Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.01.1997, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.01.1997, Qupperneq 7
|Dagur-®TOttitn Föstudagur 24. janúar 1997 -19 STRAUMAR OG STEFNUR Kveðj a til karlmanna á Á bóndadaginn er siður að fœra karli sínum í rúmið brennivínsstaup og vel úldinn hákarl Þetta kann þó að mœlast illa fyrir og því láta konur á íslandi sér yftrleitt nœgja að skjótast inn í blómabúð, á leið heim úr vinnu, og elda svo góðan mat handa elskunni. En hvernig er best að þessi elska sé? Til hamingju með daginn strákar og hér eru smá pakkar frá fimm konum sem vita svarið. bóndadagimi „Svo þurfa þeir að vera kelirófur þannig að það sé endalaust hœgt að kássast í þeim.“ „Séu fljótir til atlota“ Guðrún Ás- mundsdóttir, leik- kona, segir þá fyrst og fremst þurfa að hafa kímnigáfu. legt saman. Einn eiginleiki er líka mikilvægur og það er að þeim finnist vænt um fólkið í kringum sig og þar með mig og séu gestrisnir.“ Á alveg dásamlegt eintak Margrét Blöndal, dagskrárgerð- armaður á Bylgjunni, segir karlmenn voða skemmtilega tegund. „Ég á líka alveg dá- samlegt eintak. Karlmenn þurfa að vera eitthvert sambland af töffara og flauelskarli, það er þetta hárfína jafnvægi sem þeir þurfa að ná. Ef þeir eru of mjúkir eru þeir óspennandi, en ef þeir eru of mikhr töífarar þá nennir maður ekkert að púkka upp á þá.“ Nær þitt eintak þessu jafii- vœgi? „Já, hann er búinn að ná þessu. Þeir verða líka að hafa húmor, það er fyrsta skilyrði. Svo þurfa þeir að vera kelirófur þannig að það sé endalaust hægt að kássast í þeim.“ Ætlarðu að „dúllast “ í þínum á bóndadaginn? „Ég er ekki viss um að flau- efshhðin verði upp á honum klukkan 5 um morguninn þegar ég þarf að fara í vinnuna og er ekki viss hvort það verður stemmning fyrir brennivíni og hákarfi." „Ég horfi alltaf fyrst í aug- un á þeim og svo á rass- inn. “ • „Þeir mega vera afhvaða stœrð sem er, bara ekki með bjórvömb og þar með er það upptalið. “ • „Það var vel valið hjá hlustendum Rásar 2 í fyrra, Alfreð er skemmti- legur, jákvœður, áreiðan- legur og karlmannlegur. “ • „Að öðru leyti mœtti hann gjarnan vera lifandi eftir- mynd sona minna sem eru að sjálfsögðu nánast full- komnir. “ „Svo verður að vera gott að þegja með þeim. - Að þeir séu fljótir til atlota, er gott. Þeir mega vera af hvaða stærð sem er, bara ekki með bjórvömb og þar með er það upptalið.“ Áttu einn? „Já, sem betur fer. En á bóndadag- inn þori ég ekki að gefa honum blóm, held hann kynni ekki að meta það. Ætli ég gefi honum ekki eitthvað gott að borða, kveiki svo á kerti og svo höf- um við það huggu- „Hraustlegur með bringuhár“ Ef þeir fafla... Sigrún Stefánsdóttir, lektor við Háskóla íslands, mun ekki verja miklum tíma í „dúU“ við karlmenn í dag, þar sem hún býr ein með blindri hálfaldraðri læðu. „Þessi „tilvistarvandi" minn útlokar þó ekki það að ég hafi skoðanir á karlmönnum og hvernig þeir eigi að vera. í mín- um huga er það sjálfsögð krafa til karlmanna að þeir séu skemmtilegir og geri lífið bjart- ara og ijölbreyttara. Þeim er svo í sjálfsvald sett hvernig þeir uppfylla þessi atriði en ef þeir falla á þessu prófi er betra að vera án þeirra. Þeir mega heldur ekki vera latir, latt fólk fer í taugarnar á mér. Útiit skiptir minna máli en innri maður, maðurinn í mínu lífi þyrfti að vera „sporty" og hafa gaman af því að ferðast óplan- að. Að öðru leyti mætti hann gjarna vera lifandi eftirmynd sona minna, sem eru að sjálfsögðu nánast fullkomnir." Býr með fjórum karlmönnum Halldóra Bjarnadóttir, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfé- lags Akureyrar og nágrennis, er rosalega ánægð með sinn karl en hann mætti hafa stærri rass! „Hvernig ég vil hafa karlmenn? Jú, ég vil hafa þá vel gefna, skemmtilega og þeir verða að hafa þessa yndislegu návist og auðvitað að bera virðingu fyrir konum. Ég horfi alltaf fyrst í augun á þeim og svo á rassinn,“ og Halldóra skellihlær. „En í raun og veru finnst mér útlitið ekki skipta máli heldur er það innri maðurinn sem maður verður ástfangin af og heillar mann og þá eru það helst þessir vel gefnu og skemmtilegu. Það verð- ur líka að vera gaman að tala við þá.“ Hvað ætlarðu að gera fyrir þinn mann í tilefni dagsins? „Ég bý með ijórum karlmönnum, pabba, eigin- og færi þeim öllum rós á bónda- manninum og tveimur sonum daginn. Síðan ætla ég að gefa Eva Ásrún Albertsdóttir er umsjónarmaður keppninnar um kynþokkafyllsta karlmann íslands, sem kosinn verður á Rás 2 á morgun. Hún segir Al- freð Gíslason endurspegla það sem kynþokkafyllsti karlmaður þarf til að bera. „Það var vel valið hjá hlust- endum Rásar 2 í fyrra, Al- freð er skemmtilegur, jákvæður, áreiðanlegur og karlmann- legur. Annars er alltaf höfuð- verkur að svara svona spurningu, en karlmenn verða að hafa „karisma". Mér dettur til hugar gömul vísa sem við Ernurnar ortum tU Bárðar Halldórssonar kennara á menntaskólaárunum. Hún er svona: „Herðabreiður, hár og grannur / hraustlegur með bringuhár / karlmannlegur, sjarmör sannur / sérhver kona fellir tár. En mér fumst Alli bara vera besti kandídatinn." Hvernig er bóndadagurinn hjá þér? „Ég verð með syni mína þrjá, frá tveggja til tvítugs en ég hef ekkert alið þá upp í bóndadags- hefðum, kannski maður fari til þess.“ þeim hangikjöt og hákarl í kvöldmatinn. Ég er að reyna að ala syni mína upp í því að það sé sjálfsagt að gefa rós, ég var dáh'tið lengi að kenna mannin- um mínum þetta og gaf honum rós á hverjum föstudegi í heilt ár. Þá áttaði hann sig á að það var hægt að gefa rósir á öðrum dögum en konudögum. Núna á ég líka yndislegan eiginmann sem færir mér óvænt blóm, silkináttföt og undirföt. Hann gefur mér alltaf gjafir sem eru bara fyrir mig, hann er alveg draumur, enda hlýtur 24 ára uppeldi að bera árangur! Eitt enn sem kemur í hug- ann. Það slekkur gjörsamlega á mér ef karlmenn eru drukknir og reykja. Ég horfi bara ekki aftur á þá.“ -mar

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.