Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Qupperneq 5
3Dagur-®mmm
Föstudagur 14. febrúar 1997 - 5
Hnífsdaiur í - . S Dalvík
Utlendingar um 20-25%
vinnuafls í Hnífsdal
Nýjum atvinnuleyfum
fjölgaði um 90% í
fyrra. Þar af voru um
40 veitt til Hnífsdals
þar sem vinnuafl er í
kringum 160 manns.
Véruleg (90%) fjölgun
nýrra atvinnuleyfa „end-
urspeglar betra gengi
landsmanna í efnahags- og at-
vinnumálum sem skapaði stór-
aukna eftirspurn eftir erlendum
starfsmönnum", segir í yfirliti
frá félagsmálaráðuneytinu.
Útlendingar voru ótrúlega
stórt hlutfall vinnuaflsins á
nokkrum stöðum á landinu í
fyrra. Er þá miðað við fjölda
veittra atvinnuleyfa í hlutfalli
við fbúafjölda, en vinnuafl er
jafnaðarlega kringum helming-
ur af fólksíjölda. T.d. voru 40
atvinnuleyfi veitt til Hnífsdals,
þar sem 315 manns búa. Fjöldi
útlendinga hefur þannig sam-
svarað 12-13% heimamanna og
allt að fjórðungi vinnandi fólks í
Hmfsdal. Erlent vinnuafl hefur
verið litlu lægra hlutfall á Flat-
eyri og líka mjög hátt á Tálkna-
firði og Bolungarvík. Veittum
atvinnuleyfum til Vestfjarða
fjölgaði um 80% á síðasta ári, í
um 180 leyfi, sem gæti svarað
til allt að 4% alls vinnuafls í
kjördæminu. Erlent vinnuafl
hefur líka verið mjög hátt hlut-
fall, eða allt að 10%, á Stöðvar-
firði og á Þórshöfn.
Ný tímabundin atvinnuleyfi
(til allt að eins árs) voru veitt
fyrir rúmfega 690 manns á síð-
asta ári, næstum tvöfalt fleiri
en árið áður. Um 70 þeirra, auk
255 annarra fengu síðan fram-
lengd leyfi (í allt að 2 ár). Um
950 einstaklingar fengu þannig
tímabundin atvinnuleyfi á ár-
inu. Tæplega helmingur nýrra
leyfa var vegna fiskvinnslu, nær
50 voru málmiðnaðarmenn og
rúmlega 40 þjálfarar/leikmenn.
Enn eru þó ótaldir EES-borgar-
ar sem ekki þurfa lengur at-
vinnuleyfi hér á landi, en árið
1994 voru t.d. rúmlega 150 at-
vinnuleyfí veitt fólki frá EES-
löndum. Óbundin atvinnuleyfi,
sem fólk getur sótt um eftir
þriggja ára dvöl í landinu, voru
veitt rúmlega 150 manns í
fyrra.
Pólverjar voru langflestir,
nærri 400, þeirra sem fengu
tímabundin atvinnuleyfi, Fil-
ippseyingar rúmlega 100,
Bandaríkjamenn 75 og Tælend-
ingar tæplega 50. Frá Rúss-
landi, Júgóslavíu, Kanada,
Kína, Marokkó og Rúmeníu
voru 15-35 manns.
Þess má að lokum geta að
rúmlega 6.000 manns voru að
jafnaði á atvinnuleysiskrám á
íslandi á síðasta ári.
Beðið veðurs
Togarar Snorra Snorrasonar,
útgerðarmanns á Dalvík,
hafa legið við bryggju síðan um
áramót. Lfklegt er að skipin fari
á veiðar innan tíðar, en vegna
slæms veðurs á Flæmingja-
grunni hefur ekki verið talið
ráðlegt að senda skipin þangað,
a.m.k. í bili. Hvorugt skipið hef-
ur kvóta í íslensku fiskveiðilög-
sögunni. Möguleikar hafa verið
á því að skrá annað eða bæði
skipin í Frakklandi og veiða
franskan kvóta á Flæmingja-
grunni. Snorri Snorrason segir
að líkur á útflöggun til Frakk-
lands fari þverrandi. GG
A myndinni eru togararnir, Dalborg og Arnarborg, við bryggju á Dalvík, en í forgrunni siglir rækjubáturinn Stefán
Rögnvaldsson EA-345 inn eftir rækjutúr í Eyjafjarðarál. M,nd: c
Flugfélag íslands hf.
Flugmenn farnir
að skoða stöðuna
Flugfreyjur vita
nánast ekkert hvað
bíður þeirra hjá
nýju fyrirtæki.
Trúnaðarráð Félags ís-
lenskra atvinnuflug-
manna hélt fund í
gærkvöld um framtíðina í
innanlandsflugi með stofn-
un Flugfélags íslands hf. á
dögunum. Margt er á huldu
um framtíð flugstéttanna
þegar innanlandsflugið
hverfur frá Flugleiðum til
hins nýja fyrirtækis. Flug-
menn vita lítið hvað er
framundan, og flugfreyjur
enn minna.
