Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.01.1997, Qupperneq 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.01.1997, Qupperneq 4
16 - Föstudagur 24. janúar 1997 Unt&úöaíauót jHctgur-ÍIImmm Ekki hjá Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar Endilega að opna fleiri leikskóla, bara ekki í næsta húsi við mig. Stofnum fleiri sambýli fyrir geð- ekki við þennan söng sem minnir um margt á söguna um litlu gulu hænuna sem fann fræ - og hver hefur ekki dottið í þann pytt að hugsa eitthvað á þessa leið? Við Islendingar er- um nefnilega lítið prinsippfólk og lítum vandamálin iðulega öðrum augum ef þau snúa að okkur sjálfum og bregðumst þá harkalega við, en látum okkur fátt um finnast ef vandamálið er náungans. Best þykir okkur Nýjustu dæmin um prinsipp- leysi okkar eru umræður um ál- ver á Grundartanga og stofnun hreyfingar um sameiningu fé- lagshyggjuaflanna. Mikill meirihluti kjósenda kaus í síðustu kosningum flokka sem voru og eru yfirlýst- ir hvatamenn þess að reisa eigi stóriðju á íslandi. Þegar á hólminn er komið eru menn svo auðvitað ekki tilbúnir að hafa iSÉM lasEáyt Endilega að opna fieiri leikskóla, bara ekki í næsta húsi við mig. Stofnum fleiri sambýli fyrir geðfatl- aða, bara ekki í göt- unni minni. Reisum álver, bara ekki í firðinum mínum. fatlaða, bara ekki í götunni minni. Reisum álver, bara ekki í firðinum mínum. Hver kannast þó ef vandamálin eru útlensk, þá koma þau okkur ekkert við, samanber smánarlega „þróun- araðstoð" okkar þrátt fyrir fög- ur fyrirheit og aðild að alþjóða- samtökum sem hafa slíkt á stefnuskránni. Okkur finnst sjálfsagt að allir rísi upp til handa og fóta og hjálpi okkur ef eitthvað bjátar á, en að við opnum pyngjuna til að hjálpa erlendum systkinum í neyð, nei ó nei, það er helst að við fáumst til að opna fataskápinn og gef- um þeim úreltan tískufatnað, jafnvel ónotaðan með öllu, enn í innkaupapokanum frá stór- versluninni í Glasgow þar sem gera má sannkölluð reifara- kaup. Mönnum er svo yfir- leitt skítsama hvaða áhrif starfsemi þeirra hefur á um- hverfið, svo fremi sem það sé ekki þeirra nánasta umhverfi. slíka verksmiðju í eigin ranni. Það eru ekki mörg ár síðan að menn börðust fyrir því með kjafti og klóm að fá stóriðju í hvern fjórðung, og voru þá l \ . búddaiö^estóS oföótó«rY) — * Ztrf, £G A9GTAt//C/£> /?F '/ YETt/F 0066/ A///V/T, E/YD/9 Z/FFÉ6 /V/SSr/V/rMFlYST- ////? V/Ð /J£> f/úFFF /9 /?£/6fýs- ///G/?/? 06 £>/?GSLDÖs! I mér mengunarvarnir miklu minni en nú og orðið umhverfisáhrif varla til. Nú vilja allir vera líf- rænir og ferðamannavænir í öðru orðinu, en kvarta um leið yíir því að meirihluti nýrrar íjárfestingar fari á suð-vestur- hornið. Það má líka spyrja sig hvort nágrenni Grundartanga sé vænlegt lífrænt landbúnað- ar- og ferðamannahérað aðeins með eina járnblendiverk- smiðju, en ekki með hvort tveggja járnblendi og álver. Mönnum er svo yflrleitt skít- sama hvaða áhrif starfsemi þeirra hefur á umhverfið, svo fremi sem það sé ekki þeirra nánasta umhverfi og ekki sé hætta á að þeir verði hankaðir fyrir brot á alþjóðasamningum. Viðbrögð sumra stjórnmála- manna við stofnun samtaka um sameiningu stjórnmálaafla sem kenna sig við félagshyggju voru líka af svipuðum toga. Umræð- an er