Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.01.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.01.1997, Blaðsíða 6
18 - Miðvikudagur 22. janúar 1997 MENNING O G Okkur væri Það er stór viðburður og hátíðlegur þeg- ar Óperan og atvinnuleikhúsin þrjú frumsýna eða þegar Listasafn íslands opnar sýningu. Myndir af frumsýningar- gestum fylla „hver var hvar“ plássið í blöðunum og lesendur fylgjast með. Við- veran bendir jú til listhneigðar. En hverj- ir eiga þessi skínandi bros og traustu hendur sem halda svo smekklega á glös- um? Hverjir eru fastir á gestalistum Þjóð- leikhúss, Leikfélags Reykjavíkur, Leikfé- lags Akureyrar, íslensku óperunnar og Listasafns íslands? L tOjfWWTra ! tíOSí|FI THjlSI -i?! mI? 5. ‘"S íjiliL* sjy LEIKFÉLAG AKUKEYRAR Kór Leikfélags Akureyrar Kossar og kúlissur Samkomuhúsið 90 óra, söngur, gleði, gaman Frumsýning fimmtudaginn 30. jan. kl. 20.00. 2. sýning laugard. 1. febr. kl. 20.00. Athugid breyttan sýningartíma. Handrit: Hallgrímur Helgi Helgason. Utsetning og stjórn tónlistar: Roar Kvam. Búningar: FreygerÓur Magnúsdóttir. Leikstjórn: Sunna Borg. Einsöngvarar: Aðalsteinn Bergdal og Sigríður Elliðadóttir. HljóÓfæraleikarar: Gréta Baldursdóttir og Richard Simm. Afmælistilboð Mi&aver& 1500 krónur. Undir berum himni eftir Steve Tesich Sýningar á „Renniverkstæðinu" (Strandgötu 49) Föstud. 24. jan. kl. 20.30. Laugard. 25. jan. kl. 20.30. Föstud. 31. jan. kl. 20.30. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hæat aS hleypa gestum inn r salinn enir að sýning er hafin. Miðasalan er opin alla virka daga nema mánud. kl. 13.00-17.00 og fram að sýningu sýningardaga. Símsvari allan sólarhringinn. Sími i mi&asölu: 462 1400. iDagur-'Stmttm - besti tími dagsins! ÞJÓÐLEIKHÚSID LITLI KLÁUS OG STÓRI KLÁUS eftir H.C. Andersen Frumsýning fimmlud. 23. jan. kl. 17.00. 2. sýn. sunnud. 26. jan. kl. 14.00. 3. sýn. sunnud. 2. febr. kl. 14.00. 4. sýn. sunnud. 9. febr. kl. 14.00. Stóra sviðið kl. 20.00 KENNARAR ÓSKAST eftir Ólaf Hauk Símonarson Föstud. 24. jan. Uppselt. Miðvikud. 29. jan. Nokkur sæti laus. Laugard. 1. febr. Uppselt. Laugard. 8. febr. VILLIÖNDIN eftir Henrik Ibsen 8. sýn. laugard. 25. jan. Uppselt. 9. sýn. fimmtud. 30. jan. Uppselt. 10. sýn. sunnud. 2. febr. Uppselt. 11. sýn. fimmtud. 6. febr. Nokkur sæti laus. 12. sýn. sunnud. 9. febr. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Sunnud. 26. jan., 80. sýn. Föstud. 31.jan. Föstud. 7. febr. Smíðaverkstæðið kl. 20.30 LEITT HÚN SKYLDI VERA SKÆKJA eftir John Ford Föstud. 24. jan. Uppselt. Laugard.25. jan.Uppselt. Fimmtud. 30. jan., laugard. 1. febr. Laugard. 8. febr. Athygli skal vakin á að sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Litla sviðið kl. 20.30 í HVÍTU MYRKRI eftir Karl Ágúst Úlfsson Sunnud. 26. jan., föstud. 31. jan. Föstud. 7. febr. Ekki er hægl að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. •k ★ ★ Gjafaftort i leikhús - SigHd og skemmtileg gjöf ★ ★ ★ Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frákl. 10 virka daga. það sönn ánægja Gestalistar liggja ekki endi- lega fyrir en hefðir og venjur ráða mestu um hverjum er boðið. Forsetinn er efstur á öllum listum og þar á eftir þeir sem fylla flokkinn ráðamenn þjóðarinnar, nokkr- um eða öllum ráðherrum er boðið. Þá er misjafnt hvort og hvaða embættismenn og for- stjórar eru á listum yfir boðs- gesti en á öllum eru gagnrýn- endur og annað íjölmiðlafólk. Þá eru það aðstandendur hsta- mannanna og allir sem standa að tiltekinni sýningu auk fyrir- manna listgreina og annarra liststofnana. Fimm heiðursfélagar LA Trausti Ólafsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, segir naglfasta Usta yfir boðsgesti ekki tfl. „Þetta eru aðstandend- ur og höfundar sýningarinnar og gagnrýnendur