Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.02.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 13.02.1997, Blaðsíða 4
4 - Fimmtudagur 13. febrúar 1997 Jlagur-'CCútTmn Hólmavík Sjávarútvegur Sorpi ekið til Reykjavíkur Hollustuvernd ríkisins leyfði ekki lengur notkun á sorphaug- unum. Miklar breytingar urðu á síðasta ári á hirðingu og eyðingu sorps á Hólmavík. Sorphaugum í landi Skeljavíkur var lokað og komið upp flokkunarstað fyrir spilli- efni og endurnýtanlegan úr- gang. Samið var við verktaka um hirðingu óflokkaðs sorps og flutning þess í Sorpu í Reykja- vík. Ástæða þessara breytinga var sú að Hollustuvernd ríkisins leyfði ekki lengur notkun á sorphaugunum, enda ekki hægt að hindra að mengandi efni bærust út í andrúmsloftið og jarðveginn. Nýr og fullkominn urðunarstaður kostar mikið fé, og framkvæmdir því taldar óhagkvæmar. Öllum spilliefnum skal skilað á flokkunarstað við „gamla pakkhúsið" og sorp frá sveitabæjum austan Stein- grímsfjarðar er tekið hálfsmán- aðarlega en vestan megin er hægt að losa sorp í gám við Hvannadalsá. GG F R ING Þjóöhátíðarbúningur „Páskastoppið“ eftir páska Sjávarútvegsráðuneytið hef- ur að tillögu Hafrann- sóknastofnunar gefið út reglugerð um friðun hrygning- arþorsks á vetrarvertíð 1997. Samkvæmt því eru allar veiðar óheimilar á tímabilinu 8. apríl til 23. apríl 1997 fyrir Suður- og Vesturlandi á svæði sem að austan markast af línu sem dregin er réttvísandi í austur frá Stokksnesi og að vestan af h'nu sem dregin er réttvísandi 250 gráður frá Skorarvita á Rauðasandi. Veiðibannið tekur gildi 6 sólarhringum síðar en var á árinu 1996, en stendur jafn lengi. Auk þess eru veiðar óheimilar á sama tíma innan þriggja sjómflna fjarlægðar frá íjörumarki meginlandsins fyrir Norður- og Austurlandi frá línu réttvísandi norður frá Horni að línu réttvísandi í austur frá Stokksnesi. Aðeins svæðið fyrir Vestfjörðum frá Horni suður að Bjargtöngum er því undanskilið friðun. Þrátt fyrir ofangreint bann eru grásleppuveiðar, innfjarð- arrækjuveiðar, hörpudiskveiðar og ígulkeraveiðar heimilar þeim sem tilskilin leyfi hafa auk rauðmagaveiði á vissum svæð- um á innanverðum Faxaflóa. GG Bæjarhreppur Sameinin garvi ðr æð - ur án skuldbindinga Hreppsnefnd Bæjar- hrepps var boðið til við- ræðna af Húnvetning- um og rétt þótti að þiggja boðið vegna margháttaðs samstarfs sveitarfélaganna. Samstarf Bæjarhrepps við hreppana í Vestur-Húna- vatnssýslu hefur verið mjög mikið undanfarin ár og því var það að forsvarsmönnum Bæjar- hrepps var boðið til viðræðna við Húnvetninga um hugsanlega sameiningu hreppanna í eitt sveitarfélag. Helstu hnökrar á því eru þeir að Bæjarhreppur er ekki í sama kjördæmi. Guðjón Ólafsson á Valdasteinsstöðum, oddviti Bæjarhrepps, segir það ekki rétt að meirihluti hrepps- nefndar Bæjarhrepps hafi verið fylgjandi sameiningunni, á því hafi ekki farið fram nein könn- un, en rétt hafi þótt að ræða við forsvarsmenn hreppanna í Vest- ur-Húnavatnssýslu án allra skuldbindinga. Það séu svo að sjálfsögðu íbúar Bæjarhrepps sem eigi síðasta orðið í almennri atkvæðagreiðslu. Guðjón segist ekki tilbxíinn að greiða atkvæði strax um kosti eða galla samein- ingar, hann vilji sjá fleiri kosti og hvað sameining færi íbúum Bæj- arhrepps umfram það sem þeir hafl í dag. í viðræðunefnd á veg- um Bæjarhrepps hafa verið þeir Ragnar Pálmason og Sveinbjöm Jónsson. Næstu skrefin eru fundir í þeim þremur nefndum sem skipaðar hafa verið, þ.e. nefndir sem fjalla um skólamál, ijármál sveitarfélaganna og fjallskila- og afréttarmál. GG Þorlákshöfn Tvö vinnuslys á nokkrum dögum Vinnuslys varð í fiskimjöls- verksmiðju Hafnarmjöls í Þorlákshöfn á þriðjudag. Járnplata féll ofan á mann sem þar var við vinnu - og varð að flytja hann á slysadeild. Lögregla á Selfossi gat ekki gefið frekari upplýsingar um áverka mannsins. Þetta er ann- að slysið sem verður á fáum dögum í þessari verksmiðju, sem tók til starfa fyrir fáum dögum, en um helgina slasaðist maður mikið þegar hann lenti með hendina í snigli. -sbs.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.