvel að þvo aftur með lúsasjampói eftir viku eða hálf- an mánuð. Ekki er víst að öll nitin drepist við fyrstu með- ferð. Lúsin labbar á milli Kristjana segir að lús berist við snertingu eða þegar krakkar skiptast á fötum í skólanum. „Börnin skiptast á húfum og lána burstana sína eftir fþróttir," segir hún. Þá eru snagar barnanna í flestum tilfellum ansi þétt og því auðvelt fyrir lúsina að labba á milh. Hún getur nefnilega lifað í smátíma utan líkamans. -GHS Lúsin getur lifað í stuttan tíma utan líkamans en hún lifir í hár- sverðinum og sýgur þar blóð. Hún lætur vatn og venjulega hársápu ekkert á sig fá, mikill þrifnaður getur jafnvel haldið niðri einkenn- unum. Hún getur lifað góðu lífi í hárinu ef ekkert er að gert og „smitast" hratt, labbað frá húfu til húfu í skólanum.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.