Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Síða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 12.04.1997, Síða 6
Laugardagur 12. apríl 1997 - VI MINNINGARGREINAR iD:tgur-©mmn' Guðmundur Stefánsson Guðmundur Stefánsson fæddist að Hólkoti í Reykjadal í Suður-Þing- eyjarsýslu 1. apríl 1957. Hann andaðist á Grensásdeild l.apr- íl síðast liðinn, fertugur að aldri. Foreldrar hans eru Stef- án Þórisson vörubílstjóri og Gunnhildur Sigríður Guð- mundsdóttir húsmóðir. Systk- ini hans eru Aðalheiður f. 27. maí 1955 gift Sigurði V. Jónassyni og eiga þau tvö börn og eru búsett á Akureyri. Þórir f. 15.aprfl 1956 giftur Svan- hvíti Jóhannesdóttur og eiga þau fjögur börn og eru búsett á Húsavflc. Stefán f.24.nóvem- ber 1960 giftur Lovísu Leifs- dóttur og eiga þau fjögur börn og eru þau búsett í Mývatns- sveit. Olga Ásrún f.14. mars 1963 gift Sigurjóni B. Kristins- syni og eiga þau fjögur börn og eru búsett í Reykjavík. Gunnhildur f.22. aprfl 1964 í sambúð með Leifi Hallgríms- syni og eiga þau tvo syni og eru búsett í Mývatnssveit. Eftirlifandi eiginkona Guð- mundar er Hólmfríður Fann- dal Svavarsdóttir f.20 nóvem- ber 1961. Faðir hennar er Svavar Fanndal rafvélavirki giftur Sólbjörtu Gestsdóttur Móðir hennar var Kristbjörg Stefánsdóttir en hún lést 8.nóvember 1992. Eftirlifandi eiginmaður Kristbjargar er Ólafur Runólfsson. Börn Guð- mundar og Hólmfríðar eru: Kristbjörg Hildur f.l3.septem- ber 1983. Guðmundur Smári f.3.október 1990. Ólafur Freyr f.l. aprfl 1994. Guðmundur starfaði sem veghefilsstjóri hjá Vegagerð Ríkisins fyrstu starfsárin. í 14 ár starfaði hann hjá Isaga í Reykjavík sem bifreiðastjóri. Árið 1994 fluttust þau Guð- mundur og Hómfríður ásamt börnum búferlum til Freder- icia í Danmörku. Þar starfaði Guðmundur hjá Aga a/s Taulov fyrirtækinu. Þau fluttu síðan heim í janúar síðastliðn- um sökum heilsubrests Guð- mundar. Útför Guðmundar fór fram frá Laugarneskirkju mánu- daginn 7.aprfl k!.10:30 Elsku Gummi minn. Það er svo erfitt að hugsa fram í tímann og sjá bara fyrir sér tómarúm. Við sem ætluðum að eiga góð ár í Danmörku þar sem þú ætlaðir að fá tíma til að njóta fjölskyldulífsins með okk- ur. En allt fer öðruvísi en ætlað er. Ég verð að trúa því að Guð iiafi ætlað þér eitthvað enn mikilvægara en að vera hjá mér og litlu börnunum þínum sem sakna þín sárt. En við eigum fullt af yndislegum minningum um þig sem við geymum í hjört- um okkar og enginn fær tekið frá okkur. Ástin mín, ég vil að lokum þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur kennt mér og skilið eftir í huga mér. Guð geymi þig. . Þín Hólmfríður. Hver minning dýrmœt perla að liðnum lífsins degi hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér Þinn kœrleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gœfa var það öllum er fengu að kynnast þér (Ingibjörg Sig) Þá er þinni lífsgöngu lokið elsku Gummi minn og þú laus við allar þjáningar. Við minn- umst þín frá því er þú varst lítill drengur og fram til þess dags er þú kvaddir þetta líf. Við fengum að hafa þig í 40 ár og við minnumst allra okkar sam- verustunda og söknuður okkar er mikill. Þú varst alltaf boðinn og búinn að hjálpa okkur og gjöra alla tilveruna svo bjarta og fagra. Samband okkar var alltaf svo