Dagur - Tíminn Akureyri - 01.10.1997, Qupperneq 12
^Dagur-Wmxnn
BHB mmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmm
Miðvikudagur 1. október 1997
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524
Meiri verksmiðjiibragur
á vlimshimii
Það eru mörg handtökin á nýju vinnslulínunni.
Karfaflökin á leið úr brauðun í lausfrysti.
Byltingakenndar breyting-
ar voru gerðar í sumar á
vinnslulínum Útgerðarfé-
lags Akureyringa, sem miðuðu
að því að auka framleiðni land-
vinnslunnar. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 230 milljónir
króna en aðallega var unnið við
breytingarnar á ijögurra vikna
tímabili í sumar. Þá var land-
vinnslunni lokað og allflestir
starfsmenn undu glaðir í sínu
sumarfríi. Undirbúningur að
þessum breytingum hófst um
síðustu áramót.
Hið nýja vinnuumhverfi er
ekki rýmra en það gamla en að
mörgu leyti þægilegra. Þessar
breytingar nýta betur húsnæðið
og í framtíðinni verður því
mögulegt að setja upp aðra
starfsemi í húsnæði ÚA á Fiski-
tanga. Hreinlætiskröfur eru
hertar, m.a. þurfa starfsmenn
að stíga yfir þröskuld sem skil-
ur að svæði fyrir útiskó og
töfflusvæði í búningsklefa, en
öllum starfsmönnum eru lagðar
til töfflur til að klæðast og
ganga í til búningsklefa þar
sem sloppar og stígvél eru
geymd. Unnið er að innréttingu
á tilraunaeldhúsi.
En hvernig finnst starfsfólk-
inu að vinna á nýju vinnslulín-
unni? Blaðamaður truflaði ein-
beitingu nokkurra starfsmanna
nýverið þegar hann tók þá tali,
en þá var verið að „brauða"
karfaflök á Þýskalandsmarkað.
Nýja vinnslulínan nýtir
fiskinn betur
„Þetta er öðruvísi vinna en áður
og ég er ekki frá því að mér
hafi þótt betra að vinna á
gömlu línunni. En maður á eftir
að aðlagast þessari vinnu betur
og þá verður svarið kannski
öðruvísi. Ég er hins vegar viss
um að þessi nýja vinnslulína
nýtir betur fiskinn. Maður heyr-
ir alltaf einhverjar óánægju-
raddir en það er alltaf þegar
nýjungar eru á ferðinni, en þær
hverfa væntanlega,“ sagði Ester
Bára Sigurðardóttir.
Verður mjög gott
„Þetta er mikil breyting frá því
sem var hér í frystingunni á ÚA
en ég er búin að starfa hér í sex
ár. Línurnar vinna allt öðruvísi
og þetta er allt annað ferli og
þegar við höfum náð tökum á
þessu ferli er ég ekki í minnsta
vafa um að þetta verður mjög
gott. En eins og stendur er
þetta erfiðara. Því er ekki að
neita að hér eru byrjunarörð-
ugleikar, aðallega f pökkuninni,
|
%
%
Ester Bára Sigurðardóttir.
Erna Friðriksdóttir.
Anna Fríða Kristinsdóttir.
Tryggvi Már Meldal.
eins og venjulegast er þegar
nýtt kerfi er tekið í notkun. Það
eru hér enn menn frá Marel til
að leysa þann vanda. Það vant-
ar kannski hjá okkur starfsfólk-
inu að vera jákvæðara fyrir
þessum breytingum, og ég veit
að jákvæðnin kemur,“ sagði
Erna Friðriksdóttir.
Nýi vinnutíminn
miklu betri
Anna Fríða Kristinsdóttir
starfar við að taka flökin af
færibandi eftir að þau hafa ver-
ið brauðuð, og taka þau þeirra
frá sem ekki voru nægjanlega
vel röspuð. „Þetta er allt öðru-
vísi vinna en ég var í áður. Þá
var ég uppi á línu að skera, en
þetta er ekki eins (jölbreytt. Nú
stend ég bara og pakka í kassa,
þetta er meiri færibandavinna,
meiri verksmiðjubragur á þess-
ari vinnu núna eftir breyting-
arnar. Það væri sjálfsagt gott að
fólk væri fært á milli starfa eftir
einhvern tíma svo það yrði ekki
leitt á því sem það er að gera.
Það jákvæðasta við þessar
breytingar gagnvart okkur
starfsmönnunum er að þetta er
miklu hreinlegra nú.
Nýi vinnutíminn er líka
miklu betri. Ég vinn frá sjö til
þrjú en áður vann ég frá átta til
fimm fyrir sama kaup. Það ligg-
ur við að allur dagurinn sé eftir
og meiri tími til að gera það
sem nauðsynlegt er, t.d. þarf
ekki að þeytast í búðir með
ógnarhraða vegna þess að dag-
urinn er nánast búinn."
Fín vinna
„Þetta er fín vinna,“ sagði
Tryggvi Már Meldal, sem vinnur
við annan mann við að taka
karfaflökin upp úr kari og raða
þeim á færiband. Þaðan fóru
karfaflökin gegnum vél sem
bakaði flökin í deigi og síðan í
raspi. Síðan flutti færibandið
flökin áleiðis í lausfrysti og síð-
an í pökkun í kassa eftir hafa
farið gegnum síðustu „endur-
skoðun".
„Þessi vinna er miklu betri
að því leyti að hér er ekki mikið
vatnssull. Ég held að þegar
fólkið hefur náð tökum á þessu
hérna mun það ekki sjá neitt
eftir eftir gömlu vinnslulínunni.
Nýtingin er líka meiri og það
kemur öllum til góða, ekki bara
fyrirtækinu heldur einnig okkur
sem vinnum hérna," sagði
Tryggvi Már Meldal. GG