Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.01.1997, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 21.01.1997, Blaðsíða 10
10 - Þriðjudagur 21. janúar 1997 i |Dagur-'25mttm I Þ R I ENSKI BOLTINN* Ursiit Chelsea-Derby (Wise 36, Leboeuf víti 44, P. Hughes 85) (Asanovic 25) Coventry-Man. Utd. (Giggs 60, Solskjær 79) Leicester-Wimbíedon (Heskey 73) Liverpool-Aston Villa (Carragher 50, Coliymore 58, Fowler 63) Middlesbrough-Sheff. Wed. (Ravanelii víti 14, Festa 23, Emerson víti 72, Juninho 90) (Pembridge 29, 80) Southampton-Newcastle (Maddison 88, Le Tissier 90) (Ferdinand 14, Clark 82) Sunderland-Blackburn Arsenal-Everton (Bergkamp 55, Vieira 57, Merson 69) (Ferguson 90) Nottm. Forest-Tottenham (Roy 47, 62) (Sinton 2) 3:1 0:2 1:0 3:0 4:2 2:2 0:0 3:1 2:1 Liverpool Man. Utd. Arsenal Newcastle Wimbiedon Chelsea Aston Villa Sheff. Wed. Everton Tottenham Sunderland Leicester Leeds Blackburn Derby Nottm. For. Coventry West Ham South.ton Middlesb. Staðan 2413 7 23 12 8 2312 7 23 11 6 21 11 5 23 10 8 23 10 6 22 23 22 23 22 22 22 22 23 23 21 22 23 4 41:20 46 3 46:26 44 4 42:22 43 6 42:26 39 5 34:25 38 5 36:32 38 7 31:24 36 7 10 5 25:27 31 7 7 9 31:34 28 8 4 10 24:30 28 7 7 9 22:30 28 7 5 10 21:30 26 7 4 11 19:27 25 5 9 8 23:22 24 5 9 8 22:29 24 5 8 10 23:37 23 5 8 10 22:33 23 5 7 918:26 22 5 5 12 31:39 20 5 6 12 29:43 18 • 3 stig dregin af Middlcsbrough 1. deild Úrslit Barnsley-Ipswich 1:2 Birmingham-Reading 4:1 Bolton-Wolves 3:0 Charlton-Stoke 1:2 C. Palace-Portsmouth 1:2 Huddersfieid-Man. City 1:1 Norwich-Grimsby 2:1 Oxford-Tranmere 2:1 Sheff. Utd.-Southend 3:0 Swindon-Bradford 1:1 West Brom-OIdham 1:1 Port Vale-QPR 4:4 Staðan Bolton 29 16 10 3 61:37 58 Shefl'. Utd. 27 14 7 6 47:28 49 Barnsley 27 13 8 6 46:32 47 Wolves 27 12 7 8 36:26 43 Stoke 2612 7 7 35:34 43 Norwich 27 12 6 9 37:37 42 QPR 28 11 8 9 42:40 41 C. Palace 27 1010 7 51:30 40 Oxford 28 11 7 10 39:32 40 Port Vale 28 912 7 34:31 39 Tranmere 2811 6 11 37:36 39 Ipsvvich 28 9 10 9 36:39 37 Huddcrsf. 28 9 9 10 33:36 36 Portsmouth 29 10 6 13 32:36 36 Birmingh. 25 9 9 7 28:24 36 Charlton 28 10 5 13 30:38 35 West Brom 28 7 13 8 44:45 34 Swindon 27 10 4 13 37:35 34 Reading 28 7 9 12 31:43 30 Oldham 26 61010 29:32 28 Man. City 27 8 4 15 29:42 28 Bradford 29 6 9 14 27:45 27 Southend 27 5 1012 25:49 25 Grimsby 26 5 8 13 28:47 23 Hamar félagsheimili Þórs: Salir til leigu Tilvaldir til hvers konar íþrótta- og tóm- stundaiðkana. Gufa - Pottur - Búningsaðstaða Hamar sími 461 2080 Haukar í toppsætinu HANDBOLTI • 1. deíld karla Bjarki Sigurðsson, helsta skytta Aftureldingar, stekkur upp fyrir framan Hauka- vörnina í leik liðanna á laugardaginn. Haukaliðið náði toppsæti 1. deildarinnar með ör- uggum sigri á Aftureld- ingu í leik liðanna í Mosfells- bænum á laugardaginn. Með því opnuðu þeir toppbaráttu deildarinnar upp á gátt, en þrjú lið eiga raunhæfa möguleika á deildarmeistaratitlinum. Flest bendir til þess að baráttan um toppsætið standi á milli þessara tveggja liða, en núverandi deildarmeistari, KA er skammt undan og gæti blandað sér í slaginn. Leikmenn Hauka náðu mjög vel saman gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum og heimamenn