gott, hvar sem þú varst, á íslandi eða í Dan- mörku. Við minnumst ánægju- stunda við Hólkotstjörn í sól og bh'ðu og spriklandi silung í neti sem síðan var borðaður með mikilli ánægju í eldhúsinu heima á Hólkoti. Þú gjörðir alla hluti svo vel og samviskusam- lega. Við þökkum það að við fengum að vera hjá þér er þú kvaddir þetta líf og fórst yfir á annað tilverustig og við vitum að þar hafa margir tekið vel á móti þér. Við biðjum góðan Guð að styrkja konuna þína og börnin ykkar og senda þeim sólargeisla á sorgarstund. Mamma og pabbi Aðeins Guð einn veit, hvenœr œviförinni lýkur hvenœr þurfum við að kveðja þennan heim því að augu hans sáu mig og þig áður en við vorum ómyndað efni voru œvidagar okkar ákveðnir og allir skrifaðir í lífsins bók áður en nokkur þeirra orðinn var til nú kveð ég þig minn yndislegi vinur bara um stund því seinna hittumst við á ný Ég hlakka til að hitta þig á himnum þar sem bæði þú og ég getum gengið sama veg Ég hlakka til að hitta þig á himnum þar sem saman getum við lyft upp höndum hlið við hlið þar við lofa munum Guð um alla eilifð (Olga Ásrún) Elsku Gummi, yndislegi bróðir minn og mágur. Nú er þín þrautarganga á enda og þú hefur kvatt þetta jarðneska Iíf. Það er yndislegt til þess að hugsa að nú hefur þú fengið nýjan dýrðalíkama á himnum og fengið að mæta frelsaranum þínum Jesú. Þegar við hugsum til baka þá eru minningarnar um þig fallegar og svo margar svo að vandi er að vinsa úr. Stóri systkinahóp- urinn heima á fallega æsku- heimilinu okkar brallaði margt sem ekki vissu mamma og pabbi og varst þú þar oft fremstur í flokki. Að stríða litlu systrum þínum fannst þér nú ekki leiðinlegt eða að láta þær þjóna þér á ýmsa vegu. Seinna meir þegar við uxum úr grasi urðum við svo jafningjar. Við minnumst þess þegar við flutt- um á ísafjörð langt í burtu frá öllum, hver var það þá sem fyrstur var mættur í heimsókn, nema þú, alltaf svo tryggur. Hver var það sem kom óbeðinn og hljálpaði okkur að standsetja íbúðina okkar í Mávahlíð 30, nema þú. Það var svo gaman að fá að fylgjast með því líka þegar fallega konan þín Hólmfríður kom inn í líf þitt og þið fóruð að búa og börnin fæddust eitt af öðru. Alltaf fylgdist þú líka með frændsystkynum þínum og alltaf þurfti Gummi frændi að fá koss þegar hann kom í heim- sókn frá litlum skvísum. Við minnumst þess hvað það var erfitt að sjá á eftir ykkur út til Danmerkur því það var svo tómlegt hér þegar þið voruð farin og langt á milli okkar þó svo við gleddumst innilega með ykkur að þora að taka þetta skref. Það er svo gott nú á þess- ari stundu að eiga allar þessar dýrmætu minningar um þig því þær lifa þótt þú sért farinn. Minningarnar um þig eru eins og fallegar perlur og við tökum eina í dag og aðra á morgun og skoðum. Ein dýrmætasta perlan er sú að við skyldum öll síðast liðið sumar geta komið saman og glaðst með mömmu og pabba á sextugsafmæli mömmu. Þá varst þú búninn að fara í þína fyrstu aðgerð og allt virtist á góðum batavegi. En sumt fer á annan veg en við ætlum sumir fá mörg ár en aðr- ir ekki, þú fékkst 40, og við þökkum Guði fyrir þau. Vertu sæll elsku bróðir og mágur, Guð blessi minningu þína. Elsku Hólmfríður, Kristbjörg Hildur, Guðmundur Smári, Óli Freyr , mamma og pabbi og aðrir