Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.02.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.02.1997, Blaðsíða 2
íDagur-®ímtrat 2 -Fimmtudagur 13. febrúar 1997 F R É T T I R j Opinber heimsókn Ólafur Ragnar Grímsson er nú í opinberri heimsókn í Noregi. I gærmorgun fór hann á gönguskíði við Holmen- kollen. Mynd: GTK Hvetur til íslensks-norsks frumkvæðis í alþjóðamálum íslendingar og Norð- menn geta lagt fram- hugmyndir og greitt úr ágreiningi á vettvangi öryggismála Evrópu og friðargæsiustarfi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Olafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, sagði í hádegisverðarræðu í boði hjá norska forsætisráðherran- um í gær að þróun lýðræðis og mannréttinda ásamt verndun umhverfís og auðlinda væru brýnustu verkefni mannkyns. Ólafur sagði þessa lykilþætti nýrrar heimsmyndar skapa Norðmönnum og íslendingum nýja stöðu í heiminum og tiltók hann sérstaklega fjögur svið þar sem þessi tvö rfld geta látið til sín taka. „í fyrsta lagi þróun lýðræðis og mannréttinda víða um ver- öld. Margar þjóðir munu leita liðsinnis í þeim efnum hjá ríkj- um sem ógna engum og hafa ekki annarlega hagsmuni," sagði forseti íslands. Hann nefndi ennfremur hlutverk landanna við að efla alþjóðlega samvinnu á sviði umhverfis- mála og við verndun á lífríki jarðarinnar. Minnti hann á að Gro Harlem Brundtland hafi markað afgerandi spor í þeim efnum og fordæmi hennar gefið til kynna mikilvægi og mögu- leika norrænnar forustu. Þá kom forsetinn inn á þann viðkvæma þátt sem varðar ör- yggismál og þróun þeirra í Evr- ópu og einnig nýskipan friðar- gæslu og friðarstarfs á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Ól- afur lagði til að íslendingar og Norðmenn tækju ákveðið frum- kvæði í þessum efnum og væru jafnvel í hlutverki sáttasemjar- ans: „Hér skapar staða Noregs og íslands ríkjum okkar mögu- leika umfram aðra til að leggja fram hugmyndir og greiða úr ágreiningi." Loks lýsti Ólafur þeirri trú sinni að mikil sóknarfæri væru fyrir norrænt samstarf inn í As- íu, Suður-Ameríku og Afríku. Sagðist hann sannfærður um að sameiginlegur árangur Norður- Ianda hafi verið þjóðum í þess- um heimshlutum hvatning til sérstakra tengsla við Norður- lönd. Heiti Potturinn Ipottinum tóku menn eftir því að Össur Skarphéðinsson, nýr ritstjóri Alþýðblaðsins, boðaði mikla samkeppni við Dag-Tímann. Nú er til þess tekið að Össur muni hugsa sér að koma upp sérstökum veiði- þætti í Alþýðublaðinu sem mótvægi við fluguveiðiþátt Stefáns Jóns Hafstein í Degi- Tímanum. Er talið víst að Öss- ur muni einbeita sér að stór- urriðaveiðum og breytingum á rafstöðvarmannvirkjum við Þingvallavatn (sínum þætti og telja menn það nokkuð snjall- an leik gegn fínhreyfingunum í fluguköstum Stefáns Jóns. Það sem menn bíða þó spenntastir eftir er að sjá hvernig mynd Össur birtir með sínum þætti, en myndin af Stefáni Jóni sýnir hann í fullum veiðiskrúða og vægast sagt afar vígalegan....... Z pottinum á Akureyri var ver- I ið að ræða nýja samþykkt bæjarstjórnar um að enn einu sinni eigi að endurskoða stjórnkerfi bæjarins. Fullyrt er að menn í nefndum á vegum bæjarins telji sig vita hvert stefni, að bæjarfulltrúar ætli nú endanlega að útrýma nefndar- starfi í stjórnsýslunni þar sem aðrir en bæjarfulltrúarnir sjálfir komi að málum. Draumalandið sé að hafa eintóma atvinnu- menn í bæjarstjórn sem fylli upp í starfskvótann með nefndarstarfi... Og í pottinum ræða menn mikið um launahækkanir bankastjóra ríkisbankanna. Einn pottormurinn hafði ekki miklar skoðanir á siðferðilegu ágæti þessara hækkana en taldi sig heppinn að hafa sloppið lifandi út úr leigubíl þar sem bílstjórinn hafði farið að tala um málið og varð svo æstur að hann gat varla hamið sjálfan sig hvað þá bílinn. Grímsey Netabát- ar lögðu í gær Ohuskip landaði olíu tfl húsahitunar og ann- arra nota í Grímsey í síðustu viku og eru nú fjög- urra mánaða birgðir af olíu í eyjunni. Þessi löndun er til- komin vegna ótta um að siglingaleiðir til Grímseyjar lokuðust vegna hafsíss, en fyrir voru ekki nema tæp- lega