á leiðinni inn í þeirra eigin garð og þeim finnst stöðu sinni ógnað. Undir slíkum kringumstæðum taka jafnvel fulltrúar pólitískra afla sem stofnuð eru til höfuðs ríkjandi skipulagi, sig til og gerast blaðafulltrúar stéttarfélags stjórnmálamanna sem finnst að sér vegið í almennt orðuðum stjórnmálaályktunum. Jafnvel Davíð lætur ekki svona þegar Heimdellingar semja harðorð- ar ályktanir og reyna að minna forystu flokksins á að fylgja þeim grundvallarhugmyndum sem flokkurinn stendur fyrir, enda er stöðu hans auðvitað engin ógnun í kvaki unglið- anna. Afrek að taka við 25 milljónuin Jón Arnar Magnússon er einhver fræknasti íþróttamaður sem land- ið hefur alið lengi. Hreysti hans og hugdirfska kemur þó ekki endilega best fram á íþróttavellinum þar sem hann þó hefur sýnt yfir- burði. Það sem sérstaklega dreg- ur fram ótrúlegt þor hans og æðru- leysi gagnvart nánast óyfirstíg- anlegum verkefn- um er sú stað- reynd að hann treystir sér til að taka við 25 milljónum króna í afreksmannastyrk, sem að verulegu leyti er til kominn af opinberu fé. Arð- urinn af þessari ijárfestingu á skila sér í formi góð- málma, verðlaunapeninga á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. Að vísu eru ekki samningsbundnar kvaðir um árangur sem fylgja þessu framlagi, en þrýsting- urinn verður nægur samt á íþróttamanninn, sem þarf að sanna að þetta hafi verið réttlætanlegt. Gagnrýni í fyrsta lagi er gríðarlega stór hópur manna sem er yiir sig hneykslaður á því að tugum milljóna af opinberu fé sé varið til keppni og þjálfunar á einum íþrótta- manni meira og minna fyrir einn íþróttaviðburð. Garri getur t.d. séð fyrir sér for- eldra og aðstandendur fatl- aðra barna eða sjúkra sem ekki hafa getað fengið við- unandi úrræði fyrir börnin sín vegna íjárskorts hins op- inbera. Eða skólamenn sem sjá fram á að geta ekki staðið undir því sem þeir telja lágmarks kennslu eða sálfræðiþjónustu vegna þess að fjárveitingar duga ekki til. Og Garri man ekki betur en að í frétt í sjónvarpinu um síðustu helgi hefi verið viðtal við ungan mann sem var að þróa forrit til að hjálpa fólki að læra heyrnleys- ingjamál. Sú upp- finning var á heimsmæli- kvarða, mikið af- rek, og fól í sér von um víðtæka efnahagslega ávinninga fyrir land og þjóð. Hann þurfti bara eina millj- ón til að klára málið! í öðru lagi mun íþróttamaðurinn Jón Arnar þurfa að sýna og sanna það fyrir öðrum íþróttagreinum að hann hafi átt þetta skilið. Hvað með handboltalandsliðið? Fót- boltamennina? Og alla hina? Áttu þeir ekki rétt á þessu frekar? Bannfæring? Það þarf því kjarkmann til að taka við þessum pening- um því væntingarnar um árangur eru nánast yfir- náttúrulegar. Og það sem endanlega sýnir og sannar að Jón Arnar er hrein hetja er að hann skuli taka við öllum þessum peningum vit- andi um stuðning Qöl- margra íþróttaáhuga- manna. íþróttaáhugamenn eru nefnilega sérkennilegur hópur. Þó þeir styðji „sinn mann“ núna er sá stuðning- ur skilyrtur því að hann skili árangri. Nái Jón Arnar ekki árangri í Sidney mun hann verða útskúfaður, bannfærður af íþrótta- áhugamönnunum sem áður studdu hann. Það þarf af- reksmann til að taka þá áhættu að taka við 25 millj- ónum króna. Garri.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.