aðstandendur. Megi friður Guðs sem er æðri öllum skiln- ingi varðveita hjörtu ykkar og hugsanir í Kristi Jesú. Olga Ásrún og Sigurjón Bergur Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hajðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. V. Briem. Elsku hjartans bróðir minn. Nú þegar tekur að vora með hækkandi sól sem glæðir allt nýju lífi, þá kólnar og dimmir í kringum okkur ástvini þína. Þitt líf hefur slokknað. Tíminn stendur kyrr. Allt er svo tómt og dapurlegt. Af hverju þú? Ég bara spyr en fæ ekkert svar. Þú sem varst svo góður og við náð- um alltaf svo vel saman. Það var svo gott að tala við þig, og þú hafðir alltaf brennandi áhuga á því hvernig gengi hjá mér. En ég verð að trúa því að þér hafi verið ætlað annað og meira hlutverk, og að nú líði þér vel. Ósjálfrátt lít ég til baka og riíja upp allar yndislegu stundirnar sem við áttum sam- an. Skýrastar eru æskuminn- ingar úr sveitinni okkar. Við ól- umst upp í stórum systkynahópi hjá yndislegum foreldrum. Við þrjú þessi elstu vorum fædd sitt á hvoru árinu og nánast eins og þríburar. Margt höfðum við brallað saman. Við vorum dug- leg að hjálpa til við bústörfin, og þegar við höfðum mjólkað allar kýrnar og rogast út með mjólkurbrúsana kepptumst við um það hvert okkar fengi að keyra mjólkina á dráttarvélar- pallinum til kælingar í læknum. í heyskapnum var það spurning hver fengi að snúa heyinu þennan eða hinn daginn. En allt var þetta gert í mesta bróð- erni og passað vel upp á það að ekki yrði á neinn hallað. Eða þegar við hlupum með berjaföt- urnar okkar og hvert og eitt kepptist við að finna gjöfulustu krækiberjaþúfuna og „PANTA“ hana. Þá mátti enginn tína ber- in á henni nema sá sem átti hana pantaða. Ég man líka eftir fínu sleðunum okkar sem pabbi smíðaði. Mikið vorum við stolt af þeim, og þær voru ófáar ferðirnar sem farnar voru niður Hólkotsbrekkurnar. Eða þegar við fundum gömlu ólaskautana sem amma og afi áttu. Það gekk nú ekki alltaf vel að festa þá á frekar smá stígvélaða fætur, því skautarnir voru svo langir. Seinna fengum við svo þessa fínu glænýju skauta með skóm og tönnum og þá gátum við nú gert alls konar listir (að eigin dómi). Og ekki vantaði svellið. Allt Vestmannsvatn eins og það lagði sig. Svona gæti ég haldið áfram lengi, en þá yrði ég seint búin. Draumurinn um það að prufa að flytja á erlenda grund rættist hjá ykkur á árinu 1994. Danmörk varð fyrir valinu. Mik- ið voruð þið bjartsýn og glöð á þessum tímamótum. Þarna virt- ist allt ætla að ganga upp, og fyrsta árið lék allt í lyndi. En það átti ekki fyrir ykkur að liggja að fá að njóta þess of lengi. Veikindastríð og sjúkra- húslegur settu mark sitt á síð- ara árið ykkar þarna úti, en alltaf varst þú jafn bjartsýnn og sýndir ekki merki þess að þú ætlaðir að gefast upp strax. Síð- astliðið sumar vorum við Hilda mín svo heppnar, að geta heim- sótt ykkur til Danmerkur og dvalið hjá ykkur í tvær vikur. Það var yndislegur tími, og nut- um við hans. Mikið var að gera hjá þér í vinnunni, þannig að þú gast ekki verið eins mikið með okkur og þú vildir, en tal- aðir um það að næst þegar ég kæmi skyldum við reyna að stilla okkur saman, þannig að þú yrðir í fríi. Nú er Ijóst að það verður að bíða betri tíma. Ekki datt mér í hug