Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Page 10

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Page 10
10 - Föstudagur 14. febrúar 1997 jOagin--<IImmm Skagadóm- arar í bikar úrslitum Gunnar Viðarsson og Sigur- geir Sveinsson, frá Akranesi munu dæma úrslitaleik karla í Bikarkeppni HSÍ, á milli Hauka og KA, sem fram fer í Laugar- dalshöllinni annan laugardag. Dómarar á úrslitaleiknum í kvennaflokki, sem er á milli Hauka og Vals, verða Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Jóhanns- son, sem eru frá Keflavík. Stefán og Rögnvald í Drammen Stefán Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson munu dæma síðari viðureign norska liðsins Dram- men og franska liðsins US Cret- eil í 8-liða úrslitunum í Borga- keppni Evrópu, sem fram fer í Noregi á sunnudaginn. Jafnt varð í fyrri leik liðanna, í Frakklandi, 24:24, og norska liðið er því heldur líklegra til að komast áfram. UM HELGINA HANDBOLTI 1. deild karla: Laugardagur ÍBV-ÍR kl. 16:30 1. deild kvenna: Laugardagur ÍBA-KR kl. 16:30 Fram-FH kl. 15:00 Fylkir-ÍBV kl. 14:30 2. deild karla: Föstudagur Þór-Ármann kl. 20:00 ÍH-KR kl. 20:00 Keflavík-Hörður kl. 20:30 KARFA Úrvalsdeildin Föstudagur ÍA-Tindastóll kl. 20 UMFN-KFÍ kl. 20 BLAK 1. deild karla: Föstudagur Þróttur N.-Stjaman kl. 20:00 Laugardagur ÍS-KA kl. 14:00 Þróttur N.-Stjaman kl. 15:30 1. deild kvenna: Föstudagur Þróttur N.-Víkingur kl. 21:30 Laugardagur Víkingur-Þróttur kl. 14:00 FRJÁLSAR Meistaramót íslands innanhúss í karla- og kvennaflokki verður haldið í Baldurshaga og í Kaplakrika um helgina. GLÍMA Bikarglíma íslands, sú 25. í röðinni, verður haldin að Laug- arvatni á morgun og hefst klukkan 14. Búist er við því að keppendur verði á annað hundrað talsins, en glímt verð- ur í ijórum flokkum karla og þremur flokkum kvenna. Glímd verður jafnaðarglíma með út- sláttarfyrirkomulagi. FIMLEIKAR Skrúfumótið hefst á morgun í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og lýkur á sunnudaginn. Það er Fimleikadeild Gróttu sem sér um framkvæmd mótsins. HANDBOLTI Jakobmeiddur KA-maðurinn Jakob Jóns- son, tognaði á úlnlið í leiknum gegn Val f fyrra- kvöld og hann fer því ekki með liðinu til Ungverjalands. Sömu sögu er að segja um Sverri Björnsson, sem enn er að ná sér eftir fingurbrot. Aðeins tólf leikmenn KA héldu til Reykjavíkur í gær, en flogið verður utan nú í morgunsárið. KA-menn verða síðan á ferðalagi í all- an dag, millilent verður í Amsterdam og þaðan liggur leiðin til Búdapest. Síðasti áfangi ferðarinnar, til Veszprém, verður með lang- ferðabfl, en búist er við því að hópurinn verði kominn þangað kl. 20 í kvöld að ungverskum tíma, eða kl. 19 að íslenskum tíma. KA- menn munu taka létta æf- ingu í höllinni í kvöld, en á morgun fá leikmenn liðsins sitt erfiðasta verkefni í Evr- ópukeppni til þessa. Búist er við því að allt að þrjú þúsund áhorfendur fylgist með leiknum, sem einnig verður sýndur beinni útsendingu á ungversku einkastöðinni Duna. Islensk- ir sjónvarpsáhorfendur eiga þess kost að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Ríkissjónvarpinu og hefst útsendingin klukkan 14. Naumt Ir/á KR leiknum og við það virtist sein Þórsarar misstu sjálfstraustið. Það bætti síðan ekki stöðuna hjá Þór að Bandaríkjamaðurinn í liðinu, Fred Williams fékk sína fjórðu villu í upphaíi hálfleiks- ins. Ilann varð síðan að yflrgefa völlinn átta mínútum fyrir leikslok. Shawn Smith skoraði 23 stig fyrir Hauka og Pétur Ingvars- son var með 15 stig. Williams var með 21 stig fyrir Þór, Kon- ráð Óskarsson gerði 14 stig og Hafsteinn Lúðvíksson 12. Grindavíkursigur aegn ÍR IR-ingar réðu leiknum í Grinda- vík frá fyrstu minútu til leik- hlés, en þá höfðu ÍR- ingar for- ystuna 38:52. Sú forysta dugði ÍR skammt, því það tók heima- Iiðið aðeins tvær og hálfa mín- útu af síðari hálfleiknum, til að jafna metin. Eiríkur Önundar- son, sem skoraði nítján stig fyrir ÍR í fyrri hálfleiknum, náði sér ekki á strik í síðari hálfleik og Tito Baker gat sig lítið hreyft úr góðri gæslu Péturs Guð- mundssonar. Grindvíkingar litu hins vegar aidrei um öxl og innþyrtu öruggan sigur. Herman Mayers átti stórleik og skoraði 33 stig fyrir Grindavík. Eggert Garðarsson skoraði 22 stig fyrir ÍR og var þeirra besti maður. gg/gþö/fe Úrslit í úrvalsdeildinni í gærkvöld: Grindavík-ÍR 90:74 KR-Skallagrímur 78:77 Breiðablik-Keflavík 71:111 Haukar-Þór 88:65 Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, met ur möguleika ís- lensku liðanna á að komast áfram í Evr- ópukeppninni. Morgundagurinn er sann- kallaður Evrópudagur hjá KA og Stjörnunni, en þá fara fram síðari leikir lið- anna í 8-liða úrslitum Evrópu- mótanna í handknattleik. Liðin hafa aldrei náð jafn langt á Evr- ópumótum eins og í ár, en sú þraut að vinna sér sæti í undan- úrslitum keppninnar reynist ör- ugglega erfið fyrir bæði hðin, sem eiga útileiki fyrir höndum. KA leikur gegn ungverska liðinu Fotex Veszprém í Evrópukeppni bikarahafa klukkan 14 að ís- lenskum tíma, og þremur tímum síðar leikur Stjarnan síðari leik sinn í EHF-keppninni gegn spánska liðinu Academica Vigo. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálf- ari, var fenginn til að meta möguleika íslensku liðanna á sæti í undanúrslitunum. Öflug vörn lykilatriði „KA-menn þurfa að ghma við gífurlega erfitt verkefni, því þetta ungverska lið hefur mikla hefð á bak við sig í Evrópu- keppni og hefur meðal annars orðið Evrópumeistari. Það var nánast engin vörn hjá KA í fyrri leik Uðanna og það er algjört lykilatriði að spila góðan varn- arleik ytra. Ef ég þekki Alfreð Gíslason, þjálfara KA, rétt þá er Sergei Ziza leikmaður KA í baráttunni við Zoltán Vergendi hjá Fotex Veszprém, í fyrri leik liðanna um síðustu helgi. Myn&.jHF hann örugglega mjög óánægður með þennan þátt og kemur til með að leggja mikla áherslu á hann,“ segir Þorbjörn. „Annað atriði, sem skiptir miklu máli fyrir KA-menn er að halda hraðanum niðri, KA- liðið er mikið sóknarlið og hættir til að ljúka sóknum sínum á stutt- um tíma.“ Þorbjörn sagðist búast við því að maður yrði settur til höfðs Róberti Julian Duranona, þegar KA-hðið væri í sókn. „Hann er lykilmaður í sókninni og gefur margar sendingar á Leó Örn á línunni. KA-menn mega búast við því að hann verði tekinn úr umferð frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði Þorbjörn. Hann taldi að erfiðir leikir að undanförnu hjá KA, ættu ekki að hafa áhrif á leik liðsins á morg- un og heldur ekki tapið gegn Valsmönnum í fyrrakvöld. „Það er mín reynsla, að þeir leikir sem eru að baki fylgja mönnum ekki í Evrópukeppninni." Spænsk liö eru miklu sterkari á heimavelli „Spænsk lið er gífurlega sterk á heimavelli. Það er eins og um tvö óhk lið sé að ræða, eftir því hvort maður mætir þeim á heima- eða útivelli. Stjarnan fékk góð tækifæri í heimaleikn- um, en spilaði þá lokakaflann óskynsamlega og náði ekki að „dempa“ sig niður. Möguleikar Stjörnunnar eru kannski ekki mikhr á að komast áfram, en þeir felast í því að þeir nái að halda leiknum mjög mikið niðri og spila eins fáar sóknir og hægt er,“ sagði Þorbjörn. Hann sagði að Stjörnumenn mættu búast við því að Valdimar Grímsson, yrði tekinn úr umferð allan leikinn, því það þafi gefist Vigo-mönnum mjög vel í leiknum í Garðabæn- um um síðustu helgi. Hafsteinn Lúðvíksson og félagar hjá Þór stóðu upp í hárinu á Haukunum í fyrri hálfleik í leik liðanna, en í þeim síðari voru það Hafnfirðingarnir sem gáfu tóninn. Myn& jhf KR-ingar, sem lapað höfðu þremur leikjum í röð unnu nauman sigur á Skallagrími, þegar liðin mætt- ust í íþróttahúsinu á Seltjarnar- nesi í gærkvöld. Liðin skiptust á forystunni nær allan leik- tímann, en KR-ingar höfðu þó frumkvæðið á lokamínútunum. Skallagrímur náði að minnka muninn í 78:77 með körfu Tómasar Holton tólf sekúndum fyrir leikslok, en KR-ingum tókst að halda boltanum út leik- tímann og innbyrða dýrmætan sigur í baráttunni um sæti í úr- slitakeppninni. Jonathan Bow skoraði 21 stig fyrir KR, en Joe Rhett var stigahæstur gestanna með 18 stig. Þórsarar veittu Hauk- um viðnám fyrir hlé Þórsarar veittu Haukaliðinu kröftuga mótspyrnu og voru sterkari aðilinn framan af leiknum. Gestirnir spiluðu sterkan varnarleik og höfðu um tíma ellefu stiga forskot í fyrri hálfleiknum, en sá munur var kominn niður í tvö stig í leik- hléi, 36:38. Haukarnir spiluðu stífa pressuvörn í síðari hálf- HANDBOLTI íslensku liðin verða að ItaUa hraðanum niðri KARFA • Úrvalsdeild

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.