mánaðarbirgðir af olíu. Grímseyjarbátar tóku upp netin um mánaðamótin vegna ótta við hafís sem þá var kominn inn fyrir Kol- beinsey og nálgaðist eyjuna og stærri bátarnir lögðu net- in ekki aftur fyrr en á mið- vikudagsmorgun, bæði vegna þess að ekki hefur gefið fyrr og eins það að haf- ísinn hefur verið að íjarlægj- ast Norðurland vegna hag- stæðra vindátta. Slæm spá er þó fyrir næstu daga. Næst komst hafísinn suður að Nafurhól, sem er aðeins 6 mílur norðaustur af Gríms- ey. Línubátar hafa hins veg- ar verið fleiri daga á sjó. Flutningar vista og nauð- synja hafa gengið mjög skrykkjótt, mest hðið átta dagar milli ferða með vistir, póst og dagblöð til eyjar- skeggja. Þorrablót eyjarskeggja verður haldið í félagsheimil- inu Múla laugardaginn 15. febrúar og þangað mæta all- ir sem vettlingi geta valdið, heimamenn sem brottfluttir. íbúar í Grímsey eru nú 102, hefur fækkað um 15 milli ára, eða 12,82%. Að- eins í Hjaltastaðahreppi á Héraði hefur fólki fækkað hlutfallslega jafn mikið, en mest á landinu í Fremri- Torfustaðahreppi í Vestur- Húnavatnssýslu, eða um 13,85%. GG FRÉTTAVIÐTALIÐ. Góðærið slær á svipu útgerða Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambands íslands Sjómenn opnari á upplýs- ingar um kvótabrask. Betra atvinnuástand gefur mögu- leika á annarri vinnu, Aldrei Ijáð máls á auð- lindaskatti. -Hvernig gengur í baráttunni gegn kvótabraskinu? „Við fáum daglega mál um kvóta- brask inn á borð hjá okkur. Ég held að þetta sé bara að festast í sessi, frekar en að það sé eitthvað að aukast. Menn eru að verða opnari fyrir því að reyna að stöðva þetta og þá fara mál að ber- ast. Ég held að ég skrökvi engu þegar ég segi að það sé heldur meira um það að sjómenn gefi upplýsingar um kvóta- brask og þá í ljósi þess að sjávarút- vegsráðherra hefur opnað á að fram fari opinber rannsókn á þeim málum sem við fáum. Ég veit að það eru ýmis mál í skoðun og ráðuneytið hefur haft samband við sýslumenn á viðkomandi stöðum. Það er hinsvegar engin niður- staða komin í neinu þeirra." -Eiga sjómenn ekki enn á hœttu að verða reknir úr plássi ef þeir upplýsa um kvótabrask? „Jú,jú, það hefur ekkert breyst. Það sem hefur þó breyst er að mönnum finnst mæhrinn vera orðinn fullur. Þá eru sumir sjómenn hreinlega farnir að hugsa í þá veru að það verði þá bara að hafa það. Enda er atvinnuástandið heldur að batna þannig að menn geta frekar leyft sér það núna en verið hef- ur á undanförnum árum.“ -Er ekki alltaf einhver stokkur af sjómönnum á atvinnuleysiskrá? „Ég er auðvitað ekki inni í atvinnu- leysiskránum sem slíkum. En ég verð ekki var við mikið atvinnuleysi hjá sjó- mönnum og svo hefur verið á undan- förnum árum. Almennt hefur atvinnu- leysið heldur lagast með umræðum um álver og fleiru og fleiru. Eftir því sem atvinnuástandið lagast hjá öðrum þá geta menn farið í annað ef þeim er sagt að pilla sig í land.“ -Telja menn ekki að hœgt sé að upprœta kvótabraskið ef allur afli fer á markað? „Það er ekkert vafamál því það er buhandi samhengi þar á milli. Við er- um búnir að vinna tvö mál fyrir Hæsta- rétti þar sem það var dæmt ólöglegt að draga frá í kvótakaup af afla sem seld- ur var á markaði. Eftir þetta hefur tonn á móti tonni aftur á móti færst í aukana.“ -Er eitthvað hæft í því að þú hafir opnað á stuðning við veiðileyfagjald, að því skilyrtu að allur afli væri kom- inn á markað, á fundi með jafnaðar- mönnum um sl. helgi „Nei, það er rangt. Ég sagði við Jón Baldvin á þessum fundi að við værum að borga auðlindaskatt til handhafa veiðileyfa í núverandi verðmyndimar- kerfi. Það er því ekki inm myndinni að borga auðhndagjald bæði til útvegs- manna og eigenda auðlindarinnar. Ég sagði jafnframt að þeim skilyrðum uppfylltum að verðmyndunarmálin og kvótabraskið væru út úr myndinni með öllu, þá mætti hann ræða við mig um hugsanlegt auðlindagjald. Þannig var mitt svar því ég passaði mig mikið á orðalaginu. Ég opnaði því ekki á neitt auðlindagjald,“ segir Sævar Gunnars- son formaður Sjómannasambands ís- lands. -grh

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.