þá, að tveimur mánuðum síðar yrði ég komin til ykkar aftur. En þá grúfði skuggi veikindanna yfir á ný. Samt sem áður þakka ég fyrir að hafa getað verið svo nálægt ykkur. Það var alltaf jafn gott að koma til ykkar, og ófáar voru grillveislurnar hjá þér, aðallega heima á íslandi áður en þið fluttuð út. Þá var nú borðað vel, og eitt var það sem alls ekki mátti vanta. Það voru kartöfl- urnar. Það vita allir sem til þekkja, að okkar fólk er frægt fyrir kartöfluát. Gummi minn. Nú eru þetta allt góðar minningar sem ég geymi í huga mínum sem dýr- ustu perlur. Þær verða mér ljós í myrkrinu um ókomna tíð. Ég er viss um að ömmurnar og af- arnir okkar hafa tekið vel á móti þér og nú líður þér vel. Ég bil algóðan Guð að blessa og styrkja okkur öll, og þá sérstak- lega hana Hólmfríði þína og börnin ykkar þrjú. Elsku bróðir, hvíl þú í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín systir Alla. Liðin er ævi. Lokið er degi. Ég leitaði að orði, og fann það eigi. Leitaði að von, og leitaði að sögn. Leitaði að bœn, og fann aðeins þögn. Elsku hjartans Gummi bróð- ir. Það er erfiðara en orð fá lýst að þurfa að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Mér er það minnisstætt þegar við öll fjöl- skyldan hittumst s.l. vor í sex- tugsafmæli mömmu. Engan grunaði þá að aðeins tæpu ári seinna þá yrðir þú farinn frá okkur. Við sem eftir erum stöndum ráðþrota og spyrjum hvers vegna þú? Þú sem varst sameiningartákn fjölskyldunnar og alltaf sá sem varst fyrstur til að hafa samband. Það var ekki ósjaldan sem ég reyndi að vera á undan að hringja í þig, en það tókst ekki alltaf. En við verðum að trúa því að þér hafi verið ætlað meira og stærra hlutverk hjá Guði. Minningar liðinna ára hrannast upp en dýrmætastar eru þær mér frá þeim fjórum árum sem ég dvaldi hér í skóla. Alltaf varst þú boðinn og búinn til þess að hjálpa litlu systur þegar mig vantaði aðstoð, hvort sem var að flytja fyrir mig bú- slóðina eða keyra mig út og suður, og svo síðast en ekki síst, þú varst bara alltaf til staðar. Það er mér líka minnisstætt þegar ég kom í heimsókn til þín og þú fórst að spila á harmon- ikkuna þína. Þá fannst mér ég alltaf vera komin í huganum heim á æskustöðvarnar okkar og það væri pabbi sem væri að spila fyrir mig. Þau voru líka ekki ófá skiptin sem ég var boð- in til ykkar í mat og sérstaklega minnisstæð þegar svið voru í matinn. Þá borðuðum við vel og lengi og höfðum miklar kartöfl- ur með. Ég gæti endalaust hald- ið áfram að telja upp yndislegar samverustundir sem við áttum saman, en ég mun geyma þær í huga mínum og ylja mér við minningarnar í framtíðinni. Ég bið góðan Guð að styrkja okkur öll og gæta en þó sér- staklega hana Hólmfríði þína og elskulegu börnin ykkar þrjú og mömmu og pabba. Ég er þess fullviss að Krist- björg tengdamóðir þín og afar og ömmur taka á móti þér og umvefja þig örmum sínum. Mig langar að enda þessi minning- arorð á ljóði sem amma Ása hafði svo mikið dálæti á. Nú legg ég augun aftur, ó Guð þinn náðarkraftur, mín veri vörn í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Elsku Gummi ninn. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi minninguna um yndislegan bróður. Þín systir Gunna.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.