Björn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri FÍA,
sagði í gær að menn væru
að reyna að átta sig á stöð-
unni. „Það er ekki hægt að
tala um neina ánægju í okk-
ar röðum út af fyrir sig, né
heldur óánægju, en hvort
slíkt verður skal ósagt látið.
Það á í rauninni eftir að
ganga frá hverjum einasta
hnút sem hægt er að hugsa
sér, þetta hefði átt að gerast
á síðasta ári,“ sagði Björn í
gær.
Björn sagði að flest væri
ófrágengið um tilflutning
flugmanna úr innanlands-
flugi í utanlandsflug. Þó
sagði Björn að ráðgert væri
að allir flugmenn sem nú
starfa í innanlandsflugi
Flugleiða, verði komnir í
millilandaflugið árið 1999.
Erla Hatlemark, formað-
ur Flugfreyjufélags íslands,
sagði í gær að flugfreyjur
vissu lítið meira um fram-
tíðina en aðrir, hefðu allt
sitt úr dagblaðafréttum.
Hún sagði að beðið væri eft-
ir nánari upplýsingum frá
Flugfélagi íslands hf. -JBP
Ðarnavernd
Sveitarfélögin svara
ekki Umboðsmanni bama
Nefnd á vegum Sam-
einuðu þjóðanna hef-
ur áhyggjur af rétt-
indum barna hér á
landi, en Umboðs-
maður barna fær litl-
ar undirtektir sveitar-
félaga.
Islensk sveitarfélög virðast
ekki barnvinsamleg að mati
nefndar Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi barnsins. Hún
hefur lýst áhyggjum af íslandi.
Þetta kom fram á fundi fulltrúa
íslenkskra stjórnvalda með
nefndinni í Genf fyrir riímu ári.
Umboðsmaður barna hefur gert
tilraun til að fylgja málinu eftir,
en ekki fengið miklar undirtekt-
ir.
Helstu áhyggjuefni: 1) Mis-
munur í fjárveitingum til vernd-
ar og velferðar barna eftir
stjórnsýslusvæðum getiu- leitt til
mismunar hvað snertir mennt-
un og umönnun eftir skólatíma.
2) Langur vinnutími foreldra og
stutt viðvera barna með fjöl-
skyldum sínum ásamt því að
ekki hafa verið gerðar nægileg-
ar ráðstafanir til að koma í veg
fyrir að börn séu ein heima. 3)
Þá er dagvistunarrými áhyggju-
efni, segir nefndin. Hún mælist
til að tryggðar verði fjárveiting-
ar að því marki sem framast er
unnt samkvæmt samningnum
sem ísland undirritaði, og við-
urkennt að börn í mismunandi
landshlutum þurfi að njóta
sambærilegrar þjónustu og
börn í þéttbýli.
Engin áhugi?
Umboðsmaðiu- barna fær treg
svör við fyrirspurnum til sveit-
arfélaga landsins um upplýs-
ingar um það hversu háu hlut-
falli af heildarfjárveitingum ár-
in 1995 og 1996 hafi verið varið
til verkefna í þágu bama og
ungmenna. Fyrirspurnin er
send í til-
efni af
áhyggjum
nefndar
Samein-
uðu þjóð-
anna um
réttindi
barnsins
hér á
landi.
„Upp-
haflega
skoraði
ég á öll sveitarfélög í nóvember
1995 að láta verkefni varðandi
börn og ungmenni njóta raun-
verulegs forgangs í fjárhags-
áætlunum og hvatti þau til að
hafa hagsmuni barna og ung-
menna að leiðarljósi," sagði
Þórhildur Líndal, Umboðsmað-
ur barna, í samtali við Dag-
Túnann.
Ári síðar, eftir að ljóst var að
ákaflega lítið hafði gerst, ákvað
Umboðsmaður barna að senda
annað bréf og óskaði eftir því
við Samband íslenskra sveitar-
félaga að hafa milhgöngu við
sveitarfélögin. Sambandið
ákvað í desember að senda bréf
Umboðsmanns til sveitarfélaga
með þúsund íbúa og fleiri, en
gleymdi að senda með bréf Þór-
hildar Líndal með nánari skýr-
ingum.
Litlu sveitarfélögin
verst
„Ég er búin að fá svör frá 9
sveitarfélögum af 34 þannig að
þetta
gengur
ákaflega
hægt,“
sagði Þór-
hildur.
Meðal
sveitarfé-
laga sem
hafa nú
þegar
svarað
eru
Reykja-
vík, Akureyri, Mosfellsbær og
Akranes.
„Auðvitað hefði ég viljað fá
öll sveitarfélögin til að svara
spurningum mínum og það
kemur til greina að fara fram á
það. Einmitt í Utlu sveitarfélög-
unum getur aðstöðumunurinn
verið mestur," sagði Þórhildur
Líndal. -JBP
Þórhildur Líndal
umboðsmaður barna: „Ég er búin aðfá svörfrá 9 sveitarfé- lögum af34 þannig að þetta gengur ákaflega hœgt. “