Dagur - Tíminn Reykjavík - 08.03.1997, Blaðsíða 2
2 - Laugardagur 8. mars 1997
^Dbtgar-'Súrtmn
Útvarpsráð
Öryggið á oddinn
„Grínið um Bjöm
var ekkert fyndið“
Ritstjóri Dagijóss tekur undir athugasemdir Útvarpsráðs um að ósmekk-
legt grín um menntamálaráðherra gæti hafa misskilist. „Mér fannst þetta
ekkert fyndið, og út úr korti,“ segir formaður Útvarpsráðs.
Heiti Potturinn
Ingibjörg Sólrún blés í her-
lúðra sinnar sveitar á fundi
á þriðjudaginn; áhyggjuleysi
einkenndi umræður enda telja
menn skoðanakönnun vik-
unnar, sem sýnir D-lista með
ómarktækaforystu, hið besta
mál. „Afrekaskrá Reykja-
víkurlistans er best geymda
leyndarmál borgarinnar,"
sagði einhver á fundinum, og
ræður borgarfulltrúa bentu til
þess að í kosningabaráttunni
yrði af nógu að taka. Ham-
ingjan var innsigluð yfir ölglasi
með borgarstjóra á Ara í Ögri.
Arni er að styrkja stöðu
sína innan Sjálfstæðis-
flokksins - vona Reykajvíkur-
listamenn sem hvísla um
skoðanakönnun um hvort
þeirra Ingibjargar Sólrúnar
borgarbúar treysti betur í hið
háa embætti.
Stjarna Sólrúnar rís ennþá
hærra nú en í könnun sem
gerð var mánuði fyrir síðustu
kosningar - samkvæmt enn-
þá óbirtri könnun. Menn
reikna dæmið svona: borgar-
búar eru búnir að gera í eitt
skipti fyrir öll upp við sig
hvort þeir vilji frekar hana eða
Árna.
Heildsali í pottinum hélt
þvf fram að áfengis-
smygl væri miklu meira en
upp hefur komist um. Tölur
Ríkisins og Hagstofunnar um
vodkadrykkju sýndu helmings
samdrátt hennar, sem fengi
ekki staðist. Óhemju smygl
væri í gangi og vitað væri að
gámur af Jenkins-vodka fram
hjá tolli, hefði viðgengist viku-
lega um alllangan tíma, gám-
ur eftir gám hefði farið í gegn.
Hjá veitingamönnum mætti
heyra að vodkadrykkja hefði
ekki minnkað hið minnsta...
Svanhildur Konráðsdóttir,
ritstjóri Dagljóss, kveðst að
sumu leyti geta tekið undir
þær athugasemdir sem Út-
varpsráð bókaði á fundi sínum
sl. mánudag. Þar er harmað
„dómgreindarleysi stjórnenda
Dagsljóss sem birtist lands-
mönnum í þættinum þann 17.
febrúar si. í umfjöllun um hag
námsmanna," einsog það er
orðað.
Mál þetta snýst um að áður-
nefndan dag fékk Stúdentaráð
Margréti Frímannsdóttur og
Hjálmar Árnason alþingsmenn
til að bregða sér í hlutverk
námsmanna dagstund. Björn
Bjarnason menntamálaráð-
herra hafnaði þáttöku. Því var
Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma fenginn til að bregða sér
í hans hlutverk.
„Þegar ég ákvað að um mál-
ið skyldi fjailað taldi ég að jafn-
ræði ríkti, m.a. með tilliti til að
fram komu bæði stjórnarþing-
maður og -andstæðingur. Hins-
vegar viðurkenni ég að þetta
gat skilist þannig að við ættum
beina aðild að því að Jóhannes
Kristjánsson var fenginn til að
herma eftir Birni Bjarnasyni.
Það var gert af Stúdentaráði,
sem skipulagði þessa uppá-
komu alfarið,“ segir Svanhildur.
Hún lítur ekki svo á að bók-
un Útvarpsráðs sé á neinn hátt
vantraust á stjórnendur Dags-
ljóss, heldur sé hún hluti af
skoðanaskiptum um efni fjöl-
miðla. Þau séu eðlileg, hvort
sem þau komi frá Útvarpsráði
eða fólki úti í bæ.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
formaður Stúdtentaráðs, kveðst
á engan hátt telja að aðför haíi
verið gerð að menntamálaráð-
herra þegar Jóhannes Krist-
jánsson hermdi eftir honum.
„Þeir sem standa í þrasi stjórn-
mála verða að þola gagnrýni,
þótt hún sé sett fram sem beitt
háðsádeila."
Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, formaður Útvarps-
ráðs, segir að sér hafi þótt um-
fjöllun Dagsljóss um tiltekið mál
fyrir neðan allar hellur. „Mér
fannst þetta ósmekklegt, ekkert
fyndið og út úr korti. Þetta var
daginn fyrir kosningar til Stúd-
entaráðs og ekki eðlilegt á þeim
tímapunkti að taka þá til um-
fjöllunar málefni stúdenta með
þeim hætti sem gert var. Þarna
brást Ríkisútvarpið hlutleysis-
skyldum," segir Gunnlaugur.
-sbs.
Vissara að
nota tvo
smokka í
einu?
Rannsóknir hafa sýnt að
möguleiki er á að hættuleg-
ar veirur, m.a. HIV, geta komist
í gegnum blauta gúmmíhanska,
sem engin göt eru á. Hefur því
verið mælt með því „að þeir
sem þurfa að vera með hanska
tímunum saman séu í tveim
pörum í einu,“ segir í Tímariti
hjúkrunarfræðinga, þar sem
sagt er frá þessum rannsókn-
um.
Þær hafa sýnt að breytingar,
sem fólk finni á gúmmíhönsk-
um við að vera í þeim (teyjast
og þykkna), orsakist af raka
sem smjúgi inn í latexefnið.
Þótt hættan á smitun gegnum
vota gúmmíhanska sé hverf-
andi, er samt mælt með að vera
í tvennum til öryggis.
Sömu lögmál og greint er frá
að framan ættu eins að eiga við
gúmmíverjur.
Landsvirkjun
Árshátíð
starfsmanna
á Akureyri
Starfsmenn Landsvirkjunar
halda árshátíð sína í fyrsta
skipti utan borgarmarka höfuð-
borgarsvæðisins í kvöld, og fer
árshátíðin fram í íþróttahöllinni
á Akureyri. Um 350 manns
taka þátt í hátíðinni og hefur
fólkið verið að drífa að síðan á
fimmtudag. Starfsmannafélagið
styrkir hátíðina og einnig fyrir-
tækið en ætla má að kostnaður
við hátíðina sé ekki undir 7
milljónum króna, þ.e. flug, gist-
ing og árshátíðin með öllu. Hjá
Landsvirkjun starfa um 270
manns. GG
VEÐUR O G FÆRÐ
Reykjavík
Sun Mán Þri Mið mm
SV5 S 4 SV4 SV4 SSA 3
SV4 V3 SV4 A2
Stykkishólmur
SSV6 SSV4 SV4 SV4 NA 3
SV5 VSV4 SV5 NA3
Bolungarvík
Blönduós__________
Sun Mán Þrí Mið mm
SSV4 S3 SV3 SV3 NA2
SV3 V1 SV3 ANA 2
____________________________________
Akureyri
SV4 VSV2 SV4 A2
Egilsstaðir
SSV4 S 3 VSV3 SSV3 SSV3
SV4 S 5 SV4 SSV4
Kirkjubæjarklaustur
Sun Mán Þri Mið m
.1
I0 —Li-J l-á.Z.LA o
SSV 5 SSA3 Slf'S SSV3 S3
VSV2 VSV2 SV2 S2
Stórhöfði
Sun Mán Þrí Mið m
k 1« ii 1
■5 iMii ib«»bsi ian—i 0
SV10 S 6 SV7 SVS S 6
VSV 6 VNV5 SV7 S 6
Línuritin sýna
íjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig,
súluritið 12
tíma úrkomu en
vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Sunnan stormur,
rigning og 5 til 7
stiga hiti víða um
landið framan af
degi, þó líklega
úrkomulítið á
Norðausturlandi.
Síðdegis snýst
vindur til lítið eitt
hægari
suðvestanáttar með
skúrum eða
slydduéljum um
sunnan- og
vestanvert landið og
kólnar heldur.
Færð á vegum
Flughálka og skafrenningur er á nær öllum vegum á Suður- og suðvesturlandi. Fært er um
Mosfellsheiði og Hellisheiði opnaðist um kl. 15.30. Fært er um aðalvegi á Snæfellsnesi og
í Dölum. Á lloltavörðuheiði er skafrenningur og nánast ófært fyrir litla bila. Djúpvegur
norðan Guðlaugsvíkur og SteingrímsQarðarheiði eru í þann mund að lokast vegna veðurs og
ófærðar. Á Norðurlandi er Öxnadalsheiði aðeins fær jeppum og stærri bílum. Á norðaustur-
landi og Austfjörðum eru allir aðalvegir færir.