máttu þola sinn annan tapleik í röð. Haukar náðu snemma fimm marka forskoti, 5:10 og .muiuránn .vavð .m/ivk J leikhléi, 8:12. Úrslitin réðust á síðasta kafla leiksins og lukkan var á bandi gestanna sem hirtu flest öll fráköst í síðari hálf- leiknum, auk þess sem mörg skot heimamanna höfnuðu í marksúlum Haukanna. Sigur- inn var engu að síður sann- gjarn og mark Arons Kristjáns- sonar í lokin, tryggði Haukum efsta sæti deildarinnar, á betri markatölu heldur en Aftureld- ing. Naumur sigur KA Ekkert benti til þess að ÍR-ingar mundu standa í KA-liðinu í leikhléi liðanna í Seljaskólan- um. Norðanmenn höfðu fimm marka forskot 10:15 og KA- menn náðu mest sex marka forskoti 13:19. En þá var eins og kæruleysi yrði ráðandi þátt- ur í leik Akureyrarliðsins og heimamenn gengu á lagið. Góð markvarsla Hrafns Margeirs- sonar í marki ÍR hafði einnig mikið að segja og ÍR leiddi um tíma. En sigurinn endaði KA- megin, 29:30 með marki Ró- berts Julian Duranona, eftir aukakast á lokasekúndunum. Sergei Ziza skoraði tíu mörk fyrir KA og virðist vera að sanna sig sem einn af betri ieik- mönnum deildarinnar. Þá varði Hermann Karlsson vel í fyrri hálfleik. Markvarslan var hins vegar ekki upp á það besta í beim síðari, eins og nítián mörk ÍR-inga bera vott um. Ragnar Óskarsson var bestur í jöfnu liði heimamanna sem neitaði að gefast upp og það verður spennandi að fylgjast með bik- arslag þessara liða á fimmtu- dagskvöld. ej/fe Ákveðnir Valsmenn Leikmenn Fram voru ekki komnir úr háloftunum, þegar leikur þeirra gegn Val var flaut- aður á. Valsmenn voru miklu ákveðnari í byrjun og skoruðu sex af fyrstu sjö mörkum leiks- ins. Munurinn var tvö mörk í leikhléi og hann varð minnstur eitt mark á kafla í síðari hálf- leiknum, 13:12. Þá gerðu Vals- menn út úr leikinn með sex mörkum gegn einu marki Fram. Öruggt hjá FH FH-ingar hafa komið mun sterkari tii leiks á nýárinu og Stjörnumenn voru lítil hindrun. Hafnfirðingar náðu snemma góðri forystu sem þeir létu ekki af hendi og lokatölur urðu 34:27. Langþráður sigur Grótta vann sinn fyrsta deildar- sigur frá 20. nóvember. Liðið leiddi nær allan leikinn og miklu munaði um frammistöðu Sigtryggs Albertssonar, sem varði vel í marki Gróttu. Jitfili* J1 í 1. deUd karla um helgina: Afturelding-Haukar 21:27 ÍR-KA 29:30 Valur-Fram 20:16 FH-Stjarnan 34:27 Grótta-HK 29:24 Selfoss-ÍBA fr. Staðan er nú þessi: Haukar 16 12 2 2 416:379 26 Afturelding 16 13 0 3 420:385 26 KA 16 11 1 4 435:417 23 Fram 16 8 2 6 375:350 18 ÍBV 13 7 0 6 321:300 14 FH 15 7 0 8 377:398 14 Valur 15 5 3 7 332:340 13 Stjarnan 15 6 1 8 395:391 13 ÍR 14 4 1 9 345:344 9 HK 16 4 1 11 374:400 9 Selfoss 15 4 1 10 371:417 9 Grótta 15 3 2 10 354:384 8 ENSKA KNATTSPYRNAN Efstu tiðin sigruðu Newcastle missti niður tveggja marka forustu á tveimur síðustu mínútun um gegn Southampton. Hér eru Les Ferdinand og Alan Shearer, fram- herjar Newcastle, í baráttu við varnarmenn Southampton og skömmu síðar lá knötturinn í netinu. Nýju lærisveinarnir hans Kenny Dalglish hjá Newcastle voru með tveggja marka forskot þegar tvær mínútur voru til leiksloka gegn Southampton en misstu það niður og giötuðu mikilvæg- um stigum. Liverpool er enn í efsta sæti ensku