fjölmiðla. í okkar tilviki eru það líka fimm heiðursfélagar Leikfélagsins þau Jón Kristinsson, Björg Baldvinsdóttir, Haraldur Sig- urðsson, Marinó Þorsteinsson og Björn Þórðarson en þetta ágæta fólk hefur starfað með leikfélaginu eða setið í stjórn þess. Þá er bæjarstjórn boðið og leikhúsráði og auðvitað forseta íslands og fyrrverandi forseta. Einnig eru gagnkvæm boð á milli leikhússtjóra atvinnuleik- húsanna." Trausti segir að hlutfallið sé yfirleitt nokkuð jafnt á milli boðsgesta og þeirra sem kaupa sig inn á frumsýningar. Langur listi á afmælisári Hafliði Arngrímsson, leiklistar- ráðunautur Leikfélags Reykja- víkur segir boðshstana nokkuð fasta. „Þetta er borgarleikhús og tengist því borginni og frammámönnum þar. Þetta er líka gamalt félag og á listanum eru gamlir leikarar eða ekkjur og ekklar þeirra. Þá eru gagn- rýnendum boðið og aðstand- endum sýningarinnar, forsetan- um og borgarstjórn. Mennta- málaráðherra er alltaf boðið en í tilefni 100 ára afmælis LR eru allir ráðherrarnir á gestalistun- um.“ Þegar eitthvað er laust kaupa menn sig inn en boðs- gestir fylla um þessar mundir frumsýningarsæti Leikfélags Reykjavfkur því mun fleirum er boðið á frumsýningar afmælis- árs.“ Nokkrir forstjórar Á opnanir Listasafns íslands er öllum listamönnum sem eiga verk í safninu boðið auk ráða- manna þjóðarinnar og ákveðn- um aðilum innan embættis- mannakerfisins eins og for- stöðumaðurinn Bera Nordal orðar það. „Við bjóðum ríkis- stjórn og eins fólki úr mennta- málaráðuneytinu sem er okkar móðurráðuneyti. Síðan er það fólk sem hefur gefið safninu gjafir eða velunnarar þess. Þannig að forstjórar nokkurra fyrirtækja eru á boðsbsta hjá okkur.“ Bera segir listann einnig telja „aðalfólkið í fjölmiðla- heiminum“ og úr öðrum list- greinum auk forstöðumanna allra menningarstofnana og safna í landinu. Þegar við erum með Hstamenn sem eru á lífi bjóða þeir líka sérstaklega. Hann er dálítið stífur þessi Usti en þetta eru svona 7-800 manns, hér er líka það góð mæting að við verðum að tak- marka fjöldann og miðinn gildir náttúrlega fyrir tvo.“ Fá miða fyrir styrkinn Á Usta íslensku óperunnar yfir frumsýningargesti eru forseti íslands og eins segir Ólöf Kol- brún Harðardóttir að reynt sé að fá að minnsta kosti 3-4 ráð- herra á frumsýningar en þeim er öUum boðið. „Ökkur finnst eðlilegt að bjóða þeim sem vinna í okkar málum. Síðan eru það stjórnir íslensku óperunnar og Styrktarfélags íslensku óper- unnar en í þeim sitja sjálfboða- liðar. Við bjóðum líka fólki úr hinum leikhúsunum sem er nauðsynlegt til að halda sam- vinnunni góðri.“ Hvað um styrktaraðila Óper- unnar? Forstöðumönnum stórfyrir- tækja sem styrkja Óperuna er boðið en í rauninni er ekki hægt að segja að um boð sé að ræða. Þeir styrkja okkur fyrir ein- hverja fjárhæð og fá í staðinn miða á hátíðarsýningu en ekki á frumsýningu.“ Ólöf nefnir líka fjölmiðlafólk, rit-, frétta-, og menningarefnis- stjóra. „Þetta er nauðsynlegt og felur auðvitað í sér ákveðna auglýsingu." BoðsUsti fslensku óperunnar telur 80-100 manns, sem Ólöf telur hæfilegt í 480 manna húsi. Leikarar á eftirlaunum Stefán Baldursson Þjóðleikhús- stjóri segir boðslistann ekki langan og að samsetning hans fylgi ákveðinni hefð. „Þetta er nú ekki langur listi. Á honum eru nokkrir ráða- menn sem hafa með leikhúsið að gera eða þrír ráðherrar, for- sætis-, menntamála- og íjár- málaráðherra. Forseti íslands og borgarstjóri auk þeirra sem tengjast húsinu eins og Þjóð- leikhúsráð. Forsvarsmönnum hinna atvinnuleikhúsanna er líka boðið og formönnum félags íslenskra leikara, leikstjórafé- lagsins og leikskáldafélagsins. Síðan er gagnrýnendum fjöl- miðla boðið og eins elstu leikur- unum okkar sem eru komnir á eftirlaun." -mar

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.