Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Blaðsíða 4
16 - Miðvikudagur 1. október 1997 iDagur-Œhtttmt UMBÚÐALAUST Það sem aUir sjá en enginn gerir neitt í Stefán Jón Hafstein skrifar Það sem allir sjá en enginn gerir neitt í. Pað er svo íjölmargt. Eitt af því er þátttökugjaldið í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í Reykja- vík (og kannski víðar). Skrif- stofa, símar, auglýsingar, kafíl og kleinur, bæklingar og ný klipping. Sumt er geflð. Mest borgað. Svo einfaldur er þessi sann- leikur: til að taka þátt í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þarf maður að eiga svona milljón og raka saman helling af annars konar fram- lögum. Eina til tvær milljónir. Þekktur frambjóðandi kemst af með minna. Nýliði sem ætlar sér raunverulega að vera með þarf að minnsta kosti 1500 þús- und. Þetta þarf ekki að vera svona. Of dýrt? Það er margt gott um prófkjör Sjálfstæðismanna að segja. Bú- ast má við glæsilegri þátttöku 10-15 þúsund borgarbúa. Það er einn þriðji til helmingur þeirra atkvæða sem reiknað er með að D-listinn fái. Efstu menn verða lýðræðislega kjörn- ir og hafa umboð stuðnings- manna. Þeir fá traustsyfirlýs- ingu áður en lagt í alvöruslag- inn. Sjálfstæðisflokkurinn hvet- ur sitt fólk til að berja, ekki bara hvert á öðru, heldur á andstæðingnum á meðan próf- kjörsbaráttan stendur. Fram- bjóðendur fá æfingu. Nýfiðar fá tækifæri, og einstaka nýliði þyk- ir svo góður að hann kemst á lista, sem styrkist fyrir vikið. Fyrir flokkinn er þetta líklega hið ágætasta mál (þótt Davíð hafl kosið að stilla upp sjálfur 1990, og úrslit prófkjörs séu ekki alltaf í heiðri höfð, og svo framvegis). Og svo hefur flokk- urinn (les: þeir sem eiga hann og stjórna honum) náð mjög góðum árangri í að ná þeirri niðurstöðu í prófkjöri sem þeir telja æskilega; maskínan er einkar lagin við að fá út úr lýð- ræðinu þar sem hún myndi búa til sjálf. Gott fyrir flokkinn. En þetta er of dýrt. Fyrir einstakl- inginn. Laun borgarfulltrúa Laun borgarfulltrúa eru ein- hvers staðar í kringum 60 þús- und. Ef vel aflast þegar her- fanginu er skipt koma nefnda- greiðslur, en sléttur borgarfull- trúi í Reykjavík verður ekki há- launamaður og varamaður lep- ur dauðann úr skel. Við slógum á það tveir félag- ar þegar síðasta prófkjör var, (hann í baráttunefnd fyrir einn borgarfulltrúanna í Sjálfstæðis- flokknum) að stöku frambjóð- endur væru í verulegri hættu að TAPA fé á því að bjóða sig fram - þó svo að öruggt sæti fengist. Kostn- aður við próf- kjörið væri svo mikill að áætl- aðar tekjur af starfi borgar- fulltrúans það kjörtímabil sem færi í hönd dygðu ekki til að borga dæmið. Vilhjálmur Vil- hjálmsson borgarfulltrúi sagði þetta berum orðum í sjónvarp- inu í fyrradag. Gunnar Jóhann Birgisson er að hætta sem borg- arfulltrúi vegna þess að hann hefur ekki efni á að vinna fyrir svo lág laun. Aðgöngumiðinn er of dýr. Þetta er auðvitað fárán- legt. Frambjóðendur gera lítið úr kostnaðinum Frambjóðendur gera fítið úr þegar í slaginn er komið og hinn reglubundni söngur hefst. Opinberlega viðurkenna þeir ekki hve kostnaðurinn er mikill, beinn og óbeinn. „Mamma bak- ar kökurnar, vinirnir lána sím- ana, Kolkrabbinn lánar hús- næði, prentarar vinna launa- laust“ og fleiri álíka trúlegar sögur fara á flot. Heima hjá sér og á skrifstofum væntanlegra ljárstuðningsmanna reyta þeir hár sitt í örvæntingu. Vel á minnst: fjárstuðningsmanna. Hvaðan koma peningarnir? Það er ekki óeðlilegt að venju- legt launafólk sem baslar við að ná endum saman leggi ekki í prófkjör. En það er heldur ekki óeðlilegt að það velti fyrir sér hvaða skuldbindingar búi að baki hjá þeim sem þurfa að snapa hundrað þúsund kalla hingað og þangað hjá fyrirtækj- um og „vinum“. Sérstaklega af því að venjulegt iaunafólk hefur enga reynslu af því að biðja um svona greiða hér og þar og veit lítið hvað þarf að koma á móti. Veit þó að æ sér gjöf til gjalda, eða: engin skuld er svo smá að hún verði ekki inn- heimt á efsta degi. Samt er það nú svo að ég held ekki að borgarfulltrúar listanna séu upp til hópa að selja sálu sína verktakafyrir- tækjum eða túrbínuinnflytjend- um. Það er frekar svo að svona stjórnmál bjóða heim tor- tryggni, og hún er eðlileg, því þetta er óheilbrigt ástand. Hvað gæti verið? Einföld lausn skapar mun já- kvæðara andrúmsloft. Gömlu góðu reglurnar. Nú hefur Sjálf- stæðisflokkurinn lengi gert út á þá kenningu sína að ekki eigi að segja einstaklingum fyrir verkum, vilji menn eyða fé í prófkjör þá sé það þeirra mál. Málið er bara ekki svo ein- Það er ekki óeðli- legt að venjulegt launafólk sem baslar við að ná endum saman leggi ekki í prófkjör. Hólmsteins Leikbrúðuland Hannesar SarnteenlegtrtóþS™! I STKÁMNGJNN ÞORJR£NNJ ÚT ÓX SK&/WUM '/JN£Ð/JN ER OT79RJNN / j víöriveröld_nerrah^L- j Bosor\ falt: prófkjörið er botnlaus pen- ingahít og eyðslan iöngu komin út fyrir þau mörk að hægt sé að réttlæta hana með hugsanleg- um ávinningi. Þess vegna ætti flokkurinn að setja fram sam- eiginlegan kynn- ingarbækling, halda fundi þar sem frambjóð- endur geta mæst á jafnréttisgrund- velli, og setja þak á leyfilega eyðslu hvers og eins. Fjölmiðiar hafa fyrirfram áhuga á málinu og myndu sýna því áhuga og vera opnir fyr- ir hvers kyns um- ræðu - eins og þegar er raunin. Hægt væri að vinna mikið með litlum tilkostn- aði. Hvers vegna ekki? Frambjóðendur og Kjartan sjálfur Gunnarsson verða spurðir um þetta atriði einu sinni enn og munu spila sömu plötuna: þetta er ekkert mál. Það er lygi og allir vita það. Hins vegar þjónar það ekki öðr- um og meiri hagsmunum flokksins að koma fjárhags- böndum á kosn- ingaslag. Því miður hefur hann ekki borið gæfu til að styðja viðleitni í þá átt að koma fjármálum flokkanna upp á yfirborðið. Og því síður vill hann að kosn- ingabarátta sé háð eftirliti. Hvorki sveitar- stjórnarkosn- ingar, Alþingis- kosningar né forsetakosning- ar. Fjárhagslegur rammi utan um kosningar væri gott mál fyr- ir lýðræðið innan Sjálfstæðis- flokksins, siðferðið í stjórnmái- unum og pólitíska h'fið í land- inu. Gott mál fyrir einstakling- inn. En heilbrigð skynsemi væri slæmt fordæmi. Fyrir flokkinn. Árni Sigfússon oddviti Sjálfstæð- ismanna. Er hann tilbúinn að beita sér fyrir lækkuðum iðgjöid- um þeirra sem vilja tryggja lýð- ræði? Stjömustríð á ný Rétt þegar kaldastríðið er búið, Ronald Reag- an búinn að draga sig í hlé vegna veikinda, Gor- batsjov að missa öll völd og menn farnir að minnast Leiðtogafundarins í Reykja- vík með sagnfræðilegum svip - dúkk- ar aftur upp gamalkunn- ugt orð í umræðunni: Stjörnu- stríðsáætl- un. Að þessu sinni snýst málið þó ekki um að skjóta niður strategískar óvinaeld- flaugar úti í geimnum. Nú á að skjóta Reykjavíkur- listann niður úr hásætum valdanna í Reykjavíkurborg. Sjálfstæð- ismenn eru búnir að efna í prófkjör og greinilega á að leiða fram í fáa en fræga kandídata. Aðeins sextán manns gefa kost á sér í prófkjörið, sem er ótrúlega lítið og hefði einhvern veg- inn verið trúlegri tala í próf- kjöri hjá Kvennalistanum eða Þjóðvaka en hjá stærsta flokki þjóðarinnar. Árni með bassann En sjálfstæðismenn ætla að augljóslega að vega fá- mennið upp með frægðinni því í fyrir utan gömlu borg- arfulltrúana, (sem flestir voru raunar búnir að gleyma að væru til), gefa nokkrar stjörnur „celebritics" - kost á sér í prófkjörinu. Baltasar Kor- mákur hjartaknúsari og Ey- þór Arnalds hárprúði selló- popparinn eru nýir í stjórn- málabaráttunni sem og Ágústa Johnsen leikfími- kennari og Anna í Önnu og útlitinu. Þetta stjörnuflóð stefnir nú í stríðið við Reykjavík- urlistann og mun ef- laust beita óhefð- bundnum aðferðum eins og títt er í stjörnu- stríðum. Ekki er að efa að kontra- bassinn hans Árna Sigfússonar á eftir að koma í góðar þarf- ir við að fylla hljómbotninn í þessum kór. Frambjóðendur framtíðar Stjörnustríðsáætlanir Reag- ans náðu aldrei svo langt að á það reyndi hvort þær virk- uðu. Öðru máli mun vænt- anlega gegna um stjörnu- stríðsáætlanir Árna Sigfús- sonar. Ef flokkurinn grípur ekki í taumana með því að skipta út stjörnum fyrir ein- hverja meinta þungavigtar- menn mun það koma í ljós í vor hvort stjörnustríðspóli- tíkin á erindi á íslandi eða ekki. Kannski verður það helsti kostur frambjóðenda framtíðarinnar að hafa ein- hvern tíma komið fram í þáttunum hjá Hemma Gunn? Garri

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.