úrvalsdeildar- innar eftir leiki helgarinnar en þrjú efstu liðin, Liverpool, Man. Utd. og Arsenal unnu öll leiki sína. Leikmenn Southampton eyðulögðu stóru stundina fyrir Kenny Dalglish, nýja stjóranum hjá Newcastle, þegar þeir skor- uðu tvisvar á síðustu tveimur mínútunum og tryggðu sér ann- að stigið, 2:2. Les Ferdinand skoraði 14. mark sitt á tímabil- inu í fyrri hálfleik og Lee Clark skoraði þriðja mark sitt á einni viku þegar 7 mínútur voru til leiksloka. Southampton hafði verið betri aðilinn í leiknum og þeir náðu að knýja fram jafn- tefli með mörkum frá Neil Maddison og Matthew Le Tissi- er. Dalglish er þegar farinn að gera breytingar á liði og leikstíl Newcastle og David Ginola og Robert Lee voru settir á bekk- inn. Einnig vakti athygli að allt liðið var dregið tilbaka til að verjast hornspyrnum en slíkt var ekki vaninn hjá Kevin Ke- egan. Liverpool setti í fluggírinn í seinni hálfleik gegn Aston Villa eftir hrikalegan fyrri hálfleik. Það var 18 ára nýliði, Jamie Carragher, sem braut ísinn með fallegu skallamarki og á næstu 13 mínútum bættu Stan Colly- more og Robbie Fowler tveimur mörkum við, 3:0. Fowler hafði ekki skorað síðan 23. desem- ber. Norðmaðurinn Björn Tore Kvarme kom inn í lið Liverpool í fyrsta sinn en félagaskipti hans úr Rosenborg gengu í gegn á föstudag, 10 mínútum áður en fresíurinn rann út fyrir leiki helgarinnar. Giggs í stuði Manchester United stendur vel að vígi og hefur tapað fæstum stigum allra liða í vetur ásamt Wimbledon. Ryan Giggs skoraði sitt fyrsta deildarmark í fjóra máðnuði og kom United á bragðið gegn Coventry en skömmu áður vildu leikmenn Coventry fá vítaspyrnu þegar Gary Neville felldi Darren Huc- kerby innan vítateigs en dóm- arinn dæmdi ekkert. í staðinn komst United á skrið og Ole Gunnar Solskjær innsiglaði sig- urinn með góðu marki, 2:0. David Beckham var meiddur og lék ekki með United. Útlendingahersveitin hjá Middlesbrough var í sviðsljós- inu gegn Sheffield Wednesday. ítalinn Fabrizio Ravanelli skor- aði fyrsta markið úr vítaspyrnu og landi hans Gianluca Festa. bætti öðru við í sínum fyrsta leik fyrir liðið. Ravanelli var vikið af leikvelli fyrir að rífast við línuvörð en það hindraði ekki félaga hans og Brassarnir Emerson og Juninho bættu við tveimur mörkum. Mark Pem- bridge skoraði bæði mörk Wed- nesday. Öruggt hjá Arsenal Á sunnudag vann Arsenal ör- uggan sigur á Everton, 3:1. Ar- senal var reyndar heppið að vera yfir í hálíleik því löglegt mark var dæmt af Nicky Barm- by fyrir hlé. En Arsenal gerði út um leikinn á tveggja mínútna kafla í síðari hálfleik með tveimur mörkum frá Dennis Bergkamp og Patrick Vieira. Bergkamp átti síðan heiðurinn að þriðja markinu, sem Paul Merson skoraði. Hollendingurinn Bryan Roy var hetja Nottingham Forest gegn Tottenham á sunnudag. Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2:1 sigri eftir að Andy Sinton hafði komið Tottenham yfir eftir að- eins 75 sekúndur. Roy hefur átt erfitt uppdráttar og gagnrýndi Stuart Pearce, leikmann og stjóra Forest, í breskum Qöl- miðlum í síðustu viku. En hann fékk sæti í liðinu þar sem Dean Saunders og Kevin Campbell eru báðir meiddir.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.