Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.02.1997, Side 11
®agur-®tmirat
Föstudagur 14. febrúar 1997 -11
URVALS GOLFFERÐ
Ferðaskrifstofan Úrval- Útsýn
er nú í fyrsta sinn að
skipuleggja golfferð fyrir Úr-
vals-fólk, en það er félagsskap-
ur fólks sem er 60 ára og eldra.
Gömul teikning af Sigga Hafsteins,
teiknuð á Akureyri um 1980. Teikn-
ing R.Lár.
Hópurinn telur nú um ijögur
þúsund félaga. Til þess að
ganga í klúbbinn þarf aðeins að
koma við hjá umboðum Úrvals
Útsýnar, eða hringja og láta
skrá sig.
Níunda til nítjánda apríl
verða golfferðir fyrir Úrvals-
fólk til Algarve í Portúgal og Isl-
antilla á Spáni.
SIGGI HAFSTEINS
FARARSTJÓRI
Hinn landskunni kylfingur Sig-
urður Hafsteinsson hefur verið
ráðinn umsjónarmaður Úrvals-
kylfinga og verður hann farar-
stjóri Úrvals golfferðarinnar til
Islantilla. Peir sem hafa áhuga
ættu að hafa samband við golf-
deild Úrvals Útsýnar í síma
5699300, eða tala við Sigga í
síma 5872221.
iYV H.>>>” r
meeoRo dinm^Kv
Gamla myndin
Þessi mynd er tekin fyrir mörgum árum (og hárum), en hún sýnir fyrsta unglingalandslið íslands í golfi árið 1973.
Myndin er tekin í Siikiborg í Danmörku en þar fór fram þrettánda Evrópumeistaramót unglinga í golfi. Á myndinni
eru þessir, talið frá vinstri: Kjartan L. Pálsson fararstjóri, Loftur Ólafsson, Jóhann Ó. Guðmundsson, Björgvin
Þorsteinsson, Hannes Þorsteinsson, Ólafur Skúlason, Óskar Sæmundsson og Konráð Bjarnason fararstjóri og
síðar forseti Golfsambands íslands.
VERÐLAUNAHAFAR
■ 'f / ■' '■ >.'■'■■*.
Verðlaunahafarnir í SL-golfmótinu í Thailandi í janúar sl. taldir frá vinstri í fremri röð: Bergsveinn, Agnes, Þuríður
og Emilía. Aftari röð: Hafsteinn, Ólafur A., Hallgrrmur, Símon, Sigurjón og Sigurður.
Afmælismót
Sjonna
Stöðugt ijölgar þeim íslending-
um sem leggja leið sína til Thai-
lands yfir vetrarmánuðina og
njóta þess að leika golf á glæsi-
legum golfvöllum landsins.
Sumir fara þarna austur á
hverjum vetri til lengri eða
skemmri dvalar.
Eins og gefur að skilja kostar
það sitt að fljúga svo langa leið,
en á móti kemur að vallargjöld
eru ódýr, sem og uppihald.
Samvinnuferðir Landsýn gerði
sérstaka golfferð austur á bóg-
inn í janúar og var Kjartan L.
Pálsson fararstjóri, en hann er
manna reyndastur í golffarar-
stjórn. Einn af ferðalöngunum
var Sigurjón R. Gíslason GK,
landskunnur kylfingur og
landsliðsmaður í golfi í eldri og
yngri ílokkum. Sigurjón, eða
Sjonni eins og hann er nefndur
meðal kylfinga varð sextugur í
ferðinni og því var haldið sér-
stakt afmælismót honum til
heiðurs. Mótið fór fram á La-
emchbang golfvellinum og tóku
30 kylfingar þátt. Keppt var
með fullri forgjöf og punktafyr-
irkomulagi. Ilelstu úrslit urðu
þessi:
Karlar:
Elías I>. Magnússon GK 37
Jóhannes Jónsson GR 36
Jóhann Reynisson NK 36
Konur:
Suphit Donkanha NK 30
Agnes Sigþórsdóttir GR 26
Þuríður Sölvadóttir GR 26
Þess má geta til gamans að
Suphit er thailensk, en hefur
búið á íslandi í nokkur ár. Hún
hóf að leika golf á sl. ári á Nes-
vellinum, en þetta var í fyrsta
sinn sem hún lék í heimalandi
sínu.
SL-GOLFMÓT
ÍTHAILANDI
Aðalgolfmótið í ferð Samvinnu-
ferða Landsýnar til Thailands var
haldið um sl. mánaðamót á Laem
Chabang golfvellinum. Leiknar
voru 18 holur með og án forgjafar
og urðu úrslit sem hér segir:
Konur með forgjöf:
Agnes Sigþórsdóttir GR 81
Puríður Sölvadóttir GR 87
Emilía Gústafsdóttir GEG 93
Karlar með forgjöf:
Símon Sturluson GMO 73
Sigurður Ananíasson GEG 75
Ólafur A. Ólafsson NK 75
Karlar án forgjafar:
Hallgrímur Júlíusson GV 85
Sigurjón R. Gíslason GK 90
Bergsveinn Alfonsson GR 90
Ómar Dagbjartsson GBO 92
GOLFTÍMINN
umsjónarmaður:
RagnarLár
sími og fax
557 6516
Þrír fastagestir í golfparadísinni Thailandi. Þessir félagar hafa farið til
Thailands árlega síðastliðin 5 til 7 ár og una sér vel. Þeir fara utan fyrir jól
og eru í Thailandi í tvo til þrjá mánuði og leika golf fimm til sex daga vik-
unnar. Félagarnir eru taldir frá vinstri: Jóhann Reynisson, Björn Kristjáns-
son og Kristinn Helgason.
Golfreglan
Hér hefur Boggi púttað án
þess að stöngin hafi verið
ijarlægð að ráði. Eins og
sjá má hittir hann ekki í
holuna, en hann hittir þess
í stað í flaggstöngina. Sé
Boggi í holukeppni hefur
hann tapað holunni, en sé
liann í höggleik hlýtur
hann tvö vítishögg og verð-
ur að leika boltanum þar